Vísir - 10.11.1971, Side 5
VÍSIR. Miðvikudagur 10. nóvember 1071
■
||||
§1%Í£
■ ■ '
Signrvegarar Víkings í Bikarkeppninni og Ingvar Pálsson aö afhenda þeim verölaun. Guðjón Einarsson sést bakvið hann.
meðalið og kannski skiljanlegt að
jafn reynslulitlir leikmenn og Vfk-
ings og Breiðabliks sýndu ekki sitt
bezta í þetta' mikilvægum leik.
Raunverulega er þetta einn lakasti
leikur Víkings í sumar — og
kannski sá lakast; hjá Breiðabliki.
Vikingar náðu aldrei þeim tökum
á miðjunni, sem gerði þá að stór-
liðj gegn Akranesi, og Guðgeir og
Gunnar voru langt frá sínu bezta.
Vörn liðsins var sterk — Diðrik
varði allt, sem á markið kom og
Jón Ólafsson og einkum þó Jó-
hannes Bárðarson voru traustir á
miðjunni. í framlínunni bar mest
á Eiríki og Þórhalli, sem að mörgu
leyti átti skínandi leik. Lið Breiða-
bliks náði sér aldrei vei á strik
og baráttukrafturinn var ekki hinn
sami og oftast fyrr ’i sumar. Það
var helzt Einar ÞórhaHsson sem
lék vel, og vörnin var einnig nokk-
uð traust. Ólafur góður markvörð-
ur þó hann réði ekki við skalla
Jóns Ólafssonar.
Og þar með er Víkingur aftur
kominn á blað í íslenzkri knatt-
spymu og Ieiktímabilið hefur
hreint verið frábært hjá hinu unga
VÍKINGUR Bikarmeistari
— sigraði Breiðablik i úrslitaleik keppninnar / gær
1-0 og leikur / Evrópukeppni bikarhafa næsta sumar
Eftir 31 ár tókst meistara-
flokki Víkings í knatt-
sþyrnu loks að bera sigúr
úr býtum í keppni beztu
liða íslands — vann sigur,
sem margir góðborgarar
Reykjavíkur hafa lengi beð
ið eftir eins og sjá mátti
á Melavellinum í gær-
kvöldi, þegar Víkingur og
Breiðablik léku til úrslita
í Bikarkeppni KSÍ á flóð-
lýstum vellinum og við
betri aðstæður, en raun-
verulega er hægt að gera
ráð fyrir hér á landi næst-
um um miðjan nóvember.
Fjöldi fólks lagði leið sína
á MelavöUinn og voru
bæði liðin hvött ákaft.
Völlurinn var prýðilegur —
varla pollur á honum — en nokk-
ur sunnangola hafði sín áhrif. VYk-
ingur vann hlutkestið, en fyrirlið-
inn Gunnar Gunnársson, valdj að
léika gegn golunni. Það kom á ó-
vart, én eftir á”kóm"þetta,tU' Sem'
snjallt bragð.
óg síöan hófst Ieikurinn og vissu-
lega voru upphafsmínútumar
skemmtilegar og gáfu fyrirheit,
sem leikmönnum liðanna tókst þó
ekki að uppfylla. Taugaspennan
— og öryggisleikur Víkings — var
alls ráðandi í sYðari hálfleik. Það
voru ekki nema nokkrar sekúndur
af leik, þegar mark Breiðabliks
komst í hættu — knettinum var
spyrnt langt fram og Eiríkur Þor-
steinsson, hinn snjalli miðherji
Víkings komst inn fyrir vörn
Breiðabíiks — ætlaði að vippa
knettinum yfir markvörðinn, en
Ólafur Hákonarson sá við honum
og varði vel. Síðan barst knöttur-
inn upp að marki VYkings og
Gunnar Þórarinsson átti hörku-
skot, sem rétt sleikt; þverslá.
Spennandj augnablik.
Breiðablik var meira' í sókn fyrri
hálfleik, þegar liðið naut aðstoðar
golunnar og þá átti Einar Þórhalls-
son tvívegis skalla framhjá marki
og Gunnar gott skot, sem Diðrik
Ólafsson, markvörður Víkings,
varði mjög vel — en Víkingur
skoraði eina markið í hálfleiknum
Valdi 12 leik-
menn gegn Sviss
Tólf leikmenn voru kvaddir til
að leika fyrir England gegn Sviss
í kvöld í Evrópukeppni landsliða.
