Vísir - 07.07.1971, Síða 16
I
imi MBW £
*, a"'"*"v ‘i,{
..............; •!.... ..
VISIR
Miðvikudagur 7. jölí Í971.
Ekkert guH
fundið ennjbó
Gullleitarmenn á Skeiðarársandi
fara sér há3gt við gulleitina sem
stendur.
Bergur Lárusson frá Kirkjubaejar
klaustri var kominn niður á sand,
búinn beltatraktor og mælitækjum
og með eina 6—7 menn með sér
að þefa uppi gull, þegar báturinn
Bára strandaði bar við sandinn, og
sneru þeir félagar þá gullleitarleið-
angri upp í björgunarleiðangur og
vinna nú að því að koma bátnum
á flot.
Vísir hafði samband við Kirkju-
bæjarklaustur, og var okkur tjáð,
að þeir Bergur Lárusson væru með
góðan útbúnað á sandinum, þeir
hefðu meðferðis hjóihýsi og elduðu
þar mat sinn og væru búnir til
langra,- dvalar á sandinum, ef gull-
ið léti bíða eftir sér.
Báru hefur verið bjargaö undan
sjó og er verið að dæla úr henni
núna, væntanlega verður hún dreg-
in á flot á stórstreymi fljótlega.
- GG
Drengur á
reiðhjóli
fyrir bíl
Drengur á reiðhjóli varð fyrir
bifreið í Reykjavik i gærdag, og
lítur út fyrir, að hjólreiðamönn
um sé töluverð hætta búin í um
ferðinni á götum borgarinnar.
Áreksturinn f gær varð með
þeim hætti, að biffeið var ekið
a'fturábak út úr innkevrslu við
Tryggvagötuna. 1 sömú ' andránni
átti drengur á reiðhjóli leið um
og varð hann fyrir bifreiðinni. —
Svo giftusamlega tókst þó ti'l í
gær, að drengurinn meiddist
ekki, en aftur á móti urðu ein-
hverjar
inni.
skemmdir á
bifreið-
—ÞB
Safna 10 þús. undirskríftum
til verndur Bernhöftstorfu
Spjöld rpeð myndum af húsun
um í Bernhöftstorfunni og út-
drætti úr sögu þeirra hafa ver
ið sett upp á túnblettinum hjá
Bankastræti. Það er áhugafólk
um verndun Bernhöftstorfunn-
ar, sem hefur sett þessi spjöld
upp. Næstu daga ætlar það að
safna tíu þúsund undirskriftum
undir skjal þar sem þess er far-
ið á leit við viökomandi ráða-
menn, að engar byggingafram-
kvæmdir verði á milli Banka-
strætis og Amtmannsstígs — og
núverandi húsaröð á þeim sta
verði varðveitt.
Einnig verður dreift upplýs-
ingaspjöldum þar sem er útdrátt
ur úr sögu húsanna, gerð grein
fyrir viöhorfum verndunar-
manna og sagt frá hugmynda-
samkeppni Arkitektafélagsins
um það hvernig glæða megi
þessi hús nýju llfi.
Ýmsir aöilar hafa lagt fram
vinnu við að búa út og koma
upp spjöldum og dreifispjöldum
t.d. auglýsingastofur, teiknarar,
ljósmyndarar. Þjóðminjasafnið
hefur lánað myndir, Arkitekta-
félagið kostar það, sem ekki
. fæst gefins í útgáfukostnaði.
I upplýsingaspjaldinu stend-
ur m.a.: „Húsaröðin við Lækjar
götu austanverða frá Stjórnar-
ráðshúsinu að íþöku er síðasta
heillega götumynd iiðins tíma
í Reykjavík. Nú heyrast þær
raddir, að þessari síðustu mynd
skuli einnig fórnað og húsin
milli Bankastrætis og Amt-
mannsstígs rifin. Ástæðan er
sögð vera sú, að þar skuli rísa
nýtt Stjórnarráð, Viö þá tilhugs
un hlýtur að vakna sú spurn-
ing hvort gamli miöbærinn geti
þolað þann umferðarþunga, sem
því muni fylgja — ef áfram verö
ur haldið að þrengja þar saman
stórbyggingum yfir opinberar
stofnanir.
Til að leysa það vandamál
mun vera áformað að gera
Amtmannsstíginn að breiðgötu,
sem hefur það í för með sér,
að önnur merkileg bygging, sem
er fangahúsið við Skólavörðu-
stíg, verður að víkja“. Þá segir
ennfremur f pistli um hugmynda
samkeppnina um Bernhöftstorf
una að við uppmælingu á hús-
unum hafi það komið í Ijós, að
innviðir þeirra virtust vera heil-
ir og ófúnir. — SB
Svo hunMum skiptir
á Skattstofuna
Nú verður fólk að hafa hraðar
hendur, ef það ætlar að kæra á-
lagt útsvar og skatta. Kærufrestur
inn rennur út tólf á miðnætt; ann
að kvöld. Lúga verður opin við dyrn
ar á Skattstofunni og þangað er
hægt að stinga kærum fram eftir
kvöldi.
Óskar Björnsson deildarstjóri hjá
Skattstofunni sagði við Visj í morg
un, að þegar kæru er skilaö eigi
hún að vera í tveimur bréfum, það
er að segja sérbréf stílað á fram-
talsnefnd Reykjavíkur, þegar ver-
ið er að kæra útsvar og annaö
bróf stílað á skattstjórann í Reykja-
vík, ef tekjuskattur er kærður.
Óskar sagöi að starfsmenn Skatt-
stofunnar hefðu haft nóg að gera
undanfarið við að aðstoða fólk í
sambandi við kærur — þó séu
þær ekkj skrifaðar fyrir það. Ekki
hafi fleirj kært nú en venjulega —
en þeir skipti hundruðum, sem
hafi lagt leið sína á Skattstofuna
síðustu dagana til að fara í saum-
ana á skattinum sínum, —SB
ét lögregluna
hirða nœturgest
konunnar
Kynsjúkdómar færast í vöxt
— „eðlileg" fjölgun tilfella hérlendis
0 Núna f morgunsárið hringdi
ævareiður maöur til lögregl-
unnar, og kvað eiginkonu sína
hafa leikið sig grátt. Maðurinn
kvaðst hafa veriö að vinna í
nótt, og þegar hann kom heim
ur.dir morgun, fann hann óboð-
inn gest, karlkyns, milli rekkjóð-
anna hjá konu sinni. — Fór
húsbóndinn fram á, að lögreglan
-ækti þennan gest.
Þegar lögreglan kom á stað-
inn, tóku málin nýja stefnu. Það
kom upp úr dúrnum, að hús-
íðendur á staðnum standa í
skilnaðarmáli, svo að frúin taldi
manninn ekki eiga neinn ráö-
stöfunarrétt yfir sínum kroppi,
og sagði, að honum kæmi ekki
við hjá hverjum hún sængaði.
Lögreglan fór með næturgest-
inn. eftir að hann hafði tfnt á
sig spjarirnar, en í sömu mund
hófst misklíð húsráðenda.
Konan baö lögregiuna lengst
allra orða, að hýsa húsbóndann
a. m. k. um hríð, því að hún
væri þreytt, og mætti ekki til
þess hugsa, að hann háttaði hjá
sér svona alveg strax. — ÞB
„Kynsjúkdómar færast ekki í
vöxt hérlendis, umfram það sem
„eðlilegt“ er“, sagði Hannes Þór
arinsson, sérfræðingur í kyn-
sjúkdómum, er Vísir hafði sam
band við hann í gær, „fjölgun til
fella er að okkar áliti í fullu
samræmi við fólksfjölgunina“,
sagði Hannes.
Vísir spurðist fyrir um það hjá
Hannesi, hvort hér á landi hefði
orðið söm raunin á og í Bandaríkj-
unum og Vestur-Þýzkalandi, en í
þessum löndum hafa kynsjúkdóm-
ar færzt mjög í aukana síöustu 2—3
árin.
Þann 1. júlí sl. skýrði Vísir frá
því í grein, aö kynsjúkdómar
breiddust nú svo mjög út ’i sumum
vestrænum löndum, aö talað væri
um faraldur. Síðustu 3 árin hefur
aukningin verið yfir 50% í Banda-
ríkjunum, og frá 1968 til 1970 var
aukningin 30% í V-Þýzkalandi.
í lang-flestum tilfellum er um að
ræða lekanda eða sárasýki, og vilja
margir sérfræðingar kenna um notk
un pillunnar. Eiga þeir þá við,
að notkun hennar hafi leitt af sér
kæruleysi í kynlífi, og fullyrt er
að nú sé þaö af sem áður var,
þegar rekja mátti flest kynsjúk-
dómatiilfelli til vændiskvenna. Þeim
er nú aðeins kennt um 5% af sýk-
ingartilfellum. Tuttugu af hundraði
kynsjúkdómatllfella í Bandaríkjun-
um eru rakin til maka kynvillinga,
en langstærstan hlut í útbreiðslunni
eiga „venjuleg“ kynmök fyrir hjóna
band og svo utan þess. — GG
Skemmtiferðaskip á
hverjum degi núna
Nú iíður varla sá dagur, að
skemmtiferöaskip eitt eða fleiri séu
ebki inni. Júilí er aðal-mánuður
skemmtiferðaskipanna en komum
þeirra til landsins fer fjölgandi meö
hverju árinu.
í morgun lágu Gripsholm meö
<S>Bandaríkjamenn aðallega og Ham-
borg með Þjóðverja við festar á
höfninni. Skemmtiferðaskipin voru
þrjú talsins inni á höfninni í fyrra-
dag og í gær voru þau tvö. Það er
því Mflegt á aðalslóðum túristanna
sem leggja undir sig „túristagöt-
urnar“ Hafnarstræti og Austur-
stræti þessa dagana.