Vísir - 28.10.1970, Side 6
6
V ISIR . Miðvikudagur 28. október 1970.
„Opna skrifstofu í næstu viku"
— seqir forsfóðumaður hjónabandsmiðlunar
HJÚSKAPARMIÐLUN er tekin
til starfa í Reykjavík. Vísismenn
hittu að máli mann þann er fyr
ir henni stendur, og vildi hann
ekki láta nafns eða heimilis-
fangs getið, en svaraði fúslega
öllum okkar spurningum. „Ég
vinn tvöfalda vinnu, og sinni
þessu milli kl. 4 og 7 á kvöldin“,
sagöi maðurinn, „fólk hringir í
síma 10459, sem ég auglýsti í
Vísi um daginn og fær þar upp
gefið heimilisfang mitt.
Það hefur veriö svo mikið að
gera við að svara fyrirspumum,
að ég býst við að opna skrif-
stofu í næstu viku. Þetta er fylli
lega lögleg stofnun og mér geng
ur ekki annað thl, en kynna
fólk, karla og konur. Ég skrifa
niður nöfn manna, beimilisföng,
atvinnu, menntun. aldur og á-
hugamál. Síðan reyni ég að
finna handa þeim einhvern, karl,
ef um konu er að ræða — og
svo öfugt. sem ég álít hafa sam
svarandi áhugamál, eru á svip-
uðum aldri og af sams konar
þjóðfélagsstigum. Fólk greiðir
mér 1000 kr. fyrir að setja nafn
þess á lista hjá mér og þar
fær nafnið aö vera í 2 mánuði.
Á þessum tíma reyni ég að finna
einhvern heppilegan aðila handa
viðkomandi að kynnast. Ef ég
hef ekki kynnt hann eða hana
fyrir neinum eftir 2 mánuði, þá
endurgreiði ég 1000 krónumar."
Sagði maðurinn að hjúskapar
miðlun sín hefði starfað aðeins
í 4—5 daga og hefði mlkiM
fjöldi manna leitað til sín, marg
ir af fbrvitni, en þegar væri
hann kominn með á annan tug
nafna á lista hjá sér, „það er
fólk úr öllum stéttum og á aldr
inum 25—55 ára. Allt er þetta
heiðvirt fólk og í góðum efnfan“,
Sagði maðurinn einnig, að t=ann
kynnti aðeins fólk af gagnstæö
um kynjum, en ekki neina tvo
aðila af sama kyni, enda væri
það ekki löglegt. „Það er greini
lega grundvöllur hérlendis fyrir
slíka stofnun, þaö sé ég af þvi
hve margir hafa leitað hingð.
Sumt af því fólki sem er á lista
hjá mér er fólk sem hefur góða
menntun og vinnur þannig störf,
að ekki kemur til greina að það
sé einmana og félagalaust, held
ur segir það sjálft að sér finn-
ist heilbrigðara að kynnastihugs
anlegum maka á þessum grund-
velli, en rekast á hann á dans-
húsi eða sliíkum stöðum. Það er
og athyglisvert, að enginn
þeirra karla sem til mín hafa
leitað, setur það fyrir sig, þótt
konan sern ég kynni þá fyrir,
eigi böm.“ —GG
18.5 stiga frost niðri
við grasrót í Fossvogi
„Nú er frost á Frónl frýs í
æðum blóðgeta Iands-
menn kyrjað. í fyrrinótt var
frost og stillt veður um allt
land og búizt er við áfram-
haldandi frosti. í fyrrinótt
mældist mesta frostið í
Reykjavík 9 stig i tveggja metra
hæð frá jörðu, en við Sólland
í Fossvogi, þar sem Veðurstof
an hefur haft smámælastöð und
anfarin 2—3 ára, mældist frost
ið 18,5 stig niðri við grasrót.
Á Hólmi i nágrenni Reykja-
víkur mældist frostið 14 stig
í nótt. Á Hveravöllum mældist
18 stiga frost og var þar einna
kaldast á landinu, á Staðarhóli i
Aðaldal og á Grímsstöðum
mældist 16 stiga frost. Víða ann
ars staöar á landinu mældist 10
stlga frost.
i gærmorgun var víðast
hvar milli 5 og 9 stiga frost
á landinu. Á stöku stað var þó
kaldara og 11 stiga frost á
nokkrum stöðum. Kaldast var
á Hveravöllum 15 stiga frost.
— SB
Hótel Nes
hættir
Hótel Nesi við Skipholt hefur nú
verið lokað og hið 17 herbergja
gistihúspláss með öllu tilheyrandi
nú verið auglýst til sölu. Tók hótel
ið til starfa um mánaðamótin júni-
júlí sL og miðað við það að það
i var nýtt og lítið auglýst, mátti nýt
ingin yfir mesta ferðamannatímabil
ið heita allsæmileg, að sögn for-
svarsmanna hótelsins.
