Vísir - 16.06.1972, Qupperneq 5
VtSIR. Föstudagur 16. júní 1972
UMSJON:
GUNNAR GUNNARSSON
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN
UTLÖND
Allir skriðdrekar ónýtir?
— og bensín búið? Bondaríkjamenn segja mikinn „órangur" af loftórósum sínum — 500 af 600
skriðdrekum N-Vietnama séu ónýtir
ibúar Hanoi og ná-
grennis njóta nú góðs af
veru Podgornys, forseta
Sovétríkjanna, þar í borg-
inni. Vegna komu hans
þangað, fannst Banda-
ríkjamönnum ekki annað
hæfa en að hætta að kasta
sprengjum yfir landsvæð-
ið við borgina.
Podgorny er í Hanoi, að
því er bert er vitað, að
ræða við norður-viet-
namska ráðamenn um
möguleika á samningum
við Bandaríkjamenn.
Sprengjuflugvélar af gerðinni
B-52 héldu þó i gær uppi árásum
á bæi og vegi i um 50 km i suður
af Hanoi — gærdagurinn var sá
niundi i röðinni sem Banda-
rikjamenn hafa haldið úti svo
þungum loftárásum á svæðið
norður undir Hanoi.
Áfram var barizt kringum An
Loc i nótt. Bandarisk og suður-
vietnömsk hernaðaryfirvöld
gefa jafnan upp hrollverjandi
tölur um mannfall i liði norðan-
manna, en hins vegar fækkar
litið i herjum sunnanmanna,, ef
marka á þessar upplýsingar. t
gærkvöldi segjast þeir t.d. hafa
drepið 57 n-vietnamska her-
menn. Ekki er getið um mann-
fall i liði sunnanmanna.
Þá segir AP, að á milli 400 og
500 norður-vietnamskir skrið-
drekar hafi i loftárásunum fokið
veg allrar veraldar. Þar með sé
broddur dreginn úr sókn norð-
anmanna suður undir Saigon.
Ameriska herstjórnin heldur
þvi fram, að i upphafi marz-
sóknar kommúnista og skæru-
liða, hafi herir þeirra aðeins
ráðið yfir 600 brynvörðum
striðsvögnum og skriðdrekum.
Og ef tekizt hefur að sprengja
frá þeim 600 stykki — fer að
draga mjög úr sóknarþoli N-
Vietnama og Þjóðfrelsisfylking-
arinnar. Bandarikjamenn
þykjast einnig hafa valdið N-
Vietnömum miklum spjöllum,
þar eð þeim hafi tekizt að spilla
miklu magni af olium og benzini
fyrir norðanmönnum.
Þeir kalla þyrluflota sinn „riddaralið loftsins”, Handarikjamenii|Og þessu riddaraliði beita þeir óspart i
Vietnam. Þessar á myndinni eru að lenda á flugvclli við Lai Khe. Þyrlurnar eru aðallega notaðar til
liðsflutninga.
I mörg horn að líta
Það eru ekki aðeins sendifulltrúar hinna ýmsu landa, sem starfa af krafti á
umhverfisráðstefnunni i Stokkhólmi þessa dagana.
Hvasst í Hong Kong
Ofsalegur stormur gcisaði i
Hong Kong i nótt og hafði þá raun
ar staðið frá þvi aðfararnótt
fimmtudagsins, fim m tudaginn
allan og aftur föstudagsnóttina. —
Ilerti storminn mjög i nótt og var
mikil úrkoma með þrumustormi
þcssum eins og þeir eystra köll-
uðu hann. Sennilega hefur rignt
cinum 7 þumlungum og a.m.k.
fimm manneskjur hafa beðið
bana i þessum veðurhamfiirum
og III annarra er saknað.
Bilar sópuðust af vegum, fjalls-
hliðar losnuðu og komu æðandi
yfir hús, veggir sliguðust niður og
lokuðu fólk inni i kjöllurum og
gryfjum. Fólk hefur grafizt undir
i alls konar vegarskurðum og
skorningum.
SAS lamast
500 flugfreyjur i
Noregi, Sviþjóð og
Danmörku, þ.e.a.s.
