Vísir - 08.03.1972, Síða 3
Visir. Miðvikudagur 8. marz 1972.
3
Bernadetta
dokar við
ó Pressuballi
- kemur skömmu fyrir
kvöldverð á föstudags-
kvöld, heldur aftur til
London árla á laugar-
dagsmorgun
Pressuballið, einn stærsti
viðburðurinn i íslenzku sam-
kvæmislifi, verður haldið að
Hótel Sögu 17. marz n.k. Eins
og flestum er nú orðið kunn-
ugt verður heiðursgestur
dansleiksins að þessu sinni
Bernadetta Devlin.
Áætlað var að hún kæmi til
landsins að kvöldi dags 16.
marz, en þar sem hún á að
mæta fyrir rétti þann dag,
kemur hún ekki til landsins
fyrr en kl. 6.45 balldaginn.
Hún kemur beint frá London
með flugvél Flugfélags
Islands ásamt ritara sinum.
Sjálfur dansleikurinn hefst
siðan kl. 19.30 með kokkteil,
Bernadetta Devlin.
og meðan gestir ganga i sal-
inn mun Lúðrasveit Reykja-
vikur leika undir stjórn Páls
P. Pálssonar annaðhvort i
anddyrinu eða úti, ef veður
leyfir. Bernadetta Devlin
hefur skamma viðdvöl hér á
landi, þar sem hún verður að
komast aftur til London dag-
inn eftir, þ.e.a.s. 18. marz.
Hún fer með Loftleiðum aft-
ur út á laugardagsmorgun,
en gistir á Hótel Loftleiðum
aðfaranótt laugardags.
Mjög hefur- verið til
skemmtunar þessarar vand-
að. Sigriður E. Magnúsdótt-
ir, óperusöngkona hefur ver-
ið fengin frá Vinarborg, og er
hún væntanleg til landsins
15. þ.m. Philip Jenkins kem-
ur frá Akureyri og spilar.
Saminn hefur verið sérstak-
ur pressuvals i tilefni dags-
ins af Magnúsi Blöndal
Jóhannssyni, og verður hann
leikinn af hljómsv. Ragnars
Bjarnasonar ásamt fleiri
blásurum i útsetningu
Magnúsar Ingimarssonar.
Verið er að undirbúa gaman-
þátt og verður sá helgaður
„pressunni” og ballinu.
Gestir ásamt Bernadettu
verða utanrikisráðherra,
Einar Agústsson og frú, en
veizlustjóri verður Páll
Asgeir Tryggvason deildar-
stjóri utanrikisráðuneytis-
ins.
Það skal tekið fram, að
miðar verða afhentir á mið-
vikudaginn frá kl. 5-7 á Hótel
Sögu, og verður um leið
gengið frá borðapöntunum.
Gaman er að geta þess, að
þennan umrædda dag, 17.
marz, er við fáum irsku
þingkonuna til landsins, er
þjóðhátiðardagur Ira.
- EA.
Sigriður E. Magnúsdóttir.
792 SKRÁÐIR ÁN VINNU,
FÓLKSEKLA ÞÓ VÍÐAST
- „Atvinnuleysi" hvergi nema á NA-horni landsins
792 eru á atvinnuleysis-
skrám á landinu, en miklu
fleira fólk vantar i vinnu.
Það er því ekkert „at-
vinnuleysi" á islandi um
mánaðamótin febrú-
ar— marz.
Atvinnugreinar i Reykjavik og
nágrenni vantar vinnuafl. Ráön-
ingarstofa borgarinnar segir okk-
ur, að mikill hörgull sé á verka-
fólki i borginni, ekki sizt i bygg-
ingarvinnu, vegna veðurbliðunn-
ar. Vinnuflokka borgarinnar
vantar fólk i gatnagerð og sorp-
hreinsun. Ráðningarstofan hefur
lista um 100 störf, þar sem fólk
vantar, og þó munu sennilega
fæstir atvinnurekendur snúa sér
þangað á þessum tima, þótt þeir
vildu bæta við sig fólki.
Hjá Landssambandi islenzkra
útvegsmanna var okkur tjáð i
gær, að viða vantaði nú fólk á
bátana. Þeir hvöttu til að ekki
yrði legið á aflafréttum, svo að
menn sæju, að til einhvers væri að
vinna að fara á sjóinn. Sömu sögu
sögðu fleiri atvinnurekendur,
sem blaðið hafði samband við.
