Vísir - 08.03.1972, Page 5
UMSJÓN:
HAUKUR
HELGASON
MCGOVERN „MÓRALSKUR"SIGURVEGARI
Nú er raunveruleg
sprengja í vél TWA
Muskie gengur ekki nógu vel á veiðunum.
Mikil hloup
hjó MINTOFF
Nú fundu TWA-menn
hættulegri sprengju en
leikkonuna Britt Ekland í
flugvélinni. Sprengja
fannst í stjórnklefa einnar
flugvélar félagsins Trans
World Airlines í gær, eftir
að maður nokkur hringdi til
þessog sagðist hafa komið
fyrir timasprengjum í fjór-
um af flugvélum þess.
útum áður en hún hefði sprungið
og grandað flugvélinni.
Siðan hófst mikil leit i öllum
flugvélum TWA, og hafði i morg-
un verið leitað i meira en 100 flug-
vélum, en engin sprengja fundizt.
Maðurinn krafðist þess, að sér
yrðu greiddar tvær milljónir
dollara fyrir upplýsingar um,
hvar hinar sprengjurnar væri að
finna.
Ekki er vitað, hvernig maður-
inn vill að þessu fé verði komið til
sin.
Flugfélagið mun hafa gert ráð
stafanir til að hafa peningana til-
tæka.
Forsætisráðherra Möltu,
Dom Mintoff, fer i dag frá
London til Rómar til að
ræða við itölsku stjórnina
um möguleika á, að
Atlantshafsbandalagið hafi
áram herstöð á Möltu.
Sanmingaumleitanirnar
milli Möltumanna og
Breta um ársleigu á her-
stöðvunum hafa enn einu
sinni strandað.
sögunnar og buðu Mintoff bætt
kjör. Hann hefur hefur þó enn
hafnaö tilboðum, og er gefið i
skyn, að Libiumenn séu tilbúnir
að taka að sér rekstur stöðvanna
gegn góðum greiðslum, ef ekki
semst við aðra.
George McGovern, þekktastur
fyrir baráttu gegn striðinu i
Vfetnam.
Fara Grœn-
lendingar með
landhelgina
í 25 mílur?
Færa Grænlendingar
landhelgina í 25 mílur? Til-
laga um þetta er komín
fram í Grænlandsráðinu,
en auðvitað munu Danir
segja siðasta orðið.
Fulltrúi fiskimanna á
Grænlandi i ráðinu leggur
til þessa stækkun landhelgi
vegna nauðsynjarinnar á
verndun hinna mikilvægu
fiskimiða við strendur
landsins.
Sérstaklega þjálfaður hundur
fann sprengjuna, aðeins tólf min-
Brezka stjórnin neitaði eftir
tveggja daga viðræður við
Mintoff að hækka tilboð Breta og
Nato upp i 14 milljónir punda
fyrir leiguna (3100 milljónir
króna).
Bretar hafa látið Mintoff i fé
flugvél frá flugherum, sem hann
fer með til Rómar.
Forsætisráðherra Italiu Giulio
Andreotti og Aldo Moro utanrikis-
ráðherra buðu Mintoff að komá til
Rómar, segar slitnaði upp úr
samningatilraunum hans og
Carringtons lávarðar, fulltrúa
brezku stjórnarinnar.
Keisari og keisaradrottning trans, Resa Pahlevi og Farah Diba.
Persakeisari vill
lífláta fangana
transkeisari neitaði i gær að
náöa pólitiska fanga, sem á að
taka af lífi vegna „glæpa gegn
rikinu”.
Keisari lýsti þessu yfir á blaða-
mannafundi en blaðamenn frá
Vestur-Þýzkalandi eru komnir
til trans vegna fjögurra daga
heimsóknar Willy Brandts
þangað. Franska dagblaðið Le
Monde hefur einkum skorað á
keisarann að náða fanga sina.
,,Ef glæpir eru framdir gegn
mér persónuiega, get ég veitt
náðun, eins og ég hef áður gert,”
sagði keisarinn. ,,En ég varð
keisari með þeim svardaga, að ég
mundi vernda stjórnarskrána og
ekki leyfa, að sjálfstæði rikisins
yrði stofnað i hættu. Ég get ekki
látið landráð liðast eða leyft út-
sendurum erlendra rikja að grafa
undan sjálfstæðinu. Þetta er
skylda min samkvæmt stjórnar-
skránni,” sagði keisarinn.
