Vísir - 13.10.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 13.10.1971, Blaðsíða 1
r™l N • || ■J VERTSHÚSIN BJARGA LEIGUBÍLSTJÓRUNUM Leigubílstjórar í Reykjavík eru nú talsvert uggandi um sinn hag vegna hins mikla innflutn- ings á einkabifreiðum. Fyrstu Fara beint í stúdentinn Allmargir á þritugsaldri notfæra sér nýja reglugerð um menntaskólanám Allmargt fólk, sem komið er hátt á þrítugs- aldur, hefur í vetur haf- ið nám við menntaskól- ana í Reykjavík, ýmist sem fastir nemendur, eða utanskóla. Sam- kvæmt nýrri reglugerð um menntaskólanám, er öllum, sem náð hafa 21 árs aldri heimilt að spreyta sig við stúdents- próf, án þess að ljúka áð ur hinum venjulegu und irbúningsprófum, svo sem eins og landsprófi. „Ég er víst aldursforseti hér“ sagði Elín Hjaltadóttir I 3. bekk Menntaskólans við Tjömina — og því munu víst fáir trúa. — Hún stingur síður en svo í stúf við aðra nemendur skólans, þótt 26 ára sé. Elín settist i 3. bekk í vetur, en las hina tvo utanskóla f fyrra. Þrjár stúlkur um 25 ára aldur eru til dæmis við nám í Mennta- skólanum við Tjömina í vetur, þar af settust tvær í 1. bekk, en sú þriðja V þriðja bekk. Meira er þó um það að þetta fólk stundi nám utanskóla. Ráunar hefur ætíð verið talsvert um það að fólk stundi mennta- skólanám utanskóla Þannig eru 4 nemendur, sem komnir eru yfir venjulegan menntaskóla- aldur utanskóia við gamla Menntaskólann og nokkrir eru að búa sig undir stúdentspróf á þennan hátt við Hamrahlíðar- skóia. Reiknað er með áð þetta fólk ijúkj náminu á tveimur árum. Það þarf ekki að stunda aðrar greinar heldur en þær, sem stúd- Viðureign Fishers og Petrosjans I entspróf er tekið í, en þarf auðvitað að -ná tilskildum eink- unum, „Það þyrfti að stefna að því að koma á fót kvöldskóla fyrir þetta fólk,“ sagöi Guðmundur Arniáugsson, rektor, við Hamra- hlíðarskóiann Þannig væri bezt hægt að koma til móts við þetta fólk, Þetta er oft á tíðum fólk, sem bundið er af fjölskyldum og getur ekki alveg hætt að vinna tij þess að stunda námið. Hentugast væri þvf ef það gæti sótt skóla eftir vinnutíma, til dæmis eftir klukkan fimm. Það er alltaf spurt það mikið um þetta áð ég er sannfærður um að nást myndi nógu stór hópur í heilan bekk Fréttastofan NTB sendi f morgun leikina f skák þeirra Fischers og Petrosjans í gær- kvöldi. Við vonum, að engar vill ur séu í skeytinu. Skákin var þannig (Petrosjan hvítt): 1. c2—o4, c7—c5, 2. gl—f3, g7— g6, 3. d2—d4, c5xd4, 4. f3xd4, b8—c6, 5. e2—e4, d8—f6, 6. bl—c3, d7 —d6, 7. f2—f3, c6x d4, 8. dlxd4, f8—g7, 9. cl—e3, o-o, 10. d4—d2, d8—a5, 11. al —cl, c8—eB, 12. b2—b3, f8—c8, 13. fl—e2, a7-a6, 14. c3—c5, a5xd2, 15. elxd2, f6xd5, 16. c4x c5„ e6—d7, 17. clxc8, a8xc8, 18. hl—cl, c8xcl 19. d2xcl, g8—f8, 20. cl—c2, e7— jafntefli. Sjá bls. 3 Yil kanna hvort rétt- læti sé til á lslandi44 55 — segir Sverrir Magnússon, sem áfrýjar i máli sinu gegn Lands- og Seðlabanka Sverrir Magnússon, fyrrverandi forstjóri Iceland Products, systur- fyrirtækis SÍS i Bandaríkjunum hef ur nú ákveðið að áfrýja undirréttar dómi, þar sem bankastjómir Lands- bankans og Seðlabankans voru sýknaðar af 15.000 dollara skaða- bótakröfu hans. Sverrir höfðaði mál ið á sínum tíma vegna kröfu bank- anna í marz 1968 að hann yrði lát- inn víkja úr starfi meðan nannsókn færi fram á „50 milljón króna mis- skilningi“ SÍS hjá Landsbankanum. — Ég vil láta reyna á það, hvort réttlæti sé að finna á íslandi, segir Sverrir vegna þessa máls. — Öllum má ljóst vera, að á sínum tíma gerði ég ekkert, nema í fuílu sam- ráði við Erlend Einarsson, forstjóra SlS og eftir hans fyrinnælum. — Ég vil láta reyna á það, hvort jafn alvarlegar aðgerðir eins og beitt var gagnvart mér á sinum tíma líðist skaðabótalausar á Islandi, jafnvel þó aö niðurstöður rann- sókna bankanna, sem sýndu að ég var saklaus, hafi seinna verið birtar. Bankarnir voru einmitt sýknaðir í vor, þar sem þeir höfðu birt opin- berlega, að ekki var ástæða til að láta Sverri víkja úr starfi, en þeim var gert að greiða lögmanni Sverris 165 þús. kr. í málskostnað. — VJ sex mánuði ársins voru fluttar inn 3.444 fólksbifreiðar og hef- ur þessi mikli innflutningur haft sín áhrif á afkomumöguleika leigubílstjóra í borginni. Leigu- bifreiðar í borginni munu nú vera um 660 talsins og 142 íbú- ar á hvem leigubíl. Það sem bjargar leigubílstjórum er hin mikla aðsókn að vertshúsum borgarinnar um helgar. Getur verið erfitt að fá leigubíl um það leyti sem danshúsum er lokað, en það eru líka einu skiptin sem ekki er nóg framboð af b'ilum. Hjá bifreiðastjóraféla'ginu Frama fékk blaðið þær upplýsingar, að búast mætt; við enn minnkandi at- vinnu hjá leigubílstjórum á næstu mánuðum enda virðist lítið lát á bifreiðainnflutningnum. — SG Flytjum 8% meira út Aukum tekjumar 5% — og reykjum minna - Sjá nánar um fjárlaga- frumvarpið á bls. 8. Rigning í fyrramálið — 15 grábu frost var á Hveravöllum i nótt „Hann gengur yfir í suöaustan átt í kvöld, og í fyrramálið veröur farið að rigna,“ sagði Veðurstofan í morgun. „Þaö hefur verið fjári kalt undan fariö miðað við árstíma. Það var t. d. 15 gráðu frost á Hveravöllum í nótt, og hér £ Reykjavfk var frostið 7 gráöur klukkan 9 í morg Og þeir segja rigningu koma hér í fyrramú'lið með suðaustan áttinni, sem skipti síðan yfir í suðvestrið annað kvöld með skúrum. Hvað um það. Rétt að hafa frost lög á blikkmerinni þrátt fyrir allt — og hætt er við að margur hafi átt í basli meö færleikinn undan- farið. Ráðleggingar til bílaeigenda er að finna á bls. 9 í dag. —GG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.