Flesta viðskiptavini sína fékk
Nes fyrir milligöngu ferðaskrifstof-
anna í borginni og eins Loftleiða.
Ekki hefur fengizt nein skýring
á því, hvers vegna hótelið hefur ver
ið sett í sölu og fasteignasali sá,
sem með söluna hefur að gera verst
alilra sagna fyrir bönd eigandans,
en sagði þó blaðinu, að allmargir
aðilar hefðu sýnt hótelkaupunum
■ áihuga. — ÞJM
LEIGAN s.f.
Vinnuvélar til leigu
Litlar fteypuhrœrlvélar f
Múrhawrqf- m. borum og fleygum $ j
Rafknúnir Steinborar
Vatnsdœlur (rafmagn, benzfn )
Jarðvegsþjöppur Rafsuðutœki
Vlbratorar
Stauraborar
Sllpirokkar
Hitablásarar
HDFDATUNI M-
SIMI 23460
Nýkomin styrktarblöð
1 fólksbfla 1W, 2", 2'A" og 2W breiS.
Augablöð og stuðfjaðrablöð í Benz 322, 1418
og 327.
Afturaugablöð í Bedford 7—9 tonna, fram-
og afturaugablöð og krókblöð að aftan í
Scania L 76.
Augablöð og krókblöð aftan í Scania L 56
og koparrör 3/16”, 1/4”, 5/16”, 3/8“.
Fjöðrin
Laugavegi 168 — Sími 24180.
LOFTSSON h/F HRiNGBRAUT 121, SÍNii 10600 5
□ Er munur á erlendri
útvarpsstöð og
erlendri sjónvarps-
stöð?
16 ára stúlka skrifar:
„Manni finnst þetta íslenzka
sjónvarp vera „að fara alveg yf
ir um“ — svo lélegt sem dag-
skrárefniö er. Það eru í hæsta
lagi tvær kvikmyndir á viku,
sem verjandi er tíma til þess að
horfa á — miðvikudagsmyndin
og laugardagsmyndin.
Oft er það ekki nema önnur
myndin, sem eitthvað kveður
að.
En fyrst maður greiðir þeim-
an lúxus — að hafa sjónvarp —
fulfam afnotagjöldum, hví leyf-
ist manni þá ekki að láta eftir
sér að horfa á aðra sjónvarps-
stöð sem til er f landinu á
næstu grösum? Keflavfkur sjón
varpið bauð upp á mikið atf á-
gætu dagskrárefni — man ég.
Hver hetfur nokkum tfma fett
fingur út í það, þótt útvarps-
eigendur, sem greiða reyndar
lægri afnotagjöld, hlusti á aðrar
útyarpsstöðvar? — Enginn!
En hver er þá munurinn?“
□ „Dyrasölumennska“.
Húsmóðir skrifar:
„Þessi dyrasölumennska finnst
mér meö afbrigöum hvimleið,
en illu heilli hefur færzt í vöxt
hin seinni árin, meðan hún var
nánast óþekkt hériendis fyrir
ca. 10 árum — nema þá á sér-
stökum merkjasöludögum.
En þessi útlendu sölumenn,
sem ganga hér hús úr húsi og
hálfvegis nauðga mönnum til
þess að undirrita einhverja kaup
samninga á alfræðibókutn, eða
bökaflokkum eru verri en Gyð
ingamir í skrýtlunum. Þeh- eru
líka stórlega varasamir með það
að gylila svo söluskilmálana fyr
ir fólki, að það veit varla af því,
að það sé að skuldbinda sig til
þess að kaupa kannski einhver
kynstur af bókum mörg ár fram
í tfmann.
Ég hélt, að það varðaði við
verzlunarlög svona verzlun hús
úr húsi, en þau virðast ekkert
amast við svona verzfanarmáta.
Þó er öllum mönnum augljóst,
að þessi viðskipti eru að nokkru
byggð á prettum, eða hvers
vegna gæta þessir nátmgar þess
að hafa þessa samninga á erlend
um tungumálum og erfiðustu
skuldbindingamar oftast með
srnáu letri — ef ekki bara hrein
lega neöanmáls?“
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15
Auglýsing
Stjórn Styrktarsjóðs ísleifs Jakobssonar aug-
lýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að styrkja
iðnaðarmenn til að fullnuma sig erlendis í iðn
sinni. Umsóknir ber að leggja inn á skrifstofu
Landssambands iðnaðarmanna, Lækjargötu
12, 4. hæð, fyrir 6. nóvember næstkomandi,
ásamt sveinsbréfi í löggiltri iðngrein og upp-
lýsingum um fyrirhugað framhaldsnám.
Sjóðsstjórnin.
JAPÖNSK EIK
VALIN VARA
HAGSTÆTT VERÐ
Hannes Þorstelnsson, heildverzlun
Hallveigarstig 10. — Siml 24455 — 24459