Vísir - 17.02.1971, Page 1

Vísir - 17.02.1971, Page 1
 febrúar 1971. — 39. Mið tbl 17 Viö höföum þegar ákveöiö hækk unina fyrir verðsitöövun og höfð- um leyfi til að hækka auglýsinga- kostnaöinn um 20—25%, en töld um rótt aö bíöa rétt aðeins með að láta hækkuoina koma til fram- kvæmda, m.a. tiil að kanna hvort við gætum ekki látið okkur nægja minni hækkun, sagöi Gunnar Vagnsson fjármálastjóri Úbvarips- ins, þegar Vísir leitaði skýringa hjá honum á 15% hækkun auglýs- ingataxta útvarpsims, sem kom til framkvæmda í gær. Lífskjörín batna áfram 1971 — er spáÖ i skýrslu OECD — Meiri útflutn- ingur og hærra verð á mórkuðunum — Aukin neyzla, fjárfesting og innflutningur Kjör manna munu batna enn á þessu ári, og fólk mun enn geta aukið neyzlu sína frá því, sem var í fyrra. Útflutningur mun halda áfram að auk ast. Þetta eru niðurstöð- ur spár OECD, Efnahags og framfarastofnunar- innar, um þróun efna- hagsmála á íslandi ár- ið 1971. Sérfræðingar OECD segja, að vænta megi, að verðlag á út- flutningsafurðunum haldist á- fram hátt. Útflutningur muni vaxa um 7 af hundraði frá fyrra ári að magni til. Þar sem verð- lag á útflutningsafurðunum hélt áfram að hækka_ alit árið 1970, megi búast við, að verðlag ár- iö 1971 verði að meðaltali 5 af hundnaöi hærra en var 1970. Hins vegar megi búast við svipaðri hækkun á verðlagi þeirra vara, sem fluttar eru inn til landsins, svo að litlar breyt- ingar verði á viðskiptakjörum. Líklega muni einkaneyzlan vaxa ekkj minna en var 1970, er menn bæti lífskjör sín á grundvelli aukins útfiutnings. Fjárfesting muni vaxa meira en þetta. Ekki sé fjarri lagi að búast við 14—15% aukningu innflutn- ings að magni til á árinu 1971. Vöruskiptajöfnuður var hagstæð ur árið 1970 um 4 af hundraði. Á þessu ári muni þessi afgang- ur eyðast. og líklega veröa haMi á vöruskiptaiöfnuði. Þetta ætti þó ekki að verða vandamál vegna annarra atriða í viöskipt- um viö aðrar þjóðir og mikils gjaldevrissjóðs, sem safnazt hef ur síðustu tvö ár. Verðbólgan sé aðalvandinn. Stefnan í efnahagsmálum verði að beinast að því að hindra aukn ingu krónutekoa fram yfir aukn ingu raunverulegrar framieiðslu á árinu. Nýjar iðngreinar og aðildin að EFTA tákni, að blað haifi verið brotið f þróun fslenzkra efna- hagsmáia og efnahagslífið haifi orðiö fjölbreyttara. Þessi þró- un megi alls ekki stöðvast vegna of mikils kostnaðar og verð- bólgu. Stöðva verði kapphlaup verölags og kaupgjaids. ísienzka ríkisstjómin hafi tek izt á viö þennan vanda og gert ráðstafanir til að stöðva víxl- hækkanirnar. Efla þurfi Verðjöfnunarsjóð, svo að leggja megi meira til hlið ar af tekjum sjávarútvegs í þessu góðæri til að bæta tekj- ur hans, er verr árar. Æskilegt sé, að taka upp staö greiðslukerfi skatta, vegna þess hversu miklar breytingar eru á tekjum á íslandi milli ára. Stað- greiöslukerfi muni hamia gegn verðsveiflum. Bankar þurfi að sýna aðhald f lánveitingum til að vinna gegn verðbólgutilhneigingum. — HH Gtumar sa@ði aö útvarpið hefðá ekiki verið að brjóta veröstöðvun- arlög in með þessarí hækkun, enda hefði ríkisstjórndn samþykkt til- lögiu menntamálaráðuneytisins um hækkunina aö vandtega yfir- veguðu ráði. Hann sagði, að þessi hækkun hefði veríð ákveðin, þegar blöðin hætokuðu sinn í haiusit, en stefnan er sú, að halda ekki augiýsmgaveröi útvarps ins fyrir neðan blöðin. — VJ " , ,„■ .vvyV, , „,„• . . Flotinn streymir á loðnumiðin 1 NÓTT hófst loðnuveiðin fyrir alvöru 10 mílum út af Stokks- nesi. Fengu fjögur skip þar góð- an afla. Seinnipartinn í gær varð vart við torfur á þessum slóðum og fórii skipin, sem kom- in eru út á miðin öll á þetta svæði. Nokkur skipanna köstuðu þá í gærkvöldi, en