Vísir - 01.10.1971, Síða 10
10
x i s i R . r'ostuaagur 1. OKiODer kt»s„
” í upphafi skyldi
éndirinn skoða”
SBS.ÍUT.BÍK. !
Ódýrari
en aárir!
Shooh
LEIGAH
AUÐBREKKU 44-46.
SiMI 42600.
VIÐRÆÐUR VIÐ
KLIPPARA
— Jbe/’m lofað námskeiði og
hækkuðum launurn eftir Jbað
„Það er kominn skriður á mál
ið, yfirmenn Sjónvarps komu til
viðræðufundar við okkur“, sagði
Erlendur Sveinsson, klippari við
Sjónvarið, er Vísir forvitnað-
ist í gær um kjaradeilu klippara.
„Við ætiuðum okkur raunar
aldrei að ganga héðan út —
leggja niður störf. Það orðalag
var aðeins haft til að fá menn
ina til að tala við okkur, ’nins
vegar ætluðum við okkur að
fara að vinna þetta klippistarf
samkvæmt starfsmati — algjör
lega ósjálfstætt og bara tindir
handleiðslu fréttamannanna.
Þetta deilumál á sér nokkuð
langa sögu — allt frá því Sjón-
varpið tók til starfa. Okkur var þá
lofað að haldin yrðu námskeið fyr-
ir klippara og þeir síðan hækkaðir
í launum eftir siik námskeið. Þessi
námskeið hafa aldrej verið haldin,
en nú hefur okkur verið lofað
að námskeið skuli verða haldin —
og það er ekkert í kjarasamningum
sem bannar að hækka laun okkar
að slVku námi loknu“.
Klipparar eru V 12. launaflokki,
og finnst þeir skör lægra settir, en
t.d. kvikmyndatökumenn sem eru
í 17 launaflokki.
„Við teljum okkur eiga skilin
jafnhá laun og tökumennirnir, eða
a.m.k. að starf okkar sé jafnhátt
metið og þeirra“, sagðj Erlendur,
„og það kemur enda fram í starfs-
mati og annars staöar frá — til
dæmis frá sumum stjörnendum
Ríkisútvarpsins, að það sé algjör
vanþekking á þessu starfi. Maður
hefur heyrt það ofan að hér, að
menn haidj að við séum að greiða
og snyrta hár þulanna, eða eitt-
hvað slíkt. Slik vanþekking og
vanmat er óþolandi Þetta er nægi-
lega erfitt starf fyrir og fer nógu
illa með taugarnar þannig að mað-
ur hefur varla þolinmæði til að
taka þannig afstöðu þegjandi“.
— GG
SÍÐASTI INNRITUNAR-
DAGURINN ER í DAG.
Reykjavík.
Símar 20345, 25224 og 10118
kl. 10—12 og 1—7 daglega.
Kópavogur.
Sími 38126 kl. 10—12 og 1—7
daglega.
Hafnarfjöröur.
Sími 38126 kj. 10—12 og 1—7
daglega.
Keflavík.
Sími 2062 kl. 5—7 daglega.
SKÍRTEINI VERÐA AFHENT.
Reykjavik.
Að Brautarholti 4 laugardaginn 2. október
frá kl. 1—7 og sunnudaginn 3. október
frá kl. 1—7.
Kópávogur.
í Félagsheimilinu (efri sal) sunnudaginn
3. október kl. 1—7.
Keflavík.
í Ungmennafélagshúsinu laugardaginn
2. október kl. 3—6.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
I Í DAG | Í KVÖLD E
VEÐRIÐ
í DAG
Breytileg átt,
skúrir.
Hiti 3—8 stig.
TILKYNNINGAR ®
Kvenfélag LaugarneSsóknar. —
Fundir hefjast aftur í fundarsal
kirkjunnar mánud. 4. okt. kl. 8.30,
Fjölbreytt dagskrá. Félagskonur
fjölmennið og takið með ykkur
gesti. — Stjórnin.
Frá Guðspekifélaginu. Fundur
hefst kl. 9 í kvöld í félagshúsinu
Ingólfsstræti 22. Sigvaldi Hjálm-
arsson flytur erindi: Mystik og
mannlíf.
VISIR
502EH
fyrir
Cigarettuparti til sölu, ódýrt.
Skipti geta komið til greina t. d.
á skótaui eða annari kurant vöru.
A.V.Á.
Vísir'l. okt. 1921.
Föstudagsgrein —
*?•—> 9. síðu
Öldugötu og fleiri götur þar í
grennd? Við gætum kannski selt
þeim svo sem hundrað húseignir
fyrir 10 milljónir að meöaltali.
Og það myndi gera um milljarð
króna, haldiði að það kæmi sér
ekki vel í öllum greiðsluhall-
anum að fá milljarö króna
upp í hendurnar?
Og við gætum búið þurfandi
njósnurum KGB j rússneska
sendiráðinu eftirsótt verkefni.
Ekkj þyrfti annað en reisa háan
múrvegg t.d. í kringum álverk-
smiðjuna í Straumsvík, svo að
ekkert sæist hvað gerðist þar
fyrir innan, og við gætum skap-
að tugum starfsmanna við ál-
verksmiðjuna stórtekjur þar sem
KGB væri óðfúst að greiöa háar
upphæðir fyrir upplýsingar.
Sjónvarpshúsiö við Laugaveg er
að byrja að verða intressant
siðan það reisti Buchenwald-
girðinguna á baklóðinni.
Það er spurning hvort það
gætj ekki borgað sig fyrir okkur
að gera ísland að háborg njósna
í heiminum. Ef erlendum sendi-
mönnum værj t.d. bönnuð öll
ferð um Búrfellsvirkjun, eða ef
allt hálendið væri lokaö fyrir
sovézkum borgurum. Ef blöðin
tækju sig saman um að skýra
aldrei einu orði frá hinum
miklu vegagerðarframkvæmdum
hér austur af Reykjavík upp i
Mosfellssveit og austur yfir
Heiði, þar með fengi hin fjöl-
menna njósnasveit Sovétn'kj-
anna svo mikinn áhuga á þess-
um dularfullu framkvæmdum,
að þeir væru reiðubúir að ausa
fé yfir alla ýtustjóra á leiðinni.
Við gætum líka búið til mjög
dularfullt svæði uppi á Skála-
felli, hrönglað upp bárujárn-
skúrum með gaddavírsgirðingum
allt í kring og látið í það sk’ina
að þar fari fram háleynilegar
Nýalsrannsóknir á radargeislum
eöa jafnvel kjarnorku. Og njósn
araféð myndi fossa inn i landið.
Hálf þjóðin gæti komizt á líf-
vænleg njósnalaun, sem enginn
þyrfti að telja fram. Eða vilja
kommúnistar einoka þennan
gróða og hafa hann fvrir sig?
Ekki svo sem að það sé í raun
og veru neitt merkilegt að ger-
ast hér en sem stendur eru 105
starfsmenn rússnesku leyníþjón-
ustunnar orðnir atvinnulausir,
og viö gætum skaffað þeim eitt-
hvað skemmtilegt að gera, og
lifað flott á leynilegum njósna-
gróða Haldið þið að það væri
munur!!
Frá Dómkirkjunni. Viötalstími
séra Jóns Auðuns verður eftirleið-
is að Garðastræti 42 kl. 6—7 e.h.
alla virka daga nema laugardaga,
en ekki fyrir hádegi. Viötalstími
séra Þóris Stefensens veröur í
Dómkirkjunni mánud., þriðjud.,
miövikud. og fimmtud. möli kl.
4 og 5 og eftir samkomulagi,
heimili hans er á Hagamel 10
sími 13487. Vottorð og kirkju-
bókanir sem séra Jón Auðuns hef-
ur haft gefur séra Þórir Stefen-
sen í Dómkirkjunni.
Listasafn Einars Jönssonar verð
ur opið kl. 13.30—16 á sunnu-
dögum aðeins frá 15. sept til 15.
des. — Á virkum dögurn eftir
samkomulagi.
Ásprestakall. Fótsnyrting fyrir
eldra fólkið í sókninni (65 ára og
eldra) er í Ásheimilinu Hólsvegi
17 alla þriðjudaga kl. 1-—4. Pönt-
unum veitt móttaka á sama tima
f síma 84255. — Kvenféíagið.
SKEMMTISTAÐIR %
Röðull. Hljómsveitin Lísa leite-
ur og syngur.
Silfurtunglið. Diskótek og Aeeo
polis til kl. 1.
Veitingahúsið Lækjarteig 2. —
Hljómsveit Þorsteins Guömunds-
sonar frá Selfossi. Hljómsveit
Guðmundar Sigurjónssonar.
Ingólfsoafé. Gömlu dansarnir í
kvöld. Hljómsveit Garðars Jóhann
essonar, söngvari Bjöm Þorgeirs-
son.
Skiplróll. J.J. og Berta Bíering.
Hótel Borg. Hljómsveií Gunnars
Ormslev. Didda Löve og Gunnar
Ingóífsson leika og syngja.
Hótel Saga. Hiljómsveít Ragnars
Bjamasonar. Dansað tfl M. 2.00.
Hótel Loftleiðir. Hfjómsveit
Karis Lilliendahls og Linda Walk
er.
Sigtún. Gömlu dansarmr. —
Hljómsveit Rúts Kr. Hannessonar
ieikur.
t
ANDLAT
Benedikta Benediktsdóttir Álfa-
tröð 1, Kópavogi, andaðist 25.
sept., 49 ára að aldri. Hún verð-
ur jarðsungin frá Fossvogskirkju
kl. 10.30 á morgun.
Halldór KristinsSon, Borgar-
holtsbraut 24, andaðist 23. sept.,
42 ára að aldri. Hann veröur jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni kl. 10.30
á morgun.
Irorsteinn Tliorarensen.