Vísir


Vísir - 16.06.1972, Qupperneq 2

Vísir - 16.06.1972, Qupperneq 2
2 VtSIR. Föstudagur 16. júni 1972 vismsm: Er snobb að fara á lista- hátið? Gunnlaug Gunnlaugsdóttir, fóstra: Nei, ekki held ég það. bað er auðvitað nauðsynlegt að fólk hafi áhuga fyrir þvi sem það fer að sjá, þó sumir fari af þvi það er fint. Guðmundur t. Guðmundsson, fyrrv. rafs'uöúm.: Eg veit það ekki. Ég er alveg utan við þetta. Ætli það sé ekki hálfgert snobb i og með. Jakob Magnússon, matsveinn: Nei. Það er ekki snobb aö sjá og heyra frægt fólk. Ég fór t.d. i Bú- staðakirkju að hlusta á Nóaflóðiö og hafði mjög gaman af. Geir Gestsson, „stigamaður”: Ja, ég skal ekki segja. Jú er það ekki snobb að fara bara til að sjá frægt fólk, en ekki vegna áhuga á list? Nanna Guðmundsdóttir, húsmóðir: Nei. Mér finnst sjálf- sagt að allir fari á listahátið, þó svo að ég hafi ekki gefið mér tima til þess, þvi miður. Dagný Jóhannsdó 11 ir , verzlunark.: Nei. Má ekki fólk fara þangaö sem það langar? Ég hef ekki fariö á listahátið, hef ekki haft efni á þvl. „Nýi miðbœrinn í Kópavogi — nafli alheimsins": r w • NU A KOPAVOGUR EKKILENGUR AÐ VERA SVEFNBÆR EINGÖNGU Skúli H. Norðdahl og Óli Þórðarson, arkitektar, ásamt Birni Einars- syni, forstöðumanni Upplýsingastofunnar og Ólafi Gunnarssyni bæjar- verkfræðingi, við líkan af miðbæ Kópavogs. Nýr og glæsilegur miðbær var að velta út af teikniborðunum þeirra skipulagsmanna I Kópa- vogi I gær. — Og nú tekur við framkvæmdin á nýstárlegum hugmyndum um miöbæ, sem þarna á að rlsa á næstu 5 árum eða svo, meira og minna yfir- byggðar verzlunar-, veitinga- og þjónustuhúsagötur. „betta er mjög sérstætt verk- efni, sem varla væri hægt að fá ■annars staðar en i Kópavogi, nema þar sem um alveg nýjan kaupstað væri að ræða”, sögðu þeir arkitektarnir, Skúli H. Norðdal og Oli Þórðarson, en hugmynd Öla vann verðlaun i samkeppni um nýjan miðbæ, sem þarna verður unninn frá rótum, sem er mjög óvenjulegt. Það er svæðið kringum Gjána svonefndu, sem verðurað miðbæ, og Gjáin sjálf verður notuð til að tengja bæjarhlutana saman með þvi að byggja yfir hana. Þaö er greinilegt á öllu að Kópavogur sættir sig ekki lengur við að vera svefnbær Reykjavik- ur, en það hefur kaupstaðurinn verið frá stofnun fyrir 17 árum. „Landnemarnir hér bjuggu við litil þægindi” sagði Guttormur Sigurbjörnsson, forseti bæjar- stjórnar við blaðamenn i gær og nefndi ýmis dæmi um það, t.d. fengust engin frimerki keypt I Kópavogi þar til fyrir örfáum árum! „Samt má segja að Kópavogur sé einskonar „nafli alheimsins”, — miðbær Stór- Reykjavikur”, sagði forsetinn, en á Stór-Reykjavíkurkortinu er Kópavogur miðdepillinn, og i 6 kilómetra radius út frá hinum nýja miðbæ Kópavogs búa 110-115 þus. manns. 'Guttormur kvaðst vona að framkvæmdum rikisins við Gjána lyki senn, enda hefðu mikil óþægindi skapast af fram- kvæmdunum, sem vonandi tækju styttri tima en bygging Hall- grimskirkju. Aðalskipulag Kópavogs er gert með tilliti til 20-25 þús. manna byggðar, en ekki miðað viö ákveðið ártal eins og gert var i Reykjavik. Björgvin Sæmundsson, bæjar- stjóri sagði að i skipulagi miðbæj- ar Kópavogs væri áherzla lögð á mikið og fjölbreytt mannlif, svo og að Kópavogur verði sjálfstætt samfélag en ekki einungis svefn bær annars sveitarfélags. „Við skipuleggjum fyrir okkur sjálfa, ekki til að toga fólk frá öðrum sveitarfélögum, enda þótt við vit- um aö margir muni i framtiðinni koma hingaö til okkar, og margir úr Kópavogi, halda áfram að stunda sin viöskipti á öðrum stöð- um. Hér á að vera lifandi og ið- andi mannlif allan daginn og helzt allan sólarhringinn”, sagði Björgvin. I nýja miðbænum er reiknað með sérverzlunum ýmis konar, alls konar þjónustugrein- um, bióum, leikhúsi, kaffistofum, veitingahúsum og hóteli ásamt opinberum stofnunum. Lögð er áherzla á að flæma ekki ibúa burtu úr Miðbænum. Þar á að reisa fbúðir, flestar fremur litlar, en þó af öílum stærðum. Er vonast til að fyrsti áfanginn verði einmitt að reisa litlar ibúðir i ibúðasamstæðu við Álfhólsveg beint á móti skipulagsskrifstofu Kópavogskaupstaðar. Er vonast til að framkvæmdir hefjist þegar i ár, en vonast er eftir að einn aðili taki að sér að