Þeir eru Shilton, Leicester Made-
ley, Cooper, Leeds Storey, Arsen-
al, Lloyd og Hughes, Liverpool,
Moore, fyrirliði, og Hurst West
Ham, Lee og Summerbee, Manch.
City Ball, Everton og Chivers,
Tottenham. Sir Alf Ramsey reyndi
að komast hjá þvY að velja leik-
menn, sem tóku þátt í deildabik-
arnum á mánudag.
Skotland leikur við Belgíu í sömu
keppni í kvöld og skozka liðiö er
þannig: Clark, Murrey og Buchan,
Aberdeen, Hay og Johnstone. Cel-
tic, Bremner fyrirliði, og Gray,
Leeds, Stanton og Cropley,
Hibernian, Jardine, Rangers, og
ÓHare Derby.
’og það reyndist sigurmark leiksins.
Og það var mark, sem verð-
skuldaði að vinna leik — stór-
glæsilegt. Á 20. mín. fékk Vík-
ingur aukaspyrnu rétt fyrir
framan stúku vallarins og Guð-
geir Leifsson tók hana mjög Vel
— gaf knöttinn rétt innfyrir
Antatéíg Breiðahliks og bar stökk
miðvörður Víkings, Jón Ólafs-
son, mun hærra en aðrir og
skallaði knöttinn af slíku heljar-
afli af 18 m. færi í markið að
netmöskvar þess lyftust — al-
gjörlega óverjandi fyrir Ólaf.
Frábært mark, sem minnir í
mörgu á hörkuskalla Ríkharðs
Jónssonar sem færði fsiandi
sigur gegn Norðmönnum i
ólympíukeppni á Laugardals-
vellinum 1959. Þetta mark Jóns
Ólafssonar er eitthvert falleg-
asta skallamark, sem ég hef séð.
Síðari hálfleikurinn var heldur
leiðinlegur og raunverulega tókst
Iiðinuim aldrei að sýna þá knatt-
spyrnu sem geröj það að verkum
að þau léku tij úrslita í Bikar-
keppninni Það er kannski skiljan-
legt þegar mikilvægj leiksins er
haft í huga. Önnur stærsta keppni
á íslandi og þátttaka fyrir sigurveg-
arann í Evrópu.
Víkingar hættu á lYtið eftir
mottóinu „öryggj fyrst“ og það
heppnaðist liðinu — Breiðablik
fékk ekk; umtalsv. tækifæri í hálf-
Ieiknum. Og það var líka sjaldan
hætta við mark Breiðabliks. — Þó
komst Ólafur Þorsteinsson (Ólafs-
sonar, tannlæknis) innfyrir vöm-
ina, en Ólafur Hákonarson varði
skot hans — og einnig átti Ólafur
Þorsteinsson skot framhjá þegar
enginn var í markinu. En allur hálf-
leikurinn einkenndist mest af lang-
spyrnum Víkings fram og h-ugmynd-
in bak við þær var sú, aö Breiöa-
blik gat varla skorað meöan knött-
urinn var á vallarhelmingi liðsins.
Þettá var þvY ekkj skemmtileg
knattspyrna en tilgangurinn helgar
liöi Víkings. þar sem meðalaldur
leikmanna' er ré.tt um 20 ár. Þetta
er fyrsti. stórsigur Vikings síðan
félagið sigraði í tvöföldu umferð-
inni á Reykjavíkurmótinu 1940 —
og þá eru einnig 43 ár síðan Vfk-
ingur hefur orðið Islandsmeistari.
— Bikarmeistarar Víkings urðu
Diðrik Ólafsson Bjarni Gunnars-
son, Magnús Þorvaldsson, Jón ÓI-
afsson, Jóhannes Bárðarson Gunn-
ar Gunnarsson, Guðgeir Leifsson,
Páll Björgvinsson, Ólafur Þorsteins-
son. EirYkur Þorsteinsson og Þör-
hallur Jónasson.
Eftir leikinn afhenti Ingvar Páls-
son, varaformaður KSÍ, og fyrrum
formaður Víkings sigurvegurunum
bikar, sem Tryggingamiðstöðin gaf
til keppninnar — og í hópi sigur-
vegaranna var Guðjón Einarsson,
Eimskip, sem svo Iengi var for-
maður Víkings auk þjálfarans
Eggert Jóhannessonar, sem vissu-
lega má vera stoltur með árangur
liös síns f sumar. — hs’im.
Kunnur Víkingur með bikarinn
þá Magnús og Guðgeir.
Þorsteinn Ólafsson, en lengst til vinstri er sonur hans Ólafur,
Ljósm BB.