Vísir - 19.04.1971, Page 6

Vísir - 19.04.1971, Page 6
6 V1SIR . Mánudagur 19. aprfl 1971. Tvítugur budmintonleikuri vurð þrefuldur Reykjuvíkurmeisturi Haraldur Kornelíusson, tví tugur badmintonleikari úr TBR, vakti mikla athygli á Reykjavíkurmótinu í badminton, sem háð var í KR-húsinu um helgina. Hann varð þrefaldur meist- ari eða sigraði í öllum þeim flokkum, sem hann tók þátt í. Einkum var sigur hans í einliðaleik karla sannfærandi og þrátt fyrir ungan aldur er hann nú beztur íslenzkra badmint- onleikara. í einliðaleik karla lék Haraldur til úrslita við Reyni Þorsteinsson KR, en Reynir kom mjög á övart fyrri keppnisdaginn, laugardag, þegar hann sigraöi hinn kunna badmintonkappa, Óskar Guðmunds son, KR. Það var skemmtilegasti leikurinn á laugardag. Óskar vann fyrstu lotuna með 15—10, en síð- an sýndi Reynir mjög góðan leik og sigraði í tveimur næstu, 15—9 og 15—5 og var þar með kominn i úrslit. Hann hefur ekki náð svo langt f keppni f badminton áður, en hann var kunnur hlaupari á lengri vegalengdum hér á árum áður. í undankeppninni vann Har- aldur sína leikj létt. Úrslitaleikurinn var ekki spenn- andi — til þess voru yfirburðir H-aralds of miklir. Hann sigraði auðveldlega í tveimur lotum — 15—3 í hinni fyrri og með 15—8 í þeirri síöari og þar með var fyrsti meistaratitilinn í höfn. í tvíliðaleik karla léku þeir Har- aldur og Steinar Peterson, TBR, til úrslita viö Friðleif Stefánsson og Óskar Guðmundsson, KR, og var það skemmtilegasta og tvísýn- asta keppni mótsins — en Harald- ur og Steinar sigruðu 17—15 og 18—15 þannig að þáðar loturnar voru framlengdar. t fvrri lot- unni gekk þeim Friðleifi og Óskari vel framan af og til dæmis stóð 14—10 fyrir þá, en Haraldi og Steinari tókst að jafna í 14—14. Var' þá framlengt um þrjá. í sfðari lotunni var um einstefrtu hjá Friðleifi og^-ðskarf að ræöa í byrjun — þeir komust í 6—0 og virtust stjéfná í; sijurf/ þegar stóð 12 — 5. En þá tóku þeir Haraldur og Steinar heldur betur við sér og ekki leið á löngu þar til þeir höfðu jafnaö í 13—13. Nú var framlengt um fimm — en eins og áður var lokasprettur mjög sannfærandi hjá ungu mönnunum og þar með hafði Haraldur hlotið sinn meistaratitil. 1 tvíliöaleik kvenna voru aðeins fjórir þátttakendur og þar sigruðu þær Lovísa Siguröardóttir og Hannelore Köhler, TBR, Ernu Franiklín og Þorbjörgu Valdimars- dóttur, KR, með 15—4 og 15—7 og í tvenndarkeppni léku til úr- slita Hannelore og Haraldur gegn Lovísu og Steinari og sigruðu hin fyrmefndu meö 15—9 og 15—13. Gangur leiksins var sá, að Hanne- lore og Haraldur sigruðu nokkuð létt í fyrri lotunni, en i þeirri síð- ari gekk Lovfsu og Steinari betur framan af og voru á undan upp í 13, en þar tókst H + H að jafna. Lovísa og Steinar vildu ekki fram- lengingu og Hannelore og Harald- ur náðu þá þeim tveimur punktum, sem á vantaði. Og þar með var Haraldur orðinn þrefaldur meist- ari. Keppendur á mótinu voni um 40 og áhorfendur voru margir báða keppnisdagana. — hsím. r------------------------------ Brefar unnu Kínverju Brezkur borðtennisflokkur fylgdi í kjölfar hins bandaríska til Kína og hinum brezka tókst það, sem Bandaríkjamönnum tókst ekki, að sigra hina ágætu ping-pong leikara Kína og komu þau úrslit mjög á óvart. Á laugardag sigmðu Bretar í kariaflokki með 5—4 eftir, að Kínverjar höfðu leikið mjög vel í fyrstu leikjunum og komust þeir þá f 4—1, en Bretar unnu svo síðustu fjóra leikina. í kvennaflokki höföu kínversku stúlkurnar hins vegar yfirburði og sigmðu í öllum þremur leikj unum, sem háðir vom. ^_____________________________/ Verðlaunaafhending I tvíliðaleik kvenna. Ljósm. RV. Islands- - 8:1! Stórsigur Fram gegn meisturum Akraness — og Fram stendur nú bezt oð v'igi i meistarakeppni K.S.I. Fimmti leikurinn í meist arakeppni K.S.