höfðu lítið upp úr krafsinu. í nótt fengu skipin hins vegar stór köst og fjögur skip eru nú á landleið með nær fullfermi. Skip, sem voru tilbúin til loðnu- veiða í höfnum hér suðvestanlands og eins Austfjarðabátar, streyma nú á loðnuslóðir. Loönuvertíðin er hafin og má búast við að handa- gangur verði í öskjunum þar eystra á næstunni. Gíslj Árni landaði fyrstu loðn- unni að þessu sinni á Hornafirði, um 35 tonnum, sem fara í beitu. Þessa loðnu fékk skipið í gær- kvöldi og fór strax með hana í land, enda þurfti að henda auka- nót í land. Óskar Magnússon fékk í nótt 350 tonn og Ólafur Sigurðs- son 200 tonn og fóru þeir báðir inn til Hornafjarðar með aflann. Hilmir fékk um 280 tonn af loðnu í nótt og fór með hana til heima- hafnar, Fáskrúðsfjarðar. — Auk þess mun svo Eldborgin fná Hafn- arfirðj hafa fengið slatta af loðnu, en skipið hafði ekki tilkynnt um afla sinn, þegar Vfsir frétti síðast í morgun. Allir stærrj bátamir, sem lágu í Reykjavíkurhöfn slepptu landfest- um í nótt eða snemma í morgun og héldu austur á bóginn á loðnu- veiðar. — JH Fórna þeir lífinu fyr- ir Laxá? Laxárdeilan hefur verið hö®8 og óvægin eins og lesendur þekkja, en lítil líkindi viröast tfl þess að dragi úr spennunni, sem hefor ver- ið á milli deiluaðila. Vísir birtir í dag viðtal við Her- móð Guðmundsson, formarm Land- eigendafélags Laxár og Mývatns. Þar skýrir hann m. a. frá því, aö nokkrir félagsmenn hafí fýst því yfir, að þeir séu reiðubúnir til að fórna Mfi sínu fyrir málstaðinn, ef á þarf að halda. Á morgun verður birt viðtal við Knút Otterstedt framkvæmdastjóra Laxárvirkjunar og verða þar rak- in sjónarmið Laxárvirkjunar. — Sjá bls. 9. Efnileg ungmenni í efnileg- um bæ Hafnarfjöröur sækir stööugt á. Bærinn veitir öðrum kaupstöð- um harða samkeppni á fðlks- fjölgunarsviðinu og á eflaust ekki langt í að verða næstur Reykjavik að stærð. Vísismehn áttu leiö fram hjá þvl garrda skautasvelli og handknattieiks- velli á Hörðuvöllum I gær og smelltu þessari mynd af verð- andi handknattieiksköppum. Á íþróttasíðunni i dag er spjaltað við harðdræga handknattleiks- menn úr Firðinum, sem í fevöld munu keppa í Laugardalshöfl- inni. Einnig er fjallað um nýja íþróttahúsið, sem Hafnfirðingar taka í notkun senn hvaö líður. Krakkamir á myndinni renndu áhyggjulaust um svellið á Höröu völlum í gærdag i sólskininu, sem sannarlega veitti fyrirheit um að vorið nálgist óðum. Aukaverkanir að koma í Ijós „Mér er það fullljóst, að við læknar höfum ekki allir sömu söguna að segja um pilluna,“ segir Gunnlaugur Snæ- dal læknir í viðtali um pilluna, sem birtist á bls. 13 í blaðinu í dag. í viðtalinu kemur fram viðhorf hans og annarra lækna, sem láta pilluna af hendj, Einnig afstaða lækna til dómsins í pillu- málinu í Noregi. Gunnlaugur lítur á pill- una sem kröftugt verk- andi efni. Samkvæmt því eigi ekki að gefa hana hömiulaust. Einnig að rétt sé að hafa eftirlit með þeim sem nota hana. Það kemur fram, að samkvæmt könnun, sem Gunnlaugur Snæda! gerði fyrir tveim árum, voru það 45% íslenzkra kvenna á vissum aldri, sem not- uðu pilluna. Nú eru fyrstu aukaverkanir eftir langtímanotkun farnar að koma í ljós. Innihaid pillunnar, það er að segja hormóna- magn, kemur líka óbeint við sögu á óvæntan hátt. Landlæknir hefur fariö þess á leit við lækna að þeir fylgi vissum reglum I eftirliti sínu með þeim konum, sem taki pilluna. Fleiri atriði í sambandi við pilluna og notkun hennar eru rædd á bls. 13. — SB — Rætt v/ð Gunnlaug Snædal, lækni, um PILLUNA — Sjá bls. 13 Brutum ekki verðstöðvunarlögin —■ segir Gunnar Vagnsson um 75°jo hækktm augíýsingataxta úfvarps

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.