Vísir - 01.03.1972, Qupperneq 5
Visir. Miðvikudagur 1. marz 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Herínn njósnaði um
foríngja demokrata
Bandaríski herinn hef-
ur njósnað um marga
þekkta borgara, meðal
annars þrjá demókrata,
sem eru i framboði við
forsetakjör og einn
hæsta rétta rdó ma ra.
Þessar njósnir voru
gerðar, meðan stríðið í
Víetnam var í hámarki,
að sögn talsmanna þing-
nefndar í gær.
Flett var ofan af, um hverja
var njósnað, eftir að Sam
Erving öldungadeildar-
þingmaður frá Norður
Karólinu hafði beðið hæstarétt
að kanna, hvort njósnir hers-
ins um almenna borgara væru
ekki brot gegn ákvæðum
stjórnarskrár Bandaríkjanna.
Hæstiréttur felldi þann úr-
skurð, að þetta væri brot gegn
ákvæðum stjórnarskrár um
málfrelsi.
Ervin þingmaður taldi, að
þessar njósnir hefðu verið
miklu viðtækari en fram kom,
þegar þingnefnd fjallaði um
málið i fyrra.
Hann nefndi engin nöfn.
Hins vegar sagði talsmaður
nefndarinnar, að þeir þrir
demókratar sem nú gefa kost
á sér i prófkosningum til
forsetakjörs, séu þingmenn-
irnir Edmund Muskie frá
Maine og George McCovern
frá Suður Dakóta og fyrrver-
andi þingmaður Eugene
McCarthy. Um þessa menn
hafi verið njósnað stöðugt á
árunum 1967—1970.
Aðrir kunnir stjórnmála-
foringjar hafi einnig verið
undir eftirliti hersins, svo sem
þingmaður demókrata Ed-
ward Kennedy og þingmenn-
irnir Harold Huges frá Iowa
og Fred Harris frá Oklohoma.
Talsmaður nefndarinnar
sagði, að þessi nöfn hefðu
komið fram i leyniskjölum,
þar sem sagt hafi verið frá
njósnum hersins.
Annar þingmaður upplýsti,
að eini svertinginn I hæsta-
rétti, Thurgood Marshall, hafi
verið einn þeirra, sem herinn
hafi njósnað um.
Lúna i snjónum
Lúna 20 sneri aftur frá tungli og lenti eins og ákveðið hafði verið á stað einum i Sovétríkjunum 25. febrúar
með sýnishorn frá tungli.
Krag vill ekki
sérstakt
varnarkerfi EBE
Jens Otto Krag, for-
sætisráðherra Dan-
merkur, sagði i gær, að
Efnahagsbandalag
Evrópu ætti ekki að
reyna að hafa eigið
varnarkerfi óháð
Atlantshafsbandalag-
inu.
t ræöu i vestur-Þýzku aka-
demiunni um samband milli
heimsálfa sagði Krag, að ekkert
gæti komið i staðinn fyrir NATO i
þessum efnum. Hann sagði, að
Evrópa gæti ekki tryggt eigið
öryggi, og samvinna um varnar-
mál við Bandaríkin og Kanada
væri alger nauðsyn.
Krag hafði lýst svipuðum skoö-
UMSJÓN:
HAUKUR
HELGASON
Jens. Otto Krag.
unum i fyrrahaust, þegar hann
kom I opinbera heimsókn til
Bonn.
Efnahagsbandalagsmenn
margir eru áhugasamir um að
EBE stofni her og standi saman
sem heild um varnarmál.
Krag sagði, að skoðanaágrein-
ingur um varnarmál mundi ekki
skyndilega hverfa eins og dögg
fyrir sólu, þótt EBE yrði stækkað,
en hann lét i ljós von um, að EBE-
löndin yrðu áhrifameiri innan
NATO. Hann taldi, að aöalverk-
efni EBE væru efnahagsmálin, en
i þeim fælust að visu ýmsar
stjórnmálalegar ákvarðanir.
