Vísir - 01.08.1972, Blaðsíða 13

Vísir - 01.08.1972, Blaðsíða 13
Visir Þriðjudagur 1. ágúst 1972 Umsjón: EDDA ANDRÉSDÓTTIR 13 Catherine Deneuve með dóttur sína ó sjúkrahús Fyrir um það bil mánuði síðan eignaðist leik- konan Catherine Denevue litla dóttur með italska kvikmyndaleikaranum Marcello Mastroianni. Sú litla var skirð Chiara. En fyrir nokkrum dögum veiktist litla Chiara, og hún gat ekki náð andanum i lengri tima. Catherine sem ekki hafði Marcello við höndina til þess að láta hann hjálpa sér, hringdi strax i góðan vin sinn og bað hann að aka sér með litlu dótturina á sjúkrahús. Þar fræddu læknar móðurina, á þvi að sú litla hefði fengið andarteppu, sem hægt yrði að lækna fljótt og að hún þyrfti engu að kviða. Og þeir stóðu við það þvi eftir nokkra tima gátu þær mæðgur haldið aftur heim á Georges Mandel götu. h* íara a b&gt með að anda, og Cathe- rine hleypur með liana inn i sjúkrahúsið. Lathcnne Denevue rennir uppað sjúkrahúsinu ineð litlu dótturiiia. Á sjúkrahúsinu sögðu læknarnir að hún hefði aðeins fengið svona mikla andarteppu, en þaðmátti varla tæpara standa. Faithful ó sjúkrahúsi vegna ofneyzlu heróins The London Evening News skýrði frá þvi á föstudag, að Marianne Faithful væri lögzt inn á sjúkrahús vegna heroinneyzlu. bessi 25 ára leik- og söngkona fór sjálfviljug til sjúkrahússins, sem staðsett er á Suður-Englandi, og þar hefur hún nú dvalið i sex vikur en búizt er við að hún muni að minnsta kosti verða þar i þrjár vikur til viðbótar. Marianne Faithful hefur neytt heróins um nokkurn tima, og þegar læknir sá er annast hana mest, var spuröur að þvi hvernig meðferð hún fengi sagði hann að hún fengi einfaldlega minni og minni skammt meö degi hverjum. Að gefa henni ekki neitt heróin væri brjálæði, en þessi að- ferð veldur henni ekki vanliðan og henni virðist veitast tiltölulega auövelt að mir.nka neyzluna. Faithful er einnig undir meðferö. sálfræðinga og láta þeir vel af andlegri liðan hennar. Henni er frjálst að yfirgefa sjúkrahúsið hvenær sem henni þóknast, en hún hefur sjálf kosið að vera þar út allan timann. Ásamt henni eru á sjúkrahúsinu 15 aðrir eiturlyfjaneytendur, sem hætt eru komnir. Faithfull dvelst a sjúkrahúsinu undir fölsku nafni, og sagt er að ekki nærri allt starfsfólkið viti hver hún i raun og veru er. í s^idi Hún er tignarleg, náttúran okkar Þessa mynd tók Guðlaugur Tryggvi Karlsson og sendi okkur. Hann var þarna á ferð i Dimmu- borgum og smellti þá mynd af nokkrum ferðalöngum, sem voru að prila innan um hina myndar- legu steinrisa ,sem gnæfa upp i loftið. Hún er falleg náttúran okk- ar. enda kunna margir að meta hana. Og nú er framundan mesta ferðahelgi ársins, verzlunar- mannahelgin, og liklega munu þeir ekki fáir sem kjósa að komast austur i Mývatnssveit, i Dimmuborgir eða eitthvað burtu frá útimótunum, þvi ekki falla þau i kramið hjá öllum. Drykkjuskapur fyrir norðan Blaðið tslendingur-tsafold skýrir frá þvi i siðustu viku að drykkjuskapur fari stórum vaxandi á Norðurlandi. t viðtali við blaðið segir Gisli Ólafsson, yfirlögregluþjónn að lögreglan hafi heldur betur oröið fyrir barðinu á þessu, afskipti af ölv uðum mönnum fari sifellt vaxandi og hafi gert allt þetta ár. Er nú búið aö setja um 450 manns i fangageymslur