Vísir - 22.06.1971, Blaðsíða 6

Vísir - 22.06.1971, Blaðsíða 6
6 VÍSIR. Þriðjudagur 22. júní 1971 Vinnuvélar í umferðinni A. skrifar: „Mörgum ökumanninum mun hafa runnið í skap af akstri vinnuvéla á fjölförnum götum og það kannski á háannatíma umferðarinnar, eins og í hádeg inu. Auðvitað ættu stjómendur þessara tækja að forðast síikar fjölfamar leiðir og alls ekki fara þær á þeim tíma, sem vænta má mikiMar umferðar. — Það er segin saga, að hvar sem þessi tæki eru á ferö, þá safn ast á eftir þeim mikil þvaga og einhvers staðar við gatnamót endar þetta í einum hnút. En þegar svo ber við, að ekki verður hjá því komizt að aka verður vinnuvélum um götur, þá ættu stiómendur þeirra að sýna þá tillitssemi, að víkja vel út i vegarbrúnina annað veifið, til þess að hlevoa fram úr sér þeim, sem á eftir koma. Einstakir þeirra gera þetta — hef ég séð. En margir þeirra virðast hins vegar ekkert vita af umferðinni í kringum sig, eða ekki finna hiá sér neina kö’lun til þess að draga úr óþægindun- um. sem aðrir verða fyrir af ferðum þeirra.“’ Tillaga um stjórnarmyndun H.J. skrifar: „Nú undanfarna daga, eða síð an á kosningadag, hafa menn verið að hugleiða. og geta í, hverjir eða hvaða flokkar muni nú mynda stjóm, þegar faM nú verandi stjómar er nú orðið staðrevnd. Vísir hefur spurt, og raddir lesenda hafa sett fram hug- mvndir. Nú vildi ég koma á framfæri hugmynd, sem ég tel eðlilegasta. Núverandi stjórnarflokkar taka Hannibalistaflokkinn, stóra sigurvegarann úr kosningunum, inn f ríkisstiómina, enda hef ur Hannibal þegar gefið það f skyn að slfkt væri honum að skaoi. Gengi sitt í öllu sínu brölti á undanfömum árum, og þá ekki sfzt nú, á Hannibal fyrst og fremst SiáH'+^ð’s- og Albýðu- flokknum að þakka. Þeir hafa hlaðið undir og hann er og hef ur verið forset? ASf fvn'r beirra tilstilli, einnig hefur mér sýnzt Morgunblaðið oftileea reka bein- línis áróður fyrir Hanniball og hans flokk. Alþýðuflokkurinn, sem beið algert skipbrot f þessum kosn- ingum, á ekki annarra kosta völ en ganga nú til Hannibals og biðia um same’ningu. Núverandi ráðherrar flokksins hætta auðvitað allir, en nýir taka við. Sumir þeirra verða sennilega að hætta fyrir fu'l'lt og allt. Siálfstæðisflokkurinn og Vinstri jafnaðarmannaflokkurinn (eins og Hannibal vill ka'la það) eiga að mynda riæstu rikisstjórn." HRINGIÐ í SÍMA1-16-60 KL13-15 BÍLAVÖR 15-17-5 2 Höfum opnað að Höfðatúni 10 (Gamla Cemia- húsið). — Látið skrá bílinn strax í dag. Opið til kl. 22.00 alla virka daga. Bílavör Höfðatúni 10, símar 15175 15236. Tilkynning frá lífeyrissjóði Dagsbrúnar og Framsóknar Skrifstofa lífeyrissjóðsins er flutt að Lauga- vegi 77, sími 14477, þeir atvinnurekendur sem ekki hafa gert skil á iðgjöldum til sjóðsins eru beðnir um að gera það nú þegar. Iðgjöldin greiðist í útibú eða aðalbanka Landsbanka íslands sparisjóðsbók nr. 129980. Stjórn lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og Framsóknar. Nýir og stórir svifnökkvar frá BeSls-verksmiðjunum — reynast mjög vel í Bandaríkjunum, jafnvel v/ð erfiðustu aðstæðu, Tjess era mörg dæmi hér á landi að menn verða gripnir skyndilegum áhuga á vissum hlutum eða framkvæmdum, en glata áhuganum svo jafnskjótt, ef þaö kemur á daginn að ein- hverjir annmarkar eru á — jafnvel þótt um sé að ræða ann- marka sem hefði mátt ráða bót á með betri undirbúningi, eða þegar reynslan fór að segja til s£n. Síðan svo ekki söguna meir. Eitt af gleggstu dæmunum um þetta, er áhuginn, sem vaknaði hér fyrir nokkrum áram á svif- nökkvum og notagildi þeirra við íslenzkar aðstæður. Svifnökkvi var fenginn hingað að láni til skammrar reynslu, hann reynd- ist ekki eins og vonir stóðu til um — og síðan verður þess ekki vart að neinir aðilar hafi hug á að taka það mál tii nýrrar at- hugunar. Á þeim árum, sem liðin eru síðan þessi tilraun var gerð, hafa mikar framfarir orðið