Vísir - 14.09.1971, Page 4
VISIR. Þriðjudagur 14. september l»7i.
George Besi aldrei ketri
og slapp við keppnisbann,
!
Arsenal sigraði Leeds i stórleiknum á Highbury
Hann Georgie Best er
heldur betur í fréttunum
þessa dagana. Brezkir
blaðamenn eiga ekki
nógu sterk lýsingarorð
um leikni hans að und-
anförnu. Hann hafi
aldrei leikið betur á sín
um litríka ferli — aldrei
hafi einstaklingur sýnt
aðra eins snilld á ensk-
um knattspyrnuvöllum.
Og í gær kom Best fyrir
aganefnd enska knatt-
spyrnusambandsins
vegna brottreksturS af
velli gegn Chelsea á dög
unum — og slapp. Þegar
allir reiknuðu með því,
að hann fengi 2—3 mán
aða keppnisbann kom
aganefndin á óvart og
úrskurðaði, að það hefði
verið nóg hegning fyrir
hann að vera vísað af
leikvelli eftir orðskak
við dómara. Og Best
mun því sýna það bezta
í knattspyrnu áfram.
Og það var Best, sem tætti
vörn Crystal Palace sundur á
laugardaginn. Hliðum vallarins
var lokað talsvert fyrir leik-
tíma — völlurinn var troðfullur
af áhorfendum, sem komnir
voru til að sjá snillinga Manch.
Utd Þeir sáu Best í sínu bezta
formi — en hann var heppinn
að vera ekki bókaður af dóm-
ara. þegar hann spyrnti knett-
inum frá í aukaspyrnu Palace.
Oftlega lék snillingurinn á
marga varnarmenn Palace —
lagði knöttinn fyrir Law, sem er
nú eins skarpur í vítateignum,
og nokkru sinni áður og fjórum
sinnum sendi Law knöttinn i
markið — en aðeins tvö mark-
anna voru tekin gild af dóm-
ara leiksins. Best skoraði einnig
siálfur, en það mark var dæmt
af vegna bess að Law var rang-
stæður. Fyrsta mark United I
leiknum skoraði Brian Kidd eftir
homspymu Best.
Annars var aðalleikur umferð
arinnar á Highbury milli Arsen-
al og Leeds — liðanna, sem svo
mjög kepptu um titilinn í vor.
Og Arsenal náði sér loksins á
strik að nýju — sýndi jafn góð
an leik og gegn Chelsea f fyrsta
leiknum í ágúst. Leeds, sem vant
aði fjóra fasta leikmenn, þá
Sprake. Cooper, Bates og Jones,
átti ekkert svar við slíku. Ars-
enal sigraði með 2—0. John Rad
ford átti hreint frábæran leik
og lék vörn Leeds grátt. Ekki
skoraði hann þó í leiknum. —
George Graham skoraði fyrra
mark Arsenal á 37. mín., en
fyrst í síðari hálfleik náði Leeds
sínum bezta leikkafla og sótti
talsvert. Johnny Giies komst þá
frír að markinu, en með mjög
góðu úthlaupi tókst Wilson að
verja spyrnu hans. Knötturinn
barst upp völlinn og Ray Kenne
dy fékk hann á miðjunni. Geysi
legt kapphlaup varð upp allan
völl milli hans og Poul Reaney,
sem lauk með því, að bakvörður
inn felldi Kennedy inni f vitateig.
Peter Storey tók vitaspyrnuna
og skoraði, en Harway kom við
knöttinn á leiðinni í markið. —
2 — 0 sigur Arsenal var f höfn.
Loksins sungu áhorfendur á
Highbury á ný — við erum
meistarar. En við skulum nú líta
nánar á úrslitin á laugardag og
áhorfendafjöldi á leikjunum er
innan sviga.
Arsenal—Leeds 2—0
(51.196)
Coventry—Nottm. Forest 1—1
(20.200)
C. Palace —Manch. Utd. 1-3
(44.020)
Derby —Stoke City 4—0
(32.545)
Huddersfie'd—W.B.A. 1—0
(9.938)
Ipswich—Leicester 1—2
(18.513)
Livernool — Southampton 1-0
(45,778)
Manch. City—Newcastle 2—1
(32.710)
Sheff. Utd.—Tottenham 2—2
(41.112)
West Ham—Chelsea 2—1
‘(36-866) • *f “ P*f'
Wol ves — Everton 1—1*
(26.8331 1 . ’■ ■/ ti* Á /f'i ;«í 7>i
2. deild:
Blackpoal—Norwich 1—2
Bristol City-—Hull 4-0
Cardiff — Sheff. Wed. 3—2
Carlisle—Watford 2—0
Charlton—Middlesbro 0-2
Fulham—Burnley 0-2
Luton—Birmingham 0—0
Oxford——Millvall 1-2
Portsmouth—Orient 3—2
Q.P.R.—Preston 2-1
Sunderland—Swindon 1—0
Tottenham lék vel framan af
George Best, Iengst til vinstri, sýnir snilli sína gegn Crystal Palace og sendir knöttinn í
markið fram hjá varnarmönnum Palace, en Denis Law var rangstæður og markið dæmt af.
