Vísir - 01.03.1972, Qupperneq 2
2
Vfsir. Miðvikudagur 1. marz 1972.
risntsm:
Mynduð þér sakna sjón-
varpsins, ef það hætti?
Friörik Guömundsson, sölumaö-
ur. Nei, nei, það mundi ég ekki
gera. Ég horfi þaö litið á sjón-
varpiö, aöallega fréttirnar. Og ef
satt skal segja, er ég reglulega
feginn, þegar þaö fer i fri, þvi mér
finnst ekkert verða úr neinu,
þegar þaö er. Maöur les t.d. miklu
minna og það veröur litið úr
verki.
Hólmfrlöur Siguröardóttir, h'ús.'l
móöir.Já, það mundi ég gera. Ég
horfi oft á sjónvarpið eöa alla-
vega það sem horfandi er á.
Framhaldsþættirnir finnast mér
sérstaklega góðir, og ég horfi
oiHaf 4
Kristján Pálsson, prentari. Nei,
alveg örugglega ekki. Ég horfi
endrum og eins á þetta sjónvarp ,
og þá aðallega iþróttir og fréttir,
og likar það efni bezt.
Hrafnhildur Siguröardóttir, hús- I
móöir. Já, ég býst við þvi, að
minnsta kosti stundum. Og ég
horfi lika stundum á það. Lang-
•mest gaman hef ég af dýra-
myndum og fræðslumyndum og
kæmi til með að sakna þess efnis.
Eitt hlutverk samsölunnar að
takmarka fjölda söluaðila
segir forstjóri Mjólkursamsölunnar — Visir kannar dreifingarstaði mjólkur i Reykjavík og nógrenni
Jóhann i Borgarbúöinni fær ekki leyfi til aö selja mjólk úr kæli sinum i búöinni. Þess I staö hefur hann þar
stillt upp kampavini (óáfengu aö visu) og ýmsum essensum. Mjóikina má bara selja i gömlu húsi þarna I
grendinni.
,,Af hverju fáum við
ekki að selja mjólk í
verzlunum okkar, þegar
við uppfyllum öll skilyrði
heilbrigðisyfirvalda til
slíkrar sölu?" spyrja
fjölmargir kaupmenn
bæði í Reykjavík og úti
um land. ..Því getum við
ekki keypt mjólk í sömu
búð og við kaupum kjöt,
fisk, smjör og brauð?"
spurja húsmæður.
Og það er von að þessar
spurningar vakni. Fjölmargar
verzlanir, t.d. hér á Reykja-
vikursvæðinu, sem búnar eru
fullkomnu kælikerfi, hafa sótt
um leyfi til að selja mjólk, en
þeim umsóknum hefur
Mjólkursamsalan synjað. Þess i
stað hefur hún komið upp eigin
búðum og þá oft við hliðina á
nýjum matvöruverzlunum.
Virðist slikt ekki liklegt til að
stuðla að lækkuðum dreifingar-
kostnaði eða hagræðingu við
sölu á mjólk.
Visir fór á stúfana og kannaði
þessi mál litilsháttar.
t Kópavogi litum við inn i
verzlunina Borgarbúðina og
spjölluðum við kaupmanninn
þar, Jóhann Kristjánsson. Eg
hef tvivegis sótt um leyfi til að
selja hér mjólk. I fyrra skiptið
var það seint á árinu 1970, og
Þegar húsmóðir hefur gert öll sin
innkaup i matvöruverzlun, verö-
ur hún aö rogast meö pinklana I
næstu mjólkurbúö til aö kaupa
mjólk meö matnum. Hagræöi
fyrir neytendur — ekki satt?
fékk ég fljótlega neikvætt svar
frá Samsölunni, en engin ástæða
var gefin vyrir neituninni i þvi
bréfi.
Með umsókninni lét ég fylgja
teikningu af kæliklefa fyrir
mjólkina og vottorð frá heil-
brig’bisýfirvoldum, þar sem
þau lögöu blessun sína yfir hús-
næðið. En það hreif sem sagt
ekki. Siðan sótti ég aftur um
söluleyfi i byrjun janúar, en ég
hef ekki einu sinni fengið svar
við þeirri beiðni”, sagði Jóhann.
Borgarbúðin er nýcog glæsileg
verzlun og kemur manni
spánskt fyrir sjónir, að'
viðskiptavinir geta fengið þar
allt milli himins og jarðar af
matvörum, en ekki mjólk. Hana
má aðeins selja i annarri verzl-
un nokkra metra i burtu.
Jóhann hefur opið til kl. 10 á
hverju kvöldi og kl. 10 — 1 á
sunnudögum. Mjólkurbúðin
hefur hins vegar aðeins opið til
kl. 6 og um helgar aðeins til
hádegis á laugardögum. Það
kemur sér illa fyrir viðskipta-
vini Jóhanns að geta ekki fengið
mjólkina senda heim með
öðrum vörum frá verzluninni,
og hefur hann jafnvel keypt
fyrir þá mjólk og látið senda
með handa þeim, er þess óska.
