Vísir - 01.03.1972, Qupperneq 6
6
Vísir. Miðvikudagur 1. marz 1972.
VISIB
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiðsla:
Ritstjóm:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Birgir Pétursson
Valdimar H. Jóhannesson
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 32. Simar 15610
Hverfisgötu 32. Simi 11660
Siðumúla 14. Simi 11660 ( 5 linuri
11660
Askriftargjald kr. 225 á mánuöi inranlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakiö.
Blaöaprent hf.
Hvenœr fer ríkisstjórnin
að sinna málum geðsjúkra?
Boðið upp á fórn
Nixon gaf kinverskum kommúnistum i skyn, að
hann kynni að fórna Formósu, ef þeir hegðuðu sér
„sæmilega vel” i framtiðinni. Yfirlýsinguna eftir
fundi Bandarikjaforseta og Kinverja ber að túlka
þannig. í yfirlýsingunni hét Nixon að fækka i liði
Bandarikjamanna á Formósu smám saman og
stefna að þvi, að þeir yrðu algerlega á burtu þaðan.
Þetta tekur einnig til bandariska flotans, sem til
þessa hefur hindrað, að kommúnistar færu yfir
Formósusund og gengju milli bols og höfuðs á
mönnum Chiang Kai-Cheks.
Hins vegar er þessu stefnuyfirlýsing ekki bundin
við neinn ákveðinn tima. Það þýðir á tungumáli
heimstjórnmálanna, að Bandarikjamenn geta
haft lið á Formósu til eilifðarnóns. Framkvæmd
yfirlýsingarinnar verður undir þvi komin, hvað
Bandarikjaforseta þykir tilvinnandi i framtiðinni.
Nixon er full alvara með vinahótum við kinverska
kommúnista. Fyrir honum vakir að efla Bandarikin
i Asiu, þar sem staða þeirra hefur versnað undan-
farin ár. Hvort sem einhver leynisamningur hefur
verið gerður um Vietnammálið eða ekki, þá er það
greinilega eitt aðaltakmark Nixons að komast hjá
átökum við Kinverja i þvi máli.
Oft hefur verið rætt um þann möguleika, að Kin-
verjar kæmu til skjalanna i styrjöldinni i Indó-Kina.
Raunar hafa verið sögur um, að þar væru nú þegar
kinverskir ráðunautar og jafnvel hermenn. Miklu
fremur hefur kinversk ihlutun verið á döfinni i
öllum umræðum um innrásir Suður-Vietnama i
Laos eða hugsanlega innrás i Norður-Vietnam. Kín-
verjar hafa mikið hlutverk i Indó-Kina striðinu.
Bandarikjamenn vilja notfæra sér fjandskap Kin-
verja og Sovétmanna, en þessi stórveldi kommún-
ismans berjast grimmilega um völdin i kommún-
istaflokkum nágrannalandanna, Norður-Vietnam,
Norður-Kóreu, Mongóliu og viðar á þessu svæði.
Sovétmenn hafa færzt i aukana i þeirri valdastreitu.
Japan er einnig mikilvægt i þessu sambandi. Þar
er nokkuð öflug hreyfing sósialista og kommúnista,
sem hefur unnið kosningasigra i bcrgum landsins.
• Japanskir kaupsýslumenn hugsa gott til viðskipta
við Kina i náinni framtið, eftir þvi sem kinverskur
efnahagur styrkist.
Óttinn við útbreiðslu kommúnismans i allri Suð-
austur-Asiu hefur verið aðalorsök þess, að
Bandarikjamenn hafa barizt i Vietnam. Verði sam
skipti við Kinverja viðunandi, hlýtur að minnka
mjög hættan á útbreiðslu kommúnismans til landa
eins og Thailands, Burma, Malasiu eða Indónesiu.
Hagsmunir Bandarikjanna og Kinverska
alþýðulýðveldisins eru um margt samrýmanlegir.
Nixon væntir þess, að Kinverjar láti i framtiðinni
undan á þeim sviðum, sem skipta Bandarikin
mestu. I staðinn muni Bandarikjamenn láta undan i
öðru.
