Vísir - 08.03.1972, Page 9
Vísir. Miðvikudagur 8. marz 1972.
9
Blóðug siagsmál í „sálrœnum
skœruhernaði FH og Hamborgara
— FH sýndi hvað í þeim bjó í seinni hálfleik, þegar þeir voru búnir að jafna sig á slagsmálunum
Þýzku handknattleiks-
mennirnir úr HSV héldu
uppteknum hætti i leikn-
um gegn FH i gærkvöldi,
stunduðu einskonar sál-
rænan skæruhernað með ‘
verulega góðum
árangri. Eins og til var
ætlazt voru það FH-
ingar, sem fóru fyrst
verulega úr sambandi.
Siðan tóku óþarfa meiðsl
við. Þjóðverjarnir
meiddu hinn unga og
efniiega leikmann
Gunnar Einarsson, sem
yfirgaf höllina i leikhlé i
sjúkrabii.
Þá fékk Gils Stefánsson svöðusár,
sem blæddi kröftuglega úr, eftir
eina viðureignina við hina harð-
skeyttu Þjóðverja. Dæmigert
fyrir dóma i leiknum: Einum
manni var visað af velli, Geir
Hallsteinssyni i seinni hálfleik.
Þjóðverjar fengu aðeins á-
minningar! Kannski vissu
dómararnir ekki hvað átti að
segja á þýzku til aö visa leik-
manni úr HSV af velli?
Sannast sagna er þetta HSV-lið
dæmigert fyrir v-þýsk lið. Frekj-
an og yfirgangurinn er fyrir
neðan allar hellur, meðan leikur-
inn stendur yfir. En utan vallar
eru þeir oftast mestu sjentil-
menn. Jafnvel þeir, sem sátu á
varamannabekkjunum báðu
timaverði og aðra starfsmenn oft
afsökunar á ruddalegu framferði
hins „heita” þjálfara þeirra,
Júgóslavans Friganovic. Þjálfar-
inn virtist gjörsamlega i öðrum
heimi i leikjunum, kallaði i sifellu
til sinna manna: „Schieben!
schieben! Schieben!” Já, þeir
áttu svo sannarlega að ýta mót-
herjunum, og gerðu það.
Annars er þetta þýzka lið að
mörgu leyti skemmtilegt og mjög
sterkt. Hraði liðsins er geysilegur
og áreiðanlega á það eftir að ná
langt i heimalandinu.
En vikjum að leiknum. t
herferðinni” i leikbyrjun náðu
þýzkir 5:2 forystu, siðar 9:5, 11:6
og 13:8. Hálfleikurinn leið eins og
hreinasta martröð fyrir Hjalta
Einarsson i markinu. Vörnin stóð
galopin og hann berskjaldaður
fyrir skotum Þjóðverjanna. 1
seinni hálfleik lagaðist þetta að
mun og meiri ró kom á leikinn.
FH .hóf þá að saxa á 5 marka
muninn: 14:10og 15:12á töflunni.
En þjóðverjar komast aftur i 5
mörkin, 17:12. Þá skorar FH tvö
i röð, 17:14, og siðan Geir enn
tvö i röð eftir að Niemeier
skoraði, staðan orðin 18:16 og 10
min eftir. Leikurinn gerðist æsi-
spennandi og FH virtist hafa tek-
ið leikinn i sinar hendur.
Geir Hallsteinsson og Birgir
Björnsson fannst mér koma bezt
frá þ'essum leik af Hafnfirðingun-
um. Einnig var Birgir Finn-
bogason góður i markinu. Liðið i
heild var gott, eftir að þaö tók að
jafna sig eftir móttökur Þjóöverj-
anna i leikbýrjun.
Beztir Þjóöverjanna þeir Ger-
mer, Berg og Ivers.
Dómararnir stóðu sig slaklega.
Meö tilliti til þess að eftir nokkra
daga leikum við mjög áriðandi
leiki á Spáni i undankeppni fyrir
OL i handknattleik, finnst mér
gegna furðu aö leyft skuli að nota
landsliösmenn okkar i leiki sem
þessa. Einkum og sér I lagi á
þetta viö, þar sem vitað var fyrir-
fram hvernig leikmenn Þjóð-
verjarnir voru, ruddalegir og
grófir.
Mörkin fyrir HSV: Germer 6,
Ivers 4, Berg 3, Pickel 3(2 úr
vitum), Heiden 2, Tesslof 1.
Mörk FH skoruðu: Geir 5(eitt úr
viti), Þórarinn Ragnarsson 5(öll
úr vitum), Birgir Björnsson 3,
Viöar Sim. 2, Auöunn Óskarsson
2, Gils Stefánsson 1 og Gunnar
Einarsson 1. —JBP—
Það voru mikil átök i leik FH og Hamborg SV og ekki komust aliir heilir úr þeirri viðureign. Hér sést
þjálfari FH, dr. Ingimar Jónsson, alláhyggufullur á svip, þar sem hann aðstoöar Gunnar Einarsson. Ungi
pilturinn var sfðar fluttur á slysavarðstofuna.
Silfurliðið sigraði
í Rúmeníu
Silfurliðið úr siðustu ,
heimsmeistarakeppni i
handknattleiknum, Austur-
Þjóðverjar, sigruðu i Kar-
paten-keppninni i Kúmeniu
um helgina. t úrslitaleiknum
sigruðu þeir rúmensku
heimsmeistarana létt — 15:9
— eftir að 7:2 stóð i hálfleik. ,
Þetta er i annað sinn, sem
þc ssi Karpaten-keppni er .
háð. Austur-Þýzkaland hlaut
niu stig — tapaði aöeins stigi ,
en Svium — og þremur
ineira en Rúmenía.
