Vísir - 20.03.1972, Side 11
Vlsir. Mánudagur 20. marz 1972.
— og Valur sigraði UMFS 66-64
Valsmenn áttu sann-
arlega Hauk i horni þar
sem Þórir Magnússon
var, þegar þeir léku við
Borgnesinga i íslands-
mótinu i körfuknattleik
á laugardagskvöldið
vestur á Nesi. Þórir
skoraði sem sagt 44 stig i
leiknum, þar af 30 i sið-
ari hálfleik, og nægði
þetta framlag hans til
þess að Valur sigraði
naumlega i hörkuspenn-
andi og jöfnum leik, 66-
64. Eftir þennan leik
hefur Þórir skorað alls
334 stig i 11 leikjum, og
hækkar meðaltal hans
nú stöðugt, hefur hann
nú skorað að meðaltali
rúm 30 stig i leik.
Valur mætti til leiks án Jó-
hannesar Magnússonar, sem var
meiddur, og hefur þaö veikt liöiö
til muna. Eftir að Valur haföi náö
i 7 stiga forystu, 13-6, sigldi UMFS
fram úr, i 13-18, en Valur jafnaði,
þegar rúmar 3 minutur voru til
hlés, 24-24. Þa tók UMFS aftur
sprett, og haföi 5 stig yfir í hálf-
leik, 31-26.
Eftir 9 minútna leik i siðari
hálfleik haföi UMFS skorað 48
stig, en Valur 43. Þá skoraði Þórir
Magnússon þrjár körfur i röð,
eins og hendi væri veifað, og
Valur komst yfir 49-48. UMFS
komst aftur yfir 3 og 1/2 minutu
fyrir leikslok, 58-57, en jafnt var
fáeinum sekundum fyrir leikslok,
64-64. Kári Magnússon skoraði þá
siðustu körfu leiksins, 66-64, en
UMFS hóf sókn, og fékk dæmt
innkast, þegar fimm sekúndur
voru eftir. Borgnesingar hafa þá
liklega ekki áttað sig á hvað tim-
anum leið, þvi þeir reyndu ekki
körfuskot, og Valsmenn önduöu
léttar, þegar timinn rann út.
Aldrei
meira
úrval
Póstsendum
SPORTVAL
4,......
Hlemmtorgi — Simi 14390
OOOOOOOOOOO0OOOOOOOOOOO®'
Loksins kom að
Víkingur tapaði
Það var vor i lofti og
talsverður fjöldi fólks,
sem lagði leið sina á
Melavöllinn á laugar-
dag, þegar Vikingur og
Vestmannaeyjar mætt-
ust i Meistarakeppni
KSÍ. Þetta varð enginn
stórleikur, en tilþrif þó
sæmileg á köflum svo
snemma árs, og Vest-
mannaeyingar fóru með
sigur af hólmi 2-1.
Leikurinn var jafn —
Vikingar mun meira
með boltann, einkum i
siðari hálfleik, en
sóknarlotur Vestmanna-
eyinga hættulegri.
Víkingar léku undan norðan
golu í fyrri hálfleik og framan af
var leikurinn nær eingöngu á
vallarhelmingi IBV — en svo tók-
st Vestmannaeyingum að skora
næstum úr sinu fyrsta upphlaupi.
Þá var um stundarfjórðungur af
leik — óskar Valtýsson átti fast
skot á markið, Diðrik Ólafsson,
markvörður Vikings, varði — féll
við og snéri sér með knöttinn inn
fyrir marklinu. Mikil mistök
þessa annars ágæta markvarðar.
Eftir þetta urðu Vestmannaey-
ingar ágengari við markið.
Tómas Pálsson átti gullfallegt
skot i þverslá og Haraldur
„gullskalli” Júliusson skallaði
yfir markið i góðu færi og svo tók-
st Vikingum að jafna.
