Vísir


Vísir - 01.10.1971, Qupperneq 6

Vísir - 01.10.1971, Qupperneq 6
5 -v Ari Gunnarsson sölukóngurinn fyrir miöju, en Auðunn Gestss. og Gunnar Smári (annar og þriðji söluhæstu) til sitt hvorrar handar honum, Þeir voru sölu- hæsti.r í júlímánuði. — I ágúst (neðri myndin) varð Ari aftur sölukóngur, en nú tóku tveir Guömundar, Ágústsson og Krist- jánsson annað og þriðja sætið. Borgarhagfræðingur segir upp Borgarhagfræðingur, Sigfinn- ur Sigurðsson hefur nú sagt starfj sínu við Reykjav'ikurborg lausu frá næstu áramótum að telja en því starfi hefur hann gegnt í fjögur ár. Frá næstu ára mótum tekur hann við starfi framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga í Suðurlandskjör- dæmi, en þau voru stofnuð í fyrra. Markmið samtakanna er að vinna aö sameiginlegum hagsmunamálum byggðarlag- anna. Gunnar Helgason ráðinn ráðningarsíjóri Borgarráð samþykkti nýlega að ráða Gunnar Helgason, erind- reka í starf forstöðumanns Ráðningastofu Reykjavíkurborg ar. Gunnar hefur gegnt starfi sem erindreki Sjálfstæðisflokks- ins, en tekur við starfj sem Ragn ar heitinn Lárusson hafði með höndum, en hann lézt nýlega. F ramvarðars veitin „Vísir“, „Vísir“, hrópa þeir hinir dugmiklu Vísisstrákar, sem secja svo mikinn svip á borgarlífið, að menn myndu varla kannast við sig í miðbæn- um eftir hádegi, ef þeir létu sig vanta þar einn dag. — Vísir kann vel að meta þessa knáu stráka sem margir eiga eflaust eftir að skipa veigamiklar stöð- ur ’i þjóöfélagi framtímans, eins og margir fyrrvérandi Visis- strákar gera nú — Þess vegna eru þrír söluhæstu strákarnir jafnan verðlaunaðir í hverjum mánuði. — Á efri myndinnj er Kathrein sjónvarps og loftnetskerfi fyrir fjölbýlishús og einstakar íbúðir. Loftnet fyrir allar rásir. Allar nánari upplýsingar fúslega veittar hjá umboðinu. GEORG ÁMUNDASON & CO. Suðurlandsbraut 10. Sími 81180 og 35277. MGMéghvili . fe m meú gleraugum fiú iWii1 Austurstrætl 20. Sími 14566. " Heilsuvernd Námskeið í tauga- og vöðva- slökun, öndunar og léttum þjálfunaræfingum fyrir konur og karla, hefjast mánudaginn 4. október. — Sími 12240. Vignir Andréson. SIMI VISIR V 1 S I R Vatnið flæddi um gólfin en hvergi neina hjálp að fá Mummi skrifar: „Því skaut upp í huga minn um daginn, þegar bilaði leiðsla að vatnskassa á salemi í gömlu húsi, sem ég bý í — að mikil þörf er nú fyrir skyndihjálp í viðgerðum, þegar svona nokkuö ber upp á. Eða hugsiö ykkur vandræði manns, sem stendur í vatnspolli inni á gólfi hjá sér, ört vaxandi vatnstiöm, og rembist í síman- um við að fá einhvern viðgerð- armann. Ekkert lát á vatns- rennslinu meðan maður stóð við á þriðju klukkustund til þess að revna að fá aðstoð. Pétur og Páll iðnaðarmenn úti í bæ líta nefnilega ekki við svona smáræði og vísa á Jónas og Jón, sem era svo þegar til kemur uppteknir við ýmis störf úti í bæ. Hefði maður haft verkfæri við höndina til þess að skrúfa fyrir vatnsinntakið í húsið, mátti bjarga húsmununum frá flóðinu, en hvað ætli það séu