Vísir - 20.03.1972, Síða 5
Visir. Mánudagur 20. marz 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Fœdd meðal morðingja
Þriggja mánaöa gömul stúlka,
Kaira Tamamoto, fæddist i
fjöllunum i Japan, bar sem hrylli-
leg morð voru framin fyrir
skömmu. Móðir barnsins sá
eiginmann sinn myrtan af vinstri
öfgamönnum, stúdentum i svo-
kölluðum „Sameinuðum Rauða
her”. Par voru margir myrtir
eftir miklar pyntingar, af þvi að
hinum róttækustu i hópnum þóttu
þeir ekki nógu staðfastir i trúnni á
byltinguna.
Móðirin komst undan, en skildi
barnið eftir meðal öfgamanna i
búðum i fjöllunum. Vinur inóður-
innar og íæknir komu litlu stúlk
unni til lögreglunnar.
I.ögrcglan gróf upp lik tólf pilta
og stúlkna i siöustu viku úr
grunnum gröfum i hjarninu við
Karunafjall, um 75 kilómetrum
norðvestan Tókióborgar.
Sameinast gegn Hussein
irak og Palestinuskæru-
liðar hafa komið sér saman
um aðgerðir gegn áætlun
Husseins konungs um sam-
bandsríki. iraksstjórn
hefur gengið að öllum kröf-
um skæruliðanna „til að
styrkja byltingu Palstínu-
manna siðferðislega og
efnahagslega,," einsog þar
segir.
Skæruliðaforinginn Arafat
hefur verið i Bagdad i þrjá daga.
Áætlun Husseins um sambands-
riki Jórdaniu og Palestinu kalla
skæruliðar uppgjöf fyrir Banda-
rikjamönnum og Gyðingum.
Skæruliðar styðja hins vegar
tillögur traksmanna um sam-
bandsriki Egyptalands, Iraks og
Sýrlands, og segja þeir, að slikt
riki mundi styrkja Araba i bar-
áttunni við tsraelsmenn.
Egypzka þingið sakaði Hussein
i gær um að vera þjónn nýlendu-
velda og heimsvaldastefnu.
Útvarpið i Jerúsalem tilkynnir,
að jórdönsk stjórnvöld hafa tekið
höndum fjölda manna, sem sé
andvigur áætlun Husseins. Ara-
biskur embættismaður, sem kom
til tsraels i gær eftir ferð til Jór-
daniu egir, að þeir sem hand
teknir voru, séu annað hvort
kommúnistar, stuðningsmenn
Baathsósialistaflokksins eða
Saksóknari krafðist í
gærkvöldi fangelsisrefs-
ingar, frá eins til átta og
hálfs árs, fyrir ellefu af
þeim fimmtán Grikkjum,
sem hafa verið fyrir her-
rétti í Aþenu ákærðir fyrir
að hafa haft sprengjuefni
undir höndum og í nokkr-
um tilvikum fyrir ólöglega
notkun þess.
Saksóknari sagði, að hinir
ákærðu væru félagar i frelsis-
hreyfingunni PAK, sem fyrrver-
andi utanrikisráðherra Grikk-
lands, Andreas Papandreou,
hefur stofnað. Saksóknari segir,
að markmið PAK sé að steypa
núverandi stjórn i Grikklandi
með valdi og Papandreou hafi
beðiö þann hóp, sem nú biður
félagar i hinum ólöglega
þjóðernisflokki Araba, E1
Kumayon-El.
dóms að sprengja ýmsar bygg-
ingar i Aþenu til að grafa undan
rikisstjórninni. Hann sagði, að
Papandreou léki „hetju and-
spyrnuhreyfingar” i útlöndum,
meðan vinir hans 'hætti lifi sinu i
Grikklandi.
Þessi hópur var handtekinn i
nóvember 1970, mánúði eftir að
sprengja sprakk skammt frá
skrifstofum Georges
Papadopoulos forsætisráðherra,
meðan bandariski ráðherrann
Melvin Laird var þar staddur.
