Vísir - 01.08.1972, Side 3

Vísir - 01.08.1972, Side 3
Visir Þriðjudagur 1. ágúst 1972 3 ?\* ''‘í*4, '' as' ^ \ s^v Pi' ■./, , V Kerry eftir sigurinn Þetta er hún Kerry Wells frá Astraliu, Ungfrú Alheimur i ár, þar sem hún hleypur eftir ströndinni i Dorado á Puerto Rico eftir sigur sinn. Hún bar sigur af keppendum frá 60 þjóðum, þar á meðal frá ts- landi, en keppandinn héðan var Maria Jóhannsdóttir úr Reykjavik (UPI-MYND) Einstakar tegundir taflborða seljast upp 5 — 10 töfl hafa farið ó einum degi ## „Sala á taflborðum og mönnum hefur aukizt alveg gifurlega frá þvi að heimsmeistaraeinvigið hófst, og það kemur fyrir að ein- staka tegundir taflborða seljast alveg upp. Oft koma þeir dagar sem við seljum 5-10 töfl á dag, en það er það mesta sem fer.” Þau voru öll á þessa leið svörin, sem við fengum i bókaverzlunum i höfuðborginni, þegar við hringdum og inntum eftir sölu. Skákiþróttinni virðist stöðugt aukast fylgi, bæði hér á is- landi sem i öðrum löndum heims. Enda sögðu þær afgreiðslu- stúlkurnar i bókaverzlununum, að það væru ekki eingöngu ís- lendingar sem koma og kaupa sér tafl, heldur menn frá öllum þjóðum. islendingar eru þó i miklum meirihluta sem von er. „Útlendingar kaupa helzt minni geröir af töflum, sem þeir geta haft með sér út um hvippinn og hvappinn”, sagði ein af af- greiðslustúlkunum. „En Is- lendingarnir vilja helzt þau stóru, sumir lita ekki einu sinni við þeim litlu.” Skákáhuginn er ekki bundinn við neinn aldur, heldur eru þeir sem kaupa sér tafl á öllum aldri. Allt frá börnum upp i ga'malt fólk. Og það er sama sagan með skákbækurnar og töflin. beir sem enga kunnáttu hafa i þessari iþrótt, kaupa sér kennslubækur, en aðrir fá sér bækur til þess að auka á góða kunnáttu. Mest virð- ist þó seljast af kennslubókunum, og ber þar fyrst að nefna: Teflið betur og Svona á ekki að tefla. Annars eru orðin „lærum að tefla” að verða einskonar kjörorð manna. í kaffitimum, og hádegis- hléum fyrirtækja sitja starfs- menn með sveitta kolla og velta vöngum yfir peðum og aðrir dunda sér við að setja upp stöð- una i einviginu. -EA Engu lofað um óframhald 6 þurrki Loksins gægðist sólin fram úr skýjunum á Suðurlandi, þar sem fólk hefur orðið að sætta sig við dumbungsveður I nærri mánuð. Viðast livar fór að létta til og birta upp úr helginni, eða um helgina, en þó var úrkoma á nokkrum stöðum aðfaranótt mánudags, eftir þeim upplýsingum sem við fengum hjá Veðurstofunni. Alls staðar voru hrifur teknar á loft, og dráttarvélar brunuðu um öll tún. Þegar slikur þurrkur kemur eftir alla úrkomuna, láta allir hendur standa fram úr ermum, enda timi til kominn að eitthvað sé gert i heyskapnum. F'yrir austan fjall fór að létta til og birta á sunnudag, og hefur þurrkur haldizt þar siðan, að þvi er veðurfræðingar segja. Ekki þora þeir þó að lofa neinu um áframhaldandi þurrk, á óþurrkasvæðunum fyrrverandi en veður verður þó rólegt og úrkoma getur orðið örlitil öðru hvoru. bó ekki neinar stór- rigningar. Og ef vikið er að veðrinu hérna i Reykjavik, þá hefur verið skýjað hér i allan morgun, en veðurfræðingar gáfu okkur góða von um að eitthvað muni glaðna til seinnipartinn. Sólin mun jafn- vel láta sjá sig, en þó um tak- markaðan tima. Hiti var i morgun klukkan niu, 9 