,,Ég hef aðeins farið fram á að
fá að selja mjólk til jafns við
aðra, en af einhverjum orsökum
hefur Samsalan ekki talið slikt
æskilegt”, sagði Jóhann.
Svipaða sögu geta margir
kaupmenn sagt. En hvað segir
forstjóri Mjólkursamsölunnar:
„Eitt af hlutverkum Mjólkur-
samsölunnar er að takmarka
fjölda þeirra verzlana, sem
selja mjólk. Reiknað er með, að
ein mjólkurbúð þurfi að vera á
hverja 1000 ibúa. Samtök fram-
leiðenda sem standa að Samsöl-
unni, hafa sett henni ákveðnar
reglur, og ekki er gert ráð fyrir
fleiri mjólkurseljendum en
þarf”, sagði Stefán Björnsson i
samtali við Visi. Taldi hann
likur á, að dreifingarkostnaður
mjólkur myndi hækka, ef farið
væri að selja hana i matvöru-
verzlunum almennt.
Kaupmenn eru siður en svo á
sama máli. Þeir benda á, að
óliklegt sé, að sérverzlanir með
mjólk séu til þess fallnar að
lækka kostnaðinn. Þvert á móti
aukist hann stórum við slika
óþarfa fjárfestingu.
1 Danmörku var sala á mjólk
og mjólkurvörum gefin frjáls
þann 1. janúar 1971. Uppgjör
siðasta árs bera það með sér, að
mjólkursalan hefur aukizt stór-
lega á siðasta ári svo og sala á
mjólkurvörum. Það sýndi sig,
að bæði framleiðendur og
neytendur högnuðust á þessari
breytingu. Mjólkursölumálin
hérlendis eru nú komin til
alþingis. Fjóri þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, Ellert B.
Schram, Lárus Jönsson,
Matthias Bjarnason og Ragn-
hildur Helgadóttir hafa lagt
fram frumvarp til laga um
breytingar á núverandi lögum
um þessi mál. Er þar lagt til að
þeim verzlunum, sem um það
sækja og fullnægja almennum
kröfum heilbrigðisyfirvalda og
yfirstjórnar mjólkursölunnar,
verði heimilað að selja og dreifa
mjólkurvörum. Er það skoðun
flutningsmanna, að með fram-
gangi þessa máls sé verið að
gæta hagsmuna jafnt framleið-
enda sem neytenda.
—SG
Elin Erlendsdóttir, liúsmóðir. Já,
já, það mundi ég svo sannarlega
gera. En mér finnst nú sjónvarpið
eða efnið i þvi, fara siversnandi.
Fréttirnar eru þó alltaf góðar og
sömuleiðis samtalsþættirnir. En
eins og ég segi, ég mundi sakna
þess, ef það hætti.
Þorgrimur Eyjólfsson, fram-
kvæmdastj. Já, ég hugsa bara,
að ég mundi sakna þess. Ég horfi
dálitið mikið á það, en annars fer
það auðvitað eftir efninu. Ég hef
anzi gaman af öllum þessum
þjóðlegu þáttum, og svo eru nú
fréttirnar finar. Þiö vilduð
kannski taka það fram, að ég er »
úr Keflavik. I
Iðnó fer fram úr Loftleiðum
Hér áður fyrr var einkum talað
um sætanýtingu i sambandi við
Loftleiðir. Þótti nýting sæta i
vélum félagsins hreint ótrúleg og
þykir vist enn. En nú hefur keppi-
nautur birzt i sætanýtingunni, —-
Leikfélag Reykjavikur. Febrúar-
mánuður sló öll fyrri met i sæta-
nýtingu, 95,6% sætanna voru nýtt,
sýningar alls 31 talsins og aðsókn
að leikritunum þrem nokkuð jöfn
þ.e. yfirleitt uppselt.
ATVINNA
Verkamenn óskast til starfa i verksmiðju
okkar.
Mjólkurfélag Reykjavikur.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i lagningu dreifikerfis 2. og
3. áfanga af Hitaveitu Seltjarnarnes-
hrepps. Útboðsgögn fást afhent hjá
VERMI H/F, Höfðabakka 9, Reykjavik
gegn 5.000.- króna skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til sveitarstjóra Sel-
tjarnarneshrepps og verða þau opnuð
þriðjudaginn 14. marz kl. 17 i Félagsheim-
ili Seltjarnarneshrepps að viðstöddum
bjóðendum.
Sveitarstjóri Seltjarnarneshrepps.
Gamla krónan
í fullu verógildi
BÚKA
MARKAÐURINN
SILLA OG VALDA-
HÚSINU ÁLFHEIMUM