þær sem fljúga fyrir
SAS hafa nýlega hótað
verkfalli 17. júni.
Ntb sagði i gær-
kvöldi, að útlit væri
fyrir að af verkfallinu
yrði. SAS hefur búið sig
undir að fresta meira
en helmingi flugferða
sinna, en reyna að selja
fólki farmiða með öðr-
um flugfélögum,
a.m.k. fyrst i stað.
Flugfreyjur vilja fá
hærra kaup, styttri
vinnutima og betri að-
stæður til að vinna störf
sin.
Ungir mótmælamenn „stunda” og ráðstefnuna af krafti. Þeir vikja naum-
ast frá ráðstefnustaðnum, heldur þramma um þar fyrir framan á hverjum
degi með spjöld sin. Rétt að menn gefi sér tima til að halla sér á nærliggj-
andi bekki og grasflatir, þegar ráðstefnufulltrúar taka sér matarhlé.
ENN STORSLYS I LOFTI
Farþegaþota af gerð-
inni Convair hrapaði
yfir Suður-Vietnam i
gærdag. 82 manneskjur
fórust með henni, en
hún var á flugi yfir
miðhálendi Suður-Viet-
nam, þegar sprenging
virtist verða i vélinni.
Hún klofnaði i tvo
hluta, og steyptist
brennandi til jarðar.
Vélin var frá flug-
félaginu Cathy Pacific i
Hong Kong. í fyrstu
var álitið að þotan hefði
flogið á aðra vél, rekizt
á bandariska þyrlu, en
svo mun ekki hafa ver-
ið.
Siðast heyrðist til
vélarinnar, er hún var
rétt komin framhjá
landamærum
Kambodiu inn i S-Viet-
nam. Hrapaði hún
skammt frá þvi svæði,
þar sem hernaðarátök
hafa átt sér stað i
fjallshliðum við Pleiku.
Skaut lögreglumann
Snaróöur niaöur, sem lögreglan
i Bonn ætlaöi i gær aft flytja á
spilala, hóf harfta skothrift aft lög-
rcglunni og skaut þrjá lögreglu-
þjóna til bana.
Maðurinn, óreiðumaður sagður
9 barna faðir, þurfti að komast á
sjúkrahús. Hann neitaði að fara.
Fengin var lögregluaðstoð til að
hjálpa honum af stað. Þá trylltist
hann og kom i ljós, aö hann átti i
sinum fórum talsvert mikið magn
af byssum.
Lögreglumennirnir réðust gegn
honum og voru búnir brynslegn-
um vestum. Manninum tókst
samt aö bana þremur, áður en
lögreglunni tókst að yfirbuga
hann og eiginkonu hans, sem
veitti honum aðstoð i látunum.
Köstuðu lögreglumenn táragas-
sprengjum inn i ibúðina og reistu
stiga upp að gluggunum, þannig
aö börnin gátu bjargað sér út.
Formósa vann bláu sveitina
Loks kom aft þvi, aft italska
bridgesveitin á ólympiumótinu á
Miami Beach tapaöi leik, en þaö
varð ckki fyrr en i 19. umferft,
þegar liftift mætti Formósu, sem
aft visu hefur tapað fyrir veikari
sveitum, en hefur nú unniö alla
sina leiki vift efstu sveitirnar.
Báðar sveitirnar spila sama
kerfið, Precision-lauf
Varð munurinn litill, tveir
punktar, sem veittu Kinverjunum
vinninginn, 11-9.
Engu að siður er italska sveitin
langefst ennþá, með 331 st. og nær
50 stigum á undan Kanada, sem
er i öðru sæti, en USA er i þriðja
sæti. — Pólverjar döluðu hinsveg-
ar
Brezka sveitin, sú sama, sem
stóð sig með svo miklum ágætum
á Evrópumótinu í fyrra, hefur
legiðniðri i 14. sæti og þar um bil,
framan af mótinu, en hefur krækt
sér i 73 st. i siðustu 4 umferðun-
um.Og hefur klifrað upp i 8. sætið.
Pólverjar eru i 4. sæti, Formósa i
5. sæti, Frakkar i 6. sæti.