Í. í knatt- spyrnu var háður á Akra nesi á laugardaginn og mættu íslandsmeistar- amir frá Akranesi þá bik armeisturum Fram og þau óvæntu úrslit urðu, að Fram sigraði með geysilegum yfirburðum, átta mörkum gegn einu, og sýndu hinir ungu leikmenn liðsins oft skemmtilegan leik við hinar erfiðustu aðstæð- ur, sem auðvitað gengu þó jafnt yfir leikmenn beggja liða. En þessi árangur Fram — svo og hinn mikli sigur þeirra gegn ÍBK í Keflavík á dögunum, 5—0 hefur vakiö mikla athygli og vissulega veröur gaman að fylgj ast með liðinu 1 sumar, ef það heldur áfram á sömu braut. Og á fimmtudaginn fá Reykvíkingar tækifæri til aö sjá Fram, en þá hefst Reykjavíkurmótið, og í fyrsta leiknum leikur F'ram við Víking. Það var kalt og hvasst á Akra nesi, þegar leikurinn fór fram á laugardaginn á malarvellinum Heimamenn léku undan hinum snarpa vindi í fyrri hálfleik en þó var Fram á undan að skora. Þaö var nýliði í Fram-liöinu Rúnar Gíslason (lyftingamaður) sem skoraði á 15. mín. Nokkrum sekúndum fyrir hlé tókst svo Birni Lárussyni að jafna fyrir Skagamenn. En i síðari hálifleiknum var um hreina ein^tefnu á mark Skagamanna að ræða og sjö sinnum varð Einar Guðleifsson, markvörður að hirða knöttinn úr netinu. Fyrsta mark þessa hálfleiks skoraði Rúnar einn- ig, síðan bætti Erlendur Magn ússon öðru marki og hinu þriðja hjá Fram við. Kristinn Jörunds son skoraði fjórða markiö og Marteinn Geirsson hið fimmta úr vítaspyrnu, eftir að Rúnar hafði verið felldur innan víta- teigs. Og þá fóru vamarmenn Fram einnig aö láta að sér kveða. Jón Pétursson skoraði hið sjötta beint eftir markspyrnu Einars og fyrirliði Fram, Jóhannes Ara son skoraöi hið sjöunda og leikn um lauk svo með markj Kristins — áttunda mark Fram og annað hjá honum í leiknum. Fram var með alla s’ina beztu leikmenn nema Þorberg Atlason og hjá Akranesliðinu vantaði aðeins Matthías Hallgrímsson og Teit Þórðarson en aö vissu leyti setti hið slæma veður mörk s£n á leikinn. En viö skulum ekki afskrifa Skagamenn í sumar, þrátt fyrir þetta mikla tap. heldur minn ast orða Helga Daníelssonar hér í blaöinu, £ fyrravor eftir fyrstu vorleikina. „Það er ekkert aö marka strákana fyrr en þeir koma á grasið" Og þetta reynd ust orö að sönnu. Akumesing- ar byrjuðu á þv*i að tapa í Is- landsmótinu, þegar leikið var á malarvelli, en síðan urðu þeir nær ósigrandi, þegar byrjað var að leika á grasvþllunum og Is- landsbikarinn var beirra Eins og áður segir var þetta fimmti leikurinn í meistara- keppni KSÍ og stendur Fram nú bezt að vígi með fimm stig eftir þrjá leiki. Keflvíkingar hafa tvö stig eftir tvo leiki og Akur nesingar eitt stig eftir þrjá leiki Á laugardag leika Fram og Keflavík á Melavellinum og verður baö ðrsiita’eikur kennn innar. Fram þarf auðvitað að eins jafntefli til sigurs. —hs’im. Haraldur Kornelfusson — þrefaldur meistari. Snjókarlar í markinu — jbegar IBK vann Breiðablik i fyrsta leik Litlu bikarkeppninnar Litla bikarkeppnin hófst a laugardag í Keflavík og var fyrsti Ieikurinn milli ÍBK og Breiðabliks úr Kópavogi. Eftir nokkuð jafnan leik tókst Keflvík- ingum að sigra með 3—2 og þó erfitt sé að dæma um getu liðs eftir þessum leik virðist þó sem Breiðablik, sem leikur í fyrsta skipti í 1. deild í sumar, ætti að geta náð þar þokkalegum árangri. Aðeins reynslu- leysi leikmanna gerði það að verkum, að Breiðablik tapaði þessum fyrsta leik Litlu bikarkeppninnar. Vonzkuveður var, þegar leikur- inn fór fram á malarvellinum í Keflavfk, og áhorfendur frekar fá- ir. Keflvíkingar léku undan vindi fyrri hálfleikinn og tókst þá tví- vegis að skora. Fyrra markið skor aði Steinar Jóhannsson, en hið síð- ara Gunnar Sigtryggsson. | síðari hálfleik hegar Breiðabliksmenn nutu aðstoðar roksins, tókst Guð- mundi Þórðarsyni fljótt að ]aga stööuna i 2-1, en það stóð ekki lengi því nýliði í Keflavíkurliðinu, Ólafur Júlíusson. lék nokkru síðar einleik upp allan kantinn og gaf siðan fvrir markið til Birvis Fir arssonar. sem skoraði hriðia mar’ heimamanna Úrslit voru bá ráð in, en þegar um brjár mínútu voru eftir tókst Gunnari Þóris- syni að skora annað marlt Breiða bliks. Auk hávaðaroks áttu slæm vall- arskilynði þátt i því aö gera þenn an leik erfiðan leikmönnum Mik;'' snjókrap var við bæði mörkin or • leikslok voru markmenn liðanr líkari snjókörlum en mennskuni Það gefur kannski nokkra hug- mynd um skilyrðin. — emm.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.