Vísir - 16.06.1972, Síða 2
2
VtSIR. Föstudagur 16. júni 1972
vismsm:
Er snobb að fara á lista-
hátið?
Gunnlaug Gunnlaugsdóttir,
fóstra: Nei, ekki held ég það. bað
er auðvitað nauðsynlegt að fólk
hafi áhuga fyrir þvi sem það fer
að sjá, þó sumir fari af þvi það er
fint.
Guðmundur t. Guðmundsson,
fyrrv. rafs'uöúm.: Eg veit það
ekki. Ég er alveg utan við þetta.
Ætli það sé ekki hálfgert snobb i
og með.
Jakob Magnússon, matsveinn:
Nei. Það er ekki snobb aö sjá og
heyra frægt fólk. Ég fór t.d. i Bú-
staðakirkju að hlusta á Nóaflóðiö
og hafði mjög gaman af.
Geir Gestsson, „stigamaður”:
Ja, ég skal ekki segja. Jú er það
ekki snobb að fara bara til að sjá
frægt fólk, en ekki vegna áhuga á
list?
Nanna Guðmundsdóttir,
húsmóðir: Nei. Mér finnst sjálf-
sagt að allir fari á listahátið, þó
svo að ég hafi ekki gefið mér tima
til þess, þvi miður.
Dagný Jóhannsdó 11 ir ,
verzlunark.: Nei. Má ekki fólk
fara þangaö sem það langar? Ég
hef ekki fariö á listahátið, hef
ekki haft efni á þvl.
„Nýi miðbœrinn í Kópavogi — nafli alheimsins":
r w •
NU A KOPAVOGUR EKKILENGUR
AÐ VERA SVEFNBÆR EINGÖNGU
Skúli H. Norðdahl og Óli Þórðarson, arkitektar, ásamt Birni Einars-
syni, forstöðumanni Upplýsingastofunnar og Ólafi Gunnarssyni bæjar-
verkfræðingi, við líkan af miðbæ Kópavogs.
Nýr og glæsilegur miðbær var
að velta út af teikniborðunum
þeirra skipulagsmanna I Kópa-
vogi I gær. — Og nú tekur við
framkvæmdin á nýstárlegum
hugmyndum um miöbæ, sem
þarna á að rlsa á næstu 5 árum
eða svo, meira og minna yfir-
byggðar verzlunar-, veitinga- og
þjónustuhúsagötur.
„betta er mjög sérstætt verk-
efni, sem varla væri hægt að fá
■annars staðar en i Kópavogi,
nema þar sem um alveg
nýjan kaupstað væri að ræða”,
sögðu þeir arkitektarnir, Skúli H.
Norðdal og Oli Þórðarson, en
hugmynd Öla vann verðlaun i
samkeppni um nýjan miðbæ, sem
þarna verður unninn frá rótum,
sem er mjög óvenjulegt.
Það er svæðið kringum Gjána
svonefndu, sem verðurað miðbæ,
og Gjáin sjálf verður notuð til að
tengja bæjarhlutana saman með
þvi að byggja yfir hana.
Þaö er greinilegt á öllu að
Kópavogur sættir sig ekki lengur
við að vera svefnbær Reykjavik-
ur, en það hefur kaupstaðurinn
verið frá stofnun fyrir 17 árum.
„Landnemarnir hér bjuggu við
litil þægindi” sagði Guttormur
Sigurbjörnsson, forseti bæjar-
stjórnar við blaðamenn i gær og
nefndi ýmis dæmi um það, t.d.
fengust engin frimerki keypt I
Kópavogi þar til fyrir örfáum
árum! „Samt má segja að
Kópavogur sé einskonar „nafli
alheimsins”, — miðbær Stór-
Reykjavikur”, sagði forsetinn, en
á Stór-Reykjavíkurkortinu er
Kópavogur miðdepillinn, og i 6
kilómetra radius út frá hinum
nýja miðbæ Kópavogs búa 110-115
þus. manns. 'Guttormur kvaðst
vona að framkvæmdum rikisins
við Gjána lyki senn, enda hefðu
mikil óþægindi skapast af fram-
kvæmdunum, sem vonandi tækju
styttri tima en bygging Hall-
grimskirkju.
