Vísir - 07.07.1971, Síða 2
Hetjudáð í eiturvímu
Hann dröslaði særðum félaga
sínum £ skjól, þar sem einnig var
bundiö um hans eigin sár sneri
síðan út á vígvöllinn aftur og
drap með annarri hendi fáeina
Víet Cong skæruliða, suma með
byssu aðra með eggvopni. Fyrir
tiltækið, sem framið var á landa-
mærum Kambódíu 1970, var hann
sæmdur heiðursmerki. Hann heit-
ir Peter Lemon og er21 árs. Um
daginn buðu þeir honum til Hvíta
hússins að taka við orðu hjá Nix-
on.
„Viö sáum að hann var ekki al-
veg eðlilegur, þegar hann kom til
Hvita hússins“, segir Pentagon
foringi einn, „hann hélt friðar-
merkinu á lofti og æpti allan tím-
ann „Beint áfram!“ Við urðum
að særa hann til að fá sér klipp-
ingu áður en hann færi I Hvíta
húsið".
Eftir afhendingu heiðursmerkis
ins fór Lemon heim til Michigan
og sagði blaðamönnum þar, að
þegar hann drýgði dáð sína hefði
hann verið í eiturvímu: „Þaö var
I eina skiptiö sem ég fór í orr-
ustu £ v£mu“.
□□□□DDDD
Þreytulegi maðurinn á myndinni
þama er þjóðhetja í Danmörku
— eða hefur verið það fram und-
ir þetta. Hann er hnefaleikari, —
einn af fáum á Norðurlöndum er
hefur þann slag að atvinnu. Um
daginn helmsótti hann Brasiliu-
maðurinn Juarez de Lima og
barði svo hreissilega í rot, að pilt
urinn mun ekki eiga sér viðreisn
ar von sem hnefaleikari hér eftir
Hann heitir Tom Bogs og er kok
hraustur eins og títt er um box
ara. Hann ætlar að byrja æfingar
að nýju og ekki hætta fyrr en
hann hefur náð f skottið á de
Lima aftur og gert úr honum
jafning.
BARÐI
FÓSTRA
SINN
— og veitti honum þar
með sjónina aftur
I liðlega 20 ár var Gustaf Hedlund frá Torsby-í Sví
þjóð alveg blindur. Hann er nú orðinn 56 ára, og hefur
fengið sjón á öðru auga.
Hann fékk ekki sjónina við að gangast undir upp-
skurð eða aðgerð af neinu tagi, heldur með því að 5
ára gömul fósturdóttir hans barði hann óvart í augað.
Gustaf Hedlund: „Mér fannst sem eitthvað spryngi
inni í höfðinu á mér, ég sá sólir og stjörnur og hugsaði
með mér, að nú væri þessi skíma sem ég stundum sá
áður, endanlega horfin“.
AHt í einu sá ég
En þegar ég tók höndina frá
auganu, gat ég allt £ einu séð.
Áður gat ég rétt greint mun dags
og nætur, en nú gat ég allt I einu
séð þetta allt saman. Garðinn,
húsið, bílana... það var stór-
kostlegf''.1” w ** m
Sænsku læknarnir skýrðu þetta
með því, að högg fósturdótturinn
ar, sem heitir Miladdie, hefði haft
sömu áhrif á augað og hægt hefði
veriö aö ná fram með uppskurði.
Hedlund: — Ég hef leitað til
lækna £ mörgum löndum, en eng-
inn hefur getað gefið mér von
um að uppskurður myndi heppn-
ast. Þess vegna þorði ég ekki að
láta skera mig upp.“
Gustaf Hedlund er útlærður
leikfimikennari, þrátt fyrir ör-
kuml sitt, en hann hefur kennt
öðrum blindum. Hann varð blind-
ur á öðru auganu, þegar hann
var 8 ára. Hann var þá stunginn
£ augað með hnífi. Þegar hann var
20 ára sveik sjónin endanlega á
hinu auganu og sfðan hefur hann
veriö blindur.
Miladdié skilíh éftír
1 fyrra tóku þau Hedlund-hjón
hina 5 ára gömlu Miladdie að sér,
en hún er frá Jórlanlu. Þau Gust
af Hedlund og Hilma kona hans,
hittu stúlkuna á barnaheimili £
Jerúsalem. Stúlkan litia hafði ver
ið skilin eftir við barnaheimilið
þar, og er hún alveg blind.
Nú eiga þau Hedlund-hjón eina
ósk, og sú er að stúlkan litla fái
sjón á ný, en hún missti hana
með þvf að foreldrar hennar nudd
uðu £ einhverjum misskilningi joði
I augu hennar. Sænskir læknar
telja, að það sé hugsanlegt að
stúlkan fái sjón ef hún verður
skorin upp.
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••■•••
SENTILMENN VILJA
DÖKKHÆRÐAR
Ef þú átt ijóshærða kærustu, er
eins gott fyrir þig aö gá vel að
hverju þú trúir henni fyrir —
þær ijóshærðu eru nefnilega laus
málli en annað fóik.
Ef hún er rauðhærð, þá er eins
gott fyrir þig að fylgjast með gerð
um hennar.
Eða svo segir Edwin D. Law-
son, sálfræðiprófessor, sem gerði
könnun á 240 stúdentum og fór
nákvæmlega eftir háralit þeirra,
hvort þeir væru ljós- dökk- eða
rauðhærðir.
Hann segist hafa fundið út, að
ljóshærðar stúlkur séu oftar
„fallegar“ og „skemmtilegar" i
venjulegri merkingu þeirra orða
en annað kvenfólk.
Aftur á móti gat hann ekki
tengt orð eins og ,,einlæg“ og „úr
valsmanneskja" við þær ágætu
ijóskur.
Rauðhæröar stúlkur fá heldur
slæma útreið £ könnuninni.
Margar þeirra eru sagðar vera
„hættulegar" og „tilfinningarik-
ar“.
Jafnt karlar sem konur þær,
e^ Lawson spurði út úr við ríkis-
háskólann £ Fredoníu, USA, höfðu
heldur lélegt á]it á gerviljóshærð
um .konum.
„Þær voru álitnar sérstaklega
illa gefnar", segir Lawson og einn
ig heldur hann því fram, að það
sé greinilega ekki rétt að séntii-
menn kjósi fremuT ljóshæröar kon
ur en dökkhærðar. Dökkhærðir
menn í könnun Lawsons vildu
miklum mun frekar eiga dökk-
hærða konu en ijóshærða, og á-
litu karlmenn dökkhærðar konur
yfirleitt vera miklu betur gefnar
og meira aðlaðandi.
Dökkhærðir karimenn komu og
betur út úr könpuninni en ljós
hærðir. Blondinur, brúnettur og
rauðkur viidu undantekningar-
laust fremur dökkhærða menn en
ijósa.
Lawson sálfræðingur og prófess
or er sköllóttur.
Miladdie barði fósturföður sinn í andlitið — og eftií bað hefur
hann haft sjón á öðru auga.