Krag sagöi, að tryggja yrði
framleiðsluna og atvinnuna.
Byggja yrði traust efnahagskerfi,
sem gerði fólkinu kleift að starfa
og lifa, án þess að það þyrfti að
óttast,aðgrundvöllurtilveru þess
mundi hrynja hvenær sem væri.
Krag hélt þvi fram, að afstaða
Norðurlanda, sem yrðu aðilar aö
Efnahagsbandalaginu, mundi
einkennast af félagslegum,
mannúðarlegum og lýðræðisleg-
um sjónarmiðum, sem væru þró-
uð i þessum löndum. Hann visaði
á bug hugmyndum um efnahags-
bandalag Norðurlanda og kallaði
þær óraunsæjar og órökréttar.
Hins vegar væru nauðsynlegt
að halda áfram norrænr.i sam-
vinnu og styrkja með henni sam-
vinnu Evrópuríkja.
Föðurlandsvinurinn brennur
Gifurlegt tjón varð, þegar stærsta blað Suður-Noregs, Föðurlandsvinurinn, varð eldi og sprengingum
að bráð. Um ikveikju mun hafa verið að ræða, og ekki vitað hvers vegna. Getgátur eru uppi um geðbilaöan
brennuvarg.
Vinstri sinnar
handteknir í Osló
Lögreglan I Osló handtók I gær
tvo vinstri sinna, um það bil 25
ára, sem eru grunaöir um að hafa
staöið að hvarfi bréfs frá utan-
rikisráðuneytinu til viöskiptafull-
trúa Suður-Vietnam i Osló.
Skömmu eftir handtökurnar
gerði rannsóknarlögreglan leit á
skrifstofu og prentverki i bænum,
þar sem vinstri sinnað vikublað,
„Stéttabaráttan”, hefur verið
prentað.
Eftir yfirheyrslu var stjórnandi
prentverksins látinn laus. Hann
neitaði að bera nokkra ábyrgð á
hvarfi bréfsins.
Bréf þetta hafði horfið á dular-
fullan hátt, og þvi skaut ekki upp
að nýju, fyrr en kaflar úr þvi
höfðu verið birtir i ólöglegri
kröfugöngu og mótmælafundi,
sem var haldinn við hús fulltrúa
Suður-Vietnam.
Ritstjóri blaðsins var settur i
gæzluvarðhald i nótt.
1 ólöglegum fundi við hús
Suður-Vietnama voru um 300—400
manna. Eftir klukkustund dreifði
lögreglan hópnum með kylfum.
Þegar fréttist um handtöku rit-
stjórans, safnaðist hópur ung-
menna, um 150 manns, saman og
mótmæli. Borin voru kröfu
spjöld, þar sem meðal annars
var sagt, að handtökurnar væru
árás á lýðréttindi fólks og ákæran
á hendur ritstjóranum stjórn-
málalegar ofsóknir.
Samblóstur í
her Tyrkja
Forsætisráðherra Tyrk-
lands segir, að margir yfir-
menn í hernum hafi tekið
þátt i samblæstri, sem hafi
gert fimm vinstri sinnum
mögulegt að flýja úr
rammgirtu fangelsi.
Vinstri sinnarnir voru
ákærðir fyrir morðið á
aðalræðismanni ísraels í
Istanbul.
Forsætisráðherrann sagði, að
stjórnmálamenn yrðu að starfa
saman, þvi að til væri fólk i land-
inu, sem vildi grafa undan lýð-
ræðinu.
Einn þeirra fimm, sem komst
úr fangelsinu, var skotinn til bana
af öryggislögreglu fyrir tiu dög-
um. Annar var særður og tekinn
höndum, en öfgamaðurinn Mahir
Cayan, sem er sakaður um að
vera morðingi aðalræðis-
mannsins, er enn laus.