Vísir - 08.03.1972, Side 4
4
Visir. Miðvikudagur 8. marz 1972.
Bdkí þorað að taka leicveKna undr bflasiœði
Fleiri bílar hafa í fðr með sér fleiri bílastœði - talað við Guttorm Þormar
um bílastœðin í borginni, einkanlega í miðborginni
—Okkar hlutverk er að
útvega bilastæði, en við
höfum samt ekki þorað
að taka leikvellina
undir biíastæði. Það er
náttúrlega ekki allt
fengið með þvi að taka
alla bletti undir þau
segir Guttormur
Þormar verk-
fræðingur.
Vaxandi bilaeign og aukin
umferð hafa sín áhrif i borgar-
lifinu, bæði stór og iitii. Undan-
farið hafa umræðurnar bein/.t
að I.augaveginum og umferð
strætisvagnanna um hann, og
þar kemur bíiaumferð og bila-
stæðavandamálið inn i. Bilarnir
þrengja að almennings-
vögnunum, þar sem þcir standa
við Laugaveginn— ein tillagan
til úrbóta á þvi var að taka leik-
völiinn á Grettisgötu undir
bflastæði! ( hinu smáa kemur
bflastæða vandamálið i Ijós I þvi,
hverjir mega eigna sér viss
bflastæði og hverjir ekki. Menn
liafa sett upp skilti til að marka
sér bilastæði, sem hafa verið
tekin niður aftur jafnóðum,
aðrir hafa fengið viðvörunar-
miða frá hlutaðeigandi
„eiganda”. En óhjákvæmilega
liggur straumur bflanna í mið
borgina, þangað sem flestir
eiga erindi og hvernig horfir
með bilastæðin þar? t mestum
erfiðleikum eiga þeir, sem
sækja vinnu i miðbæinn.
Guttormur tók saman tölur
yfir bilastæði i miðborginni.
Taldist honum, að opinber bfla-
stæði væru 1100 talsins, 800
bfiastæði á götum og um 900
bfiastæði á einkalóðum. AIIs um
2800 bilastæði á svæðinu, sem
markast af eftirtöldum götum:
Klapparstíg að austan,
Ægisgötu að vestan,
Skothúsvegi aðsunnan, þar meö
taiin Tjarnargata og Frikirkju
vegur. Og af af þessum
bflastæðum eru 390 sölustæöi. í
kvosinni sjálfri milli
Aðalstrætis og Lækjargötu,
niður að Tryggvagötu eru 570
stæði alls, en rúm 700 frá
Tjörninni norður úr og milli
Lækjargötu og Aöalstrætis, þar
af eru 365 bílastæði á götunni og
afgangurinn á einkalóðum.
Samanborið við könnun, sem
var gerð 1969 fæst svipuö tala,
en þá var svæðið aðeins annað.
Þá voru bilastæði 2200 i
miðbænum á minna svæði, og
þar hafa ekki bætzt við
stæði.—Samanboriö við þessa
-- ...fólk kvartar furðanlega litið...segir Guttormur Þormar
Fengu sektanriða
frá lögreghjnni
- en komu með viðvörunarmiða í staðinn
Þeir, sem hafa fengið
■ ■ viðvörunarmiða fyrir að leggja
" bilnum i stæöi sendibila rit-
-- simans, hafa senniiega ekki
" vandað honum kveðjurnar.
” Aðalsteinn Norberg rít-
-- simastjóri sagði i viðtali við
VIsi, að viðvörunarmiðinn hefði
- - verið tekinn upp til aö losa rit-
simann við vandræðamái.
^ —Þannig var, að við fengum
-- fjögur bilastæöi i Thorvaldsens-
stræti fyrir skeytaútsendingar-
bilana okkar og beint fyrir
■ - framan skeytaafgreiðsluna. Svo
” komu menn og lögðu bilum
-• sinum i stæðin okkar og voru
" fyrir skeytaútsendingabilunum,
.. sem freistuöust þá kannski til að
" leggja ólöglega að gangstéttar-
" brún og fengu siðan sektarmiða
frá lögreglunni. Þessu vildum
" við ekki una og tókum upp við-
vörunarmiðann.
Við vildum frekar aðvara fólk
á þennan hátt en að kæra.
Bilastæðin eru þannig til-
komin, að við höfðum maka-
skipti við borgina. Landsiminn
og skipti á eignarlóö við
Austurvöll.
—Er erfitt að ná viðvörunar-
miðunum af?
