Vísir - 14.04.1971, Síða 13

Vísir - 14.04.1971, Síða 13
VlSIR . Miðvikudagur 14. apríl 1971. ga—*mmiftg— i ■jwriiojM—geaMani—m Kirkjulegar hjónavigslur tíðari hér en á hinum Norðurlöndunum í hinu nýja frumvarpi um stofn un og slit hjúskapar er lagt ti'l að hjúskaparaldur karla verði færður niður í 18 ár og veröi þá sama aldurslágmark fyrir konur og karla. 18 ára aldurs- lágmark gildir nú í ýmsum löndum, Rússlandi, Tékkóslóvak íu, Júgóslavíu, A-Þýzkalandi, Póllandi, Noregi og Svíþjóð. 1 sérstakri könnun, sem hef- ur fárið fram á aldursleyfum, sem veitt voru árið 1970 voru veitt leyfi til 93 karla og 40 kvenna. Kemur fram að um fjór ir fimmtu hlutar ieyfanna eru veittir aðilum, sem vantar minna en eitt ár á lögmætan ald ur (78,5% varðandi karla en 80% varðandi konur). Hjónabönd mjög ungs fólks endast lakar I athugasemd við þessa grein frumvarpsins segir, að því sé ekki að leyna aö ýmsar félags- 1936-1940 78,8 21,2 1961-1965 94,6 5,4 1966 94,1 5,9 1967 94,5 5,5 Það sést að síðustu árin eykst fjöldi kirkjulegra hjónavígslna þannig að þær eru hlutfallslega nærri þv) jafnmargar og skömmu eftir aldamót. Hins veg ar vantar í skrána hlutfailið miili hinna tveggja hjónavígslu- forma áratugina 1940—1960. Þá er fjailað um hjónaskilnaði í frumvarpinu. í því segir að ekki felist veigamiklar breyting ar í skilnaðarskilyröum a.m.k. ef miðað sé við lagaframkvæmd ina. Aðalbreytingin sé sú að þeim maka, sem fengið hefur leyfi til skilnaðar að borði og sæng sé réttkræfur iögskilnaður ef-tir eitt ár án tillits til þess hvort hitt hjóna sé sammála því að leita lögskilnaðar. Sam- kvæmt lagaákvæðum eru frestir þessir nú ýmist eitt ár eða tvö ár. hjón hafa ákveðiö að leita skiln- aðar. Hins vegar hafi nefndimar talið að sættir geti gegnt mikil- vægu hlutverki í því skynj að búa hjónum aöstöðu til að ræða vandamál sín við þriðja mann, sem oft hafi innsýn í þau þjóð félagsvandamál sem tengjast skilnaði ,og nokkra sérkimnáttu. Stofnun sem sjái um ráðgjöf fyrir hjón nauð- synleg 1 framtíðinni sé ótvirætt nyt- samlegt að komiö væri á fót stofnunum, sem fjölluðu gagn- ■ gert um ýmiss konar ráðgjöf fi og leiðbeiningar fyrir hjón og raunar hjónaefni, skipuðum sér fróðu starfsfólki, þ. á m. sálfræð ingum, lögfræðingum og prest- um, félagsráðgjöfum o.fl. Þá er vakin athygli á tilraunum, sem hafa verið gerðar víða um lönd með sérstaka dómstóla, sem Kirkjulegar hjónavígslur eru tíðari hér á landi en á hinum Norðurlöndunum — þeim hefur fjölgað hér, en borgaralegum vígslum fækkað. fræðilegar rannsóknir víöa um lönd t.d. í Danmörku, Svíþjóð, Vestur-Þýzkalandj og Bandaríkj unum veiti v’isbendingu um, að ’hjónabönd mjög ungs fólks end ist lakar, þegar á heildina sé litiö, en hjónabönd annarra þ. á.m. ef til samanburðar sé tek ið fólk sem giftist 20—24 ára. Hliðstæöar rannsóknir hafi ekki farið fram hér á landi. í frumvarpinu kemur fram, að kirkjulegar hjónavigslur eru stórum tíðari hér á landi en borgaralegar hjóna- vígslur. Kirkjulegum hjónavígsl um hefur fjölgað hlutfallslega siðustu áratugi, sérstaklega eft ir 1940. Borgaralegar hjónavígsl ur voru tiltölulega tíðastar 1936 —40 (21.2%). Síðasta áratug nema kirkjulegar vígslur 94— 95% allra hjónavígslna og eru þær miklum mun tíðari hér á landi en á hinum Noröurlöndun um. 1 skrá yfir kirkjulegar og borgaralegar hjónavígslur sést hlutfallið milli þessara tvenns konar hjónavígsluforma og jafn framt þróunin síðustu áratug.. kirkjulegar borgaralegar hjónavígsl. hjónaVigsl. 