Vísir - 30.10.1971, Blaðsíða 4

Vísir - 30.10.1971, Blaðsíða 4
V1 SI R . Laugardagur 30. október 197L l Úrslitakeppnj haustmóts T. R. er hafin og keppa 10 manns um 3. tij 4. sæti á alþjóðlega skákmótinu sem haldið verður í Reykjav'ik eftir áramótin. Úr- slitin í 1. umferð urðu þessi: Gunnar Gunnarsson vann Harvey Georgsson, Björn Þor- steinsson vann Magnús Sól- mundarson, Bragj Kristjánsson vann Kristján Guðmundsson, en biðskák varð hjá Jóni Torfa- syni og Torfa Stefánssynj. í 2. umferð vann Harvey Torfa, en aðrar skákir fóru í bið. Hér kemur fjörug skák frá undanúrslitum mótsins. Hvítt: Bragj Þorbergsson. Svart: Björn Sigurjónsson. Kóngsindvérsk vörn. 1 d4 g6 2. c4 Bg7 3. Rc3 d6 4. e4 Rf6 5. f3 0-0 6. Be3 Rc6 7. Rge2 He8 8. Dd2 a6 9. Rcl ■ e5 10. Rb3 a5! (Nýjung eða hvað? Alla vega kemur hann hvítum heldur betur á óvart.) 11. a4? (Gefur svörtum b-4 réitinn fyrir riddarann. Bétra var 11. d5.) 11. .... exd 12. Rxd Rb4 13. Rdb5? (Betra var 13. Be2 ásamt 0-0. Hvltum tekst ekki að koma kóngj sínum i skjól og á því verður honum hált.) 13......d5! (Mjög óvænt og skemmtileg peðsfórn sem gefur svörtum mikla sókn.) 14. cxd c6 15. dxc DxDi' 16. KxD Hd8t 17. Ke2 (Betra var 17. Kcl.) 17.....bxc 18. Ra3 Rd3 19. Bb6 Hd7 20. f4 Hb8 21. Be3 Hxbt 22. Kf3 Hb3 23. Re2 Rg4! 24. Hbl HxR 25. Hb8 (Ef 25. KxR Re5t 26 RxR Hd3t 27. Kh4 HxB 27. Hb8 Hxet 28. g4 Hxg mát. eða 28. Kg5 h6 mát.) 25...... Hd8 (Sókn svarts var slík að hann gat jafnvél leikið 25....Rd-f2 26. HxBt Bf8 og hvítur er varnarlaus.) 26. HxB HxH 27. KxR Rel 28. Bd4 h5t 29. Kg5 Hxa 30. BxB KxB 31. Rc3 Ha3 32. Ba6 Ha8 33. HxR HxB 34 Hcl Hb3 35. g3 a4 36. e5 a3 37. Rá2 Hb2 38. Hal c5 HVitur gafst upp. Jóhann Örn Sigurjónsson. Ritstjóri Stefán Guftjohnsen Aðfaranótt mánudagsins 25. október lézt enn af beztu bridge- spilurum landslns, Þorgeir Sigurðs son, góður vinur og spilafélagi. Þorgeir byrjaði ungur að spila bridge og náði undur fljótt þeirri leikni, sem skilur á millj hins venju lega bridgespilara og bridgemeist arans. Sigrar Þorgeirs urðu magir á hinni stuttu ævi hans, og lang- flesta vann hann með félaga sín- um, Simoni Símonarsyni. Eru ótaldar þær tvímenningskeppnir sem þeir unnu saman. Sex sinnum stóð Þorgeir á verðlaunapallinum sem íslandsmeistari í sveitakeppni og Reykjavikurmeistaratitillinn varð heldur ekki afskiptur, 1 landsliði Islands spilaöi hann frá 1963 og ef til vill er það tákn s-ænt fyrir baráttuþrek hans og spilahæfni, að nokkru eftir aö hann fór að kenna lasleika síns, þá vann hann sér rétt til þess að spila á Evrópumótinu í Grikklandi í nóvember. Félagsmál bridgemanna voru Þor geiri mjög hugstæð og vann hann sleitulaust við að efla samtök þeirra. Sat hann árum saman í stjóm Bridgefélags Reykjavikur og var ritari þess, er hann lézt. Fjölskylda og