Vísir - 01.08.1972, Page 12
12
Visir Þriðjudagur 1. ágúst 1972
ég bezt með þvi að segja, að ég
get ekki hugsað og skilið hlutina
eins fljótt og þú. Þess vegna á ég
erfitt með að læra, en lestu samt
þessa bók vel og vancflega, og þá
geturðu séð hvað ég get og hvað
ég get ekki.
Skrifa bók um
bœklaðan
dreng sinn, sv
ðnnur börn
eigi auð-
veidara með
að skilja hann
Thoinas Larsen, danskur sjö ára drengur, er að
mörgu leyti alveg eins og önnur börn. Hann leikur
sér, hann hlær og grætur, og hann borðar og sef-
ur. Ilann heiur alveg sömu þörf fyrir að vera
hamingjusamur og önnur börn. En Thomas er
ekki heilbrigður, hann hefur heilaskemmd.
,,En einmitt vegna þessa má
hann ekki verða einangraður
segja íoreldrar hans, llanne og
Erik Larsen, en þau hafa skril-
að hók um daglegt lif Thomas,
sem þau kalla: ,,I)av, skal vi
snakke sammen”, og tilgangur
með þessari bók er sá að þau
vonast lil að el'tir að hal'a lesið
hana komi fólk og þá aðallega
biirn til með að skilja þau börn
sem á þennan eða annan hátt
eru ekki heilbrigð likamlega eða
andlega.
Bókin mun sennilega verða
notuð við kennslu i barnaskólum
i Danmörku, ,,Þvi að það eru
börnin sem við treystum á”,
segja foreldrarnir. ,,Þau viður-
kenna Thomas, og hal'a hann
með sér i leikjum og öðru en það
erallt annað með fullorðna fólk-
ið, þaö veit ekki hvernig það á
að vera l'rammi l'yrir andlega
eða likamlega veikluðum börn-
um. En með bókinni viljum við
lika l'á l'ólk til þess að skilja að
þeir óheilbrigðu eiga ekki að
þurl'a að biðja um leyfi til þess
að fá að lifa. Þau eru jafn rétthá
og við hin sem þykjum heil-
brigð.”
Bókin segir frá daglegu lifi
Thomasar eins og áður segir,
allt l'rá þvi hann vaknar á morgn
ana, og þar til hann sofnar á i
kvöldin. t lyrsta kafla bókarinn-
ar er hann kynntur á þennan
hátt:
— Ég er bæklaður. Veiztu
hvað það er? Það er hægt að
vera bæklaöur á ýmsan hátt.
Kannski er það augað sem sér
ekki, eða ef til vill er það eyrað
sem getur ekkert heyrt. Ef til
vill geturðu ekki hreyft höndina,
eða kannski færðu ekki fótinn
þinn til þess að ganga.
Hjá mér er það heilinn, sem
ekki er heilbrigður. Þessu lýsi
Fred Astaire,
sem nú er 73 ára gamall segist
viss um að verða að minnsta kosti
100 ára gamall. ,,Vinir minir
segja að nú orðið geti ég kallað
mig gamlan. Ég er alls ekki á
sama máli. Ég get dansað alla
nýjustu dansana, og ég dansa á
hverjum einasta degi i 15 minút-
ur, svona rétt til þess að halda
mér léttum.” Þess má svo geta
að móðir hans er nú 93 ára gömul.
Einu
sinni
vor. .
Einu sinni var..., á vel við þessa
mynd sem við sjáum hér af þessu
hamingjusama pari við hjóna-
vigslu sina. En Elvis Presley og
kona lians fyrrverandi, Priseilla
liafa nú alveg slitið samvistum.
Astin sem virtist ótakmörkuð i
upphafi, fór smátt og smált að
dvina, og þar koma að Priscilla
l'luttist að heiman, og kom sér upp
hústað i öðru húsi i Memphis, cn
þar bjuggu þau hjón.
En það dugði ekki lengi, henni
heíur eflaust ekki fundizt fjar-
lægðin nógu mikil, þvi nú hefur
hún flutt sig úr borginni, ásamt
Ijögurra ára gamalii dóttur
þeirra og nú búa þær rnæðgur i
Los Angeles, meðan Presley situr
heima i Memphis.
A meðfyIgjandi mynd sjáum
við þau i brúðkaupi sinu lukku-
leg á að lita, en þau giftu sig með
mikilli viðhöfn i I.as Vegar árið
1907.
Kolling Stones, er sú hljómsveit sem stöðugt heldur velli sinum i sviðsljósinu, og allir fagna fréttum af
þeim félögum. Við birtum hér myndafeinum meðlima hljómsveitarinnar, Mick Jagger, sent alltaf hefur
verið nokkurs konar leiðarljós þeirra félaga. Mick Jagger heldur hér upp á 29 ára afmæli sitt, en hans
al'mæli var siðasta fimmtudag. 29 kertuni var komið fyrir á þessari griðarlegu stóru köku, en hvort
liunn hafði að slökkva á þeim öllum i einu fylgir ekki sögunni. Honum var færð kakan á siðustu hljóm-
leikum hljómsveitarinnar i Canada, cn það voru siðustu hljómleikarnir i þeirri þriggja mánaða hljóm-
leikaferðsem félagarnir tóku sér fyrir hendur i Bandarikjunum. Siðustu fréttir af þeim, eru þær að þeir
hvggjast nú yfirgefa Bandaríkin.