Vísir - 04.05.1971, Side 16
• :
ISIR
Ptiðjudagur 4. maí 1971.
GANGA Á FJORUR
OG SKJÓTA
OLÍUBLAUTAN
FUGL
Veður versnar / Djúpi
Enn er talsvert um olíublautan
fugl f Isafjaröardiúpi, þótt engin
olía hafi smitazt úr togaranum frá
bví tönkum skipsins var lokað.
Lögreglumenn og fleiri, sem yfir
byssum ráða á ísafirði, hafa skotið
fugl í fjörum til þess að binda
endi á þjáningar hans, en fuglinn
er talinn algjörlega dauðadæmdur,
ef hann á annað borð lendir í
olíunni.
Hlýjasti
apríl í
sjö ár
Aprílmánuður nú er hlýjastl apríl
eftir árið 1964 og mun hlýrri en
undanfarin ár, 1967—1970. Þau ár
var heilu hitastigi kaldara I apríl
en var nú. Meðalhiti aprílmánaðar
nú var 3,8 stig, sem er 0,7 stig yfir
meðailagi áranna 1931—1960.
Adda Bára Sigfúsdóttir veður-
fræðingur veitti Vísi þessar upplýs
ingar í morgun og gat þess, að
úrkoma hefði mælzt 44 mm í apríl,
sem sé heldur minni en í meðaíári.
Á Hveravöllum var meðalhiti aprfl
mínus þrjú stig, sem er samt
hiýrra en á sama tíma undanfarin
fjögur ár. — SB
Sjóskátar kaupa kappsigiara
Hamarshögg og önnur álíka at-
hafnahljóð, sem flest kvöld undan-
:.rið hafa borizt úr bilskúrnum að
Urðarstekk 10 í Breiðholti, hafa
ekk; getað leynt því, að þar inni
standa yfir einhverjar meiriháttar
framkvæmdir.
„O, jæja, öllu má nafn gefa, —
við erum hálfpartinn búnir að
Krpyta skúrnum 5 slipp,“ sagði
Guðmundur Jónsson, húseigand-
inn — einn úr hópi sjóskáta Aust-
urbæjar — þegar blaðamann Vísis
bar að.
Þegar litið var inn í „slippinn"
gat að líta 17 feta langan kapp-
siglara — svona þegar betur var
að gáð gegnum mergð af unglings
piltum, sem skriðu undir hann of
an á honum og inni í honum. Hver
maður var vopnaður sköfum og
sandpappír.
Guðmundox upplýsti okkur um
það, að skútan væri kappsiglar; af
svonefndri Ramb!er-gerð, sem ver
ið hefði í eigu Skúla Magnússonar,
flugstjóra en sjóskátarnir hefðu
keypt fyrir nokkru.
„Viö erum að gera hana sjó-
klára, en síðan flytjum við hana
að Hafravatni, þar sem við höfum
skála og aðstöðu. Þar notum við
hana til æfinga fyrsta kastið, og
njótum þá tilsagnar fyrri eiganda
hennar, Skúla flugstjóra. — En
jafnskjótt og við teljum okkur
hafa náð tökum á því að stjórna
og sigla henni förum við með
hana hérna út á Viðeyjarsundið.“
sagði Guðmundur okkur. —GP
Forsetahjónin / Noregi:
Hluti af sama
meaningarsvœði“
„Ég þakka hlý ávarpsorð yðar til
konu minnar og mín og viðurkenn
ingarorð yöar um íslenzku þjóðina
. . Það sem við áður vissum
hefur verið staðfest, að samkennd
og vinátta miili Norðmanna og Is-
lendinga er svo sem sjálfsagöur
hlutur, enda örugg staðreynd,“
sagði forsetj íslands, dr. Kristján
Eldjárn I ræðu þeirri er hann hélt
í veizlu sem Ólafur Noregskonung
ur hélt forsetahjónunum til heið-
urs, en til Oslóar komu forsetahjón
in í gær, og dveljast þar til mið-
vikudags, er þau halda í oninbera
heimsókn til Svíþjóðar.
í ræðu sinni í konungsveizlunni
ræddi forsetinn um skyldleika
með Islendingum og Norðmönnum:
„Og sagan sameinar. íslenzka þjóð
in er frá hinni norsku runnin, ís-
land byggðist af Noregi. Það vek
ur oss því aðeins gleði og stolt,
þegar Noregur- er nefndur feðra-
land íslands . . I stórum drátt-
um eru lífshættir Hkir í löndum
vorum. Vér erum hvorir um sig
hluti af sama menningarsvæði. Vér
aðhyllumst sömu hugsjónir um
mannréttindi og lýðræði, þjóðfélags
lega og stjórnmálalega eigum vér
margt sameiginlegt. Vér eigum
einnig að nokkru leyti við svipuð
vandamál að etja. Úr norðrinu er
sjónarhornið til hins stóra heims
álika, hvort sem er frá Noregi eða
islandi . . .“
Forsetahjónin komu til Fomebu
flugvallar með Gullfaxa F. í. rétt
fyrir hádegi í gær, og tók norska
konungsfjölskyldan á móti hjön-
unum á flugvellinum, en síðan
var haldið til hádegisverðar f kon-
ungshöllinni. Síðdegis tóku for-
setahjónin á móti erlendum séndi-
herrum og frúm þeirra i höllinni
og klukkan 20 hófst veizlan, en til
hennar komu kringum 200 manns.