ættingjar, bridge- íþróttin, spilafélagar og aðrir vinir Þorgeirs haf a orðiðfyrir óbætanlegu tjóni. ¥ Að þremuí umferðum loknum í sveitakeppni Bridgefélags Reykja víkur er staða efstu sveitanna þessi: 1. Sveit Jóns Arasonar 48 2. Sveit Hjalta Elíassonar 47 3. Sveit Amar Arnþórssonar 47 4. Sveit Stefáns Guðjohnsen 36 5. Sveit Jóns G. Jónssonar 3B 6. Sveit Jakobs R. Möller 35 7. Sveit Áma Guömundssonar 30 Næsta umferð verður spiluð á miðvikudagskvöld kl. 20 í Domus Medica. * í síðasta þætti var spil frá leik Stefáns við sveit Arnar, sem var athyglisvert hvað snertir sagnirnar. Ein sagnumferö féll niður og er spilið hér aftur, þ. e. hendur a-v, sem aðallega skipta máli. ♦ D-9-S 4 A-K-G-7-6-4-2 ¥ D-3 ¥ ekkert ♦ K-G-8-6 4 A-7-5 4> K-D-10-5 4> A-4-2 Sagnir gengu þannig: Austur Suður Vestur Norður 1 * P 1 ¥ D 2 ♦ P 3 4 P 4 P 4 ♦ P 4 G P 5 4 P 5 G P 7 ♦ Allir pass. Eitt lauf er 17 punktar eða meir, eitt hjarta er 6 punktar eða meir en ekki .neir en tveir kóngar eða einn ás. Fjögur lauf og fjórir tíglar eru keðjusagnir og fjögur grönd biður um meiri upplýsing ar, Fimm lauf er keðjusögn og fimm grönd er áskorun í sjö, sem vestur er fljótur að samþykkja. Fimm grandasögn austurs er að mínu áliti mjög vanhugsuð, þar eð jafnvel sex spaöar geta verið í hættu, ef vestur á aðeins spaða- drottningu, og kóngana tvo. Það kostar ekkert að segja fimm hjörtu, því þá er hægt að stoppa í fimm spöðum, ef vestur á ekkert umfram það sem hann hefur sagt frá. ♦ Fimmtudaginn 25. þ. m. hófst hraösveitarkeppni hjá TBK með þátttöku 20 sveita. Efstar eftir 1. umferð urðu sveitir Birgis Sigurðs sonar 671 st., Þórarins Árnasonar 651 st., Erlu Eyjólfsdóttur 631 st., Ingólfs Böðvarssonar 624 st. og Kristínar Þórðard, 620 st. — Meðal skor var 546 st. H Úrval úr dagskrá næstu viku SJÓNVARP • Mánudagur 1. nóv. 20.30 Tveir. — Trú. Þáttur fyrir ungt fólk. Umsjónarmenn Ásta R. Jóhannesdóttir, Jónas R. Jóns son, Jóhann G. Jóhannsson og Ómar Valdimarason. 21.00 Jón í Brauðhúsum. Smá- saga f leikformi eftir Halldór Laxness. Leikstjóri Baldvin Halldórsson. Leikmynd Magnús Pálsson. Tónlist Gunnar Reynir ' Sveinsson. Flautuleikur Jósef I Magnússon. Stjórnandi upp- töku Tage Ammendrup. Leikritið var frumflutt 23. nóv. 1969. 21.30 Við yðar hæfi frú. Frönsk mynd um tízkufatnað kvenna og fleira. Þýðandi og þulur. Bryndís Jak- obsdóttir. 21.45 Réttindalausir þegnar. Mynd frá finnska sjónvarpinu um Lappa, stöðu þeirra í þjóð- félaginu og vandamál í sam- bandj við tungumál og fleira. Þýðandi og þulur Gunnar Jón- asson. Þriðjudagur 2. nóv. 20.30 Kildare læknir. Faðir og dóttir. 1. og 2. þáttur af fjór- um samstæðum. Þýðandi Guð- rún Jörundsdóttir. 21.20 Setið fyrir svörum. Umsjón armaður Eiður Guðnason. 