Aðalskipulag Kópavogs er gert
með tilliti til 20-25 þús. manna
byggðar, en ekki miðað viö
ákveðið ártal eins og gert var i
Reykjavik.
Björgvin Sæmundsson, bæjar-
stjóri sagði að i skipulagi miðbæj-
ar Kópavogs væri áherzla lögð á
mikið og fjölbreytt mannlif, svo
og að Kópavogur verði sjálfstætt
samfélag en ekki einungis svefn
bær annars sveitarfélags. „Við
skipuleggjum fyrir okkur sjálfa,
ekki til að toga fólk frá öðrum
sveitarfélögum, enda þótt við vit-
um aö margir muni i framtiðinni
koma hingaö til okkar, og margir
úr Kópavogi, halda áfram að
stunda sin viöskipti á öðrum stöð-
um. Hér á að vera lifandi og ið-
andi mannlif allan daginn og helzt
allan sólarhringinn”, sagði
Björgvin. I nýja miðbænum er
reiknað með sérverzlunum ýmis
konar, alls konar þjónustugrein-
um, bióum, leikhúsi, kaffistofum,
veitingahúsum og hóteli ásamt
opinberum stofnunum.
Lögð er áherzla á að flæma ekki
ibúa burtu úr Miðbænum. Þar á
að reisa fbúðir, flestar fremur
litlar, en þó af öílum stærðum. Er
vonast til að fyrsti áfanginn verði
einmitt að reisa litlar ibúðir i
ibúðasamstæðu við Álfhólsveg
beint á móti skipulagsskrifstofu
Kópavogskaupstaðar. Er vonast
til að framkvæmdir hefjist þegar
i ár, en vonast er eftir að einn
aðili taki að sér að byggja, eða
samtök mánná.
Nýi Kópavogsmiðbærinn verð-
ur jafnstór, eða e.t.v. aðeins
stærri en það sem við höfum kall-
að Miðbæ i Reykjavik, þ.e. frá
Aðalstræti að Stjórnarráði og frá
höfn og að Tjörn. Verzlunarhverf-
ið verður friðað af bilaumferð að
mestu, en fótgangandi eiga að
finna þar öryggi og frið. Svæði
þetta er 8,6 hektarar, en með frið-
uðu svæði umhverfis Kópavogs-
kirkju er svæðið alls 17.7 hektar-
ar.
Kópavogsbúum hefur nú verið
kynnt þessi risavöxnu framtiðar-
áform bæjarins, pésar með út-
skýringum sendir heim til hverr-
ar fjölskyldu. Allt mun þetta
kosta hundruð milljóna, og þeir
bjartsýnustu reikna ekki með að
Miðbærinn eða hugmyndirnar um
hann, verði orðnar að veruleika
fyrr en i fyrsta lagi eftir 5 ár, þ.e.
sá hlutinn sem nú er farið að
vinna að, austar Gjárinnar.
Kváðust forráðamenn bæjarins
hafa orðið varir við áhuga nú þeg-
ar hjá ýmsum fyrirtækjum að
taka þátt i þessu fyrirtæki, og nú
er að vita hvernig til tekst með
framhaldið. — JBP—
I. Akstur frá Reykjavík suður I Kópavog, —-undir brúna, gegnum Gjána og framhjá henni. 2. Verzlun-
arliús, sem þegar eru risin viö Alfhólsveginn. 3. Kópavogsbíó og félagsheimiliö. 4. Heilsuverndarstöö,
sem er I byggingu. 5. A þessu torgi veröur miöstöö strætisvagna i allar áttir, en viö enda þess markaös-
torg. 6. Hér á aö byrja á byggingum íbúöa og verzlana, mjög lfklega strax á þessu ári.
