Vísir - 31.10.1970, Síða 1
VISIR
60. ág. — Laugardagur 31. október 1970. — 249. tbl.
Fara aðeins eftir reglugerð
„VIÐ förum í einu og öllu eftir
reglugerð", segja lyfsalar um
athugun Neytendasamt=kanna á
sjweikltörlum þeim, sem seld-
ar eru í lyfjabúðum I Reykjavík.
Er áletrunin hjá öllum hin sama
skv. reglugerðinni.
ívar Daníelsson lyfsali í Borg
araj>óteki sagöi blaðinu í gær
að áletrun þessi væri á öllum um-
búðum -utan um sjóveikitöflur, und
antekningarl'aust. Samkv. reglu-
gerð stendur á glösunum: Sjóveiki-
töflur. Ein tafla áður en ferð
er hafin, mest 2 töflur á sólarhring
handa fullorðnum.
Á myndinni sem birtist í blaðinu
í gær var þessi varúðaráletrun á
öilum umbúðunum, eins o*< reglur
Litlum dreng bjargaó frá drukknun:
gera ráð fyrir. Hins vegar er það
ekki þessi vtarúð, sem Neytenda-
samtökin eru að tala mn, heldrrr
nánari leiðbeiningar um hvemig
meðhöndla ber þessi lyf, ems og
fram kom f fréttinni.
Virðist þaö hlutverk ráðuneytis
að rannsaka hvort ástæða sé til áð
slíkt verði gert, en að sögn lyfsala
í gær, er það ekki gert í ná-
grannalöndum okkar, að því er
ívar Danielsson tjáði bfeðinu.
r
„Ég hef aldrei lært þessa
aðferð, aðeins séð liana “
— sagði Else Mie Sigurbsson, bókavörður
Norræna hússins, sem brá skjótt við, begar
slys varð i tjórninni við húsið
TVÖ lítil börn voru hætt
komin í gærmorgun, er
ís brast undan þeim á
tjörninni við Norræna
húsið. ísinn á tjörninni
er mjög ótraustur, ekki
sízt vegna þess að heitt
afrennsli er í tjörnina og
myndaðist þar því 6-
traustur og svikull ís. —
Litli drengurinn, 3 ára
gamall, féll fyrst í tjörn
ina, og reyndi þá 6 ára
systir hans að bjarga
honum, en ísinn brast
einnig undan henni.
Frá gluggum Norræna húss-
ins sést ekki niður að tjörninni,
vegna þess að grasbarð skygg
ir á þann enda tjarnarinnar, sem
nær er húsinu. Telpan litla hrt>p
aði hástöfum á hjálp. Heyrðu
s’kólapiltar í kaffistofu hússins
hrópin og þutu á vettvang. Var
það mesta mildi að hrópin
skyldu bera-st þessa löngu leið,
sem mest er að þatoka þeirri
kyrrð sem þarna er s«vo og því
að í kaffistofunni er útvarp
ekki haft 1 gangi.
Bókavörður hússins, fní Else
Mie Sigurðsson kom á vettvang
þegar piltarnir höfðu náð börn-
unum á þurrt, en telpan hafði
staðið i vatninu upp í háls, en
drengurinn farið á kaf og sopið
mikið.
Frú Else sagði í gær að hún
hefði Mtið eða etotoert Hf fundið
hjá baminu, sem var farið að
blána. Notaði hún blástursað-
ferðina. „Ég hef aldrei lært
þessa aðferð, en hef séð hana
sýnda,“ sagði hún. Var það
mál þeirra, sem blaðið talaði
við í gær að hún hefði með
þessu bjargað lífi litla drengs-
ins, því talsvert vatn gekk upp
úr honum við blásturinn.
Telpunni varð lítið meint af
volkinu. Eiginkona Ivars Eske
land flutti hana heim til su'n,
en börnin eiga heima þarna í
nágrenninu. Líf drengsins hékk
á bláþræði fynst í stað, en þeg-
ar leið á daginn var séð að lífi
hans var borgið.
„Börnin sækja ákaflega mikiö
hingað í mýrina og tjömina, svo
við höfum varla við að bægja
þeim frá,“ sagði starfsfólikið í
Norræna húsinu í gær. Tjörn-
in er etoki afgirt, — en strax
upp úr hádeginu í gær var verið
að flytja timbur að húsinu tifl
að girða tjörnina. Mun einhver
ágreiningur hafa verið um það
hverjum bæri að girða, en eftir
slysið í gærmorgun varð loks
af framkvæmdum, hver svo sem
á heiðurinn af þeim. —JBP
Engin ástæða að
skerða verðlagsbætur
— segir Bjórn Jónsson varaformaður ASI —
ASI slitur verðbólguviðræðunum
A GRUNDVELLI þeirra upplýs-
Inga, sem komlð hafa fram í
vlðræðunum um ráðstafanir
gegn verðbólgu, getum við ekki
sféð að neitt gefi tiiefni til þess
að álíta, að ekki megi ráða við
vandann án þess að skerða
kjarasamningana frá í sumar,
sagði Bjöm Jónsson, varafor-
maður Alþýðusámbands íslands
i viðtali við Vísi í gær.
