Vísir - 17.03.1972, Blaðsíða 20
vísm
Föstudagur 17. marz 1972.
Morgunblaðið
biðst
afsökunnar
1. des. nefnd stúdenta höföaöi
um daginn mál á hendur Morgun-
blaöinu vegna ummæla um 1. des.
samkomu stúdenta.
MorgunblaöiA haföi áöur boöiö
stúdentum aö birta afsökunar-
beiðni á þessum ummælum i Vel-
vakanda, þar sem ummælin um
samkomu stúdenta birtust.
Kins og Visir skýröi frá á mið-
vikudaginn var, afþökkuöu stú-
dentar þetta boö Morgunblaösins,
og hófu meiðyröamál á blaöiö.
Sama dag og Vlsir birti frétt um
máliö, var I Velvakanda Morgun-
blaösins afsökunarbeiöni blaös-
ins, þar sem ummælin voru tekin
til baka. —GG
Sýnikennsla útgerðarmannsins?
- mikið tjón í Grindavík - verður að byggja nýjan, öflugri varnargarð
Þeir segja I Grindavik, aö
Lúövik Jósepsson ráðherra,
hafi i gær verið að aka um
bryggjurnar I Grindavik meö
Tómasi Þorvaidssyni. Hafi
útgerðarmaöurinn veriö aö
lýsa því fyrir ráöherranum,
hvernig stundum flæddi yfir
allar bryggjur og grjótiö gengi
á land.
Ráðherrann hálfvegis
trúöi ekki voðasögum út-
geröarmannsins. Skömmu
siöar gekk sjór yfir alla höf-
nina, braut niöur steyptan
hafnargaröinn, skarö i hleösiu
og jós grjótinu upp. Ráöerr-
ann horföi á — og var aö sögn
steinilostinn yfir hamagangi
náttúrunnar.
„Nei, nei — auðvitað trúði
Lúðvik mér — og það vita allir
að viö getum hér alltaf átt von
á þvi að sjá allan okkar flota
fara I rúst I flóöum — og menn
hafa áöur talaö um að nú veröi
að byggja almennilega var-
nargarða. En það er bara ekki
gert, undarlegt að þjóðin skuli
láta bjóða sér upp á svona
lagað. Sök sér með okkur hér
suður frá, en það er öll þjóðin
sem á sitt undir þvi að þessir
hlutir séu i lagi”, sagði Tómas
Þorvaldsson.
Kannski sjórinn hafi hellzt
yfir þá Grindvikinga bara til
að sýna ráðherranum vand-
ræöi þeirra?
„Við verðum að fá hér miklu
traustari hafnargarö”, sagöi
hafnarstjórinn, Ingólfur
Karlsson, „annars má segja
að skemmdir hafi ekki orðið
miklar i þessu flóöi — heldur
bættist bara við fyrri skemm-
dir frá flóðinu um daginn, sem
ekki hafði unnizt timi til að
gera við.
Sprungur i steyptum
bryggjugólfum stækkuðu, og
fleira slikt. Gatið i brim-
garðinum stækkaði og svo
virðist vera aö rofna rás i
kambinn hér suöur af og sjór
fara að ganga inn i hópið.
Bátar skemmdust ekki i
þessu flóði, en Arnfirðingur,
sá sem strandaði hér fyrir jól,
hefur siðan staðiö hátt uppi á
kambinum, hann lagöist á
hliðina i þessu flóði”.
Og það ætlar ekki af honum
Arnfirðingi að ganga. Það
hafa verið framkvæmdar
kostnaðarsamar viðgerðir á
honum i vetur — og átti ein-
mitt að nota þetta stór-
straumsflóð til að setja hann á
flot. En þá skellti bylgjan
honum á hliðina.
,,Ég veit nú ekki hvernig
þetta hefði farið hér hefðu
verið 8—10 vindstig eins og
um daginn þegar flæddi.
Nógur var nú grjótmoksturinn
hér upp i þessu lognbrimi”,
sagði Ingólfur hafnarstjóri —
og sögðust Grindvikingar
mjög kviða næsta stór-
straumsflóði, ef ekki hefði
fyrir þann tima unnizt aö
styrkja varnargarða þeirra.
—GG.
4 ára telpa lézt í
bílslysi á Akureyri
Banaslys varö á Akureyri
i gærdag. Vörubifreið var
ekið aftur á bak og yfir
fjögurra ára stúlkubarn.
Var þetta að Lönguhlið i Gler-
árhverfi og mun bilstjórinn ekki
hafa séð aftur úr bilnum, enda er
hann yfirbyggður.
Nafn stúlkunnar litlu er ekki
hægtað birta fyrr en siöar, þar eð
ekki var búið að ná til allra
ættingja. — GG —
Rigningin jók
hlaupið enn
— Hlaupið hefur vaxið
einna mest i nótt, sagði
Ragnar Stefánsson bóndi i
Skaftafelli, þegar Visir
talaði við hann i morgun.
— Aö einhverju leyti cr baö af
rigningunni. Þaö rigndi ofboðs-
lega i gær og i nótt og rignir ennþá
og er myrkvaþoka.
Kagnar geröi ráö fyrir, að
Skeiöarárhlaupiö nú yrði með
minni hlaupum, þar sem rennsliö
aukist i Skeiöará á lengri tima og
drcifðist á minna svæöi. Hann
býst viö hlaupinu I næstu viku. —
Annars er þetta duttlungum háö.
Visindamenn ætla sér aö fara
austur i dag á þyrlunni og i flug-
vél Itjiirns Pálssonar. 1 morgun
voru veöurskilyröi samt slæm til
flugs.
Páll Bergþórsson veðurfræð-
ingur sagöi i morgun. — Jökullinn
er alveg á kafi og þarna er lang-
versta veður á landinu núna tii
flugs. —SB —
JV.WWV.'AAW.VW.VAVAAW.W.W.V.W.WAV^
| Sumarbiti á
! Vopnafirði
nj aus
W.V.
Mikiö vatnsveöur var á
Suöurlandi i gær og á sumum
stööum i nótt. Mest rigndi á
Suöausturlandi. Orkoman á
Kirkjubæjarklaustri mældist
:l<) mm yfir nóttina.
Illýindi fylgdu meö, en
hlýjast var fyrir noröan og
ustan. Hitinn komst i 10 stig á
þrcm stööum á landinu i gær
AkureyrL Vopnafirði og
Galtarvita. i morgun var enn
sumarhitiá Vopnafiröi, 9 stiga
hiti klukkan niu. Þá var 4 stiga
hiti í Reykjavik.
i dag verður heldur svalara
og slydduél, þegar liöur á dae-
inn á Suövesturlandi. —SB —
.■.W.V.V.V.V.V.V.W.V.V.V.V.V.W.'.W.V.V/.
<1
Ungu bindindismennirnir telja aö ATVR selji i búöum slnum drykki, sem ekki sé leyfilegt aö framleiða hér
innanlands.
Leyfa lögin bruggun
sterkra drykkja?
spyrja ungir bindindismenn í skólum og fjölmenna BSui
í dag með mótmœli sín erlendis frá og er blandaður hér-
fund forsœtisráðherra
„Viö teljum vafa leika á þvi
að á tslandi sé leyfilegt sam-
kvæmt lögum aö brugga áfenga
drykki”, sagöi Ragnar Tómas-
son, lögfræðingur, fyrirsvars-
maöur ungra bindindismanna i
skóium, en Samband bindindis-
manna i skólum á 40 ára afmæli
um þessar mundir.
t tilefni afmælisins ætla félagar
i SBS að fjölmenna til dómsmála-
ráðherra i dag kl. 16 og munu
þeir hafa dráttarvél i förum meö
dinglandi brennivinsflöskur til að
vekja enn betur athygli á göng-
unni.
Ragnar kvað baráttuna gegn á-
fenginu og þvi böli sem það færir
með sér, vægast sagt erfiban
róður. Ekki sizt meðan foryztú-
menn i þjóðmálunum gengju ekki
á undan með góðu fordæmi.
Ragnar kvað það i athugun hjá
lögfræðingum hvort brennivin,
ákaviti, krækiberjalikjör og
ýmsar tegundir aðrar væru
bruggaðar án þess aö lög landsins
heimiluðu það skýrt og greini-
lega.
„Hér á landi á sér ekki stað
brugg, aðeins blöndun”, sagði
Jón Kjartansson, forstjóri
ATVR, sem sjálfur var félagi og
stjórnarmaðurSBSá yngri árum.
ÞJOFARNIR KOMUST INN UM
UTGÖNGULEIÐ POP-STJARNA
„Þetta hafa verið snyrtilegir
piltar. Sama og ekkcrt eyðilagt
hér hjá okkur”, sagði vcrzlunar-
stjóri I Fálkanum i morgun. en
þar var brotizt inn i nótt, fariö um
allt fyrirtækiö, en engu stolið
nema kaffisjóöi starfsfólks,
„Héöan héldu þeir i Laugardais-
höll og fengu vist gott betur — en
kaffisjóöurinn hér var ekki hár.
Bara um 800 krónur, og var inn-
heimtur i gær".
Engar skemmdir?
„Varla til að tala um. Maður
heyrir voðalegar sögur af um
gengni innbrotsþjófa hér i borg,
en þetta virðist eitthvað af-
brigðilegt”.
Og þeir höfðu raunar sömu sögu
að segja i Laugardalshöllinni.
„Þeir stálu hér eitthvað á milli
29 og 30 þúsund krónum. Það var
aðgangseyrir frá körfuboltakeppn
inni i gær og einnigstálu þeir hér
skiptimynt. Nei, nei, engar veru-
legar skemmdir.
Þeir fóru inn um hlera, sem
settur var i einn gluggann. Upp-
haflega notaöur til að smygla þar
út pop—stjörnum undan æstum
aðdáendum. Þeir fóru þarna
innognafa greinilega hugsað sér
að sprengja upp hurð fyrir
kompunni hér niðri, þar sem pen-
ingarnir voru. Svo sáu þeir að sér,
athuguðu aðra hurð á kompunni
— og sú var opin. Þar fóru þeir
inn og hirtu fenginn", sagði
Gunnar Guðmundsson i Laugar-
dalshöllinni.
„Þeir hljóta að skipta öllum
þessum fimmeyringum,
tiukrónapeningum og fimmtiu-
krónapeningum — mikill hluti
upphæðarinnar sem þeir stálu
var skiptimynt, og erfitt að
rogast með hana. Og það er engu
likara en þessir kallar hafi lært
eitthvað i faginu. Þeir virðast
hafa notað hanzka — þetta sjá
þeir i sjónvarpinu".
—GG.
Þetta hefur verið gert i 50 ár, en
um lögfræðilegu hliðina get ég
ekki sagt neitt fyrirvaralaust, en
tel fullvist að við séum réttu
megin við lögin i þessu sem
öðru.” JBp
Landhelgis-
gœzlan
á götunni
Ríkisstjórnin'héfur ákvéðið áð
Landhelgisgæzlan fái ekki þaö
húsnæði i nýju lögreglustöðinni
sem henni var ætlað. Þess i staö á
utanrikisráðuneytið að fá þetta
húsnæði. A alþingi i gær gagn
rýndi Jóhanq Hafstein harðlega
þessa ákvörðun rikisstjórnar-
innar. Benti hann á það, að um
margra ára skeið hefði verið
unnið að þvi að koma upp nánu
samstarfi löggæzlu á sjó og landi
og almannavarna, en almanna-
varnir hafa bækistöð i kjallara
lögreglustöðvarinnar nýju.
Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra kvað i athugun að fá inni
fyrir Landhelgisgæzluna suður i
Hafnarfirði, en utanrikisráöu-
neytið hefði nauðsynlega þurft á
stærra húsrými að halda. Jóhann
Hafstein taldi að auðveldara væri
að útvega bráðabirgðarhúsnæði
fyrir skrifstofur ráðuneytisins
heldur en fyrir Landhelgis-
gæzluna og sagði þessa ákvörðun
vera hneyksli. —SG,