byggja, eða samtök mánná. Nýi Kópavogsmiðbærinn verð- ur jafnstór, eða e.t.v. aðeins stærri en það sem við höfum kall- að Miðbæ i Reykjavik, þ.e. frá Aðalstræti að Stjórnarráði og frá höfn og að Tjörn. Verzlunarhverf- ið verður friðað af bilaumferð að mestu, en fótgangandi eiga að finna þar öryggi og frið. Svæði þetta er 8,6 hektarar, en með frið- uðu svæði umhverfis Kópavogs- kirkju er svæðið alls 17.7 hektar- ar. Kópavogsbúum hefur nú verið kynnt þessi risavöxnu framtiðar- áform bæjarins, pésar með út- skýringum sendir heim til hverr- ar fjölskyldu. Allt mun þetta kosta hundruð milljóna, og þeir bjartsýnustu reikna ekki með að Miðbærinn eða hugmyndirnar um hann, verði orðnar að veruleika fyrr en i fyrsta lagi eftir 5 ár, þ.e. sá hlutinn sem nú er farið að vinna að, austar Gjárinnar. Kváðust forráðamenn bæjarins hafa orðið varir við áhuga nú þeg- ar hjá ýmsum fyrirtækjum að taka þátt i þessu fyrirtæki, og nú er að vita hvernig til tekst með framhaldið. — JBP— I. Akstur frá Reykjavík suður I Kópavog, —-undir brúna, gegnum Gjána og framhjá henni. 2. Verzlun- arliús, sem þegar eru risin viö Alfhólsveginn. 3. Kópavogsbíó og félagsheimiliö. 4. Heilsuverndarstöö, sem er I byggingu. 5. A þessu torgi veröur miöstöö strætisvagna i allar áttir, en viö enda þess markaös- torg. 6. Hér á aö byrja á byggingum íbúöa og verzlana, mjög lfklega strax á þessu ári. LESENDUR HAFA ORÐIÐ Tónlistarskot Tónlistaráhugakona hringdi og gagnrýndi skrif Visis um tónlist. Ilún sagöi m.a.: „Ég veit, að margir eru óánægðir með tónlistar- gagnrýnina i Visi, að þvi er varðar listahátiðina. Stefán Edelstein rökstuddi sina dóma, en nýi gagnrýnandinn virðist aðeins reyna að vera sniöugur. Hann er með óábyrgt glens og jafnvel með skæting i garð hljómlistarmannanna. Fullyrðingar hans standa einar sér án nokkurs rökstuðnings, eru eins og skot út i bláinn. Þar að auki efast ég um, að hann hafi þekkingu til að taka heimsfræga listamenn á hné sér og fara um þá miður loflegum orðum. Þessi skrif finnst mér ekki vera i anda annarrar listagagnrýni i blaðinu.” Mótmœlagöngur og Njarðvík Ég get nú ekki orða bundist yfir þátttöku Njaröar P. Njarðvik i Keflavikurgöngunni á sunnudag- inn. Mér finnst það fyrir neðan allar hellur, aö maður i okkar þjónustu, þ.e. I útvarpsráði og það meira að segja formaður þess, skuli leyfa sér að skipta sér af svona málum. Hvernig er þaö, á hann ekki aö vera hlutlaus i pólitik? Er það ekki nóg að hann komi fram í út- varpi og sjónvarpi einu sinni til tvisvar i viku, þó hann fari ekki að troða sér inn i mótmælagöngur og útisamkomur? Ég kunni aö meta gömlu kommúnistana, Sig- fús og Einar, en ekki svona stráka eins og Njörð P. Njarðvik. Sjálfstæöiskona I vesturbænum Hvenœr verður eitthvað gert? Siguröur Gislason slmar: „Eiginlega fannst mér fyrir- sögnin á baksiðu Visis, Hryllilegt — Ægilegt, passa betur við það sem var á forsiðu, þetta ljóta um- feröarslys. Einu sinni var dóms- málaráðherra i kurteisislegum útvarpsþætti að segja okkur að „eitthvað yrði að gera” i þessu mikla vandamáli, umferöarmál- unum. Mig langar til að spyrja ráðherra, hvað hefur verið gert og hvað á að gera? Það er ægilegt til að vita aö fólk skuli alltaf þurfa að eiga von a Stórslysum hvar sem er. Eitthvað þarf að gera, og það meira en litið. Það er t.d. full þörf á að koma i veg fyrir aö 17 ára unglingar aki ekki um a' kraftmestu ökutækjunum á veg- unum. Þeir ættu ekki aö hafa próf á 300 hestafla bilvélar. Okuprófin þeirra ættu lika að gilda i mun styttri tima.” Að kveikja í björtu G.Á. simar: „Utlendingar dásama mikið okkar björtu sumarnætur og tala eflaust mikið um þær þegar heim kemur. Þess vegna finnst mér leiöinlegt að sjá þegar götuljósin eru látin loga um hábjarta sumarnóttina, eins og nú virðist vera gert. Er ekki hægt að koma i veg fyrir að þetta haldi áfram, en byrja að kveikja aftur þegar fer að húma? Hjá Rafmagnsveitunni fengum við þær upplýsingar, aö þaö væri sjálfvirkur ljósnemi sem réöi þvl hvenær kviknaöi og slokknaöi á Ijósunum, og ef logaöi á næturnar væri þaö vegna þess aö birtu- magniö væri einfaldlega ekki nægilegt.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.