Vísir - 19.10.1971, Page 1
!
Sýndi blíðuhót — ásældlst veskið
Útlendingur einn, sem var að
skemmta sér í gærkvöldi, leitaði á
náöir lögreglunnar og kæröi hvari
á peningaveski sínu, sem í voru
erlendir peningar, farseðill hans
fyrir heimferðina svo og persónu-
skilríki hans öll.
Hann hafði grunaöa stúlku, sem
hann hafði komizt í kynni við á
dansleik í gærkvöldi, en -vreskisins
saknaði hann um það ieyti, sem
hann fór af dansleiknum.
Við yfirheyrslu viðurkenndi stúlk
an aö hafa tekið veskið. Hún hafði
iaumað hendi sinni f jakkavasa
mannsins á meðan hún þóttist láta
vel að honum. — Veskið fannst
utan við danshúsið og komst þá
ailt tU skila, nema farseðillinn,
sem ekki fannst,
Grunur féll á stúlkuna um að
vera völd að hvarfi annars veskis,
sem einnig var saknað á dans-
leiknum. — GP
Á hverjum þriðjudegi halda 10—15 oddvitar hinna ýmsu deilda sjónvarpsins sameiginlegan fund, þar sem vandamálin eru rædd. I morgun klukkan stund-
víslega 10.15 settust þeir Jón Þorsteinsson, Pétu* Guðfinnsson og Lúðvík Albertsson (talið frá vinstri á myndinni) á rökstóla og héldu „þriðjudagsfund“.
//
VIIKINDI" LAMA SJONVARPB
Fjórir mættu til vinnu í morgun — 110
manns urðu skyndilega veikir — urgur
vegna launamála orsökin
„Ég vona aö mér verði batnað á morgun, en
satt að segja líður mér ekki vel. Er slæmur í
maganum og með beinverki. Gæti verið þessi
flensa, sem er að ganga“, sagði Eiður Guðna-
son, fréttamaður sjónvarpsins í viðtali við Vísi
í morgun. Hann eins og um 110 starfsmenn
sjónvarpsins „veiktust“ skyndilega í morgun
og er því ekki útlit fyrir að unnt verði að
senda út sjónvarpsefni í kvöld. — Aðeins f jór-
ir fastir starfsmenn sjónvarpsins voru heilir
heilsu í morgun, þrír yfirmenn og húsvörður
sjónvapsins.
„Ég veit ekkert annað, en að
velflestir stárfsmenn sjónvarps
ins, sem eiga vakt í dag virð-
ast vera veikir", sagði Pétur
Guðfinnsson, framkvæmdastjóri
sjónvarpsins, þegar Visir hitti
hann áð máli í skrifstofu sinni
í morgun. Menn virðast hafa
uppgötvað alls kyns kvilla, sem
þeir eru haldnir.
Pétur kvaðst ekkert hafa feng
ið að vita um væntanleg „veik-
indi“ starfsmannanna fyrirfram.
Þannig hefði starfsmannafélagiö
ekki gefrð neitt slíkt í skyn.
Hann viðurkenndi, að allmik-
ill urgur hefði verið í ýmsum
starfsmönnum sjónvarpsins
vegna launamála sinna og hefðu
yfirmenn stofunarinnar fyrir sitt
ieyt; reynt að fá fjármálaráöu
neytið til að taka til endurskoð
unar launa'niðurröðun ýmissa
starfsmanna. Engin svör hefðu
borizt frá fjármálaráðuneytinu
um undirtektir við þessum ósk
um. Þá hefur starfsmannafélag
sjónvarpsins fyrir sitt leyti reynt
að fá Bandalag starfsmanna rík
is og bæja til að öeita sér fyrir
endurskoðun á launaflokkaniður
röðuninni, en lítill árangur hef-
ur sýnt sig.
Verður unnt að sjónvarpa í
kvöld?
Ef menn hressast ekki, þegar
líða tekur á daginn, sé ég ekki
fram á að það verði unnt, sagði
Pétur. Útsendingar sjónvarpsefn
js eru flóknari en svo, að fjórir
ósérfróðir menn geti annazt
þær.
Auk Péturs vom mættir til
vinnu í morgun Jón Þorsteins-
son yfirverkfræðingur, Lúðvík
Albertsson, skrifstofustjóri og
Þórarinn Þorkelsson húsvörður.
Þegar Vísir leit þar inn í
morgun var skrifstofustjórinn
önnum kafinn við að taka á
móti tilkynningum um veikindi
starfsmanna. Mest bar þar á ó-
verulegum veikíndum, svo sem
hálsbólgu, maga'kveisu og þvíum
l’iku, en einn hafði þó uppgötvað
hjá sér skeifugarnarsár!