f smiði svifnökkva erlendis, ekki einungis á Bretlandi og f Banda- ríkjunum, heldur og Frabklandi og Sovétríkjunum — og svo að sjálfsögðu f Japan, þar sem ebk- ert tækifæri er látið ónotað til að framleiða varning og tæki, sem stendur vestrænni fram- leiðslu jafnfætis eða framar. Svifnökkvarnir eru nú yfirleitt smíðaðir stærri og burðarmeiri en áður, og að sjálfsögðu hafa verið um leið gerðar á þeim margháttaðar endurbætur, þann ig að þeir geta nú talizt örugg flutningatæki, bæði fyrir fólk og farm. Vestan járntjaldsins eru það einkum tvö fyrirtæki, sem fást við srníði og framleiðslu á svif- nökkvum — flugvélaverksmiðj- urnar British Hovercraft og Sidd eley á Bretlandi, og hið mikla þyrluframleiðslufyrirtæki, Bells, í Bandarfkjunum — auk frönsku verksmiðjanna, sem framleiða svifnökkva þó f mun smærri stíl, og að sumu leyti úr hlutum frá brezka Hovercraft. í Bandaríkjunum hagar þann- ig til, að flestar af borgum þar, að minnsta kosti frá eldri tímum, standa á bökkum skipgengra fljóta eða við ár, sem áður voru famar smærri skipum, en þá vora fljótin og árnar aðalsam- gönguleiöir þar í landi. Nú era það bflvegimir og járnbrautim- ar, auk flugvélanna, en vegna staðsetningar borganna, era og flestir flugvellir gerðir á fljðts- eða árbökkum. Fyrir bragðið liggja þessar borgir mjög vel við samgöngum, sem svifnökkvam- Stór svifnökkvi frá Beils skríður 70 hnúta yfir lygnu vatni, 50 hnúta yfir landi og öldurótL it irinriougö?-.í(w ■ ir geta annazt, bg þar að auki er sigling þeirra eftir fljótunum — eða réttara sagt yfir fljótunum — hraðari en flestar samgöngur geta orðið á landi. Framámenn Bells-fyrirtækisins hafa f und- irbúningi að færa sér þessar að- stæður sem besd f nyt, með því að byggja stóra og örugga svif- nökkva til flutninga, bæði á milli borga og til borga úr ná- grenni þeirra, og þá um leið að flugvöllunum, til dasmis af 70 til 80 mflna svæði. Með þessu móti er, segja þeir, ekki einungis unnt að sjá fólki fyrir hröðurn og þægilegum flutningum, hekl- ur og að létta að mun af veg- unum, en þar er umferð viðast hvar orðin svo mikil að til vand'- ræða horfir. Þá er og lögð b- herzla á það við smVði svifnökkv a þeirra, að þeir geti flutt bíla á milli staða, eftir þvf sem þörf gerist, og þá einkum yfir veg- leysur á milli vega og stafla, þannig að bílstjórinn geti spanaö sér langan krók, sem hann þyr fti annars að taka, og flýtt þaianig för sinni. Fvrir brasðið eru 'tv if- nökkvamir sem BellsverksmiOj- urnar framleiða miöaðir vi.<5 að beir geta jafnt farið yfir vatn og land. Þegar er talsverð reynsla/ kom in á þessa stóra svifnökkvjv frá Bells verkcjmiðiunum er talið að þeir hafi reynzt mjög vel Ganghraði þeirra yfir tiltölulega lygni vatni eða sléttlendi, er allt að 70 hnútar á klst., en þar sem torfærara er um 50 hnútar og burðaTmagnið um 40 smálestir. Þá hefur fyrirtækið og framleitt smærri gerðir — og reyndar stærri líka — hvort tveggja handa hernum, og eru þeir svifnökkvar sérstaklega viö það miðaðir að koma öragglega að notum við erfiðar aðstæður. Má geta þess að svifnökkvar af þeirri gerð hafa að undan- fömu verið notaðir til flutninga til olíuborturnanna úti fyrir ströndum Norður-AIaska og við Grænland — ásamt þyrlum frá sama fyrirtæki, sem eru heims- kunn flutningatæki. Og nú þegar svo er komið, væri kannski ástæða til að taka upp þráðinn aftur þar sem frá var horfið hér á landi, f þvi skyni að athuga hvort svif- nökkvaþróunin vestur þar væri ekki komin á það stig, að leysa mætti ýmis samgönguvandamál hér á landi með atbeina þeirra. Hvemig væri að senda þar til hæfa menn á fund framámanna Bells-fyrirtækisins til að athuga málin? Nú, færa þeir erindis- leysu — sem ólíklegt má teljast — þá yrðu þeir ekki eina sendi- nefndin sem það hefur hent, án þess nokkur teldi það eftir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.