Vísir - 01.08.1972, Page 9

Vísir - 01.08.1972, Page 9
Visir Þriðjudagur 1. ágúst 1972 9 Laugardalshöllina með fólki, sem kæmi til þess eins að glápa á tvo menn sitja að tafli það er hreint óskiljanlegt. Nú sjálfur er ég viss um að ég yrði þreyttur að glápa á tvo skákmenn, en það hlýtur þó að vera skemmtilegt að fylgjast með ýmsum frægum kempum eins og Najdorf gamla þegar hann er að útskýra — og sér aljtaf bezta leikinn — minnsta kosti fyrir k’ischer.” Og Bent hermir eftir tilburðum hins argentinska stórmeistara. ,,Hérna með kónginn” ,,Nei nei það er ekki hægt” ,,Jú það er allt.i lagi, hann getur ekki skákað þarna” o.s.frv. — Hvað finnst þér þá um kröfur Fischers og að hann hafi teflt fyrstu skákina under protest eins og það er kallað? ,,Ég skil nú aldrei þetta ,,under protest” hjá Fischer. Gat hann ekki mótmælt áður en einvigið hófst? Ef hann er á móti kvik- myndatökum, þá átti hann að kvarta fyrr. Hann er enginn sportmaður það er alveg á hreinu,” segir Larsen viss i sinni sök, eins og reyndar fleiri. Samtalinu er brátt lokið. Dvöl Larsens hérlendis verður ekki löng að þessu sinni, en hann gefur sérsamt tima frá öllu sinu amstri til að fylgjast með nokkrum skák- um i einviginu, þangað til hann flýgur til USA. Á þessu ári hefur hann tekið þátt i tveimur sterkum alþjóðlegum mótum. vann mót i Knglandi fyrir ofan Ljubosevic og Portisch, og lenti i 2-3. sæti i Las Palmas ásamt Smyslov á eftir Portisch. Þetta er hans lif að tefla og vinna stóra sigra, þó að hann sé ekki i eldlinunni eins og stendur. Við kveðjumst blm. Visis og Larsen að loknu ánægjulegu spjalli um hann sjálfan Fischer, Spasski og skákina i heiminum. GF ,,Það var hitinn i Denver, sem fór einvigið við Fischer. „En cg er En nú er hann kominn aftur þessi káti og siungi Dani. Hann er reyndar ekkert gamalmenni jafngamall Friðrik okkar, 37 ára að aldri. Hingað kemur hann á vegum Ekstrablaðsins og danska útvarpsins til að fylgjast með ein- viginu. Jafn kokhress og fyrri daginn, glaðlegur og fyndinn svaraði hann spurningum blm. Visis þeg- ar þeir mæltu sér mót i gær á Borginni en þar dvelur meist- arinn. — Hvað finnst þér um frammi- stöðu Spasskis? ,,Hún er slæm. Mjög slæm, seg- ir Larsen. Hann teflir greinilega undir styrkleika. bað er ekki gott að segja af hverju. Ég trúi þvi aldrei að hann sé hræddur við Fischer. Hann er taugaóstyrkur og slappur, leikur grófum af- leikjuin. Annars hefur hann átt góða kafia á milli. 4. skákin var mjög skemmtileg af hans hendi, en hvort hann átti vinning þar skal ég ekki segja um. — En Fischer, hvað finnst þér um taflmennsku hans? Jú. Hún er góð. Þvi verður ekki neitað. 3. skákin var sannfærandi hjá honum. En hvort hann vinnur einvigið. þó að það liti út fyrir það • þessa stundina, þori ég ekki að spá. Framkoma hans gagnvart andstæðingnum er þungt á met- unum, hann hefur náð sinum miklu yfirburðum út á þaö að taka andstæðinginn á taugum, o.s.frv. — En hinir stóru sigrar hans gegn Taimanov. þér og Pet- rosjan. Ég á erfitt með að útskýra þá. Kannski einvigið við Taimanov, þar var styrkleikamunur. Hvað mér viðkemur þá naut ég min aldrei vegna hitans. Loftslagið i 'eð mig,” segir Bent Larsen um enn sterkastur". að hann sé sterkasti skákmaður heimsins i dag, hvað þá allra tima. Einvigið segir ekki svo mikið. Það er árangur skák- mannsins gegnum árin.” — Hvern telurðu þá sterkasta skákmann allra tima? ,,Það er erfitt að segja. Ég myndi nefna nöfn eins og Phili- dor, Steinitz og Alhekina. Ef við vektum t.d. Alhekina til lifsins núna, þá kæmist hann örugglega i hóp tiu beztu núlifandi skák- manna — en-til þess þyrfti hann að kynna sér nútima tafl- mennsku. Skákin hefur breytzt svo mikið. Menn hafa miklu meiri þekkingu núna, miðað við það sem áöur var. Jafnvel Morphy hefði litið i skákmeistara nú- timans að segja. — Margir eru nú farnir að efast um að Spasski sé i raun og veru sterkari skákmaður en margir landar hans eins og t.d. Pet- rosjan. Hvað vildir þú segja um það? „Þeireru svipaðir að styrkleika. Það er rétt. Petrosjan skortir hörku eins og ég sagöi áðan. Það er hans