Ráðningastofan auglýsir
eftir fólki.
Ráðningarstofan tjáir okkur, að
88 séu á atvinnuleysisskrá i borg-
inni, en frá þeirri tölu megi strax
draga 51 vörubilstjóra, sem ekki
fái atvinnuleysisstyrk og hafi
raunar töluverða vinnu, flestir,
hverjir. Þessir menn hafa flestir
nokkuð góðar vikutekjur miðað
við aðrar stéttir, en þeir eru
skráðir til að fá vinnu hjá borg-
inni. A atvinnuleysisskránni i
borginni eru einnig 8 verkamenn,
sem eru komnir yfir sjötugt og
geta flestir ekki gengið i erfiðis-
vinnu. Ráðningarstofan er nú að
auglýsa sérstaklega eftir fólki.
Sömu sögu og i borginni er að
segja i öllu nágrenni hennar, suð-
ur með sjó og vestur. Atvinnu-
leysi á tslandi er litið sem ekkert,
nema á norðausturhorni landsins.
Þar eru enn nokkrir flösku-
hálsar”.
Verksmiðjur komnar
af stað á
Siglufirði.
Ástandið hefur batnað mikið á
Siglufirði, þar sem atvinnuleysi
hefur verið hvað mest á landinu.
Tunnuverksmiðjan og Siglo-verk-
smiðjan eru báðar i gangi, og
fólki á atvinnuleysisskrá fækkaði
úr 145 i 86 i siðasta mánuði.
A Akureyri hefur orðið mikil
breyting til batnaðar, og fólki á
atvinnuleysisskrá fækkaði úr 128 i
29 i mánuðinum. Þar eru ekki eft-
ir aðrir en bilstjórar og gamalt
fólk.
A Ólafsfirði eru 78 á skránni, en
voru 107 fyrir mánuði. 62 eru á
skrá á Sauðárkróki.
Enginn er skráður atvinnulaus i
kaupstöðunum Neskaupstað,
Vestmannaeyjum og Keflavik.
Slæmt í
nokkrum þorpum.
I þorpunum á norðausturhorn-
inu er viða atvinnuleysi. A
Raufarhöfn eru 46 atvinnulausir,
49 á Þórshöfn, 63 á Vopnafirði. A
Skagaströnd eru 42 atvinnulausir
og 39 á Hofsósi.
Samtals eru i kaupstöðunum
403 skráðir atvinnulausir, sem er
fækkun um 284 i einum mánuði. I
þorpum með fleiri en 1000 ibúa
eru 38 á skrá sem fyrr, þar af 35 á
Dalvik. I minni þorpunum eru
samtals skráðir atvinnulausir
351, sem er fækkun um aðeins 27.
Þá eru á öllu landinu 792 á
skrám um mánaðamótin febrú
ar—marz, en þeir voru 1103 1.
febrúar. I marzbyrjun i fyrra
voru 1163 skráðir atvinnulausir á
landinu. — HH
Það er ekkert spaug, þegar mannskap vantar f sorphreinsun.
Nýtingin
mun minni
aðsókn að gistiskýli borgarinnar
við Þingholtsstrœti mínkar
Aðsókn að gistiskýli borgarinnar eins að gista eina nótt, ellegar er
við Þinghoitsstræti hefur minnk- þeim ætlað að sjá um sig, útvega
að mikið á siðasta ári, miðað við sér herbergi eða fara heim til sin.
áriö á undan. Arið 1970 gistu sam- Gunnar sagði, að milli 70 og 80
tals 211 einstaklingar i samtals mönnum hefði verið hjálpað til
3.925 gistinætur, en árið 1971 hafði, vinnu eða þeim útveguð herbergi
gestum og gistinóttum fækkað úti i bæ öðrum heföi verið komið á
niður I 127 einstaklinga og 2.060 á hæli. Hann kvað það vera mikið
gistinætur. sömu mennina, sem sæktu gisti-
Gunnar Þorláksson hjá Félags- skýlið.