Þeir fengu hornspyrnu á 40
min. — gefið var stutt til Gunnars
Gunnarsson, fyrirliða, sem lék
nær vitateignum og átti siöan fast
skot, sem lenti undir slá og hrökk
út til Eiriks Þorsteinssonar, sem
skallaði i mark. Vestmanna-
eyingar undu þessu illa. Eftir
misheppnað innkast Vikings
brunuðu þeir upp — allt var opið
vinstra megin og Óskar renndi
knettinum til Asgeir Sigurvins-
sonar. Fast skot hans neðst i
markið hafði Diðrik engin tök á
að verja. Asgeir er nýliði i
iiði ÍBV og þessi 16 ára vel
byggði piltur, á áreiðanlega eftir
að ilja áhorfendum i knattspyrnu
næstu árin.
Vestmannaey ingar höfðu
möguleika til að auka forskot sitt
i byrjun s.h., þegar Sævar
Tryggvason komst frir inn
fyrir,en Diörik varði fast skot
hans snilldarlega — og siðan yfir-
tóku Vikingar leikinn að mestu.
Guðgeir Leifsson byggði upp
hverja sóknarlotuna á fætur
annarri, en allt kom fyrir ekki —
Vfkingum tókst ekki að skora. Þó
fengu þeir prýðileg tækifæri —
Þórhallur komst einn inn fyrir, en
boltinn böglaðist fyrir honum,
Ólafur Þorsteinsson hitti sam-
herja, þegar markið var opið —
og i önnur skipti greip hinn ungi
markvörður IBV, Ársæll Sveins-
son, mjög vel inn i leikinn. Leikn-
um lauk þvi með sigri IBV —
fyrsti sigur liðssins i keppninni,
og fyrsti tapleikur Vikings i vet-
ur.
Lið Vestmannaeyja verður
sennilega betra i sumar en áður,
en nokkuð skortir á æfingu leik-
manna. ennþá vegna vakta-
vinnunnar i Eyjum. Liðið er heil
steypt — þar er ekki veikur
hlekkur, og ungu mennirnir, Ás-
geir og Arsæll, veröa þvi áreiðan-
lega mikill styrkur. Tómas er
beztur, en Valur, óskar,
Haraldur, örn og Ólafur allt
skemmtilegir leikmenn. Þaö
verður áreiðanlega erfitt að eiga
við þetta lið, þegar leikmenn
komast I betri æfingu — sam-
æfingu.
í liði Vikings eru nokkrir bráö-
skemmtilegir leikmenn. Guögeir
bar af á vellinum, Eirikur sækinn
miðherji, en nýtur alltof litillar
aðstoðar, og Gunnar og Jóhannes
Bárðarson bráðduglegir. En
Vikingsvörnin var nú lakari en
áður og talsvert um mistök, auk
þess, sem leikmenn hugsuðu að-
eins um að „hreinsa” frá. Vik-
ingur hefur oftast leikið betur i
vor en i þessum leik — og liðið
getur betur, þvi nokkrir ágætir
leikmenn Vikings tóku ekki þátt i
þessum leik.
Dómari var Hinrik Lárusson og
er greinilega i miklu minni æf-
ingu en leikmenn. Hann fylgdist
þvi ekki með leiknum sem skildi
— var stundum allt of langt frá
þeim stöðum, þar sem boltinn var
og færði brot til t.d. þegar einn
varnarmaður tBV sló knöttinn
innan vitateigs, en brotið var fært
út fyrir teiginn. —hsim.
Staðan i keppninni:
tBK
tBV
Vikingur
Hrað-
keppni
kvöld
2. umferð hraðkeppni Hand-
knattleiksráðs Reykjavikur
verður leikin i Laugardals-
höllinni i kvöld og hefst kl.
20.15.
Leika þá eftirtalin félög
saman:
Fram — Armann
Iiaukar — Þróttur
Valur — F.H.
t.R. — Fylkir
Breiðablik — Grótta
K.R. — Vikingur
•OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO#
SKIÐA-
SKIÐA
jakkar
hanzkar
SKIÐA-
SKIDA■
buxur
gleraugu
SKIÐA-
SKIÐA
stafir
40 stig Þóris
tryggðusigur
skór