veikleiki. i heims- meistaraeinviginu 1969 átti hann góða möguleika á að taka for- ystuna svona um miðbikið. En hánn beið átekta of lengi. Eins og Spasski teflir núna, þá eru áreiðanlega margir sovézkir skákmenn sem standa honum framar.” Þú sagðir siðast þegar þú komst hingað að sterkasti skák- maöur heimsins væri Bent Larsen. Nú spyr ég. Hver er sterkasti skákmaður heimsins i dag? Bent Larsen brosir i kampinn. Hann bendir samt þumalfingri sinum á brjóst sér og segir: „Að sjálfsögðu er það ég”. ÞAÐER ENGIN SÖNNUN ÞESS,AÐFISCHER SÉ STERKASTI SKÁKMAÐUR HEIMS, ÞÓ HANN VINNI EINVÍGIÐ, SEGIR BENT LARSEN hvergi áhugamennska lengur, hverju nafni sem iþróttagreinin nefnist. Áhugamennskan er jú góðra gjaida verð, hún er falleg og heiðarleg, en hún gagnar ekki lengur. FIDE hefur reynt að halda skákinni i skorðum áhuga- mennskunnar en það er vonlitið. Og þegar stefnt er til heims- meistaraeinvigis i Reykjavik þá duga auðvitað engar smáverð- launaupphæðir. Af þvi að FIDE hefur ekki úr miklu fé að spila þá ætti þaö að vera þakklátt Skáksambandinu islenzka fyrir að halda einvigiö hér með þeim góðu verðlaunum sem eru i boði. Og menn eins og Slater eiga lika mikið inni hjá FIDE með rausnarlegum tilboð- um sinum. Ætlar þú að fylgjast með einviginu til enda? „Nei. Ég hef ekki tima til þess, Ég fer héðan 11. ágúst til þess að taka þátt i Opna skákmótinu i Bandarikjunum og þaðan á annað mót þar vestra. Ég er heldur ekki svo viss um að ég myndi endast i það að horfa á allar skákirnar. Það sagði mér iþróttafréttaritari lrá Danmörku, sem hefur verið hér að það væri alveg makalaust hvað skákáhuginn væri mikill hér. Að það væri hægt að hálffylla Því ég er enn Daninn Bent Larsen er kominn til landsins, Hann er okkar vinsælasti and- stæðingur í skákinni og ófáir eru hildarleikirnir sem þeir hafa háð með sér hann og Friðrik Ólafsson. Siðast þegar Larsen var hérna tefldi hann sjónvarpseinvigi við Friðrik, fyrir ári og vann knapp- an sigur. Eftir það lá leið hans i „heljargreipar” Bobby Fischers þar sem hann beið lægri hlut eins og öllum er i fersku minni (6-0). Þá kvartaði hann um að hitinn hefði veriö of mikill I Denver og það hefði þrúgandi áhrif á tafl- mennsku sina. Hann hefði alls ekki notið sin og þess vegna varð hann að þola þungan skell. beztur bœtir hann við Denver var slæmt og dró úr getu minni til að tefla. Ef allt hefði verið eins og það átti að vera, góð skilyröi til að tefla, stæði ég lik- lega i sömu spcrum og Fischer nú: andspænis Spasski við tafl- borðið að tefla um heims- meistaratitilinn. Ég held jafnvel að Petrosjan hefði átt góða mögu- leika gegn Fischer i Buenos Air- es, skorti bara hörku. — Heldur þú að þér mundi tak- ast að vinna Fischer hér i Reykjavik nú? Já. örugglega. — Nú hafa sumir talað um Fischersem sterkasta skákmann fyrr og siðar, hvað finnst þér um þá skoðun? „Ég held að hún sé röng. Jafn- vel þó Fischer sigri þetta einvigi þá er enginn kominn til að segja Þú heldur ennþá fast við það? „Já. þvi ekki það. Ég hef enga ástæðu til þess að skipta um skoðun þó að ég hafi ekki haft tækifæri til að keppa um heim- meistaratitilinn að þessu sinni." — (Nóg um það). — Eru algjör atvinnumaður i skák? „Já, ég er það.Ég !ifi algjörlega á skák, bæði með þvi að tefla á mótum og skrifa bækur.” — Hvað um áhugamennsku i skák. Nú er t.d. Friðrik Ólafsson áhugamaður, en hann hefur samt náð umtalsverðum árangri við hlið manna sem hafa skákina að atvinnu sinni? Hvað segirðu um þetta? „Friðrik er örugglega heimsins bezti áhugaskákmaður. Ég hef margoft bent á það. Hann fór ekki út i þetta, af fullum krafti. Veit ekki af hverju. Mér finnst að ég og minir likar sem stefna mark- visst að þvi að ná góðum árangri i skákinni verði að vera atvinnu- menn. öðru visi verður enginn verulega öflugur. Hrein áhuga- mennska er ekki til lengur. Skákin er komin undir sama hatt og aðrar iþróttagreinar. Þú veizt að Brundage hefur barizt á móti atvinnumennskunm i iþróttunum. Það er til einskis. bað þrifst 1 i VISIR SIIVII 86611 Hverfisgötu 32 |

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.