Vísir - 22.06.1971, Síða 1

Vísir - 22.06.1971, Síða 1
 Hópur erlendra meistara á skákmót hér næsta vetur Fundir um samein- ingu vinstri manna Þingflokkur Samtaka frjálslyndra kemur saman á morgun Framkvæmdastjórn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna samþykkti á fundi í gær sam- hljóða „ábendingar“ til þing- flokks samtakanna, en hann kemur saman til fundar á morg un og tekur afstöðu til stjómar myndunar. Hannibal Valdimars- son sagði í morgun, að sam- kvæmt lögum flokksins væri úr slitavaldið í þessum efnum í höndum þlngfiokksins. Fundur þingflokksins mun hefj- ast, þegar allir þingmenn eru komn- ir til borgarinnar, en tveir þeirra eru fjarstaddir. HannibaJ sagði, að sameiningar- mál vinstri manna „fléttuðust“ inn í umræðurnar um stjórnar- myndun, Fundir hefðu verið haldnir um þau mál milli manna úr ýmsum flokkum undanfarna viku. Hanni- bal vildi ekki greina nánar frá við- ræðunum, en sagöi, að þær heföu „mestmegnis" verið óformlegar. Þingflokkur og miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins héldu sameiginleg- an fund síðdegis í gær og báru saman bækurnar um stjórn- málaviðhorfið Ekki var stefnt að því að taka neina ákvörðun á bessum fundi, vegna þess að frum- kvæöi um stjórnarmyndun væri nú í höndum Ólafs Jóhannessonar og stjórnarandstöðuflokkanna. . Flokksstjórn Aiþýðuflokksins hélt fund í gær, þar sem voru full- trúar úr landshlutum. Fundarmenn töldu rétt, að úr því fengist skor- iö, hvort stjórnarandstöðufiokkarn- ir gætu myndað ríkisstjórn. - HH Vörnin „hriplekt fnt" Fram hefur nú aftur náö for- ' ystu í 1. deild eftir furöulegan varnarleik Vestmannaeyinga í gær. — Sjá fþróttir á bls. 4 og 5. Sjö daga kappflug Senn fer að hef jast mikið kapp flug frá Londori yfir Atlantshaf ið og þvert yfir Kanada. Island verður einn af fyrstu áfanga- stöðunum á þessari leiö. — Frá þessari spennandj flugkeppni er s»gt á bls. 9 f Vfsi í dag. íslendingar í sfríði Nú stendur yfir mikið fargjalda stríð mi’l'Ii þeirra flugfélaga, er flytja fólk yfir Atlantshafið. — Loftleiðir eru einn helzti stríðs- aðilinn. — Um gang þessarar styrjaldar er fjallaö f grein á bls. 8 f Vísi í dag. Lýst effir Jesú Efristi Einkenni: Dæmigert hippi. Er síðhærður, hefur skegg, gengur í kufli og ilskóm. Mikil trúarvakning virðist nú eiga sér stað meðal ungmenna í Bandaríkjunum. — Sjá bls. 2 „GÆTUM LAGT OLIUMÖL Á 100 KM ÁRLEGA“ ný og stórvirkari oliumalartæki komin til landsins „Það eru komin til landsins ný tæki til þess að blanda olíumöl. — Þetta eru mjög stórvirk tæki og ó- líkt betri þeim sem við höfum áð- ur haft hér. Ég tel að hægt væri að leggja olíumalarlag á 100 km vegarkafla á ári með þessum vél- um“, sagði Leifur Hannesson, fram lcvæmdastjóri hraðbrautarf ram • kvæmda í Ölfusi, en þær fram- kvæmdir eru á vegum verktakans Þórisóss hf. „Þessi o'líumalartæki eru eign Olíumalar hf. og þau eru núna aust ur í Núpum í Ölfusi að blanda olíu möl á þann 3,5 km langa spotta, sem verður lagður olíumöl i júlí- byrjun. Sá vegarspotti nær frá Varmá og fram hjá Hveragerði og reyndar lfka heim undir Hvera- gerði“ sagði Leifur. „Á laugardaginn var opnaður hraðbrautarkaflinn frá Varmá og austur að Bakkaá, en sá kafli er ekki olíumalarborinn, verður það ekki fyrr en að ári, þegar hann hef ur sigið nægilega f mýrina. Vega- gerðin hefur borið á hann sérstaka rykbindiolíu, sem ekki hefur áður verið notuð hér á landi og vonast menn til að hún gefi góða raun. Austast á þessari hraðbraut, þ.e. síöasti km að Selfossi hefur nú sigið til fulls, og verður sá kafli lagöur olíumöl í ágústbyrjun“, sagði