Þetta blandast persónulegum hagsmunum Nix-
ons vegna forsetakosninganna i Bandarikjunum
næsta haust.
Þvi býður hann nú upp á fórn.
1 margræddum málefnasamn-
ingi rikisstjórnarinnar segir svo i
kaflanum um heilsugæzlu og heil-
brigðismál: „. . . og ráöin bót á
ófremdarástandi i málefnum
geðsjúkra og drykkjusjúkra.”
Mörg stóryröi voru notuö af
núverandi stjórnarflokkum i
kosningabaráttunni á siöastliönu
vori um ástandiö i málefnum geö-
sjúkra. bó höföu fyrrverandi
stjórn og aörir þeir, er þessum
málum sinna, ýmislegt aöhafzt til
umbóta. Nefna má geödeild
Borgarspitalans og Hvitabands-
ins, barnageödeildina viö Dal-
braut, endurhæfingaraöstööu að
Reykjalundi og fleira.
Fjarri fór þvi, aö ástandið væri
viðunandi. Hafi hins vegar
ástandiö verið slæmtá siöastliðnu
vori, þá má með sanni segja, aö
þaö sé hálfu verra i dag, Sann
kallað neyðarástand.Þar eð
rikisstjórnin hefur nú setið aö
völdum i nærri átta mánuöi, er
ástæða til að spyrja: Hvenær má
vænta raunhæfra aðgerða i geð-
heilbrigðismálum?
Nú er svo komiö, að ásókn
fársjúkra geðsjúklinga háir veru-
lega eðlilegri starfsemi slysa-
varðstofu Borgarspitalans, sem
alltof oft á i miklum öröug
leikum með aö koma þessum
sjúklingum frá sér vegna pláss-
leysis á geösjúkrahúsunum.
Geðsjúklingar dveljast lang-
timum saman i fangahúsunum,
sjúklingar, sem nauösynlegt er að
hafa einangraða, en sem geð-
sjúkrahúsin hafa ekki aðstöðu til
að taka á móti. Þessir sjúklingar
fá alls ekki mannsæmandi
þjónustu i fangahúsunum.
Tugir sjúklinga biða eftir
hverju plássi, sem losnar i geð-
sjúkrahúsi, og biðlistinn lengist
með hverjum mánuðinum.
Sagt er, að lausnin skuli verða
bygging geödeildar við Land
spitalann. Byggingarfram-
kvæmdir eiga að hefjast, er kven-
sjúkdómadeild er fullgerð. Þaö
hljóta þvi aö liða 3-4 ár, unz starf-
ræksla geðdeildar viö Land:
spitalann hefst.
Sé haft i huga það ófremdar-
ástand, sem rikir i málefnum
geðsjúkra nú, þá verður að leita
skjótari úrræða en aö biða eftir
geðdeild Landspitalans.
Leiguhúsnæði væri skjót-
virkasta lausnin, eða kaup á
húsnæði, sem er i byggingu.
Það, sem ég tel, aö leggja beri
megináherzlu á hið allra fyrsta,
er rekstur geöslysastofu, er taki á
móti fársjúkum geðsjúklingum,
ósjálfbjarga drykkjusjúklingum
og fiknilyfjaneytendum. Verkefni
geöslysastofunnar yrði skyndi-
hjálp i 3-6 daga. Sjúklingarnir
væru rannsakaöir af sér-
fræðingum og könnuð félagsleg
aðstaða þeirra. Að loknum
dvalartima yröi sjúklingunum
ráðstafað á sjúkrahús eða hæli af
siysastofunni. Ég tel, að slik
stofnun gæti i mörgun tilfellum
veitt ómetanlega hjálp,
Koma þarf á fót einangrunar-
deild fyrir geðsjúka afbrota-
menn, svo aö þeir geti notiö viö-
eigandi læknismeðferðar og
einnig til þess að auka rými
fangahúsanna, sem sannarlega
er þörf á. Loks þarf að fjölga til
muna rúmum til endurhæfinear
geðsjúkra og bæta húsnæði og
vinnuaðstööu þeirra, sem til
vinnu eru hæfir.
