Vísir - 04.05.1971, Blaðsíða 13
V Í SI R. Þriðjudagur 4. maí 1971.
Ólíkt betrí þjónusta
— nú geta menn fengið linsur i augu sin með fárra daga fyrirvara
Körfubíll til leigu
Upplýsingar í síma 36548 og 18733.
■áj.'.'.'lt”
'T'ímaritið Newsweek skýrði
frá þv!i fyrir fáum vikum,
að heilbrigðisyfirvöld í Banda-
ríkjunum hefðu tekið ákvörð-
un um að leyifa innflutning og
gerð „contact-linsa“, sem um
ýmislegt eru frábrugönar þeim
linsum, sem hvað lengst hafa
verið í brúki á Vesturlöndum.
Þessar nýju linsur eru úr
plasti (eins og reyndar allar
linsur sem framleiddar eru —
annað efni er naumast hugsan-
legt), en þær eru til muna
þynnri en þær eldri, og þannig
í eðli sinu, að þær mýkjast við
að koma í vökva. Segja fram-
leiðendur þeirra, sem eru tékk-
neskir, að linsur þessar haf; það
fram yfir eldri gerðir, að þær
valdi engum óþægindum í aug
unum, og þar sem þær séu
mjúkar og leggist þétt að aug-
anu, hafi þær ekki tilhneigingu
til að detta úr því.
í Bandaríkjunum munu milli
8 og 10 milljónir manna nota
contact-linsur, en það er fyrir
tækið Bauch and Lomb sem
nú hefur fengið leyfi U. S.
Food and Drug Administrati-
on“ til að framleiða tékknesku
linsurnar.
Síðan 1960
Á íslandi er það Jóhann Sóf-
usson í Gleraugnahúsinu, sem
séð hefur um að koma linsum
í augu þeirra sem þess hafa
óskað eða þurft með.
Vísir gerði Jóhanni nýlega
heimsókn !i Gleráugnahúsið og
fræddist nokkuð af honum um
linsúr:
„Ég fer jafnan á ráðstefnu
„optikera“ einu sinni á ári“,
segir Jóhann, „við komum þá
saman víðs vegar að úr heim-
inum og reynum að fræðast
hver af öðrum, og spjöllum þá
um nýjungar í sjónglerjasmíð.
Þessar tékknesku linsur hafa
verið á dagskrá á hverr; ein-
ustu ráðstefnu sem ég hef far
ið á síðan upp úr 1960. Enn hafa
flest lönd ékki séð ástæðu til
að leyfa þessar linsur, og i
Bretlandi, þar sem ég þekki
bezt til, þykir mönnum að ekki
sé enn komin nægjanleg reynsla
á þau gler til að óhætt sé að
dreifa þeim meðal almennings.
Helztu gallar á þessum lins-
um eru þeir, að þær eru gróðrar
stia fyrir bakteríur. Og það er
mjög alvarlegur galli. Svo er
líka það, að þær eru vandmeð-
famar. Ævinlega þarf að geyma
flAflIAl/l fíP Þrátt fyrir hraða nútímans,
FVIðlVlU gleymist ekki vellíðan farþegans.
Um borð í þotum Flugfélagsins
fáið þér góða þjónustu, skjóta
.p , og þægilega ferð á Ieiðarenda.
tfltFinÍnnilNIIF ^ y^ur tfóar ferðir milli
flogferð
þátfur ferðalags
Islands og nágrannalandanna
og greiðum götur yðar þaðan,
hvert sem þér óskið.
& FLUCFÉLAC ÍSLANDS
Hraði - Þjónusta - Þægindi
linsur þessar í vökva til að
þær haldist mjúkar, ella er
hætta á að þær springi eða
rifni.“
Tekur tíma aö venjast
linsu
„Fremur en stéttarbræður
mínir á Vesturlöndum utan
Bandaríkjanna nú, þá sé ég
ekki ástæðu til að flytja inn
þessar tékknesku linsur, a. m.
k. ekki fyrr en einhver frekari
reynsla er kotnin á þær, og
gallar þeirra yfirstignir."
Þangað til fyrir um ári
flutti Jóhann inn allar linsur,
sem hann seldi fólki, en í fyrra
setti hann sjálfur upp vinnu-
stofu með fullkomnum tækj-
um, skellti sér á námskeiö í
Englandi og lærði að búa til
linsur.
„Og meö því að búa þetta til
sjálfur í minni vinnustofu, hef-
ur þjónustan við almenning
stórum lagazt. Hér áður þurfti
fólk kannsk; að bíða nokkrar
vikur eftir að fá linsu pantaða
frá útlöndum, og þaö kemur
sér mjög bagalega, einkum þeg
ar um er að ræða linsu, sem
viðkomandi hefur tapað. Það
tekur nefnilega ævinlega nokk-
urn tíma, upp undir hálft ár að
venjast nýrri linsu óg. sé mað-
ur án linsu, sem maður hefur
vanizt, í nokkrarivikur, er hætta
á að viðkomandi hafi afvanizt
linsunni og þurfi að ganga gegn
um alla byrjunarörðugleikana
aftur, þegar linsan loks kemur
frá útlandinu. Þetta er ekki
þannig lengur, Ef einhver tap-
ar linsu, þarf hann ekki að
biða eftir að fá nýja nema 2—3
daga.“
út. Það myndast á því eins kon-
ar tota. Slíka galla er vont við
að eiga, en linsan hjálpar nokk-
uð upp á með því að hún leggst
á sjáaldrið og hindrar að sjá-
aldrið haldi áfram að vaxa út.
Hins vegar gengur fólki, sem
sl’ik augu hefur, oft erfiðlega að
venjast linsunum, þar sem þær
geta ekki fallið þétt að sjáaldr-
inu, heldur veldur totan því, að
linsan gapir frá jöðrunum".
Hvaö kosta svo linsur?
„Það fer nú nokkuð eftir þvi
hvernig þær eru. Auðvitað eru
þær misjafnlega dýrar eftir
styrkleika, en ég held að óhætt
sé að nefna töluna 5000.00 —
og þá á ég við fremur dýrar
linsur. Oftast eru þær ekki öllu
dýrari en gleraugu". — GG
Tildur eða nauðsyn?
Eru linsur bara tildur — eða
eru þær einhverjum nauðsyn?
„Lmsur eru í flestum tilfell-
um þægilegri en gleraugu. Þær
leggjast alveg yfir augastein-
inn og færast síðan með hon-
um, þegar litið er til hliðar,
upp eða niður. Ef maður þarf
að ganga með þykk, mjög sterk
gleraugu, eru kostir linsunnar
fram yfir gleraugu ótvíræðir.
Gleraugu þynnast út viö jaðr-
ana, og þegar litið er til hliðar,
sér viðkomandi ekki eins vel og
þegar hann horfir beint fram.
Sumir hafa svo þannig sjón-
eða augngalla, að sjáaldrið vex
Enn er ekki komin nægileg reynsla á tékknesku linsurnar...
segir Jóhann Sófusson, sem sér um sjóngler í augu íslendinga.