Vísir - 20.03.1972, Qupperneq 3
Vísir. Mánudagur 20. marz 1972.
3
Ekki orð fró Bernadettu
Blaðamannafélagi Islands hefur
enn ekki borizt nein skýring frá
Bernadettu Devlin, hvers vegna
hún ekki kom, eins og hún hafði
þó fullvissað stjórn féiagsins
itrekað. Félaginu hafði i morgur.
hvorki borizt skeyti, bréf né nein
önnur orðsending frá þing-
manninum.
I viðtali, sem Morgunblaðiö átti
við Bernadettu i gær, kemur fram
af hennar hálfu, að þetta mál
hefði allt komið til af misskiln-
ingi. Ritari hennar hafi ruglað
saman Blaðamannafélaginu og
Alþýðubandalaginu og, játazt
fyrir sina hönd að koma fram á
fundi Alþýðubandalagsins, þar
sem hún taldi talsmann banda-
lagsins vera frá Blaðamannafé-
laginu.
Þessum misskilningi ungfrúar-
innar visum við alveg heim til
föðurhúsanna, sagði Arni Gunn
arsson, formaður B.l. i morgun.
Þessum misskilningi hafði vérið
eytt i simtali 10. marz við Berna-
dettu. Hún itrekaði þá, að hún
kæmi 17. marz, en 14. marz sendi
hún flugmiða sina i pósti til Flug-
félags íslands i London án þess að
láta okkur nokkuð um það vita.
Miðarnir bárust svo Flugfélaginu
kl. 4 eftir hádegi 17. marz, sama
daginn og ballið var haldið.
-VJ
Bernadetta Devlin
Ný ferðaskrifstofa stofnuð:
Sjó um móttöku
ó ferðafólki
„Þessi nýja ferðaskrifstofa
mun fyrst og fremst beita sér
fyrir móttöku á erlendum ferða-
mönnum og fyrirgreiðslu við þá
hérlendis”, sagði Sigfús Johnsen i
samtali við Visi, en hann er aðal-
hvatamaðurinn að ferðaskrif-
stofu sem verið er að stofnsetja
um þessar mundir.
Það er hlutafélag einstaklinga
sem ferðaskrifstofuna stofna, og
sagði Sigfús að það ætti bara eftir
að finna gott nafn á fyrirtækið og
skrá það siðan. Mjög fljótlega
kemur úr prentun upplýsingar-
bæklingur um ísland sem félagið
gefur út, og verður honum dreift
viða erlendis. Sigfús sagði að ekki
yrði um mikla starfsemi að ræða
nú i sumar þar sem nokkurn tima
tæki að byggja svona fyrirtæki
upp. Þó mun ferðaskrifstofan
væntanlega taka á móti nokkrum
hópum laxveiðimanna á sumri
komanda.
Undirbúningur er miðaður við
að hægt verði að annast alla fyrir-
greiðslu við ferðamenn, ferðir um
byggðir og óbyggðir, laxveiðar og
annað sem forvitni veku'r hjá út-
lendingum. Verður haft samstarf
við fjölmargar erlendar ferða-
skrifstofur um skipulagningu
ferða hingað til lands. Ennfremur
kvaðst Sigfús binda miklar vonir
við ráðstefnuhald i auknum mæli
hérlendis. Nú munu vera starf-
andi einar átta ferðaskrifstofur i
Reykjavik. -SG
„Aldrei allir ánœgðir"
Þegar barni er láðstafað i
fóstur, það kannski tekið af for-
eldrieða foreldrum sinum, þar eð
Þeir eru taldir ófærir um að ala
barnið upp, fer ekki hjá þvl, að
þeir sem undir verða i deiium,
sem af forræði barna leiða, verði
sárir og telji sig jafnvei órétti
beitta.
Eitthvað á þessa leið fórust
barnaverndarnefndarmönnum i
Reykjavik orð, er þeir á fimmtu-
daginn boðuðu blaðamenn á fund
og reyndu þar að skýra starfsemi
og starfsháttu nefndarinnar.
Fundurinn var haldinn I tilefni
af skrifum i Visi, og sagði nefnd-
in, að hún fagnaði þvi, er mál, er
að barnavernd lúta, væru tekin til
umræðu. „Málefnið er þess eðlis,
að verulegs árangurs er þá fyrst
að vænta, er allur almenningur
telji sig það varða og sé jafnframt
reiðubúinn til þess að leggja þvi
lið. Nú ber svo við”, segir i frétta-
tilkynningu frá nefndinni, „i þeim
umræðum sem nýverið hafa
komið fyrir almenningssjónir, að
reynt er að gera hlut barna-
verndarnefndar tortryggilegan.
