Vísir - 02.10.1971, Síða 4

Vísir - 02.10.1971, Síða 4
4 VI S IR . Laugardagur 2. október 1971, Úrval úr dagskrá næstu viku Veifaði flösku fram- an í „löggu" — var tekinn fyrir brugg SJÓNVARP • Mánudagur 4. okt. 20.30 Sjónvarpið og unga fólk- ið. Rætt um væntanlegan sjónvarpsþátt fyrir ungt fólk, sem verður fastur liður á vetr ardagská. 21.00 Kommúnistinn. Leikrit eftir Leif Petersen, Leikstjóri Palle Kjærulff-Schmidt. Að- alhlutverk Sören Elung Jensen. Povl Bærnhard er verksmiðju eigandi í góðu áliti. Hann er frjálslyndur { skoðunum en í blaðagrein, sem hann ritar, ræðst hann harkalega á kyn þáttastefnu Suður-Afríkustjóm arinnar, og afstöðu almennings til þeirra mála. Þessi grein vekur deilur og kemur höf- undinum f koli á ýmsan hátt. 22.00 Síbería. Finnsk mynd um sögu Síberíu á síðustu öldum, og möguleikana, sem þetta land hefur að bjóða nú á dög um. ÞriðnidaJiur 5. okt. 20.30 Kildare læknir. Kildare gerist kennari. 1. og 2. þáttur af sex samstæöum. 21.20 Setið fyrir svörum. Um- sjónarmaður Eiður Guðnason 21.55 Karlar { krapinu. Mynd um líf og kjör skógarhöggsmanna f Norður-Kanada, sem stunda vinnu sína við hin erfiðustu skilyrði, stundum f allt að 60 stiga frosti. Miðvikudagur 6. okt. 20.30 Venus í ýmsum myndum. Ein á báti. Eintalsþáttur eftir Terence Rattigan, sérstaklega saminn fyrir Margaret Leigh- ton og fluttur af henni. Ekkjan Rosmary kemur heim úr samkvæmi. Hún býr ein- sömul í tómlegu húsi, og nú tekur hún að hugleiða, hvernig dauða eiginmannsins hafi borið að höndum. 20.50 Framtíð lítillar byggðar. Mynd um lítið byggðarlag á Hörðalandi og fbúa þess, sem senn verða að bregða búi, þar eð áætlaö hefur verið, að á landi þeirra skuli rísa olíu- hreinsunarstöð, álbræðsla, á- burðarverksmiðja og önnur iðju ver af slíku tagi. 21.10 Vor í lofti (Spring in Park Lane) Brezk b’iómynd frá árinu 1948. Aðalhlutverk Anna Neagle og Michael Wilding. Ungur maður ræður sig sem undirþión hjá auöugum lista- verkasafnara. Þar á heimilinu er einnig ung frænka húsbónd ans, og það er vor f lofti. Föstudagur 8. okt. 20.30 Frá hátíðatónleikum í Björgvin. Norska söngkonan Birgitte Grimstad syngur við eigin gítarundirleik. 21.00 Málarinn Ingres. Mynd um franska málarann Jean Auguste Ingres (1780—1867), sem á sinni tíð var einn helzti for- vígismaður natúralismans í mál ÚTVARP • Mánudagur 4. okt. 20.15 Lundúnapistill. Páll Heiðar Jónsson segir frá. 20.30 Heimahagar. Stefán Júlíus son rith. flytur minningar- þátt úr hraunbyggðinni við Hafnarfjörð. Þriðjudagur 5. okt. 21.05 iþróttir. Jón Ásgeirsson sér um þáttinn. 22.50 Á hljóðbergi. Dirch Passer 0g Kjeld Petersen flytja gaman þætti, m. a. „Ljósmyndin lýgur aldrei“. aralist, og var einkum frægur fyrir andlitsmyndir sínar og söguleg málverk. 21.25 Gullræningjarnir. Brezkur sakamálamyndaflokkur um eltingaleik lögreglunnar við harðsvíraða ræningja. 22.15 Erlend málefni, Umsjónar- maður Ásgeir Ingólfsson. Laugardagur 9. okt. 20.25 Dísa. Uppfinningin mikla. 20.50 Myndasafnið. M. a. myndir um silfursmíði, baráttu við kálflugu og nýja tegund Ijósa til notkunar við kvikmynda- tökugerð. 