Vísir - 07.07.1971, Page 13
« o e e a e ® a * e o © » tí s » © e:o n o » « c o * o e o * a r & * :© e © « © e © • © © o e © « © • © 9 9 © o 9 o o*# © © © 9 o © » 9 9 • 9 • @ s o • •
Ji
V í S í R. Miðvikudagur 7. júlí 1971
n
Hvert stéttarfélagið á fætur öðru fær sér nú sumarbústað fyrir félagsmenn. Hér er sumarbústaðahverfi Alþýðusambands Norðurlands í Fnjóskadal,
— Orlofsheimilin / Munabarnesi og Ölfusborgum eftirsótt
búnir að vera þarna eítir sum-
arið,“ sagöi Haraldur.
„'C’g held að það sé búið að
panta flestöll húsin langt
fram í september, jafnvel til
loka september" sagði Haraldur
Steinþórsson þegar Fjöiskyldu-
slðan hringdi til skrifstofu
BSRB til að forvitnast um aö-
sóknina að orlofsheimilunum í
Munaðarnesi, Borgarfirði. I byrj
un sumars var opnað þar hiö
glæsiiega sumarbústaðahverfi
ÐSRB.
Það hefur lön,
tíðkazt. að
bústaðakaupum og virðist það
vera að færast í vöxt aftur. Tvö
glæsileg sumarbústaðahverfi
hafa risið upp hér sunnanlands
þar sem eru sumarbústaðir
BSRB og svo Ölfusborgir Al-
þýðusambands Islands. Auk
þess eiga hin og þessi félög
sumarbústaði v’iða um landið.
I Munaðamesi eru það 18
félög innan BSRB, sem hafa
sumarbústaðina 23 á sínum veg
um og á Starfsmannafélae rík-
þvl félagi eru félagsmenn 1500.
Sumarbústaðahverfið í Borgar-
firðinum er ekki fyrir Reykvík-
inga eina saman þar hafa t. d.
bæjarstarfsmenn á Akranesi,
ísafirði, Akureyri Keflavík,
Vestmannaeyjum, Hafnarfirði og
Kópavogi aðgang að sumarbú-
stað. Einnig eru í bandalaginu
ýmis landssambönd t. d. Félag
íslenzkra símamanna, Hjúkrun-
arfélag íslands o. fl.
..Éf bvst við nð baó verði
f'-ý* ,
,-';W
'■-------------------------
I'" ^í^í^r.í-VA;'-;
Og
rnms
1Í1G
rrt/rtt/ yrr rr/rrrrr/rrrrrrrrrV/rr,
Búizt er við að hátt á þriðja þúsund manns hafi dvalið í Munaðarnesi eftir sumarið.
Fólk skiptir sér lítið
hvert af öðru
— Þarna hefur fólk tæki-
færi til að kynnast hvert öðru,
Reykvíkingar fólki utan af landi
og öfugt?
„í framkvæmd skiptir fólk
sér lltið hvert af öðru. Fólk
er komiö þarna til að slappa
af og t. d. varð ég varla var
við fjölskylduna I næsta húsi,
þegar ég dvaldist þama I viku-
tíma fyrir nokkru.“
Haraldur segir að sá sem
taki húsið á leigu fái það í viku
tíma og flestir fylli húsin.
,,Það eru 7—8 kojur í hverju
húsi en um halgar er þar jatfn
vel fjölmennara. Þaö er hægt
að koma þarna fyrir svefnpok
um. Ég frétti af því að í einu
húsanna hefðu gist 16 manns
eina nóttina. Svo eru þama
tjaldstæði, sem verða leigð út
félögum BSRB og kostar tjald
stæðið 150 kr. og er sama verö
á því hvort sem dvalið er lengi
eða skemur.“
— Hvað kostar orlofsdvöl í
Munaöarnesi?
