Vísir


Vísir - 14.09.1971, Qupperneq 4

Vísir - 14.09.1971, Qupperneq 4
VISIR. Þriðjudagur 14. september l»7i. George Besi aldrei ketri og slapp við keppnisbann, ! Arsenal sigraði Leeds i stórleiknum á Highbury Hann Georgie Best er heldur betur í fréttunum þessa dagana. Brezkir blaðamenn eiga ekki nógu sterk lýsingarorð um leikni hans að und- anförnu. Hann hafi aldrei leikið betur á sín um litríka ferli — aldrei hafi einstaklingur sýnt aðra eins snilld á ensk- um knattspyrnuvöllum. Og í gær kom Best fyrir aganefnd enska knatt- spyrnusambandsins vegna brottreksturS af velli gegn Chelsea á dög unum — og slapp. Þegar allir reiknuðu með því, að hann fengi 2—3 mán aða keppnisbann kom aganefndin á óvart og úrskurðaði, að það hefði verið nóg hegning fyrir hann að vera vísað af leikvelli eftir orðskak við dómara. Og Best mun því sýna það bezta í knattspyrnu áfram. Og það var Best, sem tætti vörn Crystal Palace sundur á laugardaginn. Hliðum vallarins var lokað talsvert fyrir leik- tíma — völlurinn var troðfullur af áhorfendum, sem komnir voru til að sjá snillinga Manch. Utd Þeir sáu Best í sínu bezta formi — en hann var heppinn að vera ekki bókaður af dóm- ara. þegar hann spyrnti knett- inum frá í aukaspyrnu Palace. Oftlega lék snillingurinn á marga varnarmenn Palace — lagði knöttinn fyrir Law, sem er nú eins skarpur í vítateignum, og nokkru sinni áður og fjórum sinnum sendi Law knöttinn i markið — en aðeins tvö mark- anna voru tekin gild af dóm- ara leiksins. Best skoraði einnig siálfur, en það mark var dæmt af vegna bess að Law var rang- stæður. Fyrsta mark United I leiknum skoraði Brian Kidd eftir homspymu Best. Annars var aðalleikur umferð arinnar á Highbury milli Arsen- al og Leeds — liðanna, sem svo mjög kepptu um titilinn í vor. Og Arsenal náði sér loksins á strik að nýju — sýndi jafn góð an leik og gegn Chelsea f fyrsta leiknum í ágúst. Leeds, sem vant aði fjóra fasta leikmenn, þá Sprake. Cooper, Bates og Jones, átti ekkert svar við slíku. Ars- enal sigraði með 2—0. John Rad ford átti hreint frábæran leik og lék vörn Leeds grátt. Ekki skoraði hann þó í leiknum. — George Graham skoraði fyrra mark Arsenal á 37. mín., en fyrst í síðari hálfleik náði Leeds sínum bezta leikkafla og sótti talsvert. Johnny Giies komst þá frír að markinu, en með mjög góðu úthlaupi tókst Wilson að verja spyrnu hans. Knötturinn barst upp völlinn og Ray Kenne dy fékk hann á miðjunni. Geysi legt kapphlaup varð upp allan völl milli hans og Poul Reaney, sem lauk með því, að bakvörður inn felldi Kennedy inni f vitateig. Peter Storey tók vitaspyrnuna og skoraði, en Harway kom við knöttinn á leiðinni í markið. — 2 — 0 sigur Arsenal var f höfn. Loksins sungu áhorfendur á Highbury á ný — við erum meistarar. En við skulum nú líta nánar á úrslitin á laugardag og áhorfendafjöldi á leikjunum er innan sviga. Arsenal—Leeds 2—0 (51.196) Coventry—Nottm. Forest 1—1 (20.200) C. Palace —Manch. Utd. 1-3 (44.020) Derby —Stoke City 4—0 (32.545) Huddersfie'd—W.B.A. 1—0 (9.938) Ipswich—Leicester 1—2 (18.513) Livernool — Southampton 1-0 (45,778) Manch. City—Newcastle 2—1 (32.710) Sheff. Utd.—Tottenham 2—2 (41.112) West Ham—Chelsea 2—1 ‘(36-866) • *f “ P*f' Wol ves — Everton 1—1* (26.8331 1 . ’■ ■/ ti* Á /f'i ;«í 7>i 2. deild: Blackpoal—Norwich 1—2 Bristol City-—Hull 4-0 Cardiff — Sheff. Wed. 3—2 Carlisle—Watford 2—0 Charlton—Middlesbro 0-2 Fulham—Burnley 0-2 Luton—Birmingham 0—0 Oxford——Millvall 1-2 Portsmouth—Orient 3—2 Q.P.R.