Vísir - 29.12.1971, Blaðsíða 8

Vísir - 29.12.1971, Blaðsíða 8
V 1 S I R . Miðvikudagur 29. desember 1971. isir Utgetancu t'ramkvæmdastjóri Ritstjóri Fréttastjóri Ritstjómarfulltrtii Auglýsingastjóri Auglýsingar Afg. -la Ritstjóm Áskriftargjald kr. I lausasölu kr. 12 Prentsmiöja Vfsis : KeyKjaarcww: hZ. • Sveinn R. Ey1óttar«o Jónas Kristjánssaa : Jón Birgir*'Péturswan : Valdimar H. Jókannesson : Skúli G. Jóhannesson : Hverfisgötu 32. Sfmar 15610 11660 : Hverfisgötu 32. Sfmi 11660 . SíðumúLa 14. Sírni 11660 (5 Mnur) 195 á másiuði fnnanlands .00 eíntakiB. - Edda hf. Enn vantar fé til frægðar Engin leiö er að rekja til fulls það gagn, sem íslend- ingar hefðu af því að fá að halda heimsmeistaraein- vígið í skák, sem verður næsta vor, væntanlega ein- hvers staðar í Evrópu. Komið hefur til tals, að það verði haldið hér, ef við bjóðum nógu góð verðlaun. Fulltrúi skáksambands okkar er á leið utan til að gera tilboð í einvígið, og fylgja honum árnaðaróskir heimamanna. Margt bendir til þess, að einvígið verði einstæður skákviðburður. Það mun draga að sér miklu meiri athygli á Vesturlöndum en slík einvígi hafa gert á undanförnum árum. Nú eru það ekki tveir Sovét- menn, sem eigast við, heldur Sovétmaður og Banda- ríkjamaður, Boris Spassky og Bobby Fischer. Menn fylgjast með því í ofvæni, hvort sá heimspólitíski við- burður gerist, að skákkórónan flytjist vestur um haf. Skákferill undrabamsins Fischers er þvílíkur, að á- huginn á þessu einvígi nær langt út fyrir raðir áhuga- manna um skák. Eriendir fjölmiðlar, sem lítt eða ekki hafa sinnt skák, hafa skyndilega breytt um stefnu við tilkomu Fischers. Enginn vafi er á, að sægur blaða og útvarpsmanna mun flykkjast til einvígisins, hvar sem það verður haldið. íslendingar eiga um þessar mundir í nokkrum erf- iðleikum á erlendum vettvangi. Landhelgismálið afl- ar okkur óhjákvæmilega nokkurra óvinsælda í sum- um löndum Evrópu. Og við eigum undir högg að sækja í utanríkisviðskiptum okkar vegna tollmúra Efnahagsbandalagsins. Við þurfum að kynna land °g þjóð og málstað mun betur en gert hefur verið. Til slíks er heimsmeistaraeinvígið vel fallið. Mikill hluti þeirra blaðamanna, sem mundu leggja á sig ferð hingað til lands út af einvíginu, mundi nota tiwíiii ::■■j [a pð hci' annars efn.s. Slíkt vpr’~ okkur sérstaklegr 1 r:; ’ 'm;ð cixs og nú er ástatt i utanríkismálum okkar. Þar að auki er víst, að þessi aukna athygli á íslandi mundi efla mjög viðleitni okkar við að gera ísland að ferðamannalandi. Annáð eins tækifæri til að kynna land og þjóð verður seint fundið. Þess vegna megum við ekki láta fátækt verða okkur að fótakefli. Keppinautarnir um hnossið verða nógu margir samt. Reykjavíkurborg, flugfélögin og fleiri aðilar hafa lagt fram verulegar fjárupphæðir og vilyrði er fyrir góðum stuðningi úr ríkiskassanum. En samt er hætta á, að heildarfjár- hæðin verði of lág er keppinautarnir opna pyngjurnar. Við vitum, að þetta er milljónafyrirtæki og að það er sennilega of lítið að safna tíu milljónum króna. En við vitum líka að kostnaðurinn mundi skila sér á ýmsan hátt, þótt hann yrði miklum mun hærri. Þetta er mál. sem þjóðin stendur einhuga að. Við skulum því opna okkar sameiginlega sjóð svo vel, að hað nægi til sigurs í málinu. (í // Spáð blómstrun efnahags Bandaríkjanna og annarra iðnaðarríkja næsta ár — Verð- bólguhætfan eykst John Connally varð fjármálaráðherra Nixons í sumar og sneri við blaðinu í efnahagsmálum. I baksýn er Arthur Burns yf- irmaður bankamála. Samkomulagið um gengisbreytingar, sem riáðist fyrir viku, mun stuðla að bættum hag og aukinni framleiðslu í helztu iðnaðarríkjum veraldar. Sjö aðaliðnaðarríkjunum er spáð 514 prósent raunveru legri framleiðsluaukningu næstu sex mánuði og meira eftir það. Þetta er góð útkoma og ekki í sam- ræmi við þann ugg, sem víða hefur gætt, en sumir