stig. —EA „Skil ekki þessar róðstafanir „Ekkiskil ég hvaða ráðstafanir það eru hjá Menntamálaráðu- neyti að leggja niður „sport”- veiði hreindýra. Sport-veiði hefur verið mjög góð, og yfirleitt hafa verið að verki ágætis skotmenn, og litil brögð að þvi að dýr hafi særzt, þó að þau hafi auðvitað fundizt.”, sagði Agnar Bogason, i viðtali við blaðið, en Agnar hefur ásamt fleirum mikið stundað þess'ar svokölluðu ,,sport”-veiðar hreindýra. „Ekki hef ég heldur trú á þvi að dýrum hafi fjölgað um 1000 frá þvi á siðasta ári”, sagði Agnar ennfremur. „Þessirgömlu tuddar eru látnir halda lifi, en þeir halda fullum likamskröftum að öllu leyti, nema ekki kynferðislega. Þeirsafna i kringum sig kvendýr- um, og valda þvi að fjölgun getur ekki átt sér stað. En við sem höf- um veitt, höfum farið þetta á hestum yfirleitt, og veitt þessa gömlu eftir hornum.” — En getur ekki mikil hætta stafað af þessum veiðum, þegar nokkrir menn veiða i einu, og skotum er hleypt af hvaðanæva? „Nei, ekki mundi ég segja það, mannafli er alls ekki svo mikill. En hitter svo annað mál, aö sjálf- sagt er að prófa hverja skyttu, sem fer að veiða, áður en þeim er gefið leyfi til þess að fara upp. Það hefur t.d. komið fyrir að við hefum rekizt á særð dýr. Menntamálaráðuneyti hefur sem kunnugt er sett nýjar reglur um veiði hreindýra, og fela þær m.a. i sér að engin sport-veiöi verður leyfð. Egill Gunnarsson, hreindýra- eftirlitsmaður i Fljótsdal, sagði i viðtali við blaðið, að tvær aðal- breytingar hefðu veriö gerðar á reglunum. Er önnur sú að hreppum hefur nú verið fjölgað i 17, i stað 13 áður, og skipar hreppsnefnd i hverjum hreppi hreindýraeftir- litsmann. Hann er skipaður fyrir hvert veiöitimabil, sem stendur frá 7. ágúst til 20. september. Hverjum hreppi verða siðan út- hlutuð nokkur hreindýr, og er þá miðað við hvar þau ganga. Geta sumir hreppar fengið sjö dýr, en aðrir allt upp i 100, sem er það mesta. Hreindýareftirlitsmaður- inn er svo sá maður sem veiða má dýrin. Menntamálaráðuneyti hefur látið fara fram talningu á hrein- dýrahjörðinni austan lands, eins og tiðkast hefur. Voru talin 3598 dýr, en ekki reyndist hægt að telja dýrin i Viðidal og dölum þaðan austur til Breiðdals sökum þoku, en dýr voru þar 166 i fyra. Dýrin voru þá samtals 2650. —EA. SLAPP MEÐ HEILAHRISTING llára telpa sem var á reiöhjóli á Itey kjanesbraut móts við Fiskiðjuna í Keflavik, varö fyrir hifreiö um kl. 20.30 i gærkvöldi, þegar hún hjólaöi i veg fyrir bílinn. Tclpan hlaut höfuðáverka, og var óttast, aö hún heföi meiöst alvarlega, þegar hún var I flýti riutt á sjúkrahúsiö I Keflavik. í Ijós kom þó aö hún haföi sloppiö með hcilahristing. —GP Mengoðar" upplýsingar Það er ekki tekið út með sældinni að vera blaðamaður á 20. öldinni á íslandi, að minnsta kosti ekki þegar upplýsingar berast frá iðnaðarráðu- neytinu, sem berjast á gegn mengun, og þá væntanlega einnig mengun eins og þeirri, sem við birtum mynd af með þessu skrifi. Er engu likara en að Magnús Kjartansson og félagar hafi sagt upp rafmagnsritvélum sinum en tekið upp pennastengur i staðinn. Handrit þetta, sem blaðinu barst i gær er talið það mengaðasta, sem borizt hefur frá upphafi og ólæsilegt að mestu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.