málastofnuninni sagði, að þessi Flestir mannanna, sem gista
fækkun stafaði tvimælalaust af gistiskýlið, eru eldri en 40 ára, þá
þvi, að samband hefði náðst við koma þeir, sem eru á aldrinum
þá menn.sem hefðu verið gisting- 31—40 ára, en fæstir eru yngri en
ar þurfi með gistiskýlinu og 30ára. Þessi aldursskipting gildir
ýmsar ráðstafanir gerðar af um- fyrir bæði árin.
sjónarmönnum félagsmálastofn- Gunnar sagöi ennfremur, að
unarinnar til að koma ýmsum af þessar tölur sýndu ekki ástandið
þessum mönnum fyrir. alveg eins og það væri.
— Þetta voru mest útigangs- — Það eru til menn, sem alls
menn, og með þvi að koma þeim ekki sækja gistiskýlið þó þeir hafi
af götunni i gistiskýlið sköpuðust hætt vinnu vegna áfengisnotkun-
þau tengsl, að hægt var að gera ar. Það er séð fyrir þeim á annan
þá hæfari til þess að ganga út á hátt. Þeir eru inni á heimilum
almennan vinnumarkað. Það konu, dóttur eða móður. Þeir
kann að vera, að þessi minnkandi sækja ekki vinnu og eru i sama
aðsókn stafi einnig af þvi, að ástandi og gestir gistiskýlisins.
reksturinn byrjaði frjálsar 1970, Hælin sýna þetta einnig. Þangað
en nú er gistiskýlið ekki eins opið koma menn einnig annars staðar
utanbæjarmönnum. Þeir fá að- frá en frá gistiskýlinu. — SB —
FLYGILL
Góður og vel með farinn flygill óskast til
kaups. Uppl. i sima 14020 eftir kl. 7 e.h.
Auglýsing
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs
og Sviþjóðar munu á þessu ári veita nokkra styrki handa
tslcndingum til náms við iðnfræðslustofnanir I þessum
iöndum. Er stofnað til styrkvcitinga þessara á grundvelli
ályktunar Norðurlandaráðs frá 1968 um ráöstafanir til aö
gera islenzkum ungmennum kleift að afla sér sérhæfðrar
starfsmenntunar á Norðurlöndum. Styrkirnir eru einkum
ætlaðir
1) þeim sem lokið hafa iðnskólaprófi eða hliðstæðri
starfsmenntun á islandi, en óska aðstunda framhaldsnám
i grein sinni,
2) þeim, sem hafa hug á að búa sig undir kennslu f iðn-
skólum, eða iðnskólakennurum, sem leita vilja sér fram-
haldsmenntunar, og
3) þeim, sem óska að leggja stund á iðngreinar, sem
ekki eru kenndar á islandi.
Varðandi fyrsta flokkinn hér aö framan skal tekiö fram,
að bæði koma til greina nokkurra mánaða námskciö og
lengra framhaldsnám fyrir þá, er lokið hafa sveinsprófi
eða stunda sérhæfð storf i verksmiöjuiðnaði, svo og nám
við listiðnaðarskóla og hliðstæðar fræðslustofnanir, hins
vegar ekki tæknifræðinám. Hugsanlegt er, að i Finnlandi
yrði styrkur veittur til náms I húsageröarlist, ef ekki
bærust umsóknir til náms á þeim sviöum, sem að framan
greinir.
Styrkir þeir, sem I boði eru, nema sjö þúsund dönskum
krónum eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar I norskum og
sænskum krónum, og er þá miðað við styrk til heils skóla-
árs. i Finnlandi verður st.vrkfjárhæöin væntanlega
nokkru hærri. 'Sé styrkur veittur til skemmri tima,
breytist styrkfjárhæðin i hlutfalli við timalengdina. Til
náms i Danmörku eru boðnir fram fjórir fullir styrkir,
þrir i Finnlandi, fimm I Noregi og jafnmargir i Sviþjóð.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til
inenntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik,
fyrir 5. april n.k. í umsókn skal m.a. skýrt frá náms- og
starfsferli og tekið fram, hvers konar nám umsækjandi
hyggst stunda, hversu lengi og við hvaöa námsstofnun.
Fylgja skulu staðfest afrit prófskirteina og meðmæli.
Umsóknareyðublöð fást I ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
6. marz 1972.