Engin aðstaða er til vistunar
geðsjúkra úti á landi. Slikt er að
sjálfsögðu oft mjög bagalegt, og
sannarlega er þörf fyrir geðdeild
á Akureyri og víöar. Flugþjónust-
an hefur skapaö möguleika til
þess, aö sjúklingar geti notið
þjónustu sérfræðinga, þótt þeir
séu vistaðir utan Reykjavíkur.
Væri átak gert til lausnar þeim
vanda, sem hér hefur verið rætt
um, þá mundi skortur á sérhæfðu
starfsfólki verða einn af erfiðu
þröskuldunum. Þess vegna er
mikil nauösyn á þvi að alhliöa
undirbúningur hefjist sem fyrst.
Rikisstjórnin hefur lofaö að
ráða bót á ófremdarástandinu i
málefnum geösjúkra. Þær eru
margar fjölskyldurnar i landinu,
sem biða eftir efndunum.
„Menn spauga ekki með Lenín
Rússar vilja banna danska kvikmynd
##
Rússareru reiöir út í Dani
fyrir kvikmynd, sem Danir
gerðu um byltingarforingj-
ann Lenin. Ambassador
Sovétrikjanna, Nikolaj G.
Egorytchev, hefur gert
tvær atrennur til að stöðva
sýningu kvikmyndarinnar,
„Lenín, prakkarinn þinn".
I kvikmyndinni er fjallaö um
Lenin á nokkuð gamansaman
hátt.
Ambassadorinn sneri sér fyrst
til danska menntamálaráöherr-
ans og siöan til utanrikisráð-
herrans með þá frómu ósk, aö
þessi kvikmynd yrði ekki sýnd.
Taldi ambassadorinn það mundu
spilla samskiptum Dana og
Sovétmanna. Þetta var til
einskis.
Er Ijótt að vera ekki
spilltur?
Danir vilja heldur ekki
viðurkenna, að þessi kvikmynd sé
andstæð Sovétrikjunum, Þvert
yfir mynd af lokaatriði kvik-
myndarinnar stendur skrifað:
„Mundu að bjóða alltaf vel-
kominn þann mann, sem ekki er
spilltur”.
Kvikmyndina gerðu Bent
Grasten og Kirsten Stenbæk.
Aðalhlutverk leikur Peter Steen.
Kirsten Stenbæk, stjórnandi kvik-
myndarinnar, spyr i blaöinu
Politiken: „Er eitthvað neikvætt
viö að vera ekki spilltur i Sovét-
rikjunum?”.
„Gálgahúmor"
1 kvikmyndinni er fjallaö um
ferðalag Lenins gegnum Evrópu
til Rússlands forðum daga með
töluverðum „gálgahúmor”.
Sovézka sendiráðið gat ekki
unað þvi. „Menn spauga ekki með
Lenih”. Reyndar virtust Rússar
telja, aö Danir mættu ekki gera
kvikmynd um byltingarleiðtog-
ann, svona yfirleitt. Þeir reyndu
að hindra, að kvikmyndin yrði
sýnd, áður en hún hafði verið
frumsýnd, og K.B. Andersen
utanrikisráðherra varð að benda
þeim á, aödönsk lög veittu stjórn-
völdum enga heimild til að banná
kvikmynd, sem enn var ekki einu
sinni farið að sýna.
Fékk opinberan styrk
Og löngu áöur höföu Rússar
beðiö um bann. Meðan verið var
að undirbúa gerö myndarinnar,
leituðu Rússar til þáverandi
menntamálaráðherra, K. Helveg
Pedersen, til að fá úrskurð um
bann. Þeim var þá skýrt frá þvi,
að kvikmyndin hefði fengið með-
mæli kvikmyndaráösins og um
fimm miilj islenzkra króna i
styrk frá kvikmy.ndasjóðnum.
Kirsten Stenbæk segir, að
Rússar geti auðsjáanlega ekki
skilið þaö einkenni Dana, að þeir
vilji gjarnan skopast með
hátiölega hluti.
Rússar hafi greinilega ekki
skilið kvikmyndina.
Og draumur Kirsten Stenbæks
um aö fá kvikmyndina sýnda i
Sovétrikjunum rætist vist ekki.