22.00 Sker og drangar í röst. Mynd frá norska sjónvarpinu um fugla í eyjunum við strend ur Norður-Noregs og lifnaðar- hætti þeirra. Þýð.: Jöhanna Jóhannsdóttir. 22.25 En frangais. Endurtekinn 11. þáttur frönskukennslu sem á dagskrá var sl. vetur. Umsjón Vigdís Finnbogadóttir. Miðvikudagur 3. nóv. 18.00 Teiknimyndir. Þýðandi Sól- veig Eggertsdóttir. 18.20 Ævintýri f noiðurskógum. Framhaldsmyndaflokkur um margvísleg ævintýri tveggja unglingspilta í skógum Kanada. 5. þáttur. Kapphlaupið mikla. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. 18.45 En frangais. Endurtekinn 12. þáttur frönskukennslu frá fyrra vetri, og lýkur þar með endurtekningu þess kennslu- flokks. Nýr flokkur hefst laug ardaginn 6. nóvember. Umsjón Vigdís Finnbogadóttir. 20.30 Lucy Ball. Þýðandi Sigríður Ragnarsdóttir. 21.00 Hver er Max Frisch? Brezkur kynningarþáttur um svissneska leikritaskáldið Max Frisch, þar sem aðrir ræða við hann, og hann við sjálfan sig. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. 21.30 Svaðilför til Höfðaborgar. Bandarísk bíómynd frá árinu 1950. Leikstjóri Earl McEvoy. Aðalhlutverk Broderich Craw- ford Ellen Drew og John Ire- land. Þýðandi Kristrún Þórðirdóttir. Föstudagur 5. nóv. 20.30 Vaka. Dagskrá um listir og menningarmál á líðandi stund. Umsjón Njörður P. Njarðvík, Vigdís Finnbogadóttir, Bjöm Th. Björnsson, Sigurður Sverrir Pálsson og Þorkell Sigurbjörns- son. 21.05 L’étanger. Stutt frönsk ball ettmynd. 21.20 Gullræningjamir. Brezkur framhaldsmyndaflokkur um elt- ingaleik við hóp slunginna bófa. 11. þáttur. Fróðamjöl. 22.10 Erlend málefni. Umsjónar- maður Jón H. Magnússon. Laugardagur 6. nóv. 16.30 Slim John. Enskukennsla í sjónvarpi. — 1. þáttur. 16.45 En francais. Frönsku- kennsla í sjónvarpi. — 1. þátt- ur. 17.30 Enska knattspyman. 1. deild. Nottingham Forest — Derby County. 18.15 íþróttir. M.a. landskeppni í ísknattleik milli Norðmanna og A.-Þjóöverja. Umsjónar- maður Ómar Ragnarsson. 20.25 Dísa. — Dísarflaskan. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. 20.50 Maður er nefndur Séra Magnús Gíslason fyrrum pró- fastur í Ólafsvík. Séra Lárus Halldórsson ræðir við hann. 21.25 Kæri óvinur. Brezk-ítölsk bíómynd frá árinu 1962. Leikstjóri Guy Hamilton. Aðalhlutverk David Niven, Al- berto Sordi, Amedeo Nazzari og Michael Wilding. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. ÚTVARP • Mánudagur 1. nóv. 17.40 Börnin skrifa. Baldur Pálmason les bréf frá börnum. 19.35 Um daginn og veginn. Gísli Kristjánsson ritstjóri tal ar. 19.55 Mánudagslögin. 20.30 Heimahagar. Stefán Júlíusson rithöfundur flytur minningar sínar úr hraunbyggðinni við Hafnarfjörð (9). 22.40 Hljómplötusafnið í umsjá Gunnars Guðmundsson ar. Þriðiudagur 2. nóv. 19.30 Frá útlöndum. Magnús Þórðarson og Tómas Karlsson sjá um þáttinn. 20.15 Lög unga fólksins. Ragnheiður Drífa Steinþórsdótt ir kynnir. 