margir, sem hafa slik áhöld til taks? — Ég yissi ekki einu sinni hvar vatnsinntakið var, en fann það eftir nokkra leit. Nú veit ég að Hitaveitan að- stoðar fólk oe hefur sérstaka símavakt allar stundir sólar- rringsins ti-1 þess að bjarga fólki í svioaðri neyð, þegar um HEITT VATN er að ræða. En væri ekki ráð að vatns- veitan og iafnve] þá líka raf- veitan tækju upp svipaða þjón- ustu? Hreinlega hefðu til taks skyndihjálp til að firra fólk stórtjóni?" Skemmti- dagskrá á föstudögum Sæmi skrifar: „Væri ekki mögulegt fyrir út- varpið að hafa dagskrána á föstu dagskvöldum svolítið skemmti- legri. Útvarpsráð — eða hverjir það nú eru sem ráða dagskránni — virðast alls ekki hafa gert sér grehi fyrir því að fjötlmargar -éttir vinna ekki lengur á mug- ardögum og vill fólk gjaman hafa eitthvað skemmtilegt við vera heima fvrir. Darskráin á föstudagskvöldum er oft og tíðum hreinlega þrautieiðinleg í . Föstudagur 1. október 1971. útvarpinu og þarf endilega að lyfta henni dálítið upp. Þá yrði það ekki til skaða, að útvarpa danslögum til kl. 1 á laugardags kvöldum. Við íslendingar föram ekki svo snemma að sofa á kvöldin. En endilega að útvarpa skemmtiþáttum eða a. m. k. léttri músík til miðnættis á föstu dögum sem tekið hafa við hlut- verki laugardaganna." Á karlmenn vaxa brjóst og á konur skegg Rafaló hringdi: „Voöalegt var að lesa á 2. síðunni hjá ykkur um það, sem gerðist i dönsku pillu-verk- smiðjunni Ég get ekki orða bundizt: Varla þessu við ég bjóst. Nú víxlast allt á sprand og segg. Á karlmenn vaxa konubrjóst, en konurnar fá yfirskegg". Brjóstgóðir á raunastund Blaðamaður Vísis skrifar aö gefnu tilefni: „Meðan ég var fjarri öllu góðu gríni í sumarleyfi erlendis var ráðizt harkalega og að því er ég tel ómaklega að starfsmönn- um fríhafnarinnar á Keflav’ikur- flugvelli af einum lesanda blaðs ins — Því var haldið fram. að þeir væra stirðbusalegir, hort- ugir og jafnvel látið i veðri vaka að þeir hlunnfæra við- skiptavinina. Ég hef nú ekki lengur tölu á þeim skiptum, sem ég hef átt leið um fríhöfnina á Keflavíkur- flugvelli, en aldrej hef ég orðið var við annað. en þar væru hinir ágætustu menn fyrir að hitta, þó aö oft virðist vinnu- álagið á þeim meira en venju- legt má teljast. * Vegna árásar á þessa ágætu menn vil ég skýra frá síðustu viðskiptum minum við þá, sem voru í ágúst síðastliðnum. — Ég var á leiö út úr frihöfninni eftir að hafa birgt mig vel upp af skozkum lífselixír, sem átti að duga mér á Mallorca f 6 vik- ur. — Plastpokinn sem þessi dýrmæti vökvj hvfldi í, gaf sig skyndilega. þegar ég var á leið- inni út og flöskumar splunduð- ust á gólfinu Það var eins og viö manninn malt, að fjórir eða fimm starfsmenn spruttu úr sitt hverri áttinni, báðust afsökunar á því, að pokinn skyld; hafa gef- ið sig og áður en ég vissi hvað- an á mig stóð veðrið höfðu þeir endurnúiað bifgðirnar mér að kostnaðarlausu." — VJ HRINGIÐ í SÍMA1-16-60 KL13-15

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.