LESENDUR
HAFA
ORÐIÐ
Tónlistarskot
Tónlistaráhugakona hringdi og
gagnrýndi skrif Visis um tónlist.
Ilún sagöi m.a.:
„Ég veit, að margir eru
óánægðir með tónlistar-
gagnrýnina i Visi, að þvi er
varðar listahátiðina. Stefán
Edelstein rökstuddi sina
dóma, en nýi gagnrýnandinn
virðist aðeins reyna að vera
sniöugur. Hann er með óábyrgt
glens og jafnvel með skæting i
garð hljómlistarmannanna.
Fullyrðingar hans standa einar
sér án nokkurs rökstuðnings, eru
eins og skot út i bláinn. Þar að
auki efast ég um, að hann hafi
þekkingu til að taka heimsfræga
listamenn á hné sér og fara um þá
miður loflegum orðum. Þessi
skrif finnst mér ekki vera i anda
annarrar listagagnrýni i
blaðinu.”
Mótmœlagöngur
og Njarðvík
Ég get nú ekki orða bundist yfir
þátttöku Njaröar P. Njarðvik i
Keflavikurgöngunni á sunnudag-
inn. Mér finnst það fyrir neðan
allar hellur, aö maður i okkar
þjónustu, þ.e. I útvarpsráði og
það meira að segja formaður
þess, skuli leyfa sér að skipta sér
af svona málum.
Hvernig er þaö, á hann ekki aö
vera hlutlaus i pólitik? Er það
ekki nóg að hann komi fram í út-
varpi og sjónvarpi einu sinni til
tvisvar i viku, þó hann fari ekki
að troða sér inn i mótmælagöngur
og útisamkomur? Ég kunni aö
meta gömlu kommúnistana, Sig-
fús og Einar, en ekki svona stráka
eins og Njörð P. Njarðvik.
Sjálfstæöiskona I vesturbænum
Hvenœr verður
eitthvað gert?
Siguröur Gislason slmar:
„Eiginlega fannst mér fyrir-
sögnin á baksiðu Visis, Hryllilegt
— Ægilegt, passa betur við það
sem var á forsiðu, þetta ljóta um-
feröarslys. Einu sinni var dóms-
málaráðherra i kurteisislegum
útvarpsþætti að segja okkur að
„eitthvað yrði að gera” i þessu
mikla vandamáli, umferöarmál-
unum. Mig langar til að spyrja
ráðherra, hvað hefur verið gert
og hvað á að gera? Það er ægilegt
til að vita aö fólk skuli alltaf þurfa
að eiga von a Stórslysum hvar
sem er. Eitthvað þarf að gera, og
það meira en litið. Það er t.d. full
þörf á að koma i veg fyrir aö 17
ára unglingar aki ekki um a'
kraftmestu ökutækjunum á veg-
unum. Þeir ættu ekki aö hafa próf
á 300 hestafla bilvélar. Okuprófin
þeirra ættu lika að gilda i mun
styttri tima.”
Að kveikja í björtu
G.Á. simar:
„Utlendingar dásama mikið
okkar björtu sumarnætur og tala
eflaust mikið um þær þegar heim
kemur. Þess vegna finnst mér
leiöinlegt að sjá þegar götuljósin
eru látin loga um hábjarta
sumarnóttina, eins og nú virðist
vera gert. Er ekki hægt að koma i
veg fyrir að þetta haldi áfram, en
byrja að kveikja aftur þegar fer
að húma?
Hjá Rafmagnsveitunni fengum
við þær upplýsingar, aö þaö væri
sjálfvirkur ljósnemi sem réöi þvl
hvenær kviknaöi og slokknaöi á
Ijósunum, og ef logaöi á næturnar
væri þaö vegna þess aö birtu-
magniö væri einfaldlega ekki
nægilegt.