21.20 Erla Stefánsdóttir og hljóm- sveitin Uthljóð leika og syngja. 21.40 Örlagaríkt sumar (Five Finger Exercise). Bandarísk bíómynd frá árinu 1962, byggð á leikriti eftir Peter Schaffer. Leikstjóri Daniel Mann. Aðal- hlutverk Rosalind Russel, Jack Hawkins og Maximilian Schell. Ungur Þjóðverji, sem gjarnan viþ gerast innflytjandi til Bandarfkjanna, ræðst sem kenn ari til bandarískrar fjölskyldu. En dvöl hans þar á heimilinu veldur ýmsum erfiðleikum. Miðvikudagur 6. okt. 19.30 Daglegt mál. Jóhann S. Hannesson flytur þáttinn. 19.35 Landslag og leiðir. Gísli Sigurðsson varðstjóri í Hafnar- firði talar um Ketilstíg. Fimmtudagur 7. okt. 19.30 Leikrit: „Læknir f vanda“ eftir George Bemard Shaw, síðari hluti. Leikstjóri Gísli Halldórsson. Þýðandi Árni Guönason magister. 21.40 Fundin ljóð. Andrés Björns son útvarpsstjóri les úr nýút- kominni bók Páls Ólafssonar skálds. Lögreglan geröi upptækt í fyrri- nótt brugg, sem 17 ára unglingar höfðu undir höndum. — Höföu þeir þrir í félagi keypt sér 50 Utra plastkút og lagt í og gerjað hvitöL Lögreglan komst á snoðir um bruggið, þegar unglingur I bifreið veifaði áfengisflösku framan í lög- regluþjón niðri í Pósthússtræti um kl. 3 í fyrrinótt. Lögregluþjóninum Föstudagur 8. okt. 22.40 Frá fyrstu hausthljóm- leikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói kvöldið áður. Stjórnandi: George Cleve. Sinfónía nr. 4 í e-moll op. 98 eftír Johannes Brahms. Laugardagur 9. okt. 19.30 Maður tekinn tali. Stefán Jónsson sér um viðtalsþátt. 21.10 Smásaga vikunnar: „Örlög herra Friedemanns" eftir Thomas Mann. Ingólfur Pálma- son íslenzkaði. Óskar Halldórs son les fyrri hluta sögunnar (og síðari hlutann kvöldiö eft- ir). sýndist piltamir of ungir til þess að hafa áfengi um hönd og stööv aði bílinn til að athuga málið nán ar. Þegar piltamir reyndust vera aðeins 17 ára gamlir, voru þeir tekni til frekari yfirheyrslu um, hvernig þeir höfðu komizt yfir vín ið. En þá kom í ljós, að á flöskunni var heimabmggað öl, og játaði sá, sem flöskunni hafði veifað, að hafa bmggað í félagi með vinum sfn um öðrum tveim (ekki þeim sem í bílnum vom). — Geymdu þeir á plastkút öl í húsi einu í bænum, og gerði lögreglan birgðir þeirra upptækar. —GP Knattspymufélaglö Víkingur. Handknattleiksdelid. Aðalfundur deildarinnar verður haldinn föstu- daginn 8 okt. kl. 20.30 i félags- heimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf Stjómin. M/KLABKAUT HÚSGAGNAVERZLON GUDMUNOAR GUOMUNDSSONAR COMMODA (Hið þægilega) Sófasettið sem hannað er í samræmi við kröfur dagsins f dag. Formfagurt og sérstak- lega þægilegt. Eina sófasettið á markaðinum, sem hefur tvo púða í baki. — COMMODA (Hið þægilega) hefur ný- stárlega lausn á slitflötum: Það er hægt að snúa þeim öllum, svo að þeir endast helmingi lengur, sem er einkar hentugt með armstykkin (sjá mynd). COMMODA (Hið þægilega) er aðeins til sölu á einum staö. — Greiöist á tveimur árum. — Komiö og skoöið — það er fleira að sjá í stærstu húsgagnaverzlun landsins. Nýjar gerðir af sófasettum koma í búðina daglega.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.