Vísir - 01.03.1972, Qupperneq 16
ism
Mi&vikudagur 1. marz 1972.
Þeir búa sjg undir
kuldann f Árbœnum
Blleigendur i Arbæ eru
sumir hverjir vel undir þaO
búnir að mæta frosthörkum,
þótt litiO hafi reynt á þaO nú i
vctur.
Það er eilift vandamál hjá
mörgum bileigendum að koma
bilum sinum i gang á köldum
vetrarmorgnum og hafa margir
gripið til þess ráðs að fá sér
hitara i bila sina. En þessir
hitarar þurfa að vera i sam-
bandi viö rafmagn svo vélin
haldist heit yfir nóttina. Fyrir
einbýlishúsaeigendur er þetta
ekkert vandamál. Þeir smeygja
bara rafmagnssnúru út um
glugga og tengja hana við bilinn
sem stendur fyrir utan. En þetta
getur verið erfiðara viöureignar
fyrir þá sem búa i fjölbýlis-
húsum.
tbúar við nokkrar blokkir i
Hraunbæ hafa leyst þetta
vandamál á mjög þægilegan
hátt. Þar hafa verið steypt
vönduð bilastæöi og hefur hver
bill sitt eigiö tengibox fyrir bila-
hitarana úti á stæðinu. Þessi box
eru fljótt á litið ekki ósvipuö
stöðumælum og er hvert box
merkt húsnúmeri viökomandi
bileigenda. Hann hefur lykil að
þvi og er þvi útilokað fyrir Pétur
og Pál aö notfæra sér þessa
handhægu þjónustu án vitundar
eiganda.
Kostnaður viö þetta er hverf-
andi miðað við þægindin að geta
setzt upp i heitan bil á köldum.
vetrardegi. Bilahitarar kosta
tvö til þrjú þúsund krónur og
tengiboxin eru ekki stór út-
gjaldaliöur, Rafmagnseyðslan
fer að sjalfsögðu eftir notkun, en
allir vita hvað gangsetning i
frosti slitur bilvélum mikið,
þannig að stofnkostnaður og
rafmagnseyðsla er hverfandi
útgjöld þegar allt kemur til alls.
SG.
Gítarinn kom
strax fram
„ÞaO stóð ekki á þvi, fljótt eftir
aO Visir kom út, var hringt i mig.
Strákurinn, sem hringdi, kvaOst
vera nýbúinn aO fá Hagström
gltar I skiptum fyrir annan.
GrunaOi aö eitthvert samband
væri á milli hans og gitarsins,
sem stoliö var frá mcr”. Þaö var
Arnþór gitarleikari Jónsson, sem
lala&i.
Eins og viðsögðum frá i blaðinu
i gær, var gitar einum forláta
góðum stolið frá Arnþóri úr læstri
bifreið hans. Hélt hann á fund
piltsins og kom þar gitarinn i ljós.
Hafði þessi heiðarlegi ungi maður
skipt við félaga sinn og fengiö
gitar Arnþórs. F'élaginn haföi
aftur á móti hitt mann nokkurn
sama kvöldið og gitarnum var
stolið. Var hann á gangi upp
Skipholtið og bauð gitarinn falan
á litlar <>00 krónur. Geröu þeir
viðskipti sin á milli. Lögreglan
hefur góða lýsingu á þjófnum og
verður væntanlega fljót að
hremmakauða. —JBP
Stungið af
fró órekstri
Tilbúinn í
flugið ó ný
GluggaO i bækur á bókamarkaöi.
Landinn er hugsandi og þenkir
mikið yfir þvl hvað hann á aö
kaupa, en þarna er um mikiö aö
velja og á góðu verði.
má nefna, að þjóðsögur Jóns
Árnasonar, sex bindi i skinnbandi
kosta innan við fimm þúsund
krónur. Við reynum alltaf að
sanka að okkur öllum heildarút-
gáfum og veitum þau með af-
borgunum.
— Og það er almennt mikill af-
sláttur á bókunum hjá ykkur?
— Þetta eru ekki yngri bækur
en fjögurra ára og allt á gamla
verðinu og niðursett, sérstaklega
þær bækur, sem ekki hafa selzt
upp. —SB —
Þrir talstöövarbllar lögreglunnar komu að brotthlaupna bilnum þar sem honum var lagt kyrfilega meöendann út I Ránargötuna. Venjulega
endar flótti ökumanna á þennan hátt (Ijósmynd Visis BG).