Fékk tœp 35%
Frjálslyndi öldunga-
deildarþingmaðurinn
George McGovern lýsti því
i gærkvöldi, að hann væri
raunverulegur sigurvegari
i prófkosningunum í New
Hamphshire-fylki.
McGovern náði að fá milli
30 og 35 af hundraði at-
kvæða demókrata í
kosningunum.
Samkvæmt tölum i nótt hafði
Edmund Muskie, öldungadeildar-
þingmanni, ekki heppnazt að fá
þau 50 prósent atkvæða, sem
hann hefur verið talinn þurfa til
að geta verið sæmilega ánægður
með kosningaúrslitin. Muskie
verða i Flóridafylki i næstu viku,
en þar er hinn afturhaldssami
fylkisstjóri George Wallace i
framboði innan demókrata-
flokksins. Wallace var i framboði
i seinusíu forsetakosningum fyrir
eigin flokk, en hann er að nafninu
til demókrati i Suðurrikinu Ala-
bama, þar sem hann er fylkis-
stjóri. Vegna mjög ihaldssamra
sjónarmiða sinna i kynþáttamál-
um kemur Wallace engan veginn
til greina sem frambjóðandi
demókrata i forsetakosningum,
en hann kann að fá mikið fylgi i
prófkosningum i Suðurrikjunum.
Fréttamenn segja, að Bretar
séu i viðræðunum fulltrúar
Atlantshafsbandalagsins og þvi
sé varla að búast við miklu
frumkvæði Itala i þeim efnum.
Mintoff forsætisráðherra vill fá
mikið fyrir sitt. Hann komst til
valda i þingkosningum á Möltu
fyrir tæpu ári og var eitt helzta
kosningamál flokks hans,
Verkamannaflokksins, að Bretar
skyldu ekki komast jafn „ódýrt”
frá þvi að hafa stöðugt herstöðvar
á eyjunni og áður hafði verið að
hans dómi.
— en Muskie „aðeins" 48%
Brezki skóladrengurinn Timothy
Davey 14 ára, heyrir kveðinn upp
sex ára fangeisisdóm, eftir að
hann var tekinn i Tyrklandi og
sekur fundinn fyrir að hafa selt
hass. Hann hlaut einnig rúmlega
fjögur þúsund sterlingspunda
sekt, eða rúmlega 800 þúsund
króna.
Málið hefur valdið miklum
úlfaþyt i Bretlandi.
Mintoff lýsti yfir brottrekstri
brezka liðsins frá eyjunni, þegar
Bretar féllust ekki strax i fyrstu
lotu á kröfur hans um mjög háa
leigu fyrir stöðvarnar.
Siðan hefur málið þvælzt i
viðræöum milli Breta og
Möltumanna og reyndar komu
I fulltrúar Atlantshafsbanda-
j lagsins sem sliks fljótt til
hefur verið i fararbroddi
demókrata i baráttunni fyrir
framboði i forsetakosningunum
næsta haust. Stuðningsmenn hans
stefndu að þvi, að hann fengi slikt
fylgi i New Hamphshire, að hann
gæti greitt keppinautunum „rot-
hö'gg”. Þótt New Hamphshire sé
tiltölulega litiö fylki og fulltrúar
þaðan á flokksþingi demókrata
séu ekki ýkja margir, þá hafa
prófkosningar þar, sem oft eru
þær fyrstu, gjarnan ráðið miklu
um framvinduna i baráttunni um
að komast i framboðið.
Muskie hafði i morgun fengið
um 48 af hundraði atkvæðanna.
Þótt það sé töluvert meira en
McGovern fékk, ber þess að gæta,
að Muskie er þingmaður fyrir
Mainefylki, sem er næsta
nágrannafylki New Hamphshire
og fylgi hans ætti þvi að vera með
mesta móti þar. Auk þess er
McGovern ekki talinn koma til
greina sem frambjóðandi
demókrataflokksins, þegar öll
kurl koma til grafar vegna þess
að hann er mjög vinstri sinnaður,
en liklegt þykir, að demókratar
velji millimann til framboðsins.
Meðal repúblikana fékk
Richard Nixon forseti yfir 70 af
hundraði atkvæða, eins og við var
búizt. Er hann ekki talinn hafa
ástæðu til að láta sér það illa lika.
Næstu próf- eða forkosningar
Visir. Miðvikudagur 8. marz 1972. 5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND