Vísir - 30.10.1971, Blaðsíða 9

Vísir - 30.10.1971, Blaðsíða 9
ríkjamarkað, en þangað hefur mestur hluti framleiðslunnar jafnan farið. ^standið er ekki eins glæsi- legt hjá Norðurstjörnunni í Hafnarfirði. Þar var framleiðslu hætt um mánaðamótin vegna síldarskorts. Verksmiðian 4 að- eins 35 tonn af sfld, sem dugir til tíu daga vinnslu eða svo. Við höfum óskað eftir því að fá síld hjá útgeröarmönnum, sagði Guðmundur Bjömsson, verk- stjóri hjá Norðurstjömunni, en ekki fengið enn þá. Verksmiðj- an tekur aðeins ferska síld til vinnslu eöa frysta. — Við von- umst eftir því að fá síld fljót- lega, ef veiðin helzt áfram, sagði Guðmundur. Þegar unnið er á einni vakt eins og f sumar, eru um 50 manns starfandj hjá Norður- stjörnunni. Hafnfirðinga mun- ar því um það, hvort verksmiðj- an er í gangi eða ekki. Hins veg ar hefur engum verið sagt upp hjá verksmiðjunni. Starfsfólkið bíður bara eftir síld. Um helgina kemur samninga- nefnd Síldarútvegsnefndar heim frá Svíþjóð, en fulltrúar nefnd- arinnar hafa verið að ganga frá rammasamningum við Svia um kaup á þeirri síld sem nú er að veiðast, það er að segja þeg- ar lokið hefur verið við að veiða nægjanlegt magn fyrir niður- lagningar og niðursuðuverksmiðj urnar. gátum hefur fjölgað mjög við ^veiðamar síðustu daga. Skip in hafa verið að koma heim úr Norðursjó, jafnvel. Til dæmis var nú í vikunni von á þremur skipum, Akurey, Reykjaborg og Óskari Halldórssyni og ætluðu öll að reyna fyrir sér hér á heimamiðum. Það hefur háð skipunum mik- ið, hve síldin er á grunnu vatni. Hún hefur verið á 30 faðma djúpu vatni og ailt upp á 10 faðma djúpu. Það þarf því æði snör handtök til þess að ná nót- inni inn þegar kastað er á svo grunnu vatni. Hafa því orðið talsverðir nótaskaðar. Eftir þvf sem Vísir hefur kom izt næst em nú 37 bátar við sifldveiðamar hér við land um þessar mundir og hafa 10—15 skip bætzt í flotann síðustu dag- ana. Síldargangan hefur verið á austurleið og þokast austur meö suðurströndinni og er nú komin á móts við Ingólfsihöfða. Veiðin hefur mestöll verið úr þessari göngu. Það sem veiðzt hefur austar — í Breiðamerkurdýpi hefur verið mun verri sfid. VÍSl'R. Laugardagur 30. október 1971. FARRIIH VIUA FÁ SÍLD saltað — einkum fyrir niðurlagningarverksmiðjumar. — Söltun nemur um 20 þúsund tunnum — 'islenzku niðurlagningarverksmiðjurnar ganga fyrir — Hingað hefur aðeins borizt sáralítið af sfld, sem er undir 25 cm að lengd. Smærri síld er yfir- leitt ekki nema 1—2% af afla skipanna. Við höfum aðeins þurft að kæra í einu tilfelli. Það var síld, sem barst austan úr Breiðamerkurdýpi — sagði Jón Guðmundsson, annar matsmanna í Vestmannaeyj- um, en þeir skoða sfldina jafnóðum og hún berst að landi. Þessi sfld hefur verið söltuð og fryst jöfn- um höndum, sagði Jón og sumir salta eingöngu, enda er hér yfirleitt um stórsíld að ræða, minnir helzt á Norðurlandssfldina í gamla daga. Verulegt magn af síldinni hefur verið fryst ... Nætumar hafa verið teknar í land hvað eftir annað. Þær vilja rifna, þegar kastað er á grunnu vatni, kannski aðeins 10 f-iöma dýpi. Þetta eru yfirleitt á annað hundrað faðma djúpar nætur. Margir bátanna eru þó með tvær, aðra minni. og 'J'alsvert fjör hefur nú færzt í síldveiðamar með haust- inu þó að þær byrjuðu mjög dræmlega. Hvarvetna í verstöðv unum hér á suð-vesturhominu hafa verið mikiar annir hjá síld- arverkendum og konur haifa feng ið smá törn f söltun, svona rétt til þess að viðhalda þeirri list. í fyrradag var tii dæmis veriö að salta fram undir miönætti hjá fiskverkunarstöðinni Ingi- mundi, sem tekur afla af Helgu n RE. — Þetta er ágæt sfld, gengur lítið af henni sagði Kjartan Þor leifsson, verkstjóri, þegar Vísir ræddi við hann. Ég reikna með an við fáum 300 tunnur úr.þessu, 47 tonnum. Það er mjög, góð nýting. 1 tunnuna fara 146 kg. bátum á vertíðinni í vetur, eins og varð sums staðar í fyrra. Að sö@n Björgvins Jónssonar, verkstjóra hjá Siglóverksmiöj- unni á Siglufirði eru þar nú til 2000 tunnur af síld til vinnslu og mtm þaó magn duga í tæpa tvo mánuði. Um 100 manns vinna hjá verksmiöjunni, þar af um 80 konur. Síldin, sem söltuð hefur verið aö undanfömu kem- fyrr en hún hefur iegiö 3—i mánuði við viss skilyröi. það er við 8 gráða hita. Má því búast við aö SiglóverksmiÖjan verði verkefnalaus tvo til þrjá mánuði í vetur. Verksmiöjan hefur starf að af óvenjumiklum krafti í ár og er búin að taka 8 þúsund lestir af sfld til vinnslu. Um þessar mundir er unnið að því að leggja niður gaffalbita fyrir Banda- Við höfum eingöngu saltað kryddsíld hingað til sagði Kjart- an en erum nú að byrja á sykursíld. JJeildarsöltunin var í gær orð- in um 20 þúsund tunnur samkvæmt upplýsingum Síldar- útvegsnefndar. Þar af er mest allt kryddsíld, sem fer til niður- lagningarverksmiðjanna. Um 12 þúsund tunnur til Siglóverk- smiðjunnar, en hluti af síldinni fer til niðurlagningarverksmiðju Kristján Jónssonar á Akureyri. Auk þessa hefur verulegur hluti síldarmagnsins verið fryst- ur, í Vestmannaeyjum Ilorna- firði og á Suðumesjum. Era þvi litlar líkur á að beituskortur verði að þessu sinni hjá línu-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.