„Leigan er 2.500 kr. á vikuna
og er allt innifalið rafmagn,
pottar, pönnur og önnur matar-
áhöld, einnig sængur og sæng
urver fær fólkið þegar það kem
ur eins og fiðkazt hefur í Ölf-
usborgum. Þarna er einnig veit
ingaskáli og matur seldur þar
á vægu gjaldi, heldur vægara
en á sjálfsafgreiðslustöðum í
Reykjavík. Þarna hefur einnig
einhverju smávegis af veiðileyf
um verið úthiutað í landi Mun
aöarness. en dvalargestir hafa
forgang að veiðileyfum í Norð
urá.“
Haraldur segir að öllum aðild
arfélögunum innan BSRB hafi
verið gefinn kostur á að fá
umráðarétt yfir húsi áður en
þau voru byggð. Sum séu svo
fámenn, að þau hafi ekki haft
boimagn til þess og önnur eigi
hús annars staðar.
Félag íslenzkra símamanna á
þó t. d. hús í Munaðarnesi og
á einnig hús víða annars staöar
t. d. eru símamenn nýbúnir að
koma upp húsi við Apavatn og
eiga önnur I Tunguskógi viö
ísafjörð, Vaglaskógi og i ná-
grenni Egilsstaða.
Starfsmannafélag Reykjavík-
urborgar er og búið að fá sér
lóð við Úlfljótsvatn og á að
hefja framkvæmdir þar á næsta
ári.
manns
„Það er yfirleitt upppantað
hér fram í septemberbyrjun, en
þá byrja skóiamir og þaö hef-
ur ákaflega mikið að segja fyrir
barnafó!k“ segir Erlendur Guð-
mundsson umsjónarmaður í Ölf
usborgum. Nú eru bústaðimir í
Ölfusborgum 36 en 14 þeirra
voru smíðaðir í vetur. Um tutt-
ugu félög eiga bústaðina.
Erlendur segir, að mesta að-
sóknin að Ölfusborgum sé sum
armánuðina, júlf og ágúst. „Það
eru þeir mánuöir, sem fólfc kall
ar sumarmánuði en júní og sept
ember geta verið betri, þaö fer
aHt eftir veðráttunni auðvitað“.
Erlendur segir að það sé mjög
mismunandi .hvað fólagsmenn í
hinum einstöku félögum geti
komið oft til sumardvailar en
það fer eftir stærð félaganna.
1 Ölfusborgum kostar víku-
dvölin F800 kr. og ailt er inni-
falið húsnæöi, rafmagp, Bfifx,
eldunaráhöld og sængurfastoaöur
með lím. Sex svefnpláss eru í
hverjum bústað en fleiri geta
auðvitað komizt fýtír og er það
notað eins og í Munaðarnesí.
Sumir sofa fyrstu
vikuna
— Hvað gerir fólkið sér til
dægrastyttingar meðan á sumar
dvölinni stendur?
„Sumum veitir efcki af að sofa
fyrsto vikuna t. d. ertfiðismönn-
um, svo er sundlaugin í Hvera-
gerði vel sótt í gððu veðrL Ann
ars er engin sérstök dægrastytt-
ing, eidra fólfcið nýtor þess aö
sofa vel, leggja sig tun miðjan
daginn. Svo er hægt að fara í
gönguferðir vítt og breitt um í
nágrenninu t. d. £ fjallinu hér
fyrir ofan.“
— Eru mikil samskipti miHi
fólks?
„ Það er mjög lítill samgang-
ur. Fólk er fyrst og fremst kom
ið til að hafa það náöugt og
skipta um umhverfi, en í því er
fólgin mikil hvild.“
Erlendur minnist einnig á
fjölgun oriofsheimila á land-
inu. Norður í Fnjóskadal er
Aiþýðusamband Norðurlands
með sumarbústaðahverfi, og
innan skamms mun Alþýðusam
band Austurlands opna 7 hús
í nágrenni Egilsstaða.
„Þessi orlofsheimili félaga
gera feinstaklingum kleift að
eiga sumarbústað í gegnum sit
stéttarfélag og skapar betri nýt
ingu á bústöðunum" segir Er-
Iendur í iokin. —SB
'•••••••••• ••••• ••• • i