Við höfum hins vegar enga vissu
um, hvernig efnahagsráðstöfunum
ríkisstjómarinnar verði háttað og
ríkisstjómin hefur ekki verið fáan
leg til að lýsa því yfir, að kjaila-
samningarnir verði ekki skertir
í þeim aðgerðum. Vegna þessa og
einnig þar sem gagnasöfnun er lok
ið lítur miðstjórn ASÍ svo á, aö
viðræðunum milli Alþýðusamfcfands
ins og ríkisstjórnarinnar sé lokið
sagði Björn. — Á grundvelli gagn-
anna sem lögð hafa verið fram
í viðræðunum, verður ekki séð, aö
nein ástæða sé til að skerða greiðsl
ur verðfagsbóta á laun né önnur
atriði kjarasamninganna, en mið-
stjóm ASl hefur bent á aðrar
leiðir. —VJ
Kaupgjald verkamanna 37% hærra en í fyrra
— lausn vandans nú er að snúa dýrtiðar-
hjólinu til baka að I. ágúst
KAUPGJALD ófaglærðra verka
manna er í dag talið 36,1%
hærra en það var að meðaltali
( fyrra, kaupgjald faglærðra
vorficamanna um það bil 40%
hærra en það var í fyrra, sem
svarar tM þess, að meðalkaup
þessara stétta sé nú 37% hærra
að meðaltali en í fyrra.
Þetta kom fram í ræðu viðskipta
málaráðherra, dr. Gylfa Þ. Gisla
sonar, á aðalfundi Verzlunarráðs
íslands í gær. — Ræða ráðherr-
ans einkenndist öM af tölum um
hina mjög svo hagstæðu efnahags
þróun á þessu ári, en um leið
viðvörunum að verðlagshækkanir,
sem nú eiga sér stað muni geta
gert mjög erfitt fyrir, nema gripið
sé til sérstakra ráðstafana, — ráð-
stafana, sem allir þjóðfélagshóoar
hagnist á þegar öli kurl eru komin
til grafar.
Ráðherra lýsti því yfir að vand
inn væri nú fólginn í því aö snúa
Þetta vill hó-
skólarektor sjó
Það kemur sjálfsagt mörgum
á óviart, hvað þaö er af efni
sjónvarpsins, sem er í mestum
metum hjá Magnúsi Má Lár-
ussyni háskólarektor. Kem-
ur það td. fram í stuttu
spjaili við hann um sjónvarps
dagskrá næstu viku, að hann
saknar þeirra Fred FHntston-
es og Bameys alveg gffurlega,
en þætti um menningarmál og
annað slikt segist hann láta
lönd og leið.
Viðtalið er að flnna á
bls. 4 í blaðinu í dag.
Atvinnuleysis-
tryggingasjóður
á óskalista
Alþýðubankans
— segir Hermann Guð-
mundsson, formaður
Ég er ekki nein hetja dagsins, sagði Else Mie Sigurðsson, norskur
bókavörður við Norræna húsið, ég gerði bara það sem ég gat.
Hér bendir Else blaðamanni á staðinn í tjörninni, þar sem börnin
duttu út L
dýrtíðarhjólinu til baka, sem þvl
nemur, er það hefur snúizt áfram
síðan 1. ágúst, eða um 6%, sem
verðlag mundi hækkta í nóvember
ef ekki verður gripið til ráðstafana
Það kostar auðvitað þjóðarheildina
eitthvað að lækka verðlagið (aftur,
en það mundi kc-sta hana enn
meira að láta verðlagið og kaup-
gjaldið halda áfram að elta hvort
annað. —VJ
Sparisjóðs alþýðu
ÞAÐ hefur alltaf verið skoð-
un mín, að Atvinnuleysis-
tryggingasjóður sé eign
verkalýðsfélaganna, þar sem
verkalýðsfélögin afsöluðu
sér hluta af kauphækkun í
samningunum 1955 í því
skyni að sjóðurinn yrði stofn
aður. Það væri því eðlilegt að
hiuti sjóðsins a.m.k. yrði á-
vaxtaður hjá Alþýðubankan-
um, þegar hann verður stofn
aður, sagði Hermann Guð-
mundsson, stjórnarformaður
Sparisjóðs alþýðu í viðtali
við Vísi í gær.
Hermann sagði, að nú væri
unnið að því, að nýstofnaðir líf-
eyrissjóðir vertoalýðsfélaganna
yrðu varðveittir hjá Alþýðubank
anum. Þá væri eðlilegt, að aðrir
sjóðir, sem verkalýðsfélögin
koma nálægt verði geymdir í
bankanum, svo sem vertofalls-
sjóðir, sjúkrasjóðir og orlofssjóð j
ir.
Reglugerö íssMfleans hefur ekki
enn verið samin, enda hefur
bankinn enn ekki verið form-
lega stofnaður, en MutafjársSfn
un er að ljúka. Hermann taldi
þó eðlilegt, að bankinn l*itað-
ist fyrst og fremst vkj að lið-
sinna þeim, sem eiga bankann,
þ.e. félögiunum innan A'lþýðu-
sfambands Islands. —VJ