—Það er dálitið sterkt limiö i
þeim, en enginn vandi er að ná
einum miða af. Það voru nátt-
úrulega sömu mennirnir, sem
lögðu þarna dag eftir dag. Og
það hefur gefizt vel að nota
miðana, sem voru teknir i
notkun fyrir mánuði. En ég vil
taka það fram, að þetta eru einu
bilastæðin, sem Landsiminn
hefur niðri i miðbæ, og við
starfsmennirnir notum þau
ekki. —SB—
könnum hefur þrýstingurinn
ekki aukizt mikið og fólkið
kvartar furðanlcga litið, segir
Guttormur. Það hefur leyst
bfiastæðisvandamálið að liluta,
að athafnalifið hefur dreifzt um
borgina og faw.t inn með
Suðurlandsbrautinni. Það er þvi
ekki vist, að aukningin á um-
ferðarþunganum i miöbænum
verði svo mikil. Ekki er gert ráð
fyrir þvi aö hægt veröi að
fullnægja eftirspurn f mið-
bænum nema með þvi að byggja
ógurlega mikla bilageymslu, og
er þaö mál i könnun. Það er
varla von, að menn hafi notað
bílastæðin, sem eru fyrir hendi
við Umferðarmiðstööina þar
sem enn hefur verið hægt að
nota bíiastæði nær miðbænum.
Trasar tiliögur um biiastæði
hafa komið fram. Til dæmis að
byggja stórt bflastæöi nálægt
miðbænum og halda uppi góöum
strætisvagnaferðum þaðan.
Fyrir 10-15 árum kom upp sú
tillaga að gera bílastæði i
Vatnsmýrinni. Ein áætlunin er I
sambandi við Skúiagötuna. Það
er ráðgert að byggja nýja
Skúlagötu og þannig er
hægt að nota gömlu Skúla-
götuna, sem er 12 metra breið,
undir bilastæði. Seðlabankinn
ætlar að byggja við Arnarhól,
og undir þá byggingu er
meiningin að byggja bilastæði.
Þá er ágætis pláss við Oddfellow
milli Kirkjustrætis og Vonar-
strætis, en það er óvíst með
byggingu á þessu svæði, og við
viljum ekki leggja i kostnaðvið
það.Bifreiðastæðin á tollhúsinu
verður ekki hægt að taka I
notkun fyrr en brúin er komin
frá Pósthússtræti og bfiastæöin
hjá Eimskip vantar ennþá. Yfir
yfirstandandi ár er gert ráð
fyrir, að 2.8 miijónir úr stööu-
mælasjóði fari i gerð bifreiða-
stæða f borginni. Bflastæðum
með mælum verður fjölgað i
miðbænum m.a.
Skipulagið og strætisvagna-
umferð, sem á að greiöa fyrir,
gerir það erfiðara að komast á
einkabilum eftir ýmsum um-
ferðargötum, sem getur haft
það í för með sér, að bflastæðin
færist lengra frá miðborginni.
— Samkvæmt aðalskipu
laginu verður Lauga
vegurinn að meira eða
minna leyti lokaður fyrir um-
ferð.Yfirleitt er það þannig, að
ef einhverjum götum er lokaö,
þá eru opnaðar einhverjar
aðrar i staðinn. Hlemmur er
vaxandi miðstöð, og það er ekki
ýkja löng ganga fyrir
bileigandann frá Skáta-
heimilinu, þar sem eru
bilastæði, eða Skúlagötunni, þar
sem verða bilastæði, en menn
vilja þó helzt komast á punktinn
á bilnum sinum.
•
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um lokum gatna. Það er
stórt mál fyrir verzlun I
miðbænum. Strætisvagnarnir
draga náttúrlega fólkið að, en
það er ekki víst að það nægi. Þó
er viðast hvar sú stefna ráöandi
að veita þeim forgangsrétt. Það
myndi koma niður á at-
hafnalifinu í miðbænum, ef fólk
i einkabilum forðaðist að koma
þangað. Verzlunin heldur lífi I
miðbænum. Kaupmenn hafa
verið mikið á móti öllum
aðgerðum til að loka
Laugaveginum, og það verður
sennilega raunin á í náinni
framtið að fremur verði reynt
að draga úr umferð um
Laugaveginn og greiöa fyrir
umferð strætisvagnanna en loka
honum.
—Nú erum við komin að
merkingum á bílastæðum, sem
fara vafalaust i taugarnar á
ýmsum, sem vantar bilastæði.
—Það má merkja bilastæði á
einkalóðum en ekki öðrum.
Rikisstofnanir t.d. fá ekki að
merkja bilastæði nema á lóðum,
sem ríkið á. Bak við Landsbóka-
safnið eru samt 25 stæði, sem
rikið fær að merkja sér. Hvað
varðar Gúttóstæðið voru gerðir
samningar um það, að það yrði
opinbert stæði á sumrin en
notað fyrir Aiþingi á veturna.
Ekki má heldur merkja stæði á
opinberri götu. Ymsir hafa
merkt sér bflastæði á opin-
berum stæðum og höfum við elt
þá uppi og skilað merkjunum
inn i bifreiðaeftirlit, en það er
erfitt að eiga við það, þegar
menn hafa sett skilti í gluggann
hjá sér. —SB—
...erfitt að eiga við þetta.
Umsjón:
Svanlaug
Baldursdóttir