Vísir - 02.10.1971, Side 2

Vísir - 02.10.1971, Side 2
Brynner kvæntur Yul Brynner, leikari kvæntist fyri,- rúmri viku. Sú hamingju- sama heitir Jacqueline de Croiss- et, ekkja eftir franskan blaða- mann. Hjónavigslan fór fram í borg- inni Deuville í Frakklandi, og fréttist ekkert af þeim skötu- hjúum fyrr en á laugardaginn var, þegar frá því var skýrt, að þau hefðu gift sig fimmtudaginn næsta á undan. Brúðhjónin eru nú að skemmta sér i Saint Tropez. Brynner, sem er fæddur í Rúss landi fyrir 51 ári, hefur tvisvar áður verið kvæntur. Síðast var hann kvæntur amerisku ieikkon- unni Virginíu Gilmore og þar áð- ur sýningarstúlku frá Chile sem Doris Kleiner heitir. Hann á 24 ára gamlan son og 9 ára dóttur. Hin nýja frú Brynner á 18 ára dóttur og er ekkja eftir Philippe de Croisset, sem síðast var fram- kvæmdastjóri franska kvenna- blaðsins „Marie-Claire“. Bara þrjú ár eftir Sammy Davies jr. var sleppt út af spítala í Las Vegas um dag- inn, þar sem hann hefur verið i nákvæmri rannsókn síðan 18. sept ember. Hefur sá frægi leikari og söngvari átt í vandræðum með lifrina í sér — og „er ekki góður — langt frá því. Læknar segja að ég eigi aðeins eftir þrjú ár enn .. . nema ég hafi stranga gát á sjálfum mér. Og það ætla ég að gera. Ætla að vinna Iftið og ekki drekka brennivín. Sérhver maður sem hefur drukkið eins Og ég hef gert s.l. 15 ár getur átt von á einhverju eins og þessu“, sagði sá 45 ára Davies. = BS = = SHS Hálfétið epli kom upp um skúrka Þeir John M, McLean, 2B ára innbrotsþjófur og stéttárbróðir hans, Robert N. Beesley, 32 ára, væru að líkindum frjálsir menn og hamingjusamir að skipujsggja innbrot, hefði þeim ekki ororojjna á f messunni um daginn. Þeir brutust inn í hús f Chester í Englandi og höfðu þaðan með sér margt góðra gripa, sem þeir komw & pcctþéttan felustað. Svo kom löggan og handtók þá, þar sem þeir voru grunaðir um glæp- inn. Ekkert var hins vegar hægt að sanna, fyrr en glöggur póli kom auga á hálfétið epli á arin- hillunni á innbrotsstaðnum. Plast mót voru gerð eftir tannaförun- um, og kom í ljós, að McLean hafði sannanlega bitið í það epli. Af þessum of stóra bita leiddi, að þeir félagar og vinir játuðu á sig sex innbrot til viðbótar, og naga »ú sjálfa sig í handarbökin fyrir eplanagið. Eldar kveiktir í ENGLANDI — herferð gegn „víkingn-klúmi nú ii Frá því á víking.aöld, þegar norrænir víkingar réðust hvað eftir annað með brauki og bramli á íbúa Englands, var það lengi TAKIÐ | TÍGRANA!! John Aspinall heitir maðurinn á myndinni, og hefur sá gert veð- J mál að lífsbrauði sínu. Og það hefur gengið vel. John hefur jafn • an teflt á tæpasta vaðið, segir hann sjáifur, og hefur t.d. efni • á að eiga sérstakt hús og í því fimm unga tígra, sem hann hefur • alið upp frá því þeir fæddust. Stundum bregður hann á leikj með gæludýrum sínum. J siður á Suður-Englandi að kveikja bál á hæstu hæöum og hólum, ef sást til skipa fjandmann.a. Þann 23. september s.l. var þessi siövenja endurvakin. Og I þetta skiptið dugir ekki að kveikja aðeins bál í Suður-Englandi og meðfram ströndinni, heldur