Leif ur Hannesson. ..GG Við Grafarholt eru þeir langt komnir með að fylla upp í ræsið — það dýpsta á landinu. Myndin var tekin í morgun. Austur í Ölfusi er hraðbraut að komast í gagnið, lögð olíumöl á 3,5 km í júlí- byrjun. &1. árg___Þriðjudagur 22. júní 1971. — 137. tbl. Kemur Larsen, ef hann tapar fyrir Fischer? J Talsverður hónur erlendra skákmeistara, úr röðum hinna 1 snjöllustu í heiminum, er væntan- legur til Reykiavikur næsta vetur til að tefla á alþjóðlegu skákmóti. Meðal þeirra er hinn snjalli, ungi Ferbamannastraumurinn hafinn: 738 rúm í Eddu-hótelum Eddu-hótelin eru nú sem óðast að hef ja starf- semi sína, en þau verða starfrækt á níu stöðum á landinu í sumar og fjöldi gistirúma er sam- tals 738. Samkvæmt upplýsingum frá Bertu Konráðsdóttur hjá Ferða- skrifstofu ríkisins opnaði hótel- ið að Laugarvatni 18. júní sl. Þar eru gistirúm í Húsmæðra- skólanum og Menntaskólanum 162 talsins, og þar að auki er hægt aS fá þar svefnpokapláss, eins og í öðrum Eddu-hótelum. Hótelið að Skógum opnar í dag, og þar eru 80 rúm í tveggja og þriggja manna herbergjum. Á Kirkjubæjarklaustri verður opnaö Eddu-hótel í fyrsta skipti 1. júlí nk. í nýbyggðum barna- skóla, og þar verða 14 gistirúm í tveggja manna herbergjum og svefnpokapláss að auki. Að Varmalandi I Borgarfirði verðu.r opnað á morgun. Þar verða rúm fyrir 60 gesti í tveim ur skólum, húsmæðraskóla og barnaskóla. Eddu-hótelið að Reykjum í Hrútafirði tekur til starfa á morgun, en þar eru 76 rúm. Á Húnavöllum verður opnað Eddu-hótel í fyrsta sinn 12. eða 13. júlí nk., og þar veröa 40 Á Akureyri var opnað 15. júni sl., en þar eru 140 rúm. Þar er hægt að fá gistingu og morgun- verð, en ekki aðrar máltíðir, eins og á flestum hinna hótel- anna. Á Eiðum verður opnað 29. júní, en þar eru 72 rúm. 1 Reykjavík er starfrækt Eddu-hótel 1 Sjómannaskólan- um, þar sem eru 44 rúm í tveggja og þriggja manna her- bergjum, og svefnpokapláss að auki. Það hótel var opnað 16. júní sl„ og þar er hægt aö fá keyptan morgunverð og kvöld- verð. Berta Konráðsdóttir sagði, að sennilega mundi það kosta einn mann 12 til 13 hundruð krónur á sólarhring að gista í eins manns herbergi á Eddu-hóteli i einn sólarhring, og er þá morg- unmatur og tvær mált'iðir inni- faldar 1 verðinu. Fyrir hjón mundi tilsvarandi verð vera um 2100. Hjón með börn þurfa yfir Ieitt ekki að taka á leigu sér- stakt herbergi fyrir börnin, því að víðast hvar er hægt að fá dýnur, þar sem búið er um þau. Fólk, sem dvelur á Eddu- höteli í þrjár nætur eða Iengur, fær 10% afslátt af verðinu, og 15% afslátt fá þeir, sem dveljast i sex nætur eða lengur. Berta Konráðsdóttir sagði, að ferðamannastraumurinn væri hafinn fyrir alvöru, og þess vegna nóg að gera á þeim Eddu- hótelum, sem þegar hafa verið opnuð. — ÞB sænski meistari Anderson, og Lar- sen hefur látið í það skína, að hann kunni að koma, ef hann tapar ein- víginu við Bobby Fischer á heims- meistaramótinu. Anderson hefur þegið boð Islend- inga og ennfremur Georghiu frá Rúmeníu, og væntanlegir eru tveir sovézkir stórmeistarar og Czernic frá ísrael. Einnig hefur hinum heimskunna Hort frá Tékkósló- vakfu verið boðið. Að sögn Hólmsteins Steingríms- sonar verða þeir Friðrik Ólafsson og Guðmundur Sigurjónsson með- al þátttakenda. Enn fremur hafa Jón Kristinsson, Freysteinn Þor- bergsson og Bjöm Þorsteinsson unnið sér rébtindj til þátttöku. Að öðru leyti verður teflt sfðar um það, hvaða íslendingar verða með. Alþjóðlega skákmótið verður haldið dagana 6. febrúar til 27. febrúar. — HH

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.