Vísir - 23.12.1971, Síða 8
Noregur átti þrjú borð á sýnipgunni, hvert öðru glæsilegra. Á
myndinni sjáum við hvemig Norðmenn útbúa borð fyrir nána
vini sem koma f heimsókn og við borðið standa þær Aase Eske-
land tll hægri og frú Rúna Guðmundsdóttir.
■;vv
wmt0i
, •■ ■■■■
’•
Eyborg Guðmundsdóttir listmálari útbjó þetta borð og nefndi það „ungt fóik kemur heim úr leik-
húsi“. Þá era framreiddir ýmsir léttir réttir, t. d.pyisur.
Rússar drekka mikið af te ekki síður en Bretar og hér sjáum
við glæsilegt rússneskt teborð. Mest áberandi á borðinu er hin
stóra temaskina sem er af þeirri gerð, er lengst hefur tíðkazt í
Sovét. Þessi gerð heldur teinu heitu með viðarkolum, en nú era
yfirleitt notaðar temaskínur sem ganga fyrir rafmagni. Teborð
sem þetta nefna Rússar samovar.
Japan er sérstakt vinaland
Zontaklúbbsins þetta árið
Tedrykkja er Japönum hátíðleg
athöfn. Stúlkan á myndinni
er japönsk og heitir Mayako
Kashina.
T I S I R . Flimmitudagur 23. desember 1971’
Glæsileg veizluborð
frá 16 löndum á
sýningu Zontasystra
Zontaklúbbur Reykjavíkur
átti 30 ára afmæli fyrir skömmu.
1 þvi tilefnl hélt klúbburinn
skemmtun á Hótel Sögu og efndi
um leið til sérstæðrar sýning-
ar. Klúbburinn leitaðl til er-
lendra sendiráða og ræðis-
manna erlendra rfkja og þessir
aðilar tóku að sér að útbúa
matar- eða kaffiborð frá við-
komandi löndum. Þarna vora yf-
ir 20 glæsileg borð af 16 þjóð-
emum og við birtum nokkur
sýnishom hér á síðunum. Zonta
konur hafa látið málefni hevm-
ardaufra bama mjög til sín taka
og allur ágóði af afmælis-
skemmtuninni rann til styrktar
þeim.
Núverandi formaöur Zonta-
klúbbslns er frú Sigurlaug
Bjamadóttir.
Þetta er danskt afmælisborð og var það nefnt „Oli 5 áraM. Zonta-
konur standa við borðið og era þær reiðubúnar að sitja afmælis
veizluna hans Óla. Þriðja frá hægri er Sigurlaug Bjamadóttir
formaður Zontaklúbbsins.