FuMt útlit er fyrir Það, að
sjónvarpsmönnum muni batna
fyrir morgundaginn. — Eins og
einn ónafngreindur sjónvarps-
„EKKI GERÐ TILRAUN
TIL AÐ NÁ SAMSTÖÐU
— segir Jóhann Hafstein um tillögu rikis-
stjórnarinnar i landhelgismálinu
1 ræðum sínum á alþingi í
gær ræddu bæði Ólafur Jóhann
esson og Jóhann Hafstein mjög
um landhelgismálið. 1 tillögum
ríkisstjórnarinnar um landhelg-
ismál, sem Iögð var fram á al-
bingi í gær er gert ráð fyrir upp
sögn samningsins við Breta og
Vestur-Þjóðverja, og að landhelg
in verði 50 sjómílur frá grunn
línum allt í kringum landið eigi
síðar en 1. september 1972. For-
sætisráðherra kvað það ekkert
vafamál að þingmenn núverandi
stjórnarflokka hefðu verið al-
veg sérstaklega kosnir til að
icoma landhelgismáiinu fram —
Þá sagði hann núverandi rikis-
stjórn hafa kynnt málið meira á
þremur mánuðum en fyrrver-
andi stjórn hefði gert á 12 árum.
Jóhann Hafstein kvaðst harma
tillöguflutning rikisstjórnarinnar í
landhelgismálinu vegna þess í
fyrsta lagi, að með honum hefði
ekki verið gerð minnsta tilraun til
þess að ná samstöðu við stjómar-
andstöðuna um eina og sameigin-
lega tillögu í þessu mikla máli,
enda þótt óskað hafi verið eftir
samvinnu og samráði við stjórnar-
andstöðuna og hún fúslega látið
það í té.
..Meðal bingmanna Siálfstæðis-
flokksins er til íhugunar tillögu-
flutningur sem snertir þetta mál, en
slíkar tillögur frá þingmönnum bæri
aö sjálfsögöu að skoða í utanríkis-
málanefnd samhliða tiilögum ríkis-
stjórnarinnar", sagði Jóhann Haf-
stein. Þá kvaðst hann hafa á opin-
berum vettvangi hreyft tillögu um
að lýsa landgrunnið allt landhelgi
íslendinga. Erlendum fiskiskipum
veröi þá heimijt að veiða upp að 50
mílum þar til við tslendingar höf-
um nánar rannsakað landgrunnið og
mælt. Ennfremur mótmælti Jóhann
Hafstein þeirri fullyrðingu Ólafs
Jóhannessonar, að fyrrv. ríkis-
stjórn hafi ekki kynnt landhelgis-
málið nægjanlega á erlendum vett-
vangi. Málið heföi verið kynnt
óteljandi sinnum á erlendum vett-
vangi. — SG
starfsmaður sagði við blaðamenn
Vísis f morgun: „Mér þykir ó-
trúlag^ að þú getir fengið miki
ar u^íýsingar um kjaramál okk
ar og atinað þvíum,líkt í dag
vegna veikinda, en á morgun
er ekki ólíkiegt að svör við
slVkum spurningum fáist greið-
lega.“
Þaö skal tekið fram, að Emii
Björnsson og Jón Þórarinsson, g
dagskrárstjórar sjónvarpsins,
eru báðir erlendis og var ekki
annaö vitað V morgun en að þeir
væru við hina beztui”he:ilsu.
í morgun hafði ekki verið tek
in ákvörðun um það, hvort trún
áðarlæknir yrði sendur á vett
vang til að kanna heilsu
sjónvarpsmanna. —VJ
MESTA SILD-
VEIÐINÓTTIN
Mesta síldveiði haustsins hér
við land var f nótt. Kunnugt
var í morgun um sjö skip með
frá 8 og upp í 60 lestir. Mest
var veiðin austur við Kvísker og
HroIIaugseyjar, en fáein skip
fengu einnig sfld á vestara svæð
inu, Surtseyjarsvæðmu, einkum
Vestmannaeyingar, en um afla
þeirra var ekki kunnugt í morg-
un.
Síldin austur við Hrollaugseyjar
er mijög blönduö smákræðu og varð
eitt skipanna, Jón Finnsson, til
dæmis að kasta 30 tonna kasti í
sjóinn aftur, þegar búið var að
herpa nótina saman, því þar reynd-
ist um tóma smásíld að ræða.
Þorsteinn frá Reykjavfk kom
fyrstur báta inn til Þorlákshafnar
með afla f nótt um hálfáttaleytið,
með 60 tonn. Skiriney, Hornafirði
var með 8 tonn. Keflvíkingur land-
aði 25 tonnum í Þorlákshöfn, Höfr-
ungur III. fékk 45 tonn, Jón Finns-
son, Garði 35 tonn, Sigurpáll, Sand
gerði 40 tonn og Jón Garðar, Sand
gerði, 40 tonn, Þorsteinn og Kefl—
víkingur fengu sína síld á vestur-
svæðinu.
Úr Norðursjó bárust þær fréttir
að lítið hefði verið hægt að aðhaf-
ast vegna veðurs, en þar var kom-
in bræla f gærkvöldi, Eigi að síður
lögðu tvö síldarskip, sem komu til
Reykjavíkur með síld um daginn,
af stað í nótt suður f NorÖursió,
Asberg og Gísli Ámi. — Þeir veðja
fremur á söluvonina í Danmörku
en góða veiði hér, enda er þetta
fyrsti dagurinn, sem almenn veiði
er á síldarmiðunum. Yfirleitt hef-
ur aðeins einn og einn bátur rekið
í afla, en hinir ekkert fengið. — JH
Söngur að-
dáendanna
hljómaði
niður með
Thames
— sjá bls. 4 og 5
Hvað heitir
menntamála-
ráðherrann?
— sjá bls. 8 og 9