21.05 íþróttir. Jón Ásgeirsson sér um þáttinn. 21.20 Þjóðleg tónlist frá Grikk- landi. Kalamata-kórinn syngur. Theophilopoulos stjómar. 22.15 Veðurfregnir. Gengið um götur í London. Páll Heiðar Jónsson ræðir við Eirik Bene- dikz sendiráðsfulltrúa. Miðvikudagur 3. nóv. 19.35 ABC Ásdís Skúladóttir sér um þátt úr daglega lífinu. 20.00 Stundarbil. Freyr Þórarinsson kynnir Cat Stevens, söngvara og gitarleik ara. 20.30 Fyrsta íslenzka kirkjan og lestrarfélagið á Kyrrahafs- strönd. Dr. Richard Beck flytur fyrri hluta erindis síns. 21.15 I leit aö Paradís. Dagskrá um Eirík á Brúnum samantekin af Jóni R. Hjálm- arssyni. Flytjendur með honum Albert Jóhannsson og Þórður Tómasson. Fimmtudagur 4- nóv. 19.30 Æskufólk og áfengi. Hinrik Bjarnason framkvæmda stjóri æskulýðsráðs Reykjavík- ur flytur erindi. 19.50 Kórsöngur. Svend Saaby kórinn danski syngur gömul lög heimalands síns. 20.05 Leikrit: ,,Sókrates“ eftir Matthías Johannessen. Magnús Bl. Jóhannsson samdi tónlist við leikritið. Leikstjóri: Helgi Skúlason. 21.40 Ljóð eftir Pablo Neruda, nóbelsskáld ársins Jón Óskar les eigin þýðingar og annarra. Föstudagur 5. nóv. 19.30 Mál til meðferðar. Árni Gunnarsson fréttamaður sér um þáttinn. 20.0o Kvöldvaka. a. „Hekla", kórverk eftir Isólf Pálsson. Karlakór Reykja víkur syngur. Söngstjóri Sig- urður Þórðarson. Píanóleikari Fritz Weisshappel. b. Breiöabólstaður á Skógar- strönd. Séra Ágúst Sigurðsson rekur þætti úr sögu staðarins. c. Ljóð eftir Guðmund Inga Kristjánsson. Hulda Runólfsdótt ir les. d. Hringur. —Hjörtur Pálsson flytur frásögu af hesti eftir Bjartmar Guðmundsson frá Sandi. e. Um íslenzka þjóðhætti. Árni Björnsson cand. mag. flytur þáttinn. f. Islenzk einsöngslög. Magnús Jónsson syngur lög eftir Sigfús Einarsson, Þórarin Jónsson, Markús Kristjánsson, Karl O. Runólfsson og Magnús BI. Jó- hannsson. Laugardagur 6- nóv, 15.15 Stanz. Bjöm Bergsson stjórnar þaetti um umferðarmál. 17.40 Úr myndabók náttúrunnar. Ingimar Óskarsson flytur þátt sem hann nefnir Eins dauði er annars brauð. 19.30 Einn, tveir, þrír. Þáttur í umsjón Jökute Jakobs sonar. 20.00 Hljómplöturabb Þorsterns Hannessonar. 20.45 Papa Doc, einræðisherra á Haiti. Dagskrárþáttur saminn af Halldóri Sigurðssyni. Þýðandi: Silja Aðalsteinsdóttir. Flytjend- ur með henni: Sverrir Hólmars- son, Gunnar Karlsson og Pétur Einarsson. ■riiium — KNATTSPYRNUDEILD BREIÐABLIKS Innanhússæfingar: 5. flokkur sunnudaga kl. ffe. 15 í Kársnsk. mánud. kl. 19.45 í Kópavsk. 4. flokkur sunnud. kl. 17,30 í Kársnessk. 3. flokkur þriðjud. kl. 20,30 1 Kársnessk. 2. flokkur þriðjud. kl. 21,15 í Kársnessk. 1. flokkur miðvd. kl. 22,45 í Kársnessk. meistaraflokkur þriðjud. kl. 22,00 í Kársnessk. Stúlkur miðvikudaga Id. 10,45 I Kópavogsskóla.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.