Vísir - 04.05.1971, Page 8
8
VÍSIR. Þriðjudagur 4. maí 1971
VÍSIR
Otgefandi: KeyKJaprenr dl.
FramkvæmdasMöri: Sveinn R Eyjðlfssoo
Ritstjðri ■ Jönas Kristjánsson
Fréttastjöri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjömarfuiltröi • Valdimar H. Jöhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b Sfmar 15610 11660
Afgreiösla- Bröttugötu 3b Slmi 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 llnur)
Áskriftargjald kr. 195.00 ð mánuði innanlands
f iausasölu kr. 12.00 eintakiö
Prentsmiöia VIsis — Edda hf.
Óttast um örlög sín
Svo er að sjá á skrifum í Þjóðviljanum, að komm-
únistar séu hræddir um að lenda utangarðs þegar
næsta ríkisstjórn verður mynduð. Er ekki hægt að
skilja kveinstafi blaðsins á annan veg en þann, að
þótt núverandi stjórnarflokkar misstu meirihlutann,
yrði einhvern veginn reynt, að komast hjá að taka
kommúnista í ríkisstjórn. Þess vegna talar blaðið um
,,hættu á afturhaldsstjórn" og er nú farið að jórtra
einu sinni enn gömlu tugguna um „helmingaskipti“
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.
Það er ekki ný bóla, þegar líður að kosningum, að
Þjóðviljinn fari að tala um leynimakk annarra flokka
og jafnvel gerða leynisamninga um þvingunarað-
gerðir gegn verkalýðnum eftir kosningar. Þess vegna
sé þjóðinni lífsnauðsyn að efla Alþýðubandalagið sem
mest til þess að koma í veg fyrir, að hin leynilegu
áform verði framkvæmd. Þetta er svo gem meinlaust
hjal, sem langmestur hluti þjóðafinnaj t§Hpr„e%e$
mark á. En eitthvað verða þessir menn að segja, þegar
þeir eru að bjóða landsfólkinu forsjá sína og forystu.
Saga síðustu tólf ára, sem þeir hafa verið í stjórnar-
andstöðu er samt á þann veg, að það er fjarskalega
ótrúlegt að þeim hafi aukizt fylgi. Þvert á móti bendir
allt til þess að útkoma þeirra í næstu kosningum verði
slæm enda leynir óttinn um það sér ekki í ritstjórnar-
greinum Þjóðviljans.
Það getur varla kallazt annað en brosleg fjarstæða,
þegar málgagn kommúnista er að tala um að „aftur-
haldsstjóm" hafi verið við völd hér á íslandi síðan
samstarf núverandi stjórnarflokka hófst. Þetta hefur
verið mesta framfara- og velmegunartímabil í sögu
þjóðarinnar, eins og hvert mannsbam í landinu veit.
Hvernig hefði slíkt mátt verða, ef afturhaldsstjóm
hefði setlð au völdum? Þeir sem hafa opin augu og
óbrjálaða skynsemi, hljóta að ~eta sagt sér það sjálfir,
hvort þær umbætur, sem orðið hafa í landinu síðasta
áratug hefðu verið framkvæmdar, ef ekki hefði verið
hér frjálslynd og víðsýn ríkisstjóm.
Halda menn að afturhaldsstjórn hefði bmgðizt við
vandanum eins og núverandi ríkisstjóm gerði þegar
efnahagsáföllin miklu dundu yfir fyrir fjómm árum?
Skyldu þeir fyrir austan jámtjaldið hafa tekið þann-
ig á málunum, ef líkt hefði staðið á þar? Þangað aust-
ur hafa íslenzkir kommúnistar fyrr og síðar sótt hug-
myndir sínar um stjórnarfar, og því stjómkerfi eru
þeir enn sem fyrr algerlega háðir, þótt þeir þykist vera
sjálfstæður, frjálslyndur og saklaus vinstriflokkur.
Þeir sem greiða flokki íslenzkra kommúnista at-
kvæði eða styðja hans með öðmm hætti t.d. þeim að
láta áróður hans blekkja sig til andstöðu og mótað-
gerða gegn nauðsynlegum ráðstöfunum stjórnvalda,
em vitandi eða óvitandi að stofna efnahagslegu og
andlegu frelsi þjóðar sinnar í hættu.
VERÐA AMERÍKANAP
VATNSLAUSIR 1980?
svo segir Ralph Nader — verði ekki gripið
sfrax til aðgerða gegn mengun
Kringum árið 1980 munu
Bandaríkjamenn nota 560 billj-
ónir gallona af vatni á dag. Sú
tala er meira en helmingi hærri
en árið 1960. Þetta merkið það,
að Bandaríkjamenn verða á ein
hvern hátt að hreinsa ofan í
sjálfa sig melra og meira magn
af vatni og hið hreinsaða vatn
verður að vera fyrirliggjandi,
þannig að hægt verði að grípa
til þess, hvenær sem er. Meng
un vatna og vatnsfalia er hins
vegar svo mikil og ör, að vand-
kvæðum er bundið að hreinsa
jafnóðum nægilega mikið vatn,
þannig að hafizt undan mengun
inni. Ríkisstjórnin er með eitt-
hvað á prjónunum f mengunar-
málum og vatnshreinsun, og
hefur reyndar verið með það
nokkur si. ár, en sumum mönn
um finnst fjarri því að nóg sé
að gert.
