Vísir - 30.10.1971, Blaðsíða 5

Vísir - 30.10.1971, Blaðsíða 5
'#ISIR. Laugardagur 30, október 1971. 5 Miskunnsemd Guðs TMTiskuansemd Guðs má ei gleyma syngjum við mik- ið um áramótin í hinum há- stemmda sr. Valdimars. Ekki verður síður ástæða til að gera það um næstu áramót heldur en endranær. — Svo gott og gjöfult er þetta ár sem nú er að líða — bæði veturinn, vorið sumarið, haustið það sem af er — allt hefur þetta verið hvað öðru yndislegra og hag- stæðara til sjávar og lands. Og nú er veturinn kominn enn á ný. Haustgrátt regn daganna og fölnuö lauf fallandi til jarðar hafa undanfarnar vik- ur minnt okkur Reykvíkinga á, að veturinn var aö nálgast. Og svo kom hann alveg á réttum degi. Það var s.l. laugardag. Þá kom Esjan hvít niður V Kjalar- nesfjörur fram úr myrkri morg- unsins, og hráslagaleg slydda á götum og húsasundum minnti borgarbúa á að sumarsins blíði blær var búinn að kveöja. En þetta stóð ekki nema' 1—2 daga. Áður en varði var regniö aftur orðið mjúkt og sunnanblærinn 10 stiga heitur. Svona hlýtt og milt hefur haustiö 1971 verið það sem af er hér í Reykjavík. En þetta átti ekki að vera veðurfarslýsing. Og þó að veð- urspámenn látj sér tíðrætt um svonefnda „veðurguði" skulu þær verur heldur ekk; gerðar hér að umtalsefni. En þessi fáu orð, sem hér á Kirkjusíöunni ) dag eru helguö hinum nýliðní^. misseraskiptum — þau éru skrifuð til að minna okkur á það í hve ríkri þakkarskuld við stöndum við forsjónina, sem svo að segja hvern dag þessa árs hefur iátið gjafir sínar drjúpa sem dögg til vor niöur. Þá þakkarskuld ætti okkur öll- um að vera ljúft að gjalda. Og með þvl að fylla hjarta okkar þeirri Ijúfu þakkarkennd þá kemst vetrarkvíðinn ekki að. Og það er mikils virði. Þrátt fyrir öll ljósin og lifsþægindin sem við höfum reynt að brynja okkur með gegn vetrinum og valdj hans, þá fer ekki njá pvi, að um okkur fer hrollkenndur kvíði þegar haustar að og vet- urinn er fyrir dyrum ef við ekki trúum þvi og treystum að yfir okkur öllum vakj hann. börnum sínum sem heyrir sinum himnj frá hvert hjartaslag þitt jörðu á. Hann hefur vakað yfir okkur .nwð gæzku sinni, mettað okkur með miskunn sinnj á liðinni sumartíð. Treysturri þv'i og trú- um að það munj hann gera á þessum vetri sem nú er genginn < garð. Sýnum þá trú okkar i daglegu lífi meö því að verja lífsstundum okkar að vilja hans. Fasrum honum dag hvern að þakkarfórn fyrir gjafir hans. Látum þá trú helga vilja okkar og áform á komandi vetrart’ið. Þökkum honum hvern morgwn fyrir hvíid og svefn liðinaftr nætur. Gefum honum dýrdhta fyrir vöku og starf hvers dágs. Vér viljum þakka þér velgjörðum þínum ei gleyma. Vér viljum treysta þér, oss muntu framvegis gejrma. Fulitreystum því framrás með timans á ný Iíkn þína látir fram streyma. á ' m ■ "f' Samkoma í KFUM sunnudaginn 25. okt, Fremst á myndinni má sjá próf. Wislöff, Geirlaug Árnason stjórnanda Æskulýöskórs- ins og Bjarna Eyjólfsson form. KFUM. Góðir gestir í heimsókn K.F.U.M. og K. fengu góða gesti i síöustu viku. Það vorp , hjónin Carl Fr. Wislöff dr. theol. prófessor við Menig- hedsfakultetet í Oslo og kona hans. Þau hjónin eru ágætir fyrir- lesarar og miklir áhugamenn og áhrifamenn, bæði á kirkjuleg- um ve’ttvangj heima í Noregi og úti á