í dag heimsækja forsetahjónin
söfn, sitja boð rikisstjórnar Nor-
egs hafa síðan boö fyrir íslend-
inga í Noregi og í kvöld heldur
forsetinn veizlu á Grand Hotel
þar sem Noregskonungur. krón
prins og krónprinsessa verða gestir
Rétt eftir hádegi fara forsetahjón
in flugleiðis frá Fornebu til Sví-
þjóðar. —GG
Norskur björgunarsérfræðingur,
sem bíður á Isafirði, fer daglegar
eftirlitsferðir út í togarann með
lóðsbátnum og virðist þar lítið hafa
breytzt. Talsverð forvitni hefur
gripið fólk eins og oft vill verða
og eru smábátar að sniglast í kring
um togarann alltaf við og við, en
c'.tkj virðist hafa verið hróflaö við
neinu um borð.
íslenzka varðskipið, sem kom á
staðinn stuttu eftir strandið hafði
burt með sér radar, talstöð og ýms
’/erðmæt siglingatæki og varðveit-
ir þau.
Björgunarskipin tvö em væntan-
l,eg til Isafjarðar á morgun, fyrra
skipið, en á fimmtudaginn seinna
r.kipið, en þeim sækist seint sigl-
;nein, þar sem þau eru með fyrir-
ferðarmikla flotpramma í eftirdragi,
Heldur hefur veður versnað í Djúp-
inu og á Vestfjörðum voru í morg-
un 6 vindstig, snjókoma á Horn-
bjargi og hálfgert svikalogn 1 Æð-
ey að sögn Páls Bergþórssonar,
veðurfræðings. Við Arnarnes hélzt
þó sæmilegt veður og sjór var
kvrr á strandstað.
Slökkvibíilinn hafði bilað
orsakir slyssins. „Þegar skipta
þarf vélarorkunnj yfir á vatns-
dæluna er togað í sérstakt hand
fang, og það hafði dælustjóri
gert. En handfangið dregur til
sérstakan vír, sem togar drifið
úr tengslum. Þegar bíllinn var
rannsakaður eftir á, kom í ljós,
að þessi vír var slitinn. Billinn
var þvf tengdur við akstursdrif-
ið. þrátt fyrir að allar venju-
legar ráðstafanir hefðu verið
gerðar til að rjúfa þau tengsl.
— Um leið og stjórnandi dæl-
unnar jók bensíngjöfina til að
herða á dælunni, ók bíllinn af
stað.“
Rannsókn er ekki lokið á
orsökum slyssins, né liggur neitt
Ijóst fyrir, hvers vegna virinn
slitnaSi. En vírinn bar merki
þess, að hann hafði farið sund
ur áður og verið soðinn saman.
— Slökkviliðið hefur sitt eigið
bílaverkstæði, þar sem annazt
er viðhald og viðgerðir á slökkvi
bílunum. —GP
á sama hátt áður
;», •
Fimm slösuðust, þegar slókkvibill rann stjórnlaust af stað
Fimm menn urðu fyrir
slökkviliðsbíl, sem rann
af stað stjórnlaus í Ein-
holti 2 í gærdag, meðan
slökkviliðsmenn voru að
slökkvistörfum.
Bíllinn rapn allt í einu af
stað ög fór af klossum, sem
skorðaðir voru fyrir hjólum
hans, en hann hélt beint inn í
hóp manna, sem stóðu álengdar
og fylgdust með slökkvistarfinu.
Við áreksturinn köstuðust tveir
menn frá bílnum og sluppu með
minniháttar skrámur, en fjórir
drógust með honum meðfram
girðingu og inn í port, þegar
bíllinn fór í gegnum grindverk
og stöðvaðist á húsvegg í Ein-
holti 11.
Fjórir voru fluttir á slysa-
varðstofu, en tveir reyndust það
I'itið slasaðir, að þeir fengu heim
fararleyfi, eftir að gert hafði ver
ið að sárum þeirra. Fimmtugur
maður og tíu ára drengur. voru
lagðir mikið meiddir inn á Borg
arsjúkrahúsið. Maðurinn hafði
hryggbrotnað og fótbrotnað, en
reyndist ekki lífshættulega slas-
aður, og var líðan hans í morg
un eftir atvikum sæmileg eftir
góðan svefn í nótt. Drengurinn
hafði brákazt og meiðzt á hálsi,
en ekki var við því búizt, að
hann þyrfti langa sjúkralegu,
áöur en hann fengi að fara
heim.
„Bíllinn er sjál-fskiptur og
mótorinn knýr áfram annað
hvort drifið til aksturs, eða
vatnsdæluna við slökkvistarf,“
sagðj Gunnar Sigurðsson vara-
slökkviliðsstjóri aðspurður um