Vísir - 22.06.1971, Blaðsíða 13

Vísir - 22.06.1971, Blaðsíða 13
VÍSIR. Þriðjudagur 22. júní 1971, 13 'T'akið bömin með ykkur { 99 sumarleyfið“, segir sænskur barnasálfræöingur, kona að nafni Anna Nordlund í sænsku blaði. Hún skiptir börnum í aldurs- flokka þegar athuguð eru við- brögð barna á mismunandi aldri við þvi, þegar þau eru skilin eftir f umsjá annarra meðan foreldramir fara í sumarfrí. 1—2ja ára barnið getur ekki hugsað fram í tímann eöa skilið þegar foreldrarnir segja, að þeir komj aftur. Ef foreldr- amir fara í burtu frá þeim get- ur það tekið þá langan tíma að koma aftur á eðlilegum sam- skiptum við bamið. Hundruð bama hérlendis fara til sumardvalar á ýmsa staði. Þegar foreldrarnir fara í sumarfrí — og skilja 3ja—4ra—5 ára byrjar bamið að skilja að til sé tími, en hugmynd eins og „eftir tvær vikur“ segir þeim ekkert. Það stoðar ekki þó foreldrarnir lofi að koma aftur vegna þess, aö þau lifa aöeins ’i nútíðinni. 6—7 ára bamið skilur, að mamma og pabbi ætla að fara í burtu og koma aftur, en þau geta ekki skilið hvað það þýðir tilfinningalega séð að vera að- skilin dálftið lengi. 8—9 ára börn skilja t.d. hvað átta vikur merkja, þegar um tíma er að ræða. En þau geta ekki lifað sig inn í hvemig það er að vera aðskilin frá for- eldrunum svo lengi. Þegar þau vilja sjálf fara í burtu er bezt að reyna nokkra daga i einu. „Poreldrar, sem fara frá börn- um sínum í lengri tíma verða að vera við því búnir að það sé börnin eftir eðlilegt, að þeir eigi i erfiðleik- um með börnin á eftir“ segir sálfræðingurinn Anna Nordlund. „Bamið finnur tíl saknaðar, öryggiskenndin verður fyrir á- falli, mismunandj eftir því hversu sterkt barnið er.“ Sálfræðingurinn segir, að það þýði lítið að reyna að koma í veg fyrir söknuðinn áður en maður fari í ferðalagið, en hvað skal þá gera til þess að græða særðar tilfinningar eftir á? Tú, það er hægt“, segir sál- 59*1 fræðingurinn, „með því að fylgjast með og viðurkenna þau andsvör, sem barnið sýnir eftir á. Það er eðlilegt að börn eftir lengri aðskiinað em sífur- gjöm, þvermóðskufull, pissa á sig, sofa og borða illa og eru uppreisnargjörn og það getur verið erfitt, en þessi einkenni merkja, að barnið hefur orðið óöruggt, en það skilur það ekki sjálft eða getur talað um það á annan hátt. Ef maður vill hjálpa barninu getur það verið góð hugmynd að segja við barnið í góðu tómi: „Heyrðu, ég skil að þér leiddist mikið af því að ég fór í burtu" ... eða: „Auð- vitað var það vitlaust af mér að fara í burtu og þér er alveg leyfilegt að verða reið(ur)“. Með þessu fær barnið tæki- færi til að kynnast hinum blönduðu tilfinningum sínum af reiði og uppreisn — ef maður á hinn bóginn rekur barnið frá sér í reiöi styrkir þaö óöryggið. Ef foreldrarnir verða að fara f burtu er bezt að sú manneskja sem sér um barnið, sé mann- eskja sem þaö hefur náið sam- band við. Verði að leita til ætt- ingja, sem geta tekið barnið að sér, er léttara, að þessi mann- eskja komi heim til þess heldur en að það fari í annað umhverfi meðan foreldramir em 1 burtu. Ég held, að það veröi að vera mjög brýnar ástæður tii þess að foreldrar fari í frí frá böm- unum, t.d. mjög þreytt móðir, slitið hjónaband, sjúklómur." Sálfræðingurinn segir þó að hægt sé að þjálfa barnið upp 1 að geta skilið að foreldrarnir komi aftur. „Jafnvel þótt það taki sinn tíma fyrir bam á dag- heimili að hætta að verða gripið örvæntingu á morgnana, þeg- ar það er yfirgefið, þá verður það að síöustu að vissum vana. Þau finna einnig öryggi hjá öðr- um — fóstrunum — og eru upp- tekin við að leika sér á daginn. Tjað eru einnig þúsundir barna, sem eru fjarri for- eldrunum þegar þau fara á sum- arheimili. Mörgum bömum finnast þær vikur vera einskær gleði. En það eru einnig mörg börn, sem þola slíkt ekki. Það ér því mjog-venjulegt, að barn byjfji, a$. pfesa á _sig eftir að hafa verið á sumarheimili, hangi í móður sinni, verði uppreisn- argjarnt og sýni öll einkenni smábarnsins. Það er mikilvægt, að foreidrarnir viti þetta og geti tekið því rólega og með ástúð og að þeir viti hvemig eigi að aðstoða bamið við að finna öryggiskennd að nýju.