var þá kveiktur eldur um allt landið til að vara almenning við nýrri og annars konar danskri innrás frá „óvinalandinu" Danmörku — sem sé kláminu. Nú stendur yfir þriggja vikna löng barátta undir nafninu „National Festival of Light“ (Þjóð lega Ijósahátíðin) og á nú að vekja fólk til umhugsunar um „mengun hugarfarsins". og merkilegt nokk hafa aðstandendur hreyfingarinn- ar fengið hernaöarlega aðstoð frá Danmörku. Haldinn var mikill opnunarfund Uj í Westminster Hall í London og voru þar viðstaddir sendimenn frá „Unge kristne" í Danmörku og ræður héldu þeir Johannes Facius, ritstjóri og séra Johnny Noer, sem og munu ferðast um landið og halda ræður í kirkjum um skaðleg áhrif klámsins í heimalandi þeirra. Dreift hefu,- verið fréttabréfum og áróðurskortum út um allt, og mikið gert til að vekja áhuga brezkra dagbiaða á málinu og er helzt stefnt að því að hrekja þau rök klám-sala og margra félags- fræðinga í Danmörku fyrir klám- frelsinu, að kynferðisglæpum hafi fækkað í Danmörku og að hin frjálslega löggjöf hafi alls ekki reynzt skaðlaus. Segja hinir ungu og kristilegu baráttumenn mót kláminu, að kynferðisglæpum hafi alls ekki fækkað í Danmörku, heldur sé Iög gjöfin aðeins breytt — nú þyki það ekki lengur refsivert, sem menn voru áður dæmdir fyr- ir. Nefna þeir sem dæmi blíðu- sölu kynvillinga, drýgða blóð- skömm innan fjölskyldna (t. d. þegar faðir tælir eigin dóttur — þá er það aðeins faðirinn sem refsingu hlýtur) o fl. af Kku tagi. Þá nefna baráttumennirnir se"” klámi, að kynsjúkdómar ha'' færzt i vöxt í Danmörku upr •» síðkastið: „Við vörum brezku .vé* ina við því, að fara inn á söm’’ braut og Danir", segja hinir kristilegu, ungu Danir í fréttatil- kjmningu til allra fjölmiðla í Englandi, „látið ekki guðlausa menn og gróðaæsta aðila, sem að baki klámöldunni standa menga hugarfar ykkar“. TOKIO SEKKUR í ár hefur Tókíó sigið meira en nokkru sinni áð ur, þessi stærsta borg veraldar hefur sigið und- anfarin ár frá einum og upp í átta þumlunga. Frá því síðari heimsstyrj öldinni lauk, hafa sumir borgarhlutar Tókíó sokk ið meira en sex fet, og er sá sighraði meira en tvö faldur á við það sem hún næstu 50 ár á undan. Michitaka Kaino, forstjóri þeirr ar stofnunar í Tókió sem annast sérstakar rannsóknir til verndun- ar umsverfis við Tókíó, segir þetta sigvandamál vera versta vandamálið sem borgin hefur við að glíma í umhverfismálum. Brýr, sem liggja yfV ár og skurði í útjaðri borgarinnar, hafa sokkið svo mikið, að bátar eða skip komast ekki lengur undir þær. Um það bil 30 af 810 fermilum borgarinnar eru neðan við sjávar mál þegar fjara er mest og meira en 80 fermílur eru neðan við sjávarmál á stórstraumsflæði. Byggingar sökkva niður I jarð- veginn, en enn sem komið er, heldur Kaino, að byggingarnar sem slíkar, séu ekki í hættu, en vandinn verður að líkindum marg falt meiri að fáum árum liðnum. Kaino forstjórj heldur að bygg- ingar og mannvirki hvers konar sökkvi hraðar núna en áður, vegna þess að iðnfyrirtæki dæla æ meira vatni úr jarðveginum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.