Kona lenti fyrir vélhjóli á
Laugavegi um kl. 23.20 i gær-
kvöldi. Var hún á leið yfir götuna
skammt frá merktri gangbraut
þegar þar bar að mann á vélhjóli
og lenti það á konunni. Féll hún i
götuna og farþegi á hjólinu datt af
þvi við áreksturinn. Voru þau
bæði flutt á slysadeild Borgar-
spitalans, en voru ekki talin al-
varlega meidd.
Sex ára telpa varð fyrir bil á
Laugavegi siðdegis i gær og var
flutt á sjúkrahús. Hlaut hún
höfuðhögg og kvartaði um fleiri
eymsli.
Þá var ekið á kyrrstæða bifreið
á Kleppsvegi i gær en sökudólgur-
inn hafði sig i snarheitum á brott
og hefur ekki tekizt að hafa upp á
honum ennþá.
Bókaþjóð í innkaupaham
Snarfaxi, Friendshipflugvél
Flugfélagsins, er um þessar1
mundir tilbúin að hefja að nýju
flug eftir áreksturinn, sem varð
milli skrúfuþotunnar og öskubils,
sem ekið var framhjá flugskýli i
þann mund er vélin var tekin út
úr þvi.
Viðgerðin á skemindunum gekk
mjög rösklega fyrir sig, vara-
hlutir komu meö eldingarhraða
l'rá Hollandi og sérfræðingar
Fokker-verksmiðjanna sömu-
leiðis. Hins vegar var vélin tekin i
stóra skoðun i leiðinni og tafðist
inni i viðgerðarskýli félagsins af
þeim sökum lengur en ella.
Kona nokkur á Volkswagen-bíl
lenti i árekstri við tvo bila i
Austurstræti um kl. hálf sex i
gærdag. Ekki urðu stórvægilegar
skemmdir á bilunum og vildi kon-
an litið ræða við ökumenn hinna
— Þaö hefur aldrei borizt meira
af bókum. ViO crum með hátt I
fjóröa þúsund titla, en þaö er allt-
af aö aukast, aö bókaútgcfendur
taki þátt I markaöinum , segir
Lárus Blöndal. Bókamarkaöur-
inn var opnaöur I gær I Glæsibæ,
stærstu húsakynnunum, sem
bifreiðanna, heldur hélt ferð sinni
áfram, án þess að biða eftir lög-
reglu. Hinir tveir sem i árekstrin-
um lentu sáu ekki betur en kona
þessi væri talsvert við skál og var
hafin leit að henni. Tókst fljótlega
hann hefur lagt undir sig til
þessa.' Bókaþyrstir voru ekki
lengi aö renna á bókastaflana og
var mikil ös um klukkan fimm i
gærdag, eftir aö vinnu lauk hjá
þeim.
Lárus bjóst við svipaöri aðsókn
og undanfarin ár. Hann segir að
að hafa upp á kvinnunni i húsi
ekki allfjarri og bauð lögreglan
henni að skoða fangageymslur
sinar og þáöi konan þegar það
kostaboð.
- SG
reynt sé núna að fá opnunar-
timann lengdan, en bókamarkað-
urinn verður opinn kvöldin, sem
það er leyfilegt að hafa opið leng-
ur. — Við erum að berjast fyrir
þvi að fá framlengingu á opnun-
artimanum um helgar. Það hefur
mikið verið hringt utan af landi úr
Arnes- og Rangárvallasýslum og
af Suðurnesjum og spurt um það
hvort ekki verði opið um helgar,
einnig hefur verið spurt um það
héðan úr borginni.
— Hver er nú fágætasta bókin,
sem þið hafið á bókamarkaöinum
i þetta sinn?
— Það er óvenju mikið af bók-
um, sem við fáum aldrei aftur.
Frá einu forlaginu fengum við
30—40 bókatitla, sem ekki bjóðast
aftur og það gætir hins sama um
fleiri bókaútgefendur. Við fáum
lika fleiri bókatitla i dag.
—Hver er ódýrasta bókin á
bókamarkaðinum?
— Það eru til hér bækur fyrir 10
krónur, pésar og smárit, sem ella
eru ekki á markaðinum. Svo höf-
um við sérstakt boð á heildar-
söfnum islenzkra höfunda. Það
—JBP—
__
Olvuð kona stakk
af fró órekstrum
— en lenti í klóm laganna varða eins og flestir er það reyna
- SG.