höfðu spáð því, að samdráttur yrði í framleiðslu, jafnvel að „ný kreppuár“ riðu yfir Vestur-Evrópu. I l^aivspár voru ofarlega á baugi í haust, og þóttust menn sjá þess víða merki í efnahagslífi Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku, að til vand- ræða horfði. Þeir erlendu fréttamenn, sem um þetta rituðu bentu á lang- varandi efnahagsörðugleika Bandaríkjamanna, þar sem lítiö miöaöi, þrátt fyrir mfi"jvíslegar tilraunir stjórnvalda Þeir bentu á vaxandi atvinnuleysi á Bret- landj og líkur til þess að drægi úr hinum mikla viðgangi Vestur- Þjóðverja. Bandaríkjamenn fórna litlu nema stoltinu Efnahags- o-g framfarastofnun- in OECD er annarrar skoðunar, ein^ og fram kemur í nýbirtri spá stofnunarinnar. Samkomu lagið, sem nú hefur loks náðst um gengismálin hefur sett stri> i reikninginn. Með þeim gengis breytingum, sem ríkin eru á- sátt um, fæst veruleg leiðrétt- ing. Fyrri gengi voru „röng“ og það hafði margsinnis kast- að heiminutn út í fjármálakrepp ur Þau ollu röskun í viðskipt- un bjóða sem var alvarlegs eðlis og hefði oröið sársauka- fyllri, ef ekki hefði verið gripið 1 taumana. Bandaríkjadollar haföi um árabil verið skráður of hátt miðaö við aðra g.iald- miðla Með gengisfellingu doll- ars hafa Bandaríkjamenn unn- ið margt. Þeir hafa litlu fórnað nema stoltinu. Beztar horfur fyrir Bandaríkin og Kanada Aðalárangurinn verðj að auka bjartsýni og traust í viðskipta- llfinu, þar sem sifelld óvissa um ilililllllli á® ®BSS3 miiiiiERji Umsjðn: Haukur Helgason gengismálin hafi dregið þrek úr fjármálamönnum og atvinnurek endum. Bjartsýnin ein dregur langt I atvinnulffinu, eykur fjár festingu, atvinnu og tekjur. og leiðir til aukinnar raunverulegr ar framleiðslu og lífskjarabóta, þegar grundvöllurinn er traust- ur Gengisfelling dollars og hækk un á gengi ýmissa annarra gjaldmiðla ætti að útrýma að mestu leyt; bandaríska greiðslu hallanum og þeirri röskun, sem hann hefur valdið OECD spá- ir þó, að það verði varia fyrr en árið 1974 sem jafnvægi ná- ist. Bæði Bandaríkin og Kanada eiga að blómgast á nýja árinu, og þar er spáð 6 til 6,5 prósenta aukningu framleiðslu. Þessi rfki muni bæta hag sinn mest. Japanir missa spón úr asldnum í Vestur-Þýzkalandi og Itailu hafa menn haft áhyggjur vegna stöðnunar og aukins atvinnu- leysis að undanfömu. Þau lönd ættu að rétta við næsta ár, segir OECD Japanir hafa nauðugir viljug- ir orðið að hækka gengi gjald miðils sins, jensins. * og þeir verða að þola af þvf nokkum vanda á bandarfskum markaði. Japanir haf gert mörgum banda rískum framleiðendum Tífið leitt með sívaxand; sókn á þann markað með frábærar vömr á tiltölulega lágu verði. Ásðkn Japana og Vestur-Þjóðverja vakti fyrir löngu háværar kröf ur bandarískra framleiðenda um vemd fyrir útlendingunum. Margir studdu þessar kröfur, meðal annars verkalýðsfélög, og þeir hafa nú fengið fram- gengt mörgum kröfum sínum. Japanir eru þó ekká af baki dottnir, og OECD telur ekki, að hagvöxtur þar muni minnka neitt að ráði, og gæt; hann orð ið um 10—11%, að þeirra áliti. Frakkar og Bretar munu einn ig geta fagnað nýja árinu, ef marka má þessar spár. Verðbólga 4,5 prósent á fyrra helmingi 1972 OECD telur. að engin ástæða verði fyrir önnur rlk} að ótt- ast framtíðina, þótt Bandaríkin bætj stöðu greiðslujafnaðar, verði áhrif þess til samdráttar lítil fyrir önnur ríki Meðal annars fella Bandarlkjamenn nú niður 10 prósenta innflutnings- gjald sitt, sem var öðrum þjóð um tji tjóns, og auk þess munu allir hagnast á þv* að hinn mikli bandaríski markaður blómstri með aukinnj velmegun Bandarfkjamanna. OECD varar hins vegar við verðbólgunni. sem líklega muni aukast á fyrra helming; næsts árs og verða 4,5 prósent á þv? tímabili, sem er heidur mciw en verið hemr 1 ftaust, t-egi»r a heildina er litið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.