—Preston 2-1 Sunderland—Swindon 1—0 Tottenham lék vel framan af George Best, Iengst til vinstri, sýnir snilli sína gegn Crystal Palace og sendir knöttinn í markið fram hjá varnarmönnum Palace, en Denis Law var rangstæður og markið dæmt af. í Sheffield og fengu þeir Chiv- ers og Coates þá ágæt tækifæri, en Hope markvörður Sheff. Utd. varði skot þeirra vel. En smá saman fóru hinir skemmtilegu miðjum Shefffield að ná undir tökunum og þar lék enginn bet- ur en Trevor Hockey (áður Birm ingham). Leikmenn Tottenham vörðust vel þar til á 37. mín., að hár knöttur kom fyrir markið og Mike England var svo óhepp inn að skalla í eigið mark. — Martin Peters tókst að jafna á síðustu sekúndum hálfleiksins með einu af þessum frægu skalla mörkum sínum. Og svo hófst síðari hálfleikurinn og áhorf- endur fengu nóg fyrir peninga sína — leikurinn var mjög skemmtilegur. Scullion náði for ustu fyrir heimamenn og lengi vej leit út fyrir að það vrði sig- urmarkið í leiknum. Svo varð bó ekki. Alan Gilzean tókst að jafna og Iitlu munaði að Tott- enham fengi bæðj stigin, þegar Chivers áttj þrumuskot yfir markið í lokin. Joe Royle, sem nú leikur orö- ið á kantinum hjá Everton, skor aði fyrir Everton gegn Úlfunum og þetta fyrsta mark Everton á vútjyelli, áfc þessu, kappnistímabili * bjargaði öðru 'stiginu. Hegan hafði náð forustu fyrir Úlfana i ! ileikhiim, .en þeir léku ekki af venjulegri getu og sakna greini lega McCalIiog, sem er meiddur. Annar Best er einnig í frétt- um — Bermuda-svertinginn Clyde Best hiá West Ham. Hann - skoraði bæði mörk félags sins gegn Chelsea og þessum tví- tuga stóra og sterka pilti er spáð glæsilegum frama — sagt að hann muni komast í hóp hinna albeztu. Eina mark Chel- sea í leiknum skoraði Hollins. Ðerby lék mjög vel gegn Stoke og allur leikur liðsins er nú betri og óþvipgaðri en þegar McKay réð þar ríkjum Todd skoraði fyrsta markið í leikn- um — hið fyrsta, sem hann skor ar fyrir sitt nýja félag, en sem kunnugt er keypti Derby hann frá Sunderland fyrir 170 þúsund sterlingspund í vor. Síðan bætti annar fyrrverandi Sunderland- maður hjá Derby - O’Hare — öðru marki við fyrir hlé. í síð- ari hálfleik skoruðu þeir H’nton og Gemmell og það er ekki á hverjum degi, sem Gordon Banks verður að sjá á eftir knettinum fjórum sinnum í markið. Ernie Hunt skoraði fyrir Coventry og það er 150. markið, sem hann skorar í deildakeppn- inni. Cormack jafnaði fyrir For- est, sem þar náði heldur óvænt stigi. John Toshack lék með Liv- erpool að nýju og skoraði eina markið í leiknum gegn South- ampton. Staðan í 1. deild er nú þann- ig: Sheff. Utd. 8 6 2 0 16:6 14 Derbv 8 4 4 0 16:6 12 Manch. Utd. 8 5 2 1 16:9 12 Manch. City 8 4 2 2 14:6 10 Leeds Utd. 8 4 2 2 11:7 10 Wolves 8 3 4 1 10:8 10 Líverpool 8 5 0 3 13:11 10 Arsenal 7 4 0 3 8:5 8 Tottenham 7 2 4 1 11:10 8 Southampton 8 3 2 3 11:11 8 Stoke City 8 3 2 3 9:11 8 West Ham 8 3 2 3 9:7 8 Coventry 8 1 5 2 10:15 7 WBH 8 2 2 4 5:7 6 Ipswich 8 1 4 3 6:6 6 Leicester 8 2 2 4 9:13 6 Everton 8 2 2 4 4:7 6 Chelsea 8 2 2 4 11:16 6 Huddersfield 8 2 2 4 8:14 6 Notthm. For. 8 1 3 4 9:13 5 Newcastle 8 1 1 6 5:15 3 C. Palace 8 1 1 6 5:15 3 Á Skotlandi mættust Rang- ers og Celtic í deildinni og var það heldur sögulegur leikur. — Macari skoraði fyrsta markið í leiknum fyrir Celtic, en Willie Johnston jafnaði eftir hálftíma fyrir Rangers úr víti. Rétt fyrir hálfleik skoraði svo Colin Stein og þannig stóð nokkuð út í s.h. að Dalglish jafnaði. En svo byrj aði ballið. Dómarinn rak Conn hjá Rangers af leikvelli fyrir lít ils háttar brot, en hann hafði verið bókaður áður, og rétt á eftir skoraði Stein fyrir Rangers — gott mark, sögðu blaðamenn — en dómarinn dæmdi það af. Undir lokin sótti Celtic mjög. Greig fyrirliði Rangers meiddist þá og var útaf, þegar Jimmy Johnston skoraði sigurmark Celtic á lokasekúndum leiksins. Aðdáendur Rangers voru æfir og var mikið um handtökur i Glasgow um kvöldið. Markhæstu leikmenn í 1. deild á Englandi eru nú Francis Lee (Manch City) 8, George Best, (Manch. United), McDonald (Newcastle), Dearden (Sheff. Utd.), Woodward (Sheff ötd.), Gilzean (Tottenham) Hollin« (Chelsea) og Clyde Best (We*t Ham) allir með fimm mörk. — Hs*m. Martin Chivers. Tvívegis mun aði litlu, að „risanum“ tækist að ná í bæði stigin fyrir Tott- enham.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.