í Sheffield og fengu þeir Chiv-
ers og Coates þá ágæt tækifæri,
en Hope markvörður Sheff. Utd.
varði skot þeirra vel. En smá
saman fóru hinir skemmtilegu
miðjum Shefffield að ná undir
tökunum og þar lék enginn bet-
ur en Trevor Hockey (áður Birm
ingham). Leikmenn Tottenham
vörðust vel þar til á 37. mín., að
hár knöttur kom fyrir markið
og Mike England var svo óhepp
inn að skalla í eigið mark. —
Martin Peters tókst að jafna á
síðustu sekúndum hálfleiksins
með einu af þessum frægu skalla
mörkum sínum. Og svo hófst
síðari hálfleikurinn og áhorf-
endur fengu nóg fyrir peninga
sína — leikurinn var mjög
skemmtilegur. Scullion náði for
ustu fyrir heimamenn og lengi
vej leit út fyrir að það vrði sig-
urmarkið í leiknum. Svo varð
bó ekki. Alan Gilzean tókst að
jafna og Iitlu munaði að Tott-
enham fengi bæðj stigin, þegar
Chivers áttj þrumuskot yfir
markið í lokin.
Joe Royle, sem nú leikur orö-
ið á kantinum hjá Everton, skor
aði fyrir Everton gegn Úlfunum
og þetta fyrsta mark Everton á
vútjyelli, áfc þessu, kappnistímabili *
bjargaði öðru 'stiginu. Hegan
hafði náð forustu fyrir Úlfana i
! ileikhiim, .en þeir léku ekki af
venjulegri getu og sakna greini
lega McCalIiog, sem er meiddur.
Annar Best er einnig í frétt-
um — Bermuda-svertinginn
Clyde Best hiá West Ham. Hann -
skoraði bæði mörk félags sins
gegn Chelsea og þessum tví-
tuga stóra og sterka pilti er
spáð glæsilegum frama — sagt
að hann muni komast í hóp
hinna albeztu. Eina mark Chel-
sea í leiknum skoraði Hollins.
Ðerby lék mjög vel gegn
Stoke og allur leikur liðsins er
nú betri og óþvipgaðri en þegar
McKay réð þar ríkjum Todd
skoraði fyrsta markið í leikn-
um — hið fyrsta, sem hann skor
ar fyrir sitt nýja félag, en sem
kunnugt er keypti Derby hann
frá Sunderland fyrir 170 þúsund
sterlingspund í vor. Síðan bætti
annar fyrrverandi Sunderland-
maður hjá Derby - O’Hare —
öðru marki við fyrir hlé. í síð-
ari hálfleik skoruðu þeir H’nton
og Gemmell og það er ekki á
hverjum degi, sem Gordon
Banks verður að sjá á eftir
knettinum fjórum sinnum í
markið.
Ernie Hunt skoraði fyrir
Coventry og það er 150. markið,
sem hann skorar í deildakeppn-
inni. Cormack jafnaði fyrir For-
est, sem þar náði heldur óvænt
stigi. John Toshack lék með Liv-
erpool að nýju og skoraði eina
markið í leiknum gegn South-
ampton.
Staðan í 1. deild er nú þann-
ig:
Sheff. Utd. 8 6 2 0 16:6 14
Derbv 8 4 4 0 16:6 12
Manch. Utd. 8 5 2 1 16:9 12
Manch. City 8 4 2 2 14:6 10
Leeds Utd. 8 4 2 2 11:7 10
Wolves 8 3 4 1 10:8 10
Líverpool 8 5 0 3 13:11 10
Arsenal 7 4 0 3 8:5 8
Tottenham 7 2 4 1 11:10 8
Southampton 8 3 2 3 11:11 8
Stoke City 8 3 2 3 9:11 8
West Ham 8 3 2 3 9:7 8
Coventry 8 1 5 2 10:15 7
WBH 8 2 2 4 5:7 6
Ipswich 8 1 4 3 6:6 6
Leicester 8 2 2 4 9:13 6
Everton 8 2 2 4 4:7 6
Chelsea 8 2 2 4 11:16 6
Huddersfield 8 2 2 4 8:14 6
Notthm. For. 8 1 3 4 9:13 5
Newcastle 8 1 1 6 5:15 3
C. Palace 8 1 1 6 5:15 3
Á Skotlandi mættust Rang-
ers og Celtic í deildinni og var
það heldur sögulegur leikur. —
Macari skoraði fyrsta markið í
leiknum fyrir Celtic, en Willie
Johnston jafnaði eftir hálftíma
fyrir Rangers úr víti. Rétt fyrir
hálfleik skoraði svo Colin Stein
og þannig stóð nokkuð út í s.h.
að Dalglish jafnaði. En svo byrj
aði ballið. Dómarinn rak Conn
hjá Rangers af leikvelli fyrir lít
ils háttar brot, en hann hafði
verið bókaður áður, og rétt á
eftir skoraði Stein fyrir Rangers
— gott mark, sögðu blaðamenn
— en dómarinn dæmdi það af.
Undir lokin sótti Celtic mjög.
Greig fyrirliði Rangers meiddist
þá og var útaf, þegar Jimmy
Johnston skoraði sigurmark
Celtic á lokasekúndum leiksins.
Aðdáendur Rangers voru æfir
og var mikið um handtökur i
Glasgow um kvöldið.
Markhæstu leikmenn í 1. deild
á Englandi eru nú Francis Lee
(Manch City) 8, George Best,
(Manch. United), McDonald
(Newcastle), Dearden (Sheff.
Utd.), Woodward (Sheff ötd.),
Gilzean (Tottenham) Hollin«
(Chelsea) og Clyde Best (We*t
Ham) allir með fimm mörk.
— Hs*m.
Martin Chivers. Tvívegis mun
aði litlu, að „risanum“ tækist
að ná í bæði stigin fyrir Tott-
enham.