Júgóslavia var i þriðja sæti
með 5 stig og Tékkar urðu i {
fjórða sæti, einnig með 5 stig,
og sömu stigatölu hlutu
Sviar, en þeir máttu þola
stórtap i sinum siðasta leik,
gegn Tékkum, 22-10, eftir 10-
5 fyrir Tékka i hálfleik.
Júgóslavar unnu stórsigur i
sinum siðasta leik 29-13 gegn
rúmenska unglingalands-
liðinu, sem varð neðst án
stiga i keppninni.
Hins vegar kom slök
frammistaða Júgóslava
nokkuö á óvart — sérstak-
lega eftir sigur þeirra
„Litlu heimsmeistarakeppn-
inni” i Sviþjóð i vetur. En
júgóslavnesku leikmennirnir
eru greinilega orðnir
þreyttir eftir ótrúlega erfitt
— en árangursrikt — kepp-
nistimabil. -hsim.
Góður sigur
Tottenhom
Tottenham sigraði Unizale
Textile frá Rúmeniu með 2-0 ,
i EUFA-keppninni I gær.
Leikurinn var háður i Arad i,
Rúmcniu og mörk Totten-
ham skoruöu Roger Morgan t
og Mike England i fyrri hálf-
leik. Þar með má tclja
öruggt, að Tottenham — sem
hóf þessa keppni með leik-
junum viö Keflavik sl. haust ’
— kcmst i undanúrslit. Úti-
lokað er, að Rúmenar vinni 1
upp þennan mun, þegar liðin
mætastá Whit'IIart Lane 21.
mætast á White Hart Lane
21 marz.
Fyrsta fimleika-
mótið
Reykjavikurmót i fimleik-
um verður haldið i fyrsta
skipti nú um helgina. Mótið
fer fram i iþróttahúsi
Háskólans og hefst kl. 4 á
laugardaginn. Keppendur
verða úr KR og Armanni, en
reikna má með að sönui
keppendur muni berjast um
Islandsmeistaratitlana á
tslandsmótinu i fimleikum
dagana 25. og 26. marz n.k.
Fimm marka sigur Islands-
meistaranna gegn Tékkunum
Birgir varði vitakast glæsilega,
en Auðunn skorar 18:17. Þjóð-
verjar skjóta næst framhjá. Úr
vitakasti jafnaði svo Þórarinn
Ragnarsson, hin örugga vita-
skytta þessa leiks, en Birgir hélt
uppteknum hætti i markinu, varði
hvað eftir annað með gjörbreytta
vörn fyrir framan sig.
Þegar 5 minútur voru eftir skorar
svo Þórarinn Ragnarsson 19:18
fyrir FH úr vitakasti. Jöfnunar-
mark Þjóðverjanna var hálf
slysalegt, - 40sek. eftir og Heiden
komst inn i lélega sendingu og
brunaði upp, 19:19 urðu lnfca-
tölurnar i þessum leik.
íslandsmeistarar Fram
unnu góöan sigur gegn
tékkneska liðinu Gott-
waldov í Laugardalshöll-
inni — fimm marka munur
var í lokin 22-17 — og það
var einkum góður sprettur
Fram siðustu 10 mín. fyrri
.hálfleiks, sem lagði grunn-
inn að þessum sigri — liðið
skoraði þá sex mörk gegn
tveimur mörkum Tékka og
breytti stöðunni úr 7-5 fyrir
Gottwaldov í 11-9 fyrir
Fram.
Leikmönnum Gottwaldov gekk
illa að hafa hemil á Axel Axels-
syni, þó þeirreynduað taka hann
úr umferð i fyrri hálfleik, og Axel
skoraði langflest mörk i leiknum
eða niu talsins. Hins vegar var
stórskytta Tékka — hinn knái
Rehák ekki eins skæður og i Vik-
ingsmótinu og skoraði aðeins þrjú
mörk.
Fyrri hálfleikurinn var jafn —
liðin fylgdust að allt upp i 5-5, en
þá náðu Tékkar tveggja márka
forustu, sem Fram tókst þó
nokkuð fljótt að jafna og komst
meira segja yfir i 8-7. Tékkar
jöfnuðu, en Fram lék skinandi vel
lokaminúturnar — komst i 11-8,
en Divoka skoraði siðasta mark
hálfleiksins.
Fram hafði yfirleitt örugga for-
ustu nær allan siðari hálfleikinn
og aðeins einu sinni munaði einu
marki 15-14. Oftast var munurinn
tvö-þrjú mörk og virtust Tékkar-
nir hafa litla möguleika á að jafna
þann mun. Og i lokin voru
Framarar miklu sterkari —■
skoruðu þrjú siðustu mörkin,
enda þreyta farin að segja til sin
hjá hinum erlendu leikmönnum
eftir fjóra erfiða leiki á fáum
dögum.
Þessir leikir að undanförnu
hafa sýnt vel, að islenzku félags-
liðin eru sterk i handknatt-
leiknum, þvi það fer ekki á milli
mála, aö Gottwaldov og Hamborg
SV eru meðal betri liða Evrópu.
Sigur Fram i gær — og sigur Vi-
ings gegn Hamborg og jafntefli
FH i gærkvöldi tala sinu máli.
Eins og áður segir var
Axel Axelsson mark-
hæstur leikmanna i leiknum.
Hann skoraði niu mörk. Björgvin
Björgvinsson var skæður á lin-
unni og skoraði 5 mörk. Andrés
Bridde skoraði þrivegis, þar af
tvisvar úr vitum, og þeir Ingólfur,
Stef|@i, Sigurbergur, Arnar og
Sigurðureitthver. * -hsim.