Vísir


Vísir - 14.09.1971, Qupperneq 3

Vísir - 14.09.1971, Qupperneq 3
3 V í SIR. Þriðjudagur 14. september 1971. í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND ÉMORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Slysa-atómstríð hindruð? Samkomulag heimsvsldanna tveggja undirritað eftir viku Kurt Lotz, aðalforstjóri Volks- wagen-verksmiðjanna, skýrði í gær frá því að hann mundi senn segja af sér. Hann hefur undanfarið sætt harðri gagnrýni, ekki sízt innan stjómar fyrirtækisins, einkum fyrir þá stefnu að framleiða margar teg undir. Undanfarna mánuði hafa sí- fel'lt verið að birtast £ þýzkum blööum fréttir um fjárhagsörðug- 'oika Volkswagen, er stafi af því, að of mikið fé hafi verið lagt í nýj ar bílagerðir. Þá hefur Lotz einnig bAtt. ákaflega einræðissinnaður, bæði gagnvart starfsmönnum og einnig verkalýðsfélögum. Frétta- stofan Reuter segir f gær aö and- rúmslo'ftið f kringum Lotz hafi ekki verið kuldalegt; heldur gaddfreðiö. New York Times hélt því fram í gær, að samkomulag hefði náðst milli Bandarfkianna og Sovétríkj- anna um aðgerðir til að hindra, að kjarnorkustyrjöld brjótist út af misskilningi. Þetta samkomulag hafj náðst í kyrrþey í Salt-viðræö- unum í Helsinki í Finnlandi og verði undirritað af utanríkisráð- herrum ríkjanna, William Rogers og Andrei Gromyko, þegar þeir hittast f New York eftir viku. á þriðjudaginn kemur. Þungamiðja samkomulagsins I felst í því, að skotið veröi á loft gervitungli, sem á að koma í stað- inn fyrir beinu s’imálínuna milli I Washington og Moskvu. Gert er ráð fyrir að heimsveldin tvö forðist að jgrípa til hefndaraðgerða eftir árás, ; fyrr en haft hafi verið samband við jhinn aðilann og að þeir sameigin- lega kanni, hvaða óhöpp geti hafa komið kjarnorkusprengingum af ,stað. Talsmenn bandaríska' utanríkis- ráðuneytisins hafa ekki viljað segja álit sitt á fréttinni. En New York Times. vitnar í „áreiðanlegar heim- ildir“ um að samkomulaeið hafi verið samið af sovézkum eg bsr.o'a- rískum sérfræðingum. Þessar við- ræður hafi byrjað 31. marz í V\n- arborg og hafi sfðan haldið áfram í tengslum við viðræðurnar f Hels- inki. Scotland Yard hlustaði á 100 millj. króna bankarán Fengu uðvörun rudíóumutörs en gripu uð lokum í tómt Lögreglan í London hlust- aði í gær á beina útvarps- sendingu frá' bankaráni í borginni án þess að geta haft hendur í hári ræningj- anna. Það tók nærri 34 tíma að miða út ránið og þá voru ræningjarnir á bak og burt með 500 þús- und sterlingspund eða yfir 100 milljónir króna, fyrir itan gimsteina og peninga skjöl. Innbrotið var framið f útibú Lloyds banka f Baker Street 185, að eins steinsnar frá hinu sögufræga húsi Baker Street 221b, þar sem Sherlock Holmes átti að hafa búið. Ræningjarnir höfðu radíósam- band á milli sín, meðan á innbrot inu stóð. Þeir notuðu stuttbylgju tæki, sem geta bæði tekið á móti sendingum og sent frá sér. Lög- reglan hefur upplýst, að radíóama- tör eða útvarpsáhugamaður hafi náð samtali ræningjanna inn á tæk ið sitt, þegar þeir voru í fullum gangi í innbrotinu. Þegar honum varð ljóst, hvaö var á seyði lét hann Scotland Yard vita. Æn það tók rannsóknarlögregluna tíma og 40 mínútur að miða stað inn út. Þar fundu þeir 13 metra löng göng frá verzlun í næsta húsi sem hafði verið lokuð í tvær vikur. Göngin náðu undir kjallarann und ir bankanum og enduðu í hálfs fer- metra ferhyrntu gati í gólfi á geymsluhvelfingu bankans. En löigreglan greip í tómt. Ræn ingjamir höfðu haft nógan tíma til að tæma gevmsluhólf bankans og komast burt með allt fémætt, um 105 milljónir króna í peningum og mikið magn a? gimsteinum og verð mætum skjölum. Meðan reynt var að miða út ræn ingjanna, var, farið f alla bánka, bankaútibú og stórverzlanir á margra km svæði kringum Baker Street til þess að athuga, hvort allt væri f lagi. Lögreglumenn fóru m.a. inn í bankann, þar sem ránið var framið. Þeir skoðuðu bankann að innan og komust að raun um, aö dyrnar að geymsluhólfum bank- ans voru óhreyfðar. Töldu þeir þá allt vera í lagi, en í rauninni voru ræningjarnir þá bak við hurðina og höfðu hægt um sig. Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem lögreglan he-fur hlustað á beina út- sendingu frá bankaráni. Sáttatilraunir sem tókust ekki Hér standa yfir tilraunir til sátta í Attica-fangeslinu í New York ríki, þar sem nokkur hundruð fangar hafa í fjöra daga haidið 38 gíslum föstum. í gær var útséð um, að samkomulag mundi nást. Var þá ráðizt inn í fangelsið og völdin tekin með vopnavaldi af föngunum. Átta fangaverðir og 29 fangar létu lífið í bardaganum, sem lauk með sigri laganna varða. Sex gegn Bandaríkjunum Samkomulag fjármálaráðherra Efnahagsbandalagsins Hinir seX fjármálaráðherrar Efna- hagsbandalagsrikjanna luku f nótt viöræðum s’inum f Bruxelles og höfðu þá náð samkomulagi um ýmsar aðgerðir í gjaldeyrismálum. Fyrst og fremst munu ríki Efna- hagsbandalagsins krefjast þess, að Bandaríkin afnemi hinn nýja 10% innflutningstoll sinn og lækki gengi dollarsins miðáð við gullverð. Aö þessu loknu muni ríki Efnahags- bandalagsins taka afstöðu til hugs- anlegrar hækkunar gjaldmiðla bandalagsins Formaður ráðherranefndarinnar ítalski fjármálaráðherrann Ferrari- Aggradi, sagði eftir fundinn, að langar og erfiðar alþjóðaviðræður væru í vændum. Svo virðist sem þessi sex rtki muni koma fram sem ein heild á fundi „hinna tíu‘‘ ríku landa heims, sem verður á morgun f London og á fundi Alþjóðagjald- jeyrisvarasjóðsins f Washington 27. I september. Stálu 30 milljón kr. virði af pelsum og skinnum Mesti pelsaþiófnaður í sögu Sví þjóðar var farminn um helgina hjá skinnaheildsala í Stokkhólmi J. L. Chanow f gamia bænum. Verömæti skinnanna, sem stolið var er áætlað um 30 milljónir fs- lenzkra króna. Svo virðist sem þjófarnir hafi notal stiga til að komast inn í geymslusal heildsölunnar og síð- an kastað skinnum og pelsum niður á vörubíl fyrir utan. Meðal þess sem stolið var, eru 600 skinn af silfurmink og hvítmink og 300 pelsar, þar á meðal 60 ákaflega verðmætir. Stokkhólmslögreglan telur, aö þjófarnir muni reyna að komast úr landi. Allar tollstöðvar hafa verið varaðar viö þeim. Gromyko VW-Lotz fallinn Undirríta þeir á þriðjudaginn kemur? Rogers

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.