Saksóknarinn krefst átta og
hálfs árs fangelsis fyrir einn sak-
borninga og sjö ára fyrir
Peloponissios, sem hafði verið
deildarstjóri i félagsmálaráðu
neytinu. Sjómaðurinn Koronaios
sagði fyrir réttinum. að til hefði
staðið að sprengja i loft upp
nokkur skip i sjötta flota Banda-
rikjanna i griskum höfnum.
„Papandreou leikur
hetju í útlöndum"
Melvin Laird.
Þungar raunir
Séra Krogager situr
raunamæddureftiraö hann
hafði átt mörg samtöl við
ættingja fólksins, sem fórst
i dönsku Sterling Airways
flugvélinni. „Tjæreborgar-
presturinn" hafði skipulagt
förina, og hann tók slysið
mjög nærri sér, eins og
myndin ber skýrast vitni.
Júgóslavnesk farþegaflugvéi,
sem egypzkt flugfélag hafði á
leigu, rakst á fjall við Aden i gær-
kvöldi, rétt áður en vélin átti að
lenda i Aden.
Allir fórust. Heimildum ber
ekki saman um fjölda farþeg-
anna.
Flugvelin rakst á tind hins 500
metra háa fjalls. Sprenging varð
og eldur kom upp i henni. Borgin
hristist, er sprengingin varð,
segja fréttamenn i Aden.
Umsjón: Haukur Helgason
„Rússar ná Bandaríkja -
mönnum eftir 2-3 ár"
segir Laird hermólaráðherra Bandaríkjanna
Eftirtvö eða þrjú ár kunna
yfirburðir Bandaríkja-
manna í hernaðarmálefn-
um að vera orðnir úr sög-
unni, segir Melvin Laird
hermálaráðherra Banda-
rikjanna. Hann segir, að
Bandarikjamenn verði að
vinna af alefli að þvi að
halda hernaðarlegum styrk
sínum, eigi Sovetríkin ekki
að skjóta þeim ref fyrir
rass.
1 viðtali við timaritið U.S. News
and World Report segir Laird að
það yrði mikil ógæfa, ef menn
þyrftu i framtiðinni að „skreiðast
að sérhverju samningaborði”*
vegna þess að þeir hefðu misst
yfirburði sina á þessu sviði.
Rússar stefndu liklega að þvi að
ná hernaðarlegum yfirburðum i
lok þessa áratugar. „Ég er viss
um, að tækni þeirra verður jöfn
okkar eftir tvö eða þrjú ár,” segir
Laird. Niu seinustu árin hefur
bandariska þingið skorið niður
tillögur rikistjórna um framlög á
fjárlögum til hernaðarrannsókna
og þróunar hertækni. 1 frjálsu
hagkerfi, sem keppi við lokað
hagkerfi, skipti tæknilegir yfir-
burðir mestu og séu alger nauð-
syn. Þvi þurfi Bandarikin, sem
séu frjálst hagkerfi, að leggja áh-
rzlu á þetta.
„Eí nl vill liður ekki alltof langt
þangað til bæði við og Rússar
breytum um stefnu og hættum
vigbúnaðarkapphlaupi en semj-
um um takmörkun kjarnorku-
vopna og eldflauga og siðar um
takmörkun annarra vopna,”
segir Laird i viðtalinu. „Eftirlit
verður að hafa með sérhverju
samkomulagi við Sovétmenn um
takmörkun vigbúnaðar, og i
ýmsum itilvikum þarf að vera unnt
að hafa eftirlit á stöðunum.”
„Vitlaus maður"
Lögreglan í Kolumbíu er
sögð hafa látið lausan
mann þann, sem hún hand-
tók og taldi hugsanlegt að
væri Martin Borman, stað-
gengill Hitlers. Eftir að
lögreglan hafði fengið send
fingraför Bormanns frá
Vestur-Þýzkalandi, taldi
hún, að engin tvímæli væru
um að maðurinn væri sá,
sem hann segist vera, Juan
Ehrmann, sem engin af-
skipti hafi haft af nasisma
og gyðingamorðum.