Vísir - 28.10.1970, Side 8
*
V 1S IR . Miðvikudagur 28. október 1970,
Gtgefandi: Reykjaprent tit.
FramkviemdastiOn Sveinn R Eyjólfsson
Ritstjón Jónas KristjánssoD
Fréttastjón Jón Birgir Pétursson
Ritstiórnarfulltrúi Valdimar H lóhannesson
AuglVsingar Bröttugötu 'Jb Simar 15610 11660
Afareiósla Bröttugötu 3b Simi 11660
Ritstión Laugavegi 178 Simi 11660 f5 Itnur)
Askriftar).jald kr 165 00 8 inánufti innanlands
I lausasölti kr 10.00 eintakif
Prentsmiftia Vlsis — Edda hf
■ jji wwwi—IMWIWj—
Einfaldari rekstur
,4uk Landssmiðjunnar eru á vegum ríkisins rekin
ellefu verkstæði í véla- og málmsmíði í Reykjavík
einni. Á þetta benti Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra í fjárlagaræðu sinni í fyrri viku, er hann fjall-
aði um ýmsar umbætur, sem unnið er að í ríkisrekstr-
inum. Er nú sérstök nefnd að vinna að athugun á
sameiningu ýmissa slíkra verkstæða.
Fleiri en ein ríkisstofnun eiga sambærilegar eða
sams konar vélar, sem standa stundum ónotaðar á
sama tíma og önnur stofnun þarf á sams konar vél
að halda. Þá ríkir ósamræmi í vélakaupum og veldur
það erfiðleikum í rekstri og viðhaldi. Einnig fylgir
hlutfallslega mikill stjórnunarkostnaður hinum litlu
verkstæðum. Og loks eru breytingarnar svo örar á
önnum hinna litlu verkstæða, að starfskraftur þeirra
nýtist misjafnlega vel.
Fjármálaráðherra taldi ljóst vera, að unnt væri að
koma við verulegum sparnaði með sameiningu verk-
stæða og aukinni samvinnu þeirra. Væri raunar eðli-
iegast að stefna að því að koma 'á fót einni vélamið-
stöð ríkisins, er tæki við af hinum mörgu smáverk-
stæðum. Þetta er auðveldast í Reykjavík en erfiðara
úti um land.
Það er líka fróðlegt að athuga, hvort ekki mundi í
ýmsum tilvikum sparast nokkurt fé á því að kaupa
verkstæðisþjónustu utan úr bæ í stað þess að kosta
dýra verkstæðisútgerð á vegum hins opinbera. Slíl<
leið kæmi einkum til greina víða úti á landi, þar sem
möguleikar á sameiningu eru minni en á Reykjavík-
ursvæðinu.
Ekki er auðvelt að meta framleiðni fjánnagns og
vinnu í viðgerðum. En hætt er við, að ríkisrekstur
á verkstæðum sé harla óheppilegt fyrirkomulag, þótt
eitt og eitt verkstæði sé vel rekið. Á það minnir at-
hugun, sem fjármálaráðuneytið hefur látið gera á
kostnaði við mötuneyti ríkisins. Á því sviði er mat
og samanburður á árangri auðveldari. Og í ljós hef-
ur komið, að kostnaður á hverja máltíð er verulega
frábrugðinn frá einu mötuneyti til annars.
Fjármálaráðherra ræddi þetta nokkuð í ræðu sinni.
Hann sagði, að ríkið starfrækti nú 29 mötuneyti árið
um kring, auk mötuneyta, sem starfa hluta úr ári,
og skólamötuneyta. Hann benti á hinn mikla mis-
mun, sem er á rekstrarkostnaði þessara mötuneyta
og kvað það koma til álita, hvort hagkvæmt sé að
kaupa eða framleiða máltíðir á einum stað, í stað þess
að reka matargerð með tilheyrandi búnaði á mörg-
um stöðum.. /
Dæmið um mötuneytin sýnir, hve tilviljanakennt
það er, hvort ríkisfyrirtæki eru vel rekin eða ekki,
þegar þau hafa ekki aðhald samkeppninnar. Það er
án efa hagkvæmt að einfalda málin með því að sam-
eina slíkan rekstur og líklega hagkvæmast af öllu að
hætta slíkum rekstri og skipta við þá aðila úti í bæ,
sem hafa ódýrastan rekstur á hverjum tíma.
$ A ií fi> f AA S í £
|g|l||||l|ÍlggÍ^|;(
ÞARNA ER OLÍAN. Hver tunna á myndinni táknar 100 milljón tunnur af olíu, sem þessi
riki framleiða á ári hverju. Tölurnar í svörtu reitunum tákna milljarða tunna magn, sem
talið er að finnist I jörðu þarna.
Frá M-Austurlöndum liggur
lífæð vestrænna iðjuvera
Róttækar stjórnir Arabarikja láta oliukóngana
afskiptalitla, enda er mikib fjármagn i húfi
0 I bakgrunni allrar
stjórnmálabaráttu í
Mið-Austurlöndum eru
hinar gífurlegu olíulind-
ir. Þetta svæði er eink-
um í brennidepli í átök-
um stórvelda, vegna
þess að þar er að finna
lífslindir Vesturlanda.