vegna ölvunar, en á sama tima i fyrra voru þeir ekki nema 260. Þá hafa mun fleiri verið teknir ölvaðir undir stýri en nokkru sinni fyrr. Kjarnorka frá islandi til Færeyja Keflviskir leikarar halda senn út fyrir landssteinana með Kjarnorku og kvenhylli, leikrit Agnars Þórðarsonar, sem sýnt var við feikna j»óðar undirtektir i Keflavik i vetur og vor. Fengu leikfélagarnir i Keflavik styrk frá norrænUm menningarmálasjóði til fararinnar og munu þeir sýna 3-4 sinnum i Þórshöfn um miðjan september. Siðar mun leikurinn svo tekinn upp aftur til sýninga i Keflavik. Ingólfur Amarson — hinn nýi. Nýr Ingólfur Arnarson bætist islenzka skipaflotanum innan skamms, það er hinn nýi skut- togari Bæjarútgerðar Reykjavik- ur, sem mun bera þetta gæfunafn, en nýja togaranum var hleypt af stokkunum i skipasm iðastöð Astilleros Luzuiagea i Pasajes de San Juan á Spáni núna fyrir helgina. Frú Ragnhildur Jóns- dóttir, kona Sigurjóns Stefáns- sonar, sem um margra ára skeið hefur verið skipstjóri á Ingólfi hinum eldra, gaf skipinu nafn. Er nýi togarinn systurskip B/v Bjarna Benediktssonar sem væntanlegur er til landsins i haust. Fólksvagninn efstur, en Ford og Fiat keppa Sem fyrr eru það Volkswagen- bilar. sem mest eru keyptir allra bila hér á landi. Alls 454 bilar voru seldir fyrri hluta þessa árs, samkv. tölum frá Hagstofunni. Fordbilar frá ýmsum þjóðum og af ýmsum gerðum voru alls 285, en 245 Fiat-bilar, 183 frá ttaliu og 62 frá Póllandi. Þá kemur Sun- beam. sem aukið hefur söluna mjög, með alls 211 bila. Skoda 209, Volvo 197, Toyota 195. Land Rover 168, Saab 159, Moskvitch 153. Af sendibilum var mest flutt inn af Moskvitch, 49 alls, og Mercedes-Benz var efstur i flokki vörubila með 41 innfluttan bil. Alls 3874 bilar voru fluttir inn á þessu timabili, en ekki fylgir sögunni hvert verðmæti þeirra er. Góö tiðindi fyrir flugfreyjur Sá orörómur, sem verið hefur býsna lifseigur gegnum árin, að flugfreyjum sé hættara við fósturláti en öðrum konum, á ekki við nein rök aö styðjast. Sagt er frá þessu i nýjasta hefti af Heilsu- vernd, og fréttin höfð eftir blaðinu The Practitioner. Rannsóknir á þessu hafa farið fram bæði i Sviss og Rússlandi. Ný röntgentæki til Siglu- fjaröar Þau voru orðin úr sér gengin röntgentækin við sjúkrahúsiö á Siglufiröi og þvi ástæða til að endurnýja. Og nú á dögunum komu ný tæki i staö 19 ára gamalla tækja. Tækin voru fengin frá Þýzkalandi og kostuðu 3.6 milljónir. Til kaupanna gaf Kven- félag Sigluf jarðar, sem er styrktarfélag sjúkrahússins 1.2 milljónir en fjárins hafa konurnar aflað með sölu heilla- skeyla og annarri starfsijmi. For- maður félagsins er frú Kristina Þorsteinsson, kona ólafs Þ. Þor- steinssonar yfirlæknis. Rikisstarfsmenn fyrir slikk i sólina Það kostar rikisstarfsmenn minna en flesta aðra að yfirgefa rigninguna og leiðindin, sem henni fylgja. Þeir fá sumsé 28% afslátt frá venjulegu verði i Mallorkaferðir Sunnu i september og i júni og júli, en 20% afslátt i ágúst. Þá hafa félagar i BSRB fyllt tvær Kaupmanna- hafnarferðir á svipuðum kjörum. BSRB og Sunna hafa viðtækt samstárf sin á milli um orlofs- ferðir til útlanda. VÍSIR AUGLÝSINGA- DEILD ER AÐ HVERFIS- GÖTU 32 SÍIVII 86611

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.