1916-1920 95.9 4,1 Meðaltímalengd skiln- aðarhjónabanda 9 ár í frumvarpinu er sagt frá könnun á meðalvaranleika hjóna banda, sem lauk með lögskiln- aði 1965—1969. Leiddi könnun in í ljós að meðaltímalengd hjónabanda þessara hafðj verið sem næst 9 ár. Dönsk rannsókn bendir til að meöalvaranleiki hjónabanda er ljúki með skiln- aði sé 11 ár þar i landi. Þá er skrá yfir aldur hjóna, þegar lögskilnaður fer fram. Það kem ur fram, að hundraðstala þeirra sem fá lögskilnað innan 24 ára aldurs hefur hækkað tii muna á sjöunda áratugnum og á það jafnt við um karla og konur. í 36,9% af skilnuðunum er bónd- inn 29 ára eða yngri og í 54,8% 34 ára eða yngri. í 47,9% er konan 29 ára eða yngri en í 62,4% skilnaða 34 ára eða yngri. Þá segir einnig í frumvarpinu að norrænu sifjalaganefndimar hafi rætf rækiiega kosti sátta og jafnframt ágalla, sem á séu nú. Vafalaust séu sættir úrræði sem komi um seinan eftir gild- andj löggjöf þ.e. ekki fyrr en fjalla alfarið um fjölskyldumál- efni, þ. á m. slit hjúskapar og ^ vandamál sem af þeim stafa g málefni barna, ættleiðingar og S niðurfeliingu þeirra, um faðern g ismál o.fl. Ailskiptar skoðanir séu um árangur af slikum dóm stólum, en t.d. í Bandaríkjunum hafi þeir þótt gefa góða ratm sums staðar, ekki sízt vegna þess, aö ýmsir sérfræðingar í öðrum greinum en lögfræði séu tengdir dómstólunum og þar sé ! í reynd viðhöfð mikilvæg sátta I starfsemi og félagsráðgjöf. Sé I mikilvægt að fylgzt sé með 5 reynslunni af siíkum dómstól- g um og öðruin nýjungum í með ferð hjúskaparmála. Beri að benda á þá brýnu þörf, sem sé á rannsóknarstarfsemi um fjölskyldumálefni á breiðum fé- lagslegum grundvelli og sé mikil vægt að koma á fót rannsóknar starfsemi um þessi máefni við háskóiann. Að íokum má geta þess, að meðal atriða frumvarpsins er það að lagt er til aö lögfest verði ákvæði um umgengni þess foreldris við barn, sem ekki fær forræöi þess. Þykir tímabært að lögfesta slíkar reglur. n Kjötafgreiðslumenn Kjötafgreiðslumaöur óskast strax, verður að vera vanur. Tilboð sendist blaðinu merkt: „Kjöt“. Stúlka óskast Stúlka óskast á afgreiðslu Vísis frá kl. 1—3. Uppl. gefur afgreiðslustjóri, Bröttugötu 3B. Laus staða Staða skólastjóra við bændaskólann á Hól- um í Hjaltadal er laus til umsóknar. Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknarfrestur er til 5. maí 1971. Landbúnaðarráðuneytið, 5. apríl 1971 íbúð óskast 3—5 herbergja íbúð óskast, helzt í Árbæjarhverfi. — Fyrirframgreiðsla ef óskað er. — Uppl. í síma 84293 eftir kl. 19. Frá barnaskólum Reykjavíkur Innritun sex ára barna (f. 1965) fer fram í barnaskólum borgarinnar (æfingaskóli Kenn- araskólans meðtalinn) dagana 15. og 16. apríl n. k., kl. 16—18. Föstudaginn 16. apríl, kl. 16—18, fer einnig fram innritun bama og unglinga á fræðslu- skyldualdri, sem flytjast milli skóla fyrir næsta vetur. (Sjá nánar í orðsendingu, sem skólamir senda heim með börnunum). Fræðslustjórinn í Reykjavík. Söluskattur Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir gja’ldtíma bilið janúar og febrúar 1971, svo og nýálagðar hækkanir á söluskatti eldri tímabila, hafi gjöld þessi ekki verið greidd í síðasta lagi 15. þessa mánaðar. Dráttarvextir eru í \Vi% fyrir hvern byrjaðan mánuð frá gjalddaga, sem var 15. marz sl. Em því lægstu vextir 3% og verða innheimtir frá og með 16. þ.m. Sama dag hefst án frekari fyrirvara stöðvun atvinnurekstrar þeirra, sem eigi hafa þá skil- að skattinum. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Reykjavík, 13. apríl 1971.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.