“ Og nokkrar reglur frá sálfræö- ingnum til þeirra, sem verða að skilja barnið eftir hjá öörum um tíma. „Þegar kvatt er: Talið um hvert eigj að fara og hversu lengi þið verðið í burtu. Segið gjarnan hvað þið ætlið að gera, en ef um frl er að ræöa látið það þá ekki Mjóma svo skemmti lega, að barnið sé gripið löngim að fá að fara með. Platiö það ekki, þegar kveðjustundin kem- ur. Kveðjið rólega en hlaupið ekki fram og til baka og faðrnið það enn einu sinni. Það verður erfiðara fyrir barnið. Ef bamið er leitt þá látið þann, sem sér um það láta vel að því. Þegar þið komið aftur verið þá viðbúin því, að litla bamið, allt til 5—6 ára aldurs, hegöi sér á þann hátt sem þið hafið ekki búizt við. En látið ykkur ekki bregða, því siður að reiðast eða vera leið — það er eðlilegtr j aö gleðin sé fefcki gagnkvæm. Verið róleg og vingjamleg. Það er gott að hafa eina eða tvær gjafir með sér. Litla barnið get- ur veitt tilfinningum sínum út- rás á þeim, þegar foreldramir koma nú f Ijós aftur.“ — SB OKUKENHSLA Ökukennsla og æfingatímar. Get tekið nemendur strax. Uppl. í síma 81780 eftir kl. 8 á kvöldin. Ökukennsla — Æfingatímar. — Kenni á Ford Cortinu. Otvega öll prófgögn og fullkominn ökuskóla ef óskað er. Hörður Ragnarsson ökukennari. Sími 84695 og 85703. Ökukennsla. Get bætt við mig nemendum strax. Útvega öll próf- gögn. Kenni á Taunus 17 M Super. ívar Nikulásson, sími 11739, Ökukennsla — simi 34590 Guðm. G. Pétursson Rambler Javelin og Ford Cortina 1971. ökukennsla — æfingatímar. Volvo ’71 og Volkswagen '68. Guðjón Hansson. Simi 34716. Ökukennsla. Kenni á Volkswagen 1300 árg. "70- Þorlákur Guðgeirsson. Síma* 83344 og 35180. Verktakar — Frystihús Höfum til sölu: Neóplan árg 1958, 29 manna Zetra bus árg 1957, 22 manna Dodge Powerwagon árg 1966 Dodge Powerwagon árg 1964 Chevorlet Pic-up Bílavör Höfðatúni 10, símar 15175 15236. Foreldrar! Kenni unglingum að meta öruggan akstur. Ný Cortina. Guðbrandur Bogason. Sími 23811. ökukennsla — Æfingatímar. Ford Cortina 1970. Rúnar Steindórsson. Sfmi 84687. Bröndótt kisa, hvít á fótum og nefi er í óskilum á Reynimel 86. Sími 14594. Kvengullúr tapaðist á leiðinni úr Lækjargötu upp Laugaveg á laugar- dag. Finnandi vinsaml. hringi í síma 40662. Laugardaginn 19. júní tapaðist gulleymalokkur frá Laufásvegi að danska sendiráðinu. Skilist á Lög- reglustööina. , Grænt seðlaveski með skilríkjum tapaðist í miðbænum laugard. 19. júní. Finnandi vinsaml. bringi í síma 18429. Fundarlaun. HREINGERNINGAR Þurrhreinsun gólfteppa og hús- gagna í heimahúsum og stofnunum. Fast verð allan sólarhringinn. Við- gerðaþjónusta á gólfteppum. Spar- ið gólfteppin með hreinsun. Fegrun. Simi 35851 og i Axminster Simi 26280. Þurrhreinsum gólfteppi, reynsla fyrir að teppin hlaupa ekki eða lita frá sér, einnig húsgagnahreinsun. Ema og Þorsteinn sími 20888. SUMARDVOL Drengur 13—14 ára óskast að Hurðarbaki í Kjós. Sími um Eyrar- kot. TAPAÐ — FUNDID Tapazt hefur i miðbænum pakki með gardínuefni í. Finnandi er vin- samlega beðinn að hringja í síma 83132. SENDUM BÍLINN 37346 Norðurárdalur Borgarfírði Tvenn fullorðin hjón óska eftir að fá leigðan sumarbústað á tímabilinu 15. júlí—15. ágúst. \ Uppl. í síma 16715 eftir kl. 18 e.h. í TÖKUM UPP í DAG glæsilegt úrval af enskum sumar og heilsárs kápum. — Fjölbreytt litaúrval, allar stærð- ir. Verð aðeins 4.600 kr. Kjólabúðin Mær, Læfcjargötu 2.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.