Ralph Nader heitir maður. Sá
er einhver frægasti neytenda-
talsmaður sem uppi er í heim-
inum, hefur oftar en ekki skot-
ið framleiðendum og seljendum
vara skelk í bringu. Fræg er
viðureign hans við ameríska b'ila
framleiðendur. Ralph hefir virkj
að stóran hóp stúdenta, sem
vjnna fyrir hann og með hon-
um að ýmsum hagsmunamjil-;
úm hins almenna borgára. Fyrir
hálfum mánuði lagði Ralph Nad
er fram skýrslu upp á 700 blað
síður. og kallaöi hann skýrslu
þessa: „Water Wasteland", af-
hin einstöku ríki oft leiðzt út
’i að slaka til á ákvæðum um
vatnsgæði, þar sem fyrirtæki
hafa lagt hart að þeim. Núna,
eru 22 ríki Bandaríkjanna, sem
ekki framfylgja fyllilega lögun-
um um vatnsgæði eða hreinleik
vatns. Þessu til viðbótar hefur
svo stjórnin í Washington látið
sér nægja að semja við hin
einstöku ríkj um að þau fari
fyllilega eftir lögunum. Slíkir
samningar taka langan tíma og
standa hugsanlega endalaust.
Nader segir, að £ Bandaríkjunum
sé vatnið hvað eitraðast f
Houston skipaskurðinum, Buff-
alo, Cuyahoga, Escambia Pass-
aic, Merrimack, Rouge og
Ohio.
Betur má ef...
I Bandarikjunum hafa þeir
u rk nokkur undanfarin ár valið
s« einn dag á ári til að vekja
sérstaka athygli á baráttunni
gegn mengun andrúmslofts og
umhverfis. Það er svokallaður
„jarðardagur", „Earth Day“. 1
ár verður hann lengdur í „Earth
Week“. Stjómvöld eru ekki með
öllu heyrnarlaus fyrir mengun
arumræðunv ^iix^n beitir sér
sjálfur fyrif áröðursvagn and-
mengunarmanna, og hann sjálf
ur flytur nú frumvarp á þingi
um að gæöi vatns verði með ein
hverjum ráðum að bæta. Ed-
Nader við skrifborðið.
IIIIIIIIIIIE
m
■1IVII8I1III
Umsjón: Gunnar Gunnarsson.
Nader í hópi stúdenta er hann stríddi sem harðast gegn
General Motors: Temjum G.M.
rakstur rannsóknar, sem tók
Ralph og stúdenta hans 21 mán
uö að framkvæma. Niðurstaöa
skýrslunnar er í stuttu máli sú,
að þrátt fyrir 15 ára starf aö
vatnshreinsun, 3 billjón doll-
ara fjárveitingu í því markmiði,
þá segir Nader hina opinberu
áætlun í mengunarstríðinu vera
„ömurleg mistök“.
Eitraðasta vatn í
Houston
Allt frá því Bandaríkjaþing
samþykkti lög um vatnsgæði.
en það var árið 1956, hafa rík
isstjórnir að mestu leytj látið
hinum einstöku ríkjum eftir að
framfylgja þeim lögum. Og þar
sem iðnaðarfyrirtækjum er
ekkert um það gefið að eyða
fé í að hreinsa vatn, þá hafa
mund Muskie, þingmaður, sem
framarlega stendur f Demókrata
flokknum og er jafnvel orðað-
ur við forsetaembættið 5 náinni
framtíð, hefur og hreyft meng-
unarmálinu á þingi.
Ralph Nader er hins vegar
ekki ýkjahrifinn af tilburðum
Muskies og Nixons. Bendir
Nader á, að Johnson hafi í sinni
forsetatíð talað um að eyða 3,4
billjónum dollara til fram-
kvæmda ) vatnsmengunarmál-
inu, en fyrstu þrjú árin eftir
að hann spennti bogann svo
hátt. fór hann aldrei fram á
meiri fjárveitingu til þessara
mála en 642 milljónir. Nixon
stóð sig engu betur en Johnson
og í raun var það þingið sem
neyddi Nixon til að verja 1
billjón dollara til vatnshreins-
unarmálanna.
Hreinsunarherferð
skapar atvinnu
Nader viðurkennir í sinni
skýrslu, að vissulega lappi frum
vörp Muskies og Nixons eitt-
hvað upp á núverandi ástand en
þau séu hvergi nærri nægjanleg.
Segir að frumvörp þeirra séu
götótt og ófullnægjandi, og
kemur hann reyndar með nokkr
ar tillögur um hvernig hægt sé
að fylla í þessi göt. Til dæmis:
Alríkis-mengunar-eftirlit og
starfsmenn þess ættu að hafa
leyfi tii að rannsaka öll mál,
þar sem mengun ber á góma og
refsa þeim sökudólgum, sem
ekkj fara að lögum um vatns-
gæði.
Nader skýrslan er sögö skrif
uö af tilfinningahita og óþol-
inmæði lýsi af henni, eins og
reyndar er mjög einkennandi
fyrir allt það sem Nader tekur
sér fyrir hendur.
Nader ræöst harkalega á þá
gömlu röksemd, að allsherjar
mengunarherferð mun; ganga
nærri efnahag landsins: Mikil
hreinsunarherferð, segir Nader,
mun sennilega skapa fleiri mönn
um vinnu, heldur en hún upp-
ræti störf, „vegna þess að á
hreinsunarsviðmu eru meiri
verkefni fyrirliggjandi". Um það
geta menn svo þrætt, hvortrétt
sé.
Nader-skýrslan hefur vnkið
næsta lítilvæg mótmæli í Banda
ríkjunum, enda eru allir þeir
sem eitthvað hafa hugsað um
eða starfað að mengunarmálun-
um svokölluðu, vissir um að ekki
dugi annað en að grípa til rót-
tækra ráðstafana.