Vísir - 07.07.1971, Síða 4
4
V í S IR . Miðvikudagur 7. júlí 1971
24 frá vinabæjum Kópa
vogs í heimsókn
Kópavogur heldur í áj- mót
fyrir fulltrúa vinabæja sinna á
Norðurlöndum — alls koma 24
gestir til Kópavogs frá Taríip-
ere Tammerfors) í Finnlandi
Norrköping í Svíþjóð, Trond-
heim í Noregi, Óðinsvéum í Dan
mörku og Klaksvík í Færeyjum.
Mótið hefst með setningu í Fé-
lagsheimili Kópavogs í fyrramál
ið, en lýkur á Hótel Sögu á laug
ardagskvöld.
.. .og vinir einnig á
Akureyri
Og vitanlega á Akureyri einn-
ig sína norrænu vini — þessa
dagana er haldið árlegt æsku-
lýðsmót vinabæja Akureyrar á
Norðurlöndum og lýkuj- því á
föstudag, en hófst á laugardag-
inn var. Alls eru þátttakendurn
ir 41 talsins auk heimamanna.
Vinabæir Akureyrar eru Vaster
ás f Sviþjóð, Randers f Dan-
mörku, Lahti í Finnlandi og Ála
sund í Noregi.
Einn í nefnd
Þeir frændur vorir, Vestur-ís-
lendingar, eru ekki aldeilis eins
flott af sér og viö Hér eni ail
ar nefndir vel mannaðar, valin-
kunnir menn í hverju rúmi. —
Lögberg-Heimskringla, sem oft
er mjög fjörlega og skemmtilega
skrifað blað, segir þannig frá
Skapta (Scotty) Borgford, sem
var nýlega skipaður í „eins
manns nefnd“. — Er hlutverk
nefndarinnar að rannsaka leigu-
verð fbúða og aðbúnað leigu-
taka í Thompson, Flin Flon,
Lynn Lake, The Pas og Dauphin.
Borgford „hefur verið veitt vald
og réttur til að yfirheyra eið-
svarin vitni og halda opinberar
og privat yfirheyrslur eftir eig
in vild“, segir f LH.
Stétt sem stækkar, stækkar og stækkar...
Svo notuð séu orð sjónvarpsauglýsinganna vinsælu, þá má
áreiðanlega segja, að stétt sýningarstúlkna hafi undanfarin
ár stækkað, stækkað og stækkað. Verkefnunum fjölgar með
auknum fataiðnaði og þessar ungu stúlkur á myndinni hafa
undanfarið sýnt erlendum ferðamönnum Islandstízkuna 1971
fyrir Islenzkan heimilisiðnað og Rammagerðina. Það er Sigríð
ur Ragna Sigurðardóttir, sem hefur kynnt á tízkusýning-
unum, en stjórnandi er Unnur Arngrímsdóttir.
HÍ ...SÁlzlMm
Hafið þér séð handritin?
Handritasýningin stendur enn
yfir f Árnagarði, húsi Handrita-
stofnunarinnar. Nú hefur komið
út vegleg sýningarskrá. sem er
afhent gestum ókeypis. Geysileg
ur fjöldi skqðaði handritin fyrstu
vikurnar, en margir virðast
halda að sýningin sé ekki opin
lengur. Eflaust munu' margir
' koma aftur og skoða sýninguna
og fá sér sýningarskrá til endur
minningar og fróðleiks.
Mótmæli—Mótmæli..
í sumarblíðunni um síðustu
helgi voru félagar Fylkingarinn-
ar ekki á þeim buxunum að
leggjast fyrir í sólbaði. — Þeir
efndu til mótmælastööu ásamt
Víetnamhreyfingunni. Var þetta spjöld sín og sést hópurinn á
fremur lítill hópur, sem stóð myndinni. en einhverjir forvitn
viö bandaríska sendiráðið með irr vegfarendur halda í humátt á
eftir merkisberunum.
Dual úrvalið hjá okkur sýnir
bezt þá fjölbreytni og
framfarir sem orðnar eru í
gerð hljómflutningstækja.
Aldrei hefur verið auðveldara
að finna tæki við sitt hæfi
— vandað verk og fagurt.
Dual er þýzk framleiðsla
sem hagnýtir tækninýjungar
þegar í stað.
Komið og heyrið
hljómburðinn.
Valið verður Dual.
KLAPPARSTÍG 26, SÍMl 19800 RVK. OG
BREKKUGÖTU 9, AKUREYRI, SÍMI 21630