kristniboðsakrinum. Dr. Wislöff er forseti Kristi- legu stúdentafélaganna á biblíu- legum grundvelli. Úr þeim eru deildir víða um lönd. Þau hjónin töluðu 'bæði á samkomum sem haldnar voru á hverju kvöldi í húsi K.F.U.M. og K. við Amtmannsstíg dagana 19. —24. þ. mán. Þau báru vitni lifandj trú á Drottin vorn og Frú Wislöff talar i KFUM og K, Gunnar Sigurjónsson cand. theol. túlkar. frelsara Jesum Krist, töluðu vekj andj arð, .fluttu lifandi boðska,p. sem kom frá h.iartanu, Það var auðfundið. að hinir mörgu á- heyrendur fvlgdust af brennandi áhuga meö þeim vitnisburði, sem Gunnar Sigurjónsson túlk- aði. Söngur var mikill, bæði einsöngur kórsöngur undir stjórn Geirlaugs Árnasonar og almennur söngur hinna mörgu samkomugesta. SVðasta sámkoman var á sunnudagskvöidið. Þá var stóri salurinn í K.F.U.M. þéttsetinn. Þar bar lanamest á ungu fólki. Til þess að allir gætu fengið sæti, varð að koma með fleiri bekki og aukastóla Þaö hafði verið mikil rign- ing þennan dag og frú Wislöff lagðj út af orðunum í 65. sálmi Davíðs: ,,Þú hefur vitjað lands- ins og vökvað það, blessað þáð ríkulega með iæk Guðs, fullum af vatni.“ Vatnið er nauðsynlegt. Án þess fær maðurinn ekki lífi haldið tij lengdar. En þá verður það líka að vera gott, hreint og ómengað. Óhreint vatn er stór- hættulegt spillir — deyðir. Guðs orð er svölun fyrir sálina á sama hátt og vatnið er ó- missandi fyrir likamann. I hjörtum margra býr játningin „Eins og hindin sem þráir vatnslindir, þráir sál min þig. ó Guð. — Sál mína þvrstir eftir Guði, hinum lifandi Guði.“ Próf. Wislöff .talaöi. þetta síðasta samkomukvöid, út frá Fil. 3.13.-14.: „Ekki tei ég sjálfan mig enn hafa höndlað það. En eitt geri ég, ég gievmi því sem að baki er en seilist eftir því sem fyrir framan er og keppi þannig að markinu til verð launanna sem himinköllun Guðs fyrir Krist Jesúm býður." Þetta eru eftirtektarverð orð og hver sem íhugar þau V alvöru hlýtur að spyria sjálfan sig: Hvar er ég staddur? En það hefur ekkj svo mikið að segja hversu langt maður er kominn áleiðis — aðeins ef maður er á réttri leið og lætur ekki hrekj- ast af hennj af þeim hættu- lega áróðri, sem skemmtanaiðn- aður heimshyggjunnar hefur í frammj í öflugum fjölmiðlunar- tækjum. Gætið að hvað þér heyrið! Gefið gaum að hinni heilnæmu kenningu! Látið ekki berást burt af leiöinnj til tak- marksins, sem himinköllun Guðs býður: Fram á lýsandi leið skal þér iitið í trú þar sém Ijómandj takmark þér skín eins og metgrein á meið vex og magnast skál nú sérhver manndáð er notið fær sin. í lok samkomunnar hafði Bjarni Eyjólfsson stutta hugleið ingu og bæn og þakkaði gestun- um komuna og bað þeim bless unar Guðs i framtíðarstarfi. Eiginmaður minn og faðir okkar, ÞORGEIR SIGURÐSSON löggiltur endurskoðandi, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 2. nóvember kl. 1.30. Þeim sem vijdu minnast hans er vinsamlegast bent á Minningarsjóð Knattspymufélags Reykjavíkur. Þórhildur Sæmundsdóttir og börnin. LAUS STAÐA Staða ritara við upplýsingaþjónustu flugmála- stjórnar, Reykjavíkurflugvelli, er laus til um- sóknar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamn- ingi starfsmanna ríkisins. Flugmálastjórinn Agnar Kofoed-Hansen.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.