Meira en helmingur allr-
ar -olíu ,:"sem :Evrópuríki
nota, kemur frá svæð-
inu, og Evrópa hefur að-
eins tveggja mánaða
olíubirgðir á hverjum
tíma. Ef þarna væri sett
loita fyrir, mundu áhrif-
in á iðnað á Vesturlönd-
um verða skjót og hroða
leg.
„Systurnar sjö“
Martröö sækir á olíumenn á
Vesturlöndum í hvert sinn, sem
ný pólitisk krepþa dynur yfir
Arabaríkin. Aðstaða olíufólag-
anna er vissulega ótrygg i þess
um rikjum sfeildra byltinga og
styrjalda. Getur svo farið, að
Arabar skrúfi fyrir olíuikran-
ann? Munu vaxandi áhrif Sov-
étrikjanna á þessu svæði leiöa
til þeíss? Þessar og aðrar spum-
ingar þrúga ol'íumenn.
Á oilíusvæðunum í Mið-Aust-
urlöndum og Norður-Afríku eru
70 af hundraði allra þeirrar oiíu,
sem fundizt hefur í heiminum.
Þaðan komu í fyrra 39% allrar
olíu, sem notuð var í heimi. —
Olíulindimar á þessu svæði eru
höndum sjö stórra olíufélaga,
„systranna sjö“, og eru fimm
þeirra bandarísk og tvö brezk.
Bandarísku félögin framleiða
alla olíu í Saudi-Arabíu, 75% af
oilíuframleiðslu hinnar vinstri
sinnuðu Líbíu, helming af fram
leiðslu hins auðuga smáríkis
Kuwaits, 40% olíunnar i íran og
fjórðung i íraik.
Verð mæti framleiðslu banda
rísku „systranna" er metið á
2000 milijarða króna næstu tíu
árin.
Líbía fékk 5% arð
Þrátt fyrir allar byltingarnar
í Arabarikjunum, hefur fátt
bfeytzt undanfarin ár. Libía
stendur einkar vel á olíumarkað
inum vegna gæða olíunnar, sem
þar er framleidd. Þriðjungur af
olíunotkun í Evrópu kemur frá
Líbíu. Hina róttæku byltingar-
stjórn Kaddafis skortir ekki
stór orð um heimsvaldastefnu
Bandaríkjanna. Rikisstjómin lét
sér þó nægja að fá fram verð-
hækkun á olíunni um 13%, og
telja ol-íufélögin á að greiða 5%
skatt til rfkissjóðs Líbíu. Að
öðru leyti vindur svo fram sem
áður í Líbíu.
Bandaríkin sjálf
ónæmari
Bandaríkin efu sjálf mikl-u ó-
næmari fyrir olíu Mið-Austur-
landa en Evrópa. Aðeins 3% af
innanlandsnotkun í Bandaríkjun
um koma frá þessu svæði. Hins
vegar eru hagsmunir Bandaríkj
anna í rauninni feikilega miklir,
þar s-em NATO-rfkin og Japan
eru háð þessari olíu. 90% a-f olíu
HMIlIilll
m mm
Umsjón: Haukur Helgason
notfcun Japana koma frá olíulind
unum við Persaflóa. Með vax-
andi oMunotkun má búast við að
Bandaríkin veröi að auka innn-
flutning sinn á oliu. Þótt fund
izt hafi miklar oMulindir (
Alaska, þá em þær ekki taldar
munu gefa nema einn tíunda af
oliíumagninu í Mið-Austurlönd
um. Bandaríkjamenn gera ráð
fyrir að þurfa að kaupa erlend-
is um helming olíunotkunar sinn
ar eftir tíu ár, ef neyzluaukning
in heldur áfram.
Olíuverð tvöfaldast
Verðlag fer mjög hækkandi á
oliu ekki aðeins á íslandi, og
hefur olíuverð tvöfaldast á einu
ári. í maí sleit jarðýta olíu-
leiðslu í Sýrlandi, og Sýrlending
ar hafa neitað að leyfa viðgerö
ir á leiðslunni. Munu Sýrlend-
ingar með þv-í viija ergja hina
hægfara stjórn Saudi-Arabíu, en
Saudi-Arabía tapar 10 milljón-
um króna á dag vegna þessarar
bilunar Mikið magn fór áður
um þessa leiðslu, svo að biiun-
in bakar oliufélögum mikið tjón
og veldur veröhækkunum vegna
minna framboðs.
Þótt á ýmsu gangi, telja flest
ir, að Arabar muni ekki í ná-
inni framtíð reyna „að
skrúfa fyrir kranann‘‘ til vest-
rænna ríkja. Til þess er o-Iían
of mikilvæg fvrir fjárhag Ai-ab
anna sjáifra. Saudi-Arabía fær
tvo þriðju rfkisteknanna af oliu
framleiðsiu og Líbia svipað hlut
fall, Kuwait hvorki meira né
minna en 94% og frsk rúman
helming. Róttækar s-tjómir i
Líbfu og frak eru þv-í tregar til
stórræða í þeim efnum.
Byltingarforinginn Khadafi lét sér nægja að „múta“ olíu-
féiögunum til að gefa sér 5%.
miam