An þess að vikja að einstökum at-
riðum iþeim umræðum, sem ekki
er mögulegt nema gerð sé grein
fyrir lögvernduðum einkamálum
manna, telur nefndin ástæðu til
þess að skýra nokkuð alménnt
viðhorf sin til þess verkefnis, sem
henni, lögum samkvæmt, er ætlað
að starfa að”.
Rekur nefndin siðan almenn
rikjandi sjónarmið i barnavernd,
skýrir starfssvið barnaverndar-
nefndar o.s.frv.
Raunverulegt tilefni téðs blaða-
mannafundar gat nefndin ekki
rætt, þar eð hún er bundin
þagnarskyldu um öll einstök mál,
og þegar hún var að þvi spurð,
hvernig hún brygðist við þvi, að
fólk tekur sig saman og stofnar
samtök gegn nefndinni, „samtök
fólks sem telur sig eiga um sárt
að binda af völdum barna-
verndarnefndar”, var þvi svarað
til, að allir gætu stofnað samtök
og vissulega hlytu margir að
beina reiði sinni eða sárindum að
nefndinni. Lægi það i augum uppi,
að aldrei yrðu báðir aöilar sáttir
eða ánægðir, þegar deilt væri um
forræði barna. —GG
FERMINGAÚR
í miklu úrvali
EINUNGIS
NÝJUSTU MÓDEL
Emg MiMur
LAUGAVEG 3 - SÍMI 13540
VÁLDIMAR INGIMARSSON
Stólu peningum
og sœlgœti
— og skriðu inn um sölulúguna
Brotizt var inn i Fitjanesti i
Innri-Njarövikum á laugardags-
morguninn siðastliðinn.
Þjófurinn sem inn fór, kom
höndum yfir 2500-3000 krónur úr
peningakössum tveimur, sem
hann sprengdi upp, en þar fyrir
utan hafði hann burtu með sér
sælgæti og tóbak, sigarettur i
lengjum.
Lögreglan hefur vissan mann
grunaðan.þótt ekki hafi sá játað
enn.
Innbrotið i Fitjanesti á laugar-
dagsmorguninn mun ekki það
fyrsta. Virðist staðurinn sérlega
frejstandi fyrir óráðvanda stráka
að kanna nánar, auk þess sem ai-
gengt er að fólk dundi sér við að
brjóta þar rúður, svona þegar það
á leið hjá. -GG.
Fullur stal bíl
Kófdrukkinn maður stal bil um
þrjúleytið á laugardagsmorgun-
inn s.l.
Laganna verðir fengu til-
kynningu um það, þá um nóttina,
að einn iskyggilega valtur á
fótum væri að sprengja sig inn i
myndarlegan, ameriskan bil,
sem stóð við Skjaldbreið i Ytri-
Njarðvik.
Skömmu siðar fann lögreglan
þann moldfulla á bilnum, og
reyndist um að ræða ungan
mann, sem auk þess að vera
ölvaður á stolnum bil, hefur yfir-
leitt ekki leyfi til að aka bilum.
Var piltinum stungið i niða-
myrkur fangaklefans og látinn
idúsa af sér ölið. -GG
„Fremja aldrei
Reoder's Digest um
Útlendingar hafa mikinn áhuga
á dómsmáium á tslandi, hve litið
er um alvarlega giæpi og hversu
vægar refsingar cru. t seinasta
hefti timaritsins Reader’s Digest
segir til dæmis, að stjórnvöld á
tslandi hafi ekki trú á þungum
refsingum til að draga úr glæp-
um.
annað afbrot"
dómsmól á íslandi
Ef ungmenni sé til dæmis sekt
fundið fyrir smáþjófnað eða
drykkjulæti, fái það skilorðs-
bundinn dóm, það er að segja
refsingunni sé skotið á frest. Ritið
telur greinilega, að þessi aðferð
gefist vel, og segir, að helmingur
ungmennanna fremji aldrei
annað afbrot. —HH.
1972
1972
Alþjóðlegt bókaór
10% afsláttur
aðeins 6 daga
bækur fyrir alla
UNESCO, Menningar og fræðslustofnun
Sameinuðu þjóðanna hefur lýst yfir, að
árið 1972 skuli vera alþjóðlegt bókaár.
Af þvi tilefni veitum við öllum við
skiptavinum 10% afslátt af erlendum og
innlendum bókum, sé keypt fyrir yfir
kr. 1000.00 i einu, vikuna 20.—26. marz.
Notið tækifærið aðeins 6 dagar
Páskafriið framundan bækur